BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241206T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241206T213000
DTSTAMP:20250206T112833Z
CREATED:20241024T102701Z
LAST-MODIFIED:20250206T112833Z
UID:10001039-1733515200-1733520600@hannesarholt.is
SUMMARY:adrie íem
DESCRIPTION:Föstudagskvöldið 6. desember mun tónlistarmaðurinn Andri Ásgrímsson frumflytja verk sitt „adrie íem“ ásamt vel völdum vinum í Hannesarholti.Andri Ásgrímsson á að baki feril með hljómsveitumum Leaves\, Náttfari. Rif\, Stafrænn Hákon\, Kíra Kira ásamt tveimur sólóplötum undir eigin nafni.Nú er blásið til útgáfutónleika vegna þriðju sóló plötunnar.Andri mun leika m.a. á flygil/hljómborð\, Arnljótur Sigurðsson á þverflautu\, Freysteinn Gíslason á bassa og Emilía Benidikta Gísladóttir mun dansa en hún hefur verið einn okkar fremsti nútíma dansari síðastliðin ár og hefur m.a dansað með spænska konunglega dansflokknum. Arnar Guðjónsson(Leaves\, Warmland) sér um hljóðblöndun\nTónleikarnir hefjast kl. 20\, húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. Miðar fást á tix.is og miðaverð er 4.900 kr.\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/adri-iem/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/adrie-iem1000x600jpg.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241205T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241205T220000
DTSTAMP:20250206T113444Z
CREATED:20241111T131203Z
LAST-MODIFIED:20250206T113444Z
UID:10001046-1733428800-1733436000@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar Snorra Ásmundssonar
DESCRIPTION:Snorri Ásmundsson ætlar að vera með sína árlegu jólatónleika í Hannesarholti fimmtudaginn 5 desember kl 20:00. \nÁ dagskrá verður frumsamin tónlist eftir Chopin\, Bach\, Mozart og Snorra og einnig tónlist spiluð og spuninn af fingrum fram. \nÍ heimi klassískrar og samtímapíanótónlistar hefur Snorri Ásmundsson getið sér orð sem einn af áræðinustu og framsæknustu píanóleikurum í heiminum. Snorri sem er einmitt gjarnan sagður færasti píanóleikari í heiminum er ekki aðeins þekktur fyrir tæknilega leikni og virtúósíu\, heldur einnig fyrir einstaka nálgun sína og flutning\, hann hefur töfrandi áhrif á áhorfendur með nærveru og framkomu sinni. Hann blandar saman hefð\, framúrstefnu og hefur einstakt lag á að skapa einstakar upplifanir. \nMiðasala er á tix og kostar miðinn 5900 kr \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-snorra-asmundssonar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/11/snorri16x9-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241130T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241130T170000
DTSTAMP:20250206T113956Z
CREATED:20241126T115357Z
LAST-MODIFIED:20250206T113956Z
UID:10001052-1732953600-1732986000@hannesarholt.is
SUMMARY:Slagharpan Syngur Tónleikar og fyrirlestur um Jórunni Viðar
DESCRIPTION:Dagskrá Slaghörpunnar í Hljóðbergi\, Hannesarholti\, 30. nóvember:\nYuichi Yoshimoto (LHÍ)Snorri Sigfús Birgisson: Prelude for a New World\nOliver Raehni (LHÍ)Árni Björnsson: Sónata í d moll op. 3 – I. Allegro con fuoco\nStyrmir Þeyr Traustason (LHÍ)Jórunn Viðar: Hugleiðingar um 5 gamlar stemmur\nErna Vala ArnardóttirPíanótónlist Jórunnar Viðar – fyrirlesturJórunn Viðar: Sortnar þú ský\nNína Margrét GrímsdóttirJónas Tómasson: Sónata VIIIHallgrímur Helgason: Sónata nr. 2 – Adagio non troppo\nEdda ErlendsdóttirHafliði Hallgrímsson: Fimm stykki fyrir píanó\nKristín Jónína TaylorAtli Ingólfsson: …Ma la melodia\nSnorri Sigfús BirgissonSnorri Sigfús Birgisson: í Stundarheimi\nAðgangur er ókeypis en frjáls framlög eru velkomin!
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/slagharpan-syngur-tonleikar-og-fyrirlestur-um-jorunni-vidar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/11/slagharpansyngur-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241121T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241121T220000
DTSTAMP:20250206T115551Z
CREATED:20240930T121834Z
LAST-MODIFIED:20250206T115551Z
UID:10001029-1732219200-1732226400@hannesarholt.is
SUMMARY:Erna Vala í Hannesarholti
DESCRIPTION:Píanóleikarinn Erna Vala leikur verk eftir Jórunni Viðar\, Johannes Brahms og Béla Bartók. Tónleikarnir varpa ljósi á heimatilfinninguna. Af hverju Brahms og Bartók og af hverju skipta þessir hlutir máli yfirleitt? Sortnar þú ský eftir Jórunni Viðar hefur ekki enn verið gefið út\, en þetta verður í fyrsta sinn sem verkið verður leikið á opinberum tónleikum. Jóhannes Brahms 8 Klavierstücke\, Op.76 Jórunn Viðar Tilbrigði um íslenskt þjóðlag Béla Bartók Tveir rúmenskir dansar\, Op. 8a \nErna Vala hefur komið fram víða í Evrópu og Bandaríkjunum auk þess að vinna til verðlauna fyrir píanóleik. Þar má nefna heiðursorðuna Hvítu rósina frá forseta Finnlands\, Sauli Niinistö\, fyrstu verðlaun í efsta flokki EPTA- píanókeppninnar á Íslandi og Unga einleikara. Erna Vala hefur komið fram sem einleikari með hljómsveitum og spilað einleiks- og kammertónleika við ýmsar tónleikaraðir og tónlistarhátíðir. Erna Vala lauk bakkalárgráðu og diplómu í píanóleik við Listaháskóla Íslands hjá Peter Máté árin 2016 og 2017. Erna Vala er útskrifaðist með meistaragráðu í píanóleik frá Sibelíusarakademíunni árið 2019 undir handleiðslu Hömsu Juris. Auk þess hlaut hún meistaragráðu í hljóðfærakennslu frá Listaháskóla Íslands árið 2023 þar sem hún gengdi einnig stöðu forseta Stúdentaráðs LHÍ og forseta nemendafélags tónlistardeildar LHÍ. \nHún hefur nú aðsetur í London og vinnur að doktorsgráðu í Performance Research við Royal Academy of Music. Rannsóknin hennar skoðar hvernig mynda má nánara samband tónlistarflytjenda og áhorfenda út frá sjónarhorni sín sem tónlistarflytjanda í gegnum eigin reynslu sem flytjandi og endurgjöf áhorfenda. Hún er stofnandi og listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Seiglu en hátíðin er vettvangur rannsóknarinnar. Sem mikill talsmaður þess að hlúa að jákvæðum samfélögum starfar Erna Vala sem stofnandi og forseti Íslenska Schumannfélagsins sem hefur tileinkað sér það markmið að styðja við heilbrigt og virkt tónlistarlíf á Íslandi. Vefsíða Ernu Völu: https://www.ernavala.is/ \nMiðar á tix.is \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/erna-vala-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/20240828_194056.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241114T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241114T220000
DTSTAMP:20250206T121605Z
CREATED:20241004T102646Z
LAST-MODIFIED:20250206T121605Z
UID:10001036-1731614400-1731621600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvintett Jóels Pálssonar
DESCRIPTION:Kvintett Jóels Pálssonar í Hannesarholti 14. nóvember kl 20 \nSaxófónleikarinn Jóel Pálsson mætir í Hannesarholt með kvintett sinn sem skipaður er einvalaliði tónlistarmanna en á spennandi efniskrá tónleikana verða frumsamin verk Jóels í forgrunni. Jóel Pálsson hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi á undanförnum árum og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum á ólíkum sviðum tónlistar. Jóel hefur gefið út sjö plötur með frumsaminni tónlist auk fjölda platna sem sem hann hefur unnið í samstarfi við aðra. Hann hefur komið fram í Evrópu\, Bandaríkjunum\, Kanada og Kína á tónleikum og tónlistarhátíðum. Kvintett Jóels skipa Magnús Jóhann Ragnarsson á píanó\, Hilmar Jensson á gítar\, bassaleikarinn Birgir Steinn Theodórsson og Magnús Trygvason Elíassen á trommur. \nGengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. Tónleikarnir hefjast kl 20\, húsið opnar 19.30 og miðaverð er 4.900kr. Miðar á tix.is \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvintett-joels-palssonar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/76640F45-A20D-4AF3-BDD5-1BCD5EFD9762457185630_923300933170828_3188997942927492430_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241031T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241031T183000
DTSTAMP:20250206T123000Z
CREATED:20241001T150553Z
LAST-MODIFIED:20250206T123000Z
UID:10001035-1730395800-1730399400@hannesarholt.is
SUMMARY:AFLÝST Dúó fyrir selló og gítar.
DESCRIPTION:Tónlist fyrir gítar og selló flutt af Svani Vilbergssyni og Þórdísi Gerði Jónsdóttur.\nSamstarf Svans Vilbergssonar\, gítarleikara\, og Þórdísar Gerðar Jónsdóttur\, sellóleikara\, hófst vegna sameiginlegs dálætis þeirra á tónverkinu Tristia fyrir selló og gítar\, eftir tónskáldið og sellóleikarann Hafliða Hallgrímsson. Verkið samdi Hafliði fyrir gítarleikarann Pétur Jónasson og sjálfan sig\, í tilefni Listahátíðar 1984. Tristia er svíta í sjö stuttum þáttum og er innblásið af minningum úr barnæsku Hafliða á Íslandi\, en hann hefur um árabil verið búsettur í Bretlandi. Í verkinu eru hljóðfærin algjörir jafningjar og notar tónskáldið ýmsa ólíka en áferðarfagra hljóðfæratækni til að búa til fjölbreyttan og draumkenndan hljóðheim. Útkoman er einstök blöndun tveggja hljóðfæra\, þar sem laglínur og landslag renna saman í eitt. Verk Hafliða varð svo innblástur fyrir hljóðfæraleikarana að halda áfram samspili og munu einnig verða flutt verk eftir braselíska tónskáldið Radames Gnattali auk hinna sívinsælu spænsku sönglaga í útsetningu Manuel de Falla.\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-fyrir-sello-og-gitar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/celloggitar8x6.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241025T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241025T220000
DTSTAMP:20250206T124028Z
CREATED:20240909T093258Z
LAST-MODIFIED:20250206T124028Z
UID:10001022-1729886400-1729893600@hannesarholt.is
SUMMARY:RAVEN í Hannesarholti
DESCRIPTION:RAVEN í Hannesarholti 25. október kl 20 \nTónlistarkonan og lagahöfundurinn Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir\, eða RAVEN\, kemur fram í Hannesarholti þann 25. október næstkomandi. Hún mun flytja frumsamin lög\, nýtt efni í bland við gamalt og einnig vel valdar ábreiður sem hún heldur upp mikið upp á. Lýsa má tónlist RAVEN sem rólegu\, lagrænu poppi og búast má við góðri og persónulegri stemningu á þessum tónleikum. Komið og njótið ljúfra tóna RAVEN í Hannesarholti 25. október. \nMiðaverð er 4.900 kr og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/raven-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/RAVEN16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241019T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241019T180000
DTSTAMP:20250206T125255Z
CREATED:20241001T150248Z
LAST-MODIFIED:20250206T125255Z
UID:10001034-1729357200-1729360800@hannesarholt.is
SUMMARY:Rachmaninoff fyrir selló og píanó.
DESCRIPTION:Kitty Kovács píanóleikari og Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari spila sónötu í g-moll op.19 eftir Sergei Rachmaninoff (1873-1943). Verkinu hefur verið lýst sem sinfóníu fyrir selló og píanó\, bæði vegna þess aðþað er samið í sinfónísku formi en líka þar sem efniviðurinn er þykkur og stórbrotinn fyrir bæði hljóðfærin. Sónatan er óvenjuleg að því leyti að það er gjarnan píanóið sem kynnir ný stef og nýja kafla verksins og síðan tekur sellóið við með ýmist stærri eða skrautlegri útgáfu stefjanna. Verkið var frumflutt af sellóleikaranum Anatoliy Brandukov og Rachmaninoff sjálfum þann 2. desember árið 1901. Að auki leika Kitty og Þórdís hina frægu Vocalísu Rachmaninoffs. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/rachmaninoff-fyrir-sello-og-piano/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/celloogpiano16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241015T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241015T220000
DTSTAMP:20240923T162259Z
CREATED:20240923T162259Z
LAST-MODIFIED:20240923T162259Z
UID:10001027-1729022400-1729029600@hannesarholt.is
SUMMARY:Benjamín Gísli við flygilinn í Hannesarholti
DESCRIPTION:Þriðjudagskvöldið 15. október mun píanóleikarinn Benjamín Gísli Einarsson leika einleik á flygilinn í Hannesarholti. Á efnisskránni verða frumsamin verk eftir Benjamín ásamt klassískum íslenskum perlum. \nBenjamín\, sem er búsettur í Noregi\, nýtur mikillar velgengni í tónlistarsenunni þar og kemur reglulega fram á stærstu jazzhátíðum og jazzklúbbum landsins. Í fyrra gaf hann út plötuna Line Of Thought með tríói sínu\, sem hefur fengið frábæra dóma víða um heim. \n“Benjamín Gísli understands the use of silence as a sound” – George W. Harris\, Jazz Weekly (US) \n„Line Of Thought is a good debut and there’s purity and melancholic beauty in the stillness of the music.” – Kevin Ward\, Ukvibe (UK) \nhttps://orcd.co/bbsuite\nhttps://orcd.co/line_of_thought\nwww.benjamingisli.com \nTónleikarnir hefjast kl 20\, húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. Miðar fást á tix.is og miðaverð er 4.900 kr. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/benjamin-gisli-vid-flygilinn-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241003T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241003T220000
DTSTAMP:20250206T134129Z
CREATED:20240925T155553Z
LAST-MODIFIED:20250206T134129Z
UID:10001028-1727985600-1727992800@hannesarholt.is
SUMMARY:Stása Þorvaldsdóttir býður til hausttónleika í Hannesarholti
DESCRIPTION:Stása Þorvaldsdóttir býður til hausttónleika í Hannesarholti ásamt vinum sínum\, Védísi\, Guðmundi og Kristjáni fimmtudaginn 3.október kl.20. Ræktum saman vináttuna og hlýjuna í hjörtum okkar þótt úti blási og vetur nálgist. Það er svo dýrmætt að eiga stundina saman.\nMiðasala á tix.is \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/stasa-thorvaldsdottir-bydur-til-hausttonleika-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/stasa16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240926T201500
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240926T220000
DTSTAMP:20250206T134725Z
CREATED:20240822T184647Z
LAST-MODIFIED:20250206T134725Z
UID:10001006-1727381700-1727388000@hannesarholt.is
SUMMARY:Cauda Collective: Spegill\, spegill
DESCRIPTION:Spegill\, spegill \nHannesarholti\, 27. september 2024 kl. 20:15\nCauda Collective hefur tónleikaröð sína í Hannesarholti\, Eldblik\, með verkum eftir þær Eygló Höskuldsdóttur Viborg (f. 1989) og Jesse Montgomery (f. 1981). Leiknir verða strengjakvartettar og dúettar fyrir sópran og selló eftir bæði tónskáldin\, sem eiga það sameiginlegt að hafa stundað nám í New York. Verk Eyglóar Silfra og Kona lítur við einkennast af áferðarfögrum strófum þar sem flaututónar strengjahljóðfæra eru notaðir á frumlegan hátt. Verk Jesse\, Loisaida\, My Love og Break Away\, einkennast af leikglöðum en kraftmiklum laglínum sem oft eru unnar upp úr spuna. \n5.900 kr \nGengið inn frá Skálholtsstíg \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/eldblik-tonleikarod-cauda-collective/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/spegillspegill-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240921T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240921T220000
DTSTAMP:20250206T135332Z
CREATED:20240829T141837Z
LAST-MODIFIED:20250206T135332Z
UID:10001018-1726948800-1726956000@hannesarholt.is
SUMMARY:Hipsumhaps í Hannesarholti
DESCRIPTION:Laugardaginn 21. september ætla Hipsumhaps að halda tónleika í Hannesarholti. Við ætlum að hafa það næs saman og láta hversdagsskáldið Fannar Inga Friðþjófsson leiða gesti í gegnum tóna og tal líkt og enginn sé morgundagurinn. Þetta hefur staðið til lengi og við hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Miðaverð er 4.900 kr og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hipsumhaps-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/hipsumhaps.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240920T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240920T220000
DTSTAMP:20240826T164857Z
CREATED:20240826T162211Z
LAST-MODIFIED:20240826T164857Z
UID:10001014-1726862400-1726869600@hannesarholt.is
SUMMARY:Lífið er lotterí í Hannesarholti
DESCRIPTION:Loksins mætir Kómedíuleikhúsið í borgina með hina vinsælu sýningu Lífið er lotterí\nSýnt verður í Hannesarholti Grundarstíg 10 Reykjavík. \nLífið er lotterí er söngdagskrá tileinkuð textasmiðnum og leikskáldinu Jónasi Árnasyni. Hver kannast ekki við slagara á borð við Langi Mangi\, Við heimtum aukavinnu\, Hæ hoppsasí\, Riggarobb\, Einu sinni á ágústkvöldi\, Augun þín blá og þannig mætti lengi telja. Sýningunni hefur verið frábærlega vel tekið og sýnd margsinnis í Kómedíuleikhúsinu fyrir vestan við dillandi og dirrindí fjöldasöng gesta. \nSegja má um Jónas með hans eigin orðum úr einu af hans vinsælu söngtextum\, sem kóngur ríkti hann\, og bæta við yfir leiksviði og fjöldasamkomum í áratugi og gjörir enn. Þegar landsmenn koma saman þá er oftar en ekki sungið eitthvað úr smiðju Jónasar Árnasonar. \nÞetta verður syngjandi hér og syngjandi þar skemmtilegt kveld þar sem þrjú á sviði munu flytja perlur Jónasar og allir syngja með. \nSýningardagar: 19. september kl. 20.00 og 20. september kl. 20.00. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lifid-er-lotteri-i-hannesarholti/2024-09-20/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leiklestur,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/komediuleikhusid.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240919T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240919T220000
DTSTAMP:20240826T164857Z
CREATED:20240826T162211Z
LAST-MODIFIED:20240826T164857Z
UID:10001013-1726776000-1726783200@hannesarholt.is
SUMMARY:Lífið er lotterí í Hannesarholti
DESCRIPTION:Loksins mætir Kómedíuleikhúsið í borgina með hina vinsælu sýningu Lífið er lotterí\nSýnt verður í Hannesarholti Grundarstíg 10 Reykjavík. \nLífið er lotterí er söngdagskrá tileinkuð textasmiðnum og leikskáldinu Jónasi Árnasyni. Hver kannast ekki við slagara á borð við Langi Mangi\, Við heimtum aukavinnu\, Hæ hoppsasí\, Riggarobb\, Einu sinni á ágústkvöldi\, Augun þín blá og þannig mætti lengi telja. Sýningunni hefur verið frábærlega vel tekið og sýnd margsinnis í Kómedíuleikhúsinu fyrir vestan við dillandi og dirrindí fjöldasöng gesta. \nSegja má um Jónas með hans eigin orðum úr einu af hans vinsælu söngtextum\, sem kóngur ríkti hann\, og bæta við yfir leiksviði og fjöldasamkomum í áratugi og gjörir enn. Þegar landsmenn koma saman þá er oftar en ekki sungið eitthvað úr smiðju Jónasar Árnasonar. \nÞetta verður syngjandi hér og syngjandi þar skemmtilegt kveld þar sem þrjú á sviði munu flytja perlur Jónasar og allir syngja með. \nSýningardagar: 19. september kl. 20.00 og 20. september kl. 20.00. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lifid-er-lotteri-i-hannesarholti/2024-09-19/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leiklestur,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/komediuleikhusid.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240915T180000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240915T200000
DTSTAMP:20250206T141927Z
CREATED:20240702T140514Z
LAST-MODIFIED:20250206T141927Z
UID:10000998-1726423200-1726430400@hannesarholt.is
SUMMARY:AFLÝST: Duo Norden í Hannesarholti
DESCRIPTION:DUO NORDEN \nEinar Steen-Nökleberg piano\nAnna Rögnvaldsdóttir\, fiðla \nEinar Steen-Nökleberg hinn margverðlaunaði og heimsþekkti norski pianisti og Anna Rögnvaldsdóttir fiðluleikari\, fyrrum meðlimur Sinfóníuhljómsveitar Íslands\, Árósa og Stavanger\, flytja tónlist alt frá miðöldum til vorra daga. Tónlist og umfjöllun um og eftir Snorra Sturluson\, A. Corelli\, W. A Mozart\, L. van Beethoven\, E. Grieg\, P. Sarasate\, Sveinbjörn Sveinbjörnson\, og fleiri. \nEinar Steen-Nöklaberg hefur hlotið öll verðlaun sem hægt er að fá í Noregi. Hann er riddari av St. Olafs orden\, og hefur einnig hlotið margar viðurkenningar erlendis. Hann hefur farið í tónleikaferðalög um allan heim og gefið út yfir 50 hljómplötur\, nú síðast á þessu ári\, geisladisk með öðrum þekktum norskum pianista\, Håvard Gimse\, með sónötum eftir Grieg og Mozart. Hann hefur 862 860 hlustendur á Spotify í hverjum mánuði. Han var lengi professor bæði við Staatliche Hochschule fur Musik und Theater i Hannover i Þýskalandi\, og við Tónlistarháskóla Noregs. Hann hefur leikið med hinum fremstu hljómsveitum í Noregi og erlendis\, og er eftirsóttur sem kennari fyrir Masterclass bæði í Noregi\, USA og annarsstaðar\, meðal annars í Kína. \nAnna Rögnvaldsdóttir hefur\, eins og áður er sagt\, spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Árósa og Stavanger. Hún hefur spilað á mörgum tónleikum\, bæði kammermúsikk og sóló\, t.d með Foreningen Norden\, sérstaklega í Noregi\, Óslo og Hedmark. T.d með hollenska píanistanum Margerethe Stassen og nú í þrjú ár með Einar Steen-Nökleberg. Hún hefur staðið fyrir mörgum tónleikum með TÓNLIST GEGNUM TÍÐINA\, með sínum prívatskóla og samverkamönnum. Norsk musikkforlag og Musikkhusets forlag hafa gefið út tvær bækur eftir hana. Fokus fiolin\, og stutta ævisögu um norska heimsþekkta fiðlupedagóginn Maia Bang. \n5.900 kr \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/14320/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/07/Duo-Norden-2-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240831T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240831T220000
DTSTAMP:20250206T142635Z
CREATED:20240502T154649Z
LAST-MODIFIED:20250206T142635Z
UID:10000989-1725134400-1725141600@hannesarholt.is
SUMMARY:Á inniskónum: Elín Hall og Magnús Jóhann
DESCRIPTION:Á inniskónum: Elín Hall og Magnús Jóhann \n31.ágúst 2024 \n25. maí kl 20 \nVegna óviðráðanlegra aðstæðna við kvikmyndagerð sem Elín er á kafi í neyðumst við til þess að fresta tónleikunum þangað til 31. ágúst. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en miðahafar fá tölvupóst þar sem þeim býðst endurgreiðsla ef ný dagsetning hentar þeim ekki. Ansi leitt með þessum fyrirvara en vonandi sjá flestir sér fært að mæta í haust! \nÁ inniskónum er spjalltónleikaröð Magnúsar Jóhanns píanóleikara þar sem hann fær til sín gesti víðsvegar að úr tónlistarlífi íslendinga. Magnús setur tónlist viðmælenda sinna í nýjan búning með dyggri aðstoð hljóðgervla\, trommuheila og hljómborða af ýmsum toga og spyr þá svo spjörunum úr. Gestur Magnúsar þann 25. maí nk. er tónlistarkonan Elín Hall. \nHún skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Lof mér að falla árið 2018. Hún er lagahöfundur\, leikkona og söngkona og hefur undanfarin ár starfað bæði við leiklist og tónlist. Nýjasta hljómplata hennar heyrist í mér? hlaut Kraumsverðlaunin\, var tilnefnd sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum og hlaut einnig tilnefningar fyrir söng og textagerð. Um þessar mundir fer Elín með hlutverk ungrar Vigdísar Finnbogadóttur í þáttum Vesturports um ævi hennar samhliða öðrum verkefnum. Magnús og Elín kynntust fyrst þegar þau léku saman í hljómsveitinni Náttsól en Magnús hefur einnig leikið inná hljómplötur hennar í gegnum tíðina. Þau munu ræða sköpunarferli Elínar\, vegferð hennar í tónlistinni\, hvernig leiklistin kemur inn í þetta allt saman auk þess að telja í vel valin lög eftir Elínu. \nMiðaverð er 5.900 kr og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/a-inniskonum-elin-hall-og-magnus-johann/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/05/magnusogelinvefurinn.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240824T130000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240824T170000
DTSTAMP:20250207T105755Z
CREATED:20240822T125457Z
LAST-MODIFIED:20250207T105755Z
UID:10001004-1724504400-1724518800@hannesarholt.is
SUMMARY:Menningarnótt í Hannesarholti
DESCRIPTION:Hljómsveitin Emma ræður dagskránni í Hljóðbergi Hannesarholts og býður til sín Andervel og Ateria\, auk þess Emma spilar. Það verður sannkölluð tónlistarveisla frá kl. 13:00-17:00 á Menningarnótt. Aðgangur ókeypis\, gengið inn frá Skálholtsstíg. \nAndervel kl 13\nEmma kl 14\nAteria kl 16\nEmma: \nEmma flytur Folk tónlist yfir víðtækan hljóðheim. Hljómsveitina stofnuðu systkinin Sindri Snær Ómarsson og Breki Hrafn Halldóru Ómars og skipar einnig Ásgeir Kjartansson og Óðal Hjarn Grétu. Saman hafa þau samið fjölbreytt samansafn af einlægri tónlist og eru að vinna í sinni fyrstu plötu. Hljómsveitin hefur vakið athygli fyrir dýnamíska og grípandi flutninga. \nEmma is an Icelandic atmospheric folk band. The project was created by siblings Sindri Snær Ómarsson and Breki Hrafn Halldóru Ómars as well as Ásgeir Kjartansson and Óðal Hjarn Grétu. Together they have created a diverse set of songs that aim to encapsulate different emotions. The band is known for dynamic and gripping live performances and is currently working on their first album. \nAndervel: \nAndervel er listamannanafn lagahöfundarins og tónskáldsins José Luis Anderson. Hann er fæddur í miðri Mexíkó en með aðsetur á Íslandi og hefur gefið út 2 EP-plötur: Noche (2020) og Montenegro (2024). \nAndervel er virkur umboðsmaður grasrótarsenunnar í Reykjavík og einlæg rödd í íslensku tónlistarpallettunni. Hljómur Andervels er sjaldgæf perla í spænskumælandi tónlist samkvæmt bandaríska blaðinu „Al Día“. Stemningin er hjartnæm og heiðarleg og tónlist hans er undir áhrifum af sterkri mexíkóskri lagahefð\, folk tónlist og íslensku tónlistarlífi. Andervel býr til blöndu af folk tónlist\, poppi\, alternative tónlist og traditional tónlist. \nAuk tónlistarverkefnis síns vinnur José sem verkefnastjóri og viðburðaframleiðandi við margar menningarstofnanir í Reykjavík til að skapa rými fyrir tónlistarfólk. Andervel er einnig hluti af kórnum/collective-inu Kliður. \n/// Andervel is singer-songwriter and composer. Born in central Mexico\, based in Iceland\, the musician has released 2 EPs: Noche (2020) and Montenegro (2024). \nAndervel is an active agent of the grassroots scene in Reykjavik and a genuine voice in the Icelandic palette. \nCelebrated as a rare pearl in Spanish language by American press outlet “Al Día”\, Andervel’s sound has been described as earnest\, heartfelt and intimate\, and his music is influenced by a strong Mexican song tradition\, folk music and the Icelandic music scene. Andervel’s production is a blend of folk\, pop\, alternative and traditional music. \nIn addition to his music project\, Andervel collaborates as a project manager and event producer with cultural institutions in Reykjavik\, to create spaces for all musical proposals in to showcase their work. Andervel is also part of the Klíður choir/collective. \nAteria: \nAteria er skipuð systkinunum Ásu og Eiri og frænku þeirra Fönn. Hljómsveitin hefur verið starfandi síðan 2017\, þau unnu Músíktilraunir árið 2018 og gáfu út sína fyrstu plötu\, and_vara\, í október 2021. Síðan þá hefur margt borið á daga hljómsveitarmeðlima\, en þau taka upp þráðinn þegar tækifæri gefast. Allir meðlimir hljómsveitarinnar hafa stundað bæði klassískt og rytmískt tónlistarnám til margra ára og er því tónlist hljómsveitarinnar fjölbreytt\, en hefur þó verið lýst sem þjóðlaga-goth. Nafnið „Ateria“ er dregið af latneska heiti æðarfuglsins\, Somateria mollissima\, sem er sameiginlegt áhugamál allra hljómsveitarmeðlimanna. \nAteria is composed of siblings Ása and Eir and their cousin Fönn. The band has been active since 2017\, they won Músíktilraunir\, The Icelandic Music Experiments\, in the spring of 2018 and released their first album\, and_vari\, in October 2021. All the band members have studied classical music for many years and entwine different musical styles and genres into their songs. The name ‘Ateria’ is taken from the latin name of the eider duck\, Somateria mollissima\, which is a common interest of all the band members.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/menningarnott-i-hannesarholti-4/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/image_123650291.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240822T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240822T220000
DTSTAMP:20250207T111907Z
CREATED:20240806T105648Z
LAST-MODIFIED:20250207T111907Z
UID:10001000-1724356800-1724364000@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljúfir tónar um tilveruna í Hannesarholti
DESCRIPTION:Ljúfir tónar um tilverunaÁ þessum tónleikum verða flutt lög\, íslensk jafnt sem erlend sem fjalla á ljúfum nótum um gleði og alvarlegri hliðar tilverunnarFlytjendur eru.Söngvarar: Halldóra Eyjólfsdóttir messosópran\, Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir sópran\, Salka Rún Sigurðardóttir sópran og Þorsteinn Þorsteinsson baritón.Meðleikarar: Friðrik Vignir Stefánsson á piano\, Óskar Magnússon á gítar og Jón Guðmundsson á flautu.Söngvararnir hafa öll stundað söngnám og lokið prófum frá söngskólum í Reykjavík og sum verið í framhaldsnámi á erlendri grund.. Öll hafa þau einnig margra áratuga reynslu í söng með kórum auk einsöngs í hinum ýmsu verkefnum. Þau eru félagar í Kammerkór Seltjarnarneskirkju þar sem Friðrik Vignir ræður ríkjum.Meðleikararnir hafa allir langt nám að baki á sín hljóðfæri og meðfram sínu starfi sem hljóðfæraleikarar hafa þeir kennt við tónlistarskóla víðsvegar um land til lengri og skemmri tíma. \n„Tónleikarnir voru hreint yndi og var ótrúleg orka í kirkjunni\, sjaldan eða aldrei fundið annað eins. Dýrðarstund. Ragnhildur og Óskar voru frábær.“ –\nAðalsteinn Bergdal sem mætti á tónleika í Hrísey. \nSorry\, your browser doesn't support embedded videos.KAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljufir-tonar-um-tilveruna-i-hannesarholti-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/450611140_1016202337179434_6059545139002493190_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240821T203000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240821T220000
DTSTAMP:20250207T112156Z
CREATED:20240813T144810Z
LAST-MODIFIED:20250207T112156Z
UID:10001003-1724272200-1724277600@hannesarholt.is
SUMMARY:Hannes Arason kvartett í Hannesarholti
DESCRIPTION:Djasstrompetleikarinn Hannes Arason hefur undanfarin þrjú ár stundað nám í Stokkhólmi\, þar sem hann stofnaði hljómsveitina Hannes Arason Kvartett. Svíarnir úr kvartett Hannesar eru nú á leið til landsins og hyggst hljómsveitin halda tónleika í Hannesarholti miðvikudaginn 21. ágúst. Kvartett Hannesar spilar frumsamda\, framsækna djasstónlist sem leggur áherslu á samspuna með djúpri hlustun. Hljómsveitin blandar saman flæðandi dýnamískum köflum og þéttskrifuðum útsetningum. Taktfastir rytmar\, ómþýðir hljómar og frjáls spuni mynda heild sem kemur sífellt á óvart. \nHannes Arason – trompet\, flügelhorn Oskar Nöbbelin – píanó Amanda Karström – kontrabassi Filip Öhman – trommur Hannes Arason er upprennandi trompetleikari á íslensku og sænsku tónlistarsenunni. Hann gaf út sína fyrstu plötu\, Frífólk\, í febrúar 2024\, þar sem hann blandaði frjálsum spuna saman við áhrifum frá sænskri og íslenskri þjóðlagatónlist. Í tónlist sinni leggur hann áherslu á frjálsan spuna\, tilraunamennsku og samruna mismunandi tónlistarstefna. Hannes útskrifaðist vorið 2024 með bakkalárgráðu í djasstrompetleik frá Kungl. Musikhögskolan i Stockholm og áður kláraði hann burtfarapróf í rytmískum trompetleik frá MÍT. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30\, miðaverð er 4.900 krónur og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/14490/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240815T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240815T220000
DTSTAMP:20250207T112330Z
CREATED:20240809T153104Z
LAST-MODIFIED:20250207T112330Z
UID:10001002-1723752000-1723759200@hannesarholt.is
SUMMARY:Romain Collin\, S. Carey og rafhljómsveitin Foss í Hannesarholti
DESCRIPTION:Romain Collin\, píanóleikari og tónskáld\, heldur tónleika í tveimur þáttum í Hannesarholti 15 ágúst. Kl.20 \nRomain heldur til í New York og hefur í tvígang verið tilnefndur til Grammy verðlauna. Hann hefur komið til Íslands ítrekað síðan 2019 og hefur haldið þrennar tónleikaraðir í Hannesarholti og í Vík í Mýrdal. \nFyrir hlé leikur hann með söngvaranum og lagahöfundinum S.Carey\, sem ferðast líka um heiminnn sem trommari og er einn af stofnmeðlinum hljómsveitarinnar Bon Iver. Collin og Carey héldu saman tónleika síðasta vetur á Íslandi og hittast nú aftur á einstöku tónleikakvöldi í Gamla bíói. \nEftir hlé kynnir Romain rafhljómsveit sína FOSS\, verkefni sem hann skapaði í einangrun á Íslandi í heimsfaraldrinum. FOSS er þekkt fyrir að blanda saman „vintage“ og framsækinni tækni og hefur þróast yfir í kvikmyndaverk sem skapar kraftmikla sjónræna-og hljómræna upplifun með því að blanda stórbrotinni kvikmyndun við lifandi elektrónískan tónlistarflutning. Hér er um einstakan viðburð að ræða. \nCheck out FOSS: \nhttps://www.youtube.com/watch?v=J97xpiOhZME \nhttps://www.youtube.com/watch?v=dfIRxp0yI9M \nCheck out S. Carey \nhttps://www.youtube.com/watch?v=mpdZZhRBnOg \nhttps://www.youtube.com/watch?v=vayNV5c6thg \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/romain-collin-s-carey-og-rafhljomsveitin-foss-i-gamla-bioi/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/rett-mynd-Romain-scaled-e1723565465238.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240707T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240707T160000
DTSTAMP:20250207T113303Z
CREATED:20240605T151416Z
LAST-MODIFIED:20250207T113303Z
UID:10000995-1720364400-1720368000@hannesarholt.is
SUMMARY:Anna Gréta í Hannesarholti
DESCRIPTION:Anna Gréta sólótónleikar Píanóleikarinn\, söngkonan og tónskáldið Anna Gréta hefur verið búsett í Svíþjóð síðustu ár\, en síðan hún var valin bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaunum 2015 hefur hún raðað að sér verðlaunum og tilefningum bæði hérlendis og í Svíþjóð. Eftir tvær plötur hjá einni virtustu jazzútgáfunni í dag\, ACT Music; Nightjar in the Northern Sky (2021) og Star of Spring (2024) er hún komin í fremstu röð jazztónlistarfólks á Norðurlöndum. Báðar plötur hlutu lof gagnrýnenda víðsvegar um heim og hefur tónlist hennar verið streymt yfir 2\,5 milljón sinnum á streymisveitum. Í Hannesarholti býður Anna Gréta upp á blöndu af eigin efni\, ábreiðum og sígildum jazzperlum ein við flygilinn. \nTónleikarnir hefjast kl. 20:00\, 5.900 kr \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/anna-greta-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/06/anna-gretar-scaled-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240614T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240614T213000
DTSTAMP:20250207T113752Z
CREATED:20240605T150640Z
LAST-MODIFIED:20250207T113752Z
UID:10000994-1718395200-1718400600@hannesarholt.is
SUMMARY:Á inniskónum: Bjarni Daníel & Magnús Jóhann
DESCRIPTION:Á inniskónum er spjalltónleikaröð Magnúsar Jóhanns píanóleikara þar sem hann fær til sín gesti víðsvegar að úr tónlistarlífi íslendinga. Magnús setur tónlist viðmælenda sinna í nýjan búning með dyggri aðstoð hljóðgervla\, trommuheila og hljómborða af ýmsum toga og spyr þá svo spjörunum úr. Gestur Magnúsar þann 14. júní nk. er tónlistarundrið Bjarni Daníel Þorvaldsson. \nBjarni Daníel er gítarleikari\, söngvari og lagahöfundur sem hefur verið hluti af mörgum og mismunandi tónlistarverkefnum í gegnum tíðina. Sem dæmi um þau ævintýri sem hafa á daga hans drifið eru hljómsveitirnar Vára\, bagdad brothers\, Supersport! og stofnun listasamlagsins post-dreifing svo að nokkur dæmi séu tekin. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í grasrótarsenu Reykjavíkur frá því hann var á menntaskólaaldri og undanfarin misseri hefur hann farið að koma fram einn síns liðs í auknu mæli og það gæti gerst að hann bjóði upp á einyrkjaplötu nú á næstunni. \nMagnús og Bjarni Daníel kynntust fyrst í Verzlunarskóla Íslands þar sem þeir voru saman í Málfundafélagi og Stuðmannasöngleik. Síðan þá hefur Magnús fylgst með ferli Bjarna úr fjarska og dáðst að verkum hans en hingað til hafa þeir ekki komið mikið fram saman. Hljómleikar þeirra í Hannesarholti verða því sjaldgæft færi á því að heyra þá koma fram saman. Þeir munu telja í vel valin lög eftir Bjarna og ræða sköpunarferli hans. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/a-inniskonum-bjarni-daniel-magnus-johann/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/06/445179857_983914543741547_2627395704265485422_n-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240605T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240606T213000
DTSTAMP:20250207T113929Z
CREATED:20240605T113405Z
LAST-MODIFIED:20250207T113929Z
UID:10000992-1717617600-1717709400@hannesarholt.is
SUMMARY:Bræðralag: Ómar Guðjónsson og Tómas R.Einarsson í Hannesarholti
DESCRIPTION:Fimmtudaginn 6. júní kl. 20 efna þeir Ómar Guðjónsson gítarleikari og Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari til tónleika í Hannesarholti og rifja upp dúóplötu sína Bræðralag (2015). Þeir félagar hafa spilað saman í tvo áratugi\, ýmist tveir einir eða í fjölmennari hljómsveitum\, innanlands og utan: Flatey\, Djúpavík\, Moskva\, Andorra\, Berlín\, Havana. Í samvinnu þeirra hefur músíkölsk samræða alltaf verið æðsta markmiðið\, hvort sem um er að ræða sveiflu\, latíntónlist eða ballöður. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/braedralag-omar-gudjonsson-og-tomas-r-einarsson-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240601T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240601T210000
DTSTAMP:20250207T114133Z
CREATED:20240424T094216Z
LAST-MODIFIED:20250207T114133Z
UID:10000987-1717272000-1717275600@hannesarholt.is
SUMMARY:Ellen og Eyþór í Hannesarholti
DESCRIPTION:Ellen & Eyþór í Hannesarholti  1. júní kl 20  Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson munu syngja og spila sín uppáhaldslög frá fjölbreyttum ferli þeirra í Hannesarholti þann 1. júní. Ellen stimplaði sig inn í hug og hjörtu íslendinga þegar hún sló í gegn með hljómsveitum á borð við Mannakorn\, Tívolí og Ljósin í bænum. Hún hefur starfað sem söngkona allar götur síðan og komið víða við í sinni tónlistarsköpun. Sungið með Borgardætrum og mikið með bróður sínum\, Kristjáni Kristjánssyni\, einnig þekktum sem KK. Eyþór Gunnarsson er píanóleikari og einn athafnamesti tónlistarmaður íslandssögunnar. Hann stofnaði hljómsveitina Mezzoforte árið 1977 sem sló síðar eftirminnilega í gegn með lagi Eyþórs\, Garden Party. Hann hefur komið fram með óteljandi mörgum listamönnum í gegnum tíðina og einnig sinnt upptökustjórn fyrir listamenn á borð við Bubba Morthens\, Gunnar Þórðarsson og fleiri. \nTónleikarnir hefjast kl 20 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nAðgangseyrir: 5.900 kr \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ellen-og-eythor-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/ellenogeyviheimasida-2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240529T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240529T220000
DTSTAMP:20250207T114316Z
CREATED:20240422T164746Z
LAST-MODIFIED:20250207T114316Z
UID:10000986-1717012800-1717020000@hannesarholt.is
SUMMARY:Ingi Bjarni Skúlason - Einleikur á flygilinn í Hannesarholti
DESCRIPTION:Miðv 29. maí kl 20:00 \nIngi Bjarni Skúlason – Einleikur á flygilinn í Hannesarholti Ingi Bjarni mun leika vel valin lög af sóló píanó plötu sinni „Lessons“ frá 2021\, ásamt því að leika nokkur stykki af tríó plötunni „Fragile Magic“ sem kom út í mars. Búast má við spuna\, temmilega angurværum laglínum\, tónlist sem er hvorki í dúr né moll og stemmningu. Sem flytjandi og tónskáld hefur Ingi Bjarni gefið út sex plötur með eigin verkum\, leikið eigin tónsmíðar með fjölda tónlistarfólks á Íslandi og í Evrópu\, gefið út nótnabók o.s.frv. Ingi Bjarni hefur hlotið mikla athygli og viðurkenningu erlendis fyrir plötur sínar\, en þær hafa allar fengið jákvæða gagnrýni í erlendum miðlum. „this intriguingly gifted pianist has for some time now shown an impressive ability to shape his own world\, his own poetics“. – Jazz Journal (UK) \nTónleikar Inga Bjarna hefjast kl 20\, miðaverð er 4.900 krónur og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/13426/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/Ingi-16_9-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240518T150000
DTEND;TZID=UTC:20240518T160000
DTSTAMP:20250207T114855Z
CREATED:20240408T204454Z
LAST-MODIFIED:20250207T114855Z
UID:10000854-1716044400-1716048000@hannesarholt.is
SUMMARY:Minning um sumar - tónleikar
DESCRIPTION:Um tónleikana \nSolveig Óskarsdóttir og Anna Þórhildur Gunnarsdóttir flytja sönglög víðsvegar að úr heiminum í Hannesarholti laugardaginn 27.apríl kl.15. Þær taka áheyrendur í ferðalag um björt sumarkvöld og kalda vetrarmorgna. Efnisskráin er blanda þekktra sem og minna fluttra verka\, m.a. eftir tónskáldin Kurt Weill\, Poldowski\, Jean Sibelius og Isabelle Aboulker\, og eru kventónskáld í forgrunni á efnisskránni. \nUm Dúó Áróru \nPíanistinn Anna Þórhildur Gunnarsdóttir og söngkonan Solveig Óskarsdóttir kynntust í Listaháskóla Íslands og stofnuðu Dúó Áróru í meistaranámi sínu við Tónlistarháskólann í Maastricht fyrir tveimur árum. Dúó Áróra hélt tónleikaferðalag á Vesturlandi sumarið 2023 og leggja þær áherslu á lifandi flutning og nýstárlegt efnisval\, t.d. með að auka sýnileika kventónskálda. \nSolveig Óskarsdóttir  er útskrifuð með BMus í söng frá LHÍ og Master í Óperu frá Conservatorium Maastricht. Hún hefur hlotið ýmsa styrki til tónlistartengdra verkefna\, m.a. styrk úr minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar til áframhaldandi söngnáms. Hún hefur setið fjölmarga masterklassa\, m.a. hjá Gittu-Mariu Sjöberg\, Ingeborg Danz\, Kristni Sigmundssyni og Catryn Wyn-Davies. Solveig leggur áherslu á 20. aldar og samtímatónlist\, auk þess sem hún hefur dálæti á norrænum sönglögum. Hún hefur sungið með fjölmörgum kórum\, bæði sem kórmeðlimur og einsöngvari\, m.a. Kór Langholtskirkju og Graduale Nobili. Hún syngur einnig með ýmsum smærri sönghópum. \nAnna Þórhildur Gunnarsdóttir lauk B.Mus gráðu í píanóeinleik frá Listaháskóla Íslands\, undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur og MA-gráðu í píanóeinleik við Conservatorium Maastricht hjá prof. Katia Veekmans. Anna hefur hlotið margvíslega styrki\, þ.á.m. úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar og Henrïette Hustinx-hvatningarverðlaunin\, sem eru veitt útskriftarnemum Tónlistarháskólans í Maastricht sem þykja skara fram úr á sínu sviði. Í dag starfar Anna sem píanókennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/minning-um-sumar-tonleikar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/Minning-um-sumar-scaled-2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240510T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240510T213000
DTSTAMP:20250207T120447Z
CREATED:20240422T164006Z
LAST-MODIFIED:20250207T120447Z
UID:10000985-1715371200-1715376600@hannesarholt.is
SUMMARY:Silva & Steini í Hannesarholti
DESCRIPTION:10. maí kl 20 \nSilva & Steini í Hannesarholti \nJazztvíeykið Silva & Steini samanstendur af söngkonunni Silvu Þórðardóttur og söngvaranum og píanóleikaranum Steingrími Teague\, en þau gáfu út jazzplötuna More Than You Know á vegum Reykjavík Record Shop vorið 2022. Lög þeirra hafa hlotið ríflega 6\,5 milljón streymi á Spotify síðan þá. Í framhaldinu skrifuðu þau undir hjá FOUND Recordings\, bandarískri útgáfu sem sérhæfir sig í íslenskri tónlist\, og hafa nú endurútgefið plötuna í viðhafnarútgáfu. Á komandi vikum má fólk eiga von á því að heyra nýtt efni frá tvíeykinu þar sem verið er að leggja lokahönd á nýja plötu sem mun bera titilinn “More Understanding” en líkt og sá titill gefur til kynna má segja að nú séu þau komin með meiri skilning á sjálfum sér og samstarfinu. \nÞannig hefur hljóðheimur þeirra dýpkað á ýmsa vegu\, draumkenndir undirtónar færðir á yfirborðið og lagaval einkennist af meiri leikgleði og frelsi. Sömuleiðis syngja þau meira saman og eru útsetningar almennt unnar meira í sameiningu. Efnisskráin verður bland af rykföllnum standördum og lögum af mærum jazzins og annarra stefna\, og áherslan lögð á pláss\, nærveru og samspil radda þeirra Silvu og Steina. \nTónleikarnir hefjast kl 20\, miðaverð er 4.900 krónur og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nLjósmynd: Anna Maggý
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/silva-steini-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/Scan-21-scaled-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240425T200000
DTEND;TZID=UTC:20240425T210000
DTSTAMP:20250207T121501Z
CREATED:20240409T212927Z
LAST-MODIFIED:20250207T121501Z
UID:10000855-1714075200-1714078800@hannesarholt.is
SUMMARY:Björg Brjánsdóttir í Hannesarholti
DESCRIPTION:Björg Brjánsdóttir útskrifaðist af einleikarabraut frá Tónlistarháskóla Noregs vorið 2017 og hefur auk þess stundað nám í þverflautuleik við Tónlistarháskólann í Hannover\, Tónlistarháskólann í München og Konunglega danska tónlistarháskólann. Björg var tilnefnd sem Flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2022 og er flautuleikari tónlistarhópsins Caput og Elju kammersveitar. Í janúar 2024 kom út fyrsta einleiksplata Bjargar\, GROWL POWER\, með verkum eftir Báru Gísladóttur. Hún hefur unnið náið með fjölmörgum tónskáldum en síðar á árinu er önnur plata hennar væntanleg með nýjum einleiksverkum fyrir þverflautu eftir sex ólík tónskáld. \nSumardaginn fyrsta\, fimmtudaginn 25.apríl\, heldur hún einleikstónleika í Hannesarholti þar sem hún flytur þrjú verk sem samin voru fyrir Björgu á síðustu árum eftir Báru Gísladóttur\, Pál Ragnar Pálsson og Tuma Árnason. Einnig hljóma ljúfir dansar eftir Blavet\, virtúósísk chaconna Karg-Elerts og ný umritun eftir Björgu á Chaconnu Bachs\, ásamt frumflutningi á verki hennar\, Snörun. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og miðaverð er 4.900 kr. Miðasala á tix.is.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bjorg-brjansdottir-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240420T200000
DTEND;TZID=UTC:20240420T210000
DTSTAMP:20240424T092142Z
CREATED:20240409T213231Z
LAST-MODIFIED:20240424T092142Z
UID:10000856-1713643200-1713646800@hannesarholt.is
SUMMARY:Á inniskónum: Floni & Magnús Jóhann
DESCRIPTION:Á inniskónum er spjalltónleikaröð Magnúsar Jóhanns píanóleikara þar sem hann fær til sín gesti víðsvegar að úr tónlistarlífi Íslendinga. Magnús setur tónlist viðmælenda sinna í nýjan búning með dyggri aðstoð hljóðgervla\, trommuheila og hljómborða af ýmsum toga og spyr þá svo spjörunum úr. Gestur Magnúsar þann 20. apríl er rapparinn Floni en hann hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins frá því að hann hóf að gefa út tónlist árið 2017. Undanfarin misseri hafa þeir unnið hörðum höndum að því að klára nýja breiðskífu Flona\, Flona III. Þeir munu telja í ný lög af plötunni auk eldri slagara og tala um sköpunarferlið og feril Flona. \nMiðaverð er 5.900 kr og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/a-inniskonum-floni-magnus-johann/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/MagnusogFloni.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240413T140000
DTEND;TZID=UTC:20240413T150000
DTSTAMP:20250207T121855Z
CREATED:20240409T214316Z
LAST-MODIFIED:20250207T121855Z
UID:10000859-1713016800-1713020400@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóð og söngur
DESCRIPTION:Sex ljóðskáld sem öll hafa hlotið verðlaun fyrir ljóð sín lesa upp ný og eldri ljóð í Hannesarholti laugardaginn 13.apríl kl.14. Anna Björg Hjartardóttir syngur nokkur jazz og blúslög við undirleik Matthíasar Baldurssonar á milli ljóða. \nFram koma: \nDraumey Aradóttir er kennari\, skáld og rithöfundur\, fædd og búsett í Hafnarfirði\, en hefur auk þess lagt stund á heimspeki og lífspeki. Tengsl hugar\, tilfinninga og sálar eru grunntónn flestra ritsmíða hennar. Hún hefur gefið út sjö bækur\, nú síðast ljóðabækurnar Varurð og Einurð. Draumey hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar fyrir ljóð sín\, m.a. á ljóðahátíð Ljóðstafs Jóns úr Vör og ljóðasamkeppni Júlíönu – hátíð sögu og bóka\, sem hún sigraði 2023. \nGaribaldi er skáldanafn Garðars Baldvinssonar\, rithöfundar sog ljóðskáld. Hann hefur gefið út níu ljóðabækur ásamt smásögum og fræðaefni og fékk sérstaka viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Tómasar Gudmundssonar árið 2000. Garðar hlaut tvenn verðlaun í Ljóðasamkeppni Ljósanótt í Reykjanesbæ árið 2023. Hann hefur þýtt ljóð í tímarit og bókum\, stundaði MA nám ’90-’95 í bókmenntum við University of British Columbia í Vancouver. \nGunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður\, kennari og ljóðskáld\, með tvíhliða BA gráðu í myndlist og listasögu 2004 og MA í listsjórnun 2006. Hún er einnig með viðbótardiplóma í listkennslu á grunn – og framhaldsskólastigi. Hún er sjálfstætt starfandi listamaður og hefur gefið út sex ljóðabækur bæði á ensku og íslensku og tekið þátt í fjölda ljóðaupplestra\, samsýninga og haldið margar einkasýningar bæði hérlendis og erlendis. Hún hlaut ljóðaverðlaunin Ljósberinn árið 2019. \nGuðmundur Magnússon er fæddur 1981 og uppalinn í Garðinum. Hann er menntaður kvikmyndagerðarmaður og hefur unnið að gerð heimildamynda. Guðmundur er bókamaður\, sögumaður og áhugamaður um sagnfræði og gefur út tímaritið Skiphóll tvisvar á ári þar sem birtar eru gamlar myndir og viðtöl við eldra fólk á Suðurnesjum. Hann fékk nýræktarstyrk Miðstöð íslenskra bókmennt fyrir ljóðabókina Talandi steina 2022 en Bjartur gaf hana út en hann er einnig einn af frumkvöðlum Bryggjuskálda. \nRagnheiður Lárusdóttir ljóðskáld er íslenskufræðingur\, listkennslufræðingur og söngkennari að mennt og kennir við Menntaskóla Kópavogs. Ragnheiður hefur gefið út nokkrar ljóðabækur en fyrsta bók hennar „Eitthvað” hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2020 og var sú bók einnig tilnefnd til Maistjörnunnar. Næst kom Glerflísakriður 2021 og svo Kona/Spendýr árið 2022. \nAnna Björg Hjartardóttir\, söngkona og ljóðskáld\, hefur verið framkvæmdastjóri eigin fyrirtækis í áratugi hún hefur komið fram sem einsöngvari víða á viðburðum og er í tónlistarnámi. Anna Björg vann til verðlauna í Ljóðasamkeppni á Ljósanótt 2023.\nHeldur fyrirlestra\, verið með útvarpsþætti um heilsumál og verið í stjórnum og ábyrgðum ásamt að vera virk í alþjóða friðar- menntunar og menningarsamtökum Soka Gakkai Int.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljod-og-songur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/D7776A1A-A311-471E-A968-9A312CC7CE6B_1_105_c.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR