BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261014T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261014T213000
DTSTAMP:20260530T164232
CREATED:20260526T162633Z
LAST-MODIFIED:20260526T162633Z
UID:10001300-1792008000-1792013400@hannesarholt.is
SUMMARY:Raddir að austan
DESCRIPTION:Einstök tónlistarupplifun í Hannesarholti þar sem áheyrendum er boðið í ferðalag um menningarheima austur-Evrópu og Anatólíu. Þrjú ólík en áhrifamikil verk munu hljóma en á efnisskránni eru sellósónata eftir Dmitri Shostakovich\, sellósónata eftir Nikolai Myaskovsky og verkið Four Cities eftir Fazıl Say. \nÍ sellósónötu Shostakovich skiptast á angurværð og kaldhæðni\, dramatískar tilfinningar sem eru einkennandi fyrir tónskáldið. Myaskovsky leikur sér að hlýjum og rómantískumi tónum\, þar sem sellóið fær að njóta sín í ríkum og ljóðrænum línum. Four Cities eftir Fazıl Say er hins vegar litrík og nútímaleg tónsmíð sem sækir innblástur í ólíkar borgir og menningarheima\, með rytmískum og kraftmiklum þáttum. Þetta verður kvöld þar sem fortíð og nútíð mætast\, með tónum sem snerta hjartað og kveikja í ímyndunaraflinu. \nAnna Þórhildur Gunnarsdóttir lauk B.Mus gráðu í píanóeinleik frá Listaháskóla Íslands\, undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur og MA-gráðu í píanóeinleik við Conservatorium Maastricht hjá prof. Katia Veekmans. Anna hefur hlotið margvíslega styrki\, þ.á.m. úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar og Henrïette Hustinx-hvatningarverðlaunini. Í dag starfar Anna sem píanókennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar\, ásamt kennslunni leggur hún stund á Suzuki píanókennaranám sem og Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Þórdís Gerður Jónsdóttir er sellóleikari sem hefur þá sérstöðu að leika jöfnum höndum sígilda tónlist og jazz. Sígildan sellóleik nam hún við Listaháskóla Íslands á árunum 2014-2017 og í konunglega danska konservatoríinu í Árósum\, en þaðan lauk hún meistaragráðu sumarið 2021. Þórdís lauk burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2015 en í náminu lagði hún áherslu á spuna og tónsmíðar. Hún er stofnmeðlimur kammerhópsins Cauda Collective\, sem hefur vakið eftirtekt fyrir frumlegt verkefnaval og útvíkkun á hlutverki hins klassíska flytjenda. Þórdís er hjúkrunarfræðingur\, með viðbótardiplómu í lýðheilsuvísindum og meistaragráðu í bráðahjúkrun. Hún starfar í hlutastarfi við skólahjúkrun á vegum Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðins við Menntaskólann við Hamrahlíð. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/raddir-ad-austan/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/raddiradausta1920x1080.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR