BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250222T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250311T170000
DTSTAMP:20250309T210958Z
CREATED:20250309T210958Z
LAST-MODIFIED:20250309T210958Z
UID:10001133-1740232800-1741712400@hannesarholt.is
SUMMARY:Málverkasýning Ástu Báru Pétursdóttur - Nú er tími til að hafa gaman
DESCRIPTION:Ásta Bára Pétursdóttir opnar málverkasýningu sína í Hannesarholti laugardaginn 22.febrúar kl.14. Sýningin er sölusýning og nefnist – Núna er tími til að hafa gaman.\n\nÁsta Bára er búsett á Akureyri og hefur unnið í myndlist frá því hún útskrifaðist af Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 2009. Hún hefur haldið 7 einkasýningar og tekið þátt i fjölda samsýninga. Flest málverkin eru unnin með akryl á striga eða á pappír. Innblásturinn í verkum Ástu Báru er aðalega mannlíf líðandi stundar.\n\nViðfangsefni málverkana er hið daglega líf fólks og athafnir þess\, sem og einstaka köttur. Þessar athafnir fólks eru óendanleg uppspretta myndefnis sem gaman er að leika sér með\, s.s. með því að teygja og toga líkama á málverkunum eins og hentar hverri mynd. Tvöfalt andlit gæti t.d. verið vísun í margt\, eins og hvað við sem manneskjur erum uppteknar af öllu í umhverfi okkar að stundum gleymist persónan sem við erum svo sannarlega með þá stundina. Litagleði og kímni einkenna jafnframt myndirnar sem eru málaðar til að gleðjast og njóta þess að fara með ímyndunaraflið í ferðalag.\nSýningin er opin á opnunatímum Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16 og stendur til 11.mars.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malverkasyning-astu-baru-petursdottur-nu-er-timi-til-ad-hafa-gaman/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/unnamed-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250305T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250305T210000
DTSTAMP:20250220T110511Z
CREATED:20250219T103730Z
LAST-MODIFIED:20250220T110511Z
UID:10001124-1741204800-1741208400@hannesarholt.is
SUMMARY:Ferðasögur frá Georgíu: píanótónleikar og frásögn
DESCRIPTION:Ólína Ákadóttir heldur tónleika þar sem hún spilar vel valin píanóverk og deilir sögum frá ársdvöl sinni í Georgíu. \nGeorgía er suðupottur fjölbreyttra menningarheima en landið liggur mitt á milli Evrópu og Asíu með himinhá Kákasus-fjöllin í norðri\, Svartahafið í vestri\, eyðimerkur í suðri og vínekrur í austri. Ólína bjó í höfuðborginni Tbilisi í eitt ár þar sem hún stundaði píanónám og lenti í ýmsum ævintýrum\, enda ekki hrædd við að fara ótroðnar slóðir. Á tónleikunum \,\,Ferðasögur frá Georgíu” mun Ólína deila vel völdnum sögum í gegnum orð\, myndir og tóna. Á efnisskránni eru fjölbreytt verk eftir Bach\, Haydn\, Debussy\, Jórunni Viðar\, Revaz Lagidze og fleiri. \nÓlína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún stundar nám við Tónlistarháskóla Noregs en fór í skiptinám 2023-24 til Tbilisi í Georgíu. Árið 2024 varð Ólína einn sigurvegara Ungra einleikara og flutti píanókonsert Jórunnar Viðar með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kjölfarið. Ólína hefur einnig komið fram sem einleikari með Master Orchestra Verona (2024)\, Sinfóníuhljómsveit Unga fólksins (2023) og kammerhljómsveit nemenda Tónlistarháskóla Noregs (2023). Ólína hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum á Íslandi og í Noregi\, t.d. Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði\, Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og Tónlistarhátíðinni Seiglu í Hörpunni. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ferdasogur-fra-georgiu-pianotonleikar-og-fyrirlestur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/georgia1920.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250308T113000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250308T130000
DTSTAMP:20250303T150935Z
CREATED:20250128T145552Z
LAST-MODIFIED:20250303T150935Z
UID:10001109-1741433400-1741438800@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókvit
DESCRIPTION:BÓKVIT í Hannesarholti á laugardagsmorgnumBókmennt hefur verið sinnt með ýmsum hætti í Hannesarholti í gegnum tíðina og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur\, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu. Síðastliðið haust bauð Hannesarholt rithöfundum að lesa úr bókum sínum fyrir gesti á laugardögum kl.11.30 – 12.30 og nú verður áframhald á því.Eftirfarandi rithöfundar lesa úr bókum sínum laugardaginn 8. mars kl.11.30-12.30.\nDraumey Aradóttir – BrimurðAnna Dóra Antonsdóttir og Kristrún Guðmundsdóttir – PalestínuljóðSigtryggur Baldursson – Haugalygi og Iða KindastjarnaElísabet Jökulsdóttir – Límonaði frá Diafaní
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokvit-10/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókakaffi,Bókakynning,Bókaspjall,Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/Bokvit08-03.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250308T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250308T150000
DTSTAMP:20250217T102153Z
CREATED:20250217T102153Z
LAST-MODIFIED:20250217T102153Z
UID:10001118-1741442400-1741446000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman í Hannesarholti með Herði Torfa
DESCRIPTION:Hörður Torfa leiðir Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 8.mars kl.14. Hörð þarf ekki að kynna fyrir íslendingum\, enda muna elstu menn hann með gítarinn svo langt sem minnið nær. Hörður mætir með nokkra söngva sinna og við syngjum með honum. Textar á tjaldi og allir syngja með. Frítt inn að vanda. Öll velkomin.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-herdi-torfa/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/IMG_4723-2.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250308T193000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250308T213000
DTSTAMP:20250218T153151Z
CREATED:20250113T110626Z
LAST-MODIFIED:20250218T153151Z
UID:10001096-1741462200-1741469400@hannesarholt.is
SUMMARY:Níels er Napoleon FRUMSÝNING
DESCRIPTION:Hver var Napoleon? Hver er Níels? Níels er Napoleon. \n„Níels er Napleon“ er lífleg leiksýning og vegleg vínsmökkun. Láttu leiða þig í töfrandi ferðalag um söguslóðir Napóleons þar sem þú kynnist keisaranum í gegnum keiminn. Tres amusant og tres charmant leiksýning úr smiðju Gunnars S. Jóhannessonar í meðförum Níelsar. \nNíels Girerd er hálfur frakki sem þráir það eitt að verða heill. Í þessari bráðfyndnu sýningu setur Níels sig í hlutverk franskasta manns sögunnar\, sem var þó ekki franskur. Níels túlkar fátæka föðurlandssinnan\, ástríðufulla elskhugann\, hershöfðingjann\, keisarann og útlagann. Níels Thibaud Girerd er Napoleon \nVið finnum keiminn af hafi\, púðri\, löðrungi\, kynlífi og Korsíku í gegnum vín keisarans. Í þessari vínsmökkun fá áhorfendur að bragða á ljúffengu frönsku víni og heyra fánýttan fróðleik um konungafólk\, byltingarsinna og samferðafólk Napoleons í þessari veglegu vínsmökkun. \nEinnig verður hægt að koma sér í réttu stemninguna með franskri óvissuferð í borðstofunni á fyrstu hæð fyrir sýningu. Athugið að panta þarf matinn á tix.is og borðhald hefst kl. 18:00. \n„Si vous escomptez avoir du succès dans le monde\, promettez tout\, ne donnez rien.“  (Ef þér viljið ná árangri í þessum heimi\, skuluð þér öllu lofa og ekkert efna.) –  Napóleon I\, keisari Frakka. \nNíels er Napoleon \neftir Gunnar S. Jóhannesson \nLeikstjóri: Gunnar S. Jóhannesson \nLeikari: Níels Thibaud Girerd \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/niels-er-napoleon-frumsyning/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/1920x1080-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250312T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250312T190000
DTSTAMP:20250303T102853Z
CREATED:20250226T114332Z
LAST-MODIFIED:20250303T102853Z
UID:10001131-1741800600-1741806000@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Sjálfbærar Samgöngur
DESCRIPTION:Samgöngur eru ein af undirstöðum heilbrigðs samfélags. Þær tryggja öruggan flutning varnings og fólks á milli staða. Þær gera okkur kleift að sækja vinnu\, menntun og afþreyingu. Við verjum stórum hluta ævinnar á ferðinni. Við eyðum mörgum klukkutímum í flugi\, langkeyrslu og í Ártúnsbrekkunni. Eldsneytið er dýrt og svifrykið er að drepa okkur. Sjálfbærar samgöngur ættu að bæta lýðheilsu\, stytta ferðatíma og kosta minna.\nEn hvað eru sjálfbærar samgöngur? Eru það rafmagnsbílar og borgarlína? Hjólreiðar og rafhlaupahjól? Hvernig verða samgöngur á Íslandi sjálfbærar?\nÁ þessum umræðufundi Heimilis Heimsmarkmiðanna í Hannesarholti munum við ræða þessi mál og velta fyrir okkur hvað sjálfbærar samgöngur fela í sér.\nÞorgerður María Þorbjarnardóttir\, formaður Landverndar\, mun stýra fundinum og sérfræðingar á pallborðinu verða: Ásdís Hlökk Theódórsdóttir\, skipulagsfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands\, Búi Bjarmar Aðalsteinsson\, frumkvöðull\, hönnuður\, stjórnandi Hjólavarpsins og ástríðufullur hjólari & Runólfur Ólafsson formaður FÍB.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-sjalfbaerar-samgongur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/samgongur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250315T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250315T160000
DTSTAMP:20250319T161231Z
CREATED:20250225T160225Z
LAST-MODIFIED:20250319T161231Z
UID:10001130-1742047200-1742054400@hannesarholt.is
SUMMARY:Málverkasýning opnun Sigurdís Gunnarsdóttir HUGARÓRAR
DESCRIPTION:Sigurdís Gunnarsdóttir opnar málverkasýningu sína HUGARÓRA í Hannesarholti laugardaginn 15. mars kl.14-16\nDraumkenndar landslagsmyndir Sigurdísar eru í senn kraftmiklar og hljóðlátar. Myndmálið speglar upplifun áhorfandans af náttúrunni. Það er eins konar tilraunakennd rannsókn á yfirborði og gegnsæi\, samspilum litbrigða\, forms og skugga. Hugarórar færa okkur á vit ævintýra og vekja spurningar um það sem fyrir augu ber. Hvar liggja mörkin á milli mannsins í náttúrunni og náttúrunnar í manninum? Myndirnar eru unnar með olía á striga.\nSigurdís fæddist á Íslandi en ólst upp á Bahamaeyjum og í Bandaríkjunum fram á unglingsárin en fluttist þá aftur heim. Hún hefur stundað nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur\, Myndlistarskóla Kópavogs og Central Saint Martins í London. Þetta eru fjórða einkasýning hennar og hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga.\nSigurdís er meðlimur í SÍM.\nSýningin er sölusýning og er opin á opnunartíma Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16 til 3. apríl.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malverkasyning-opnun-sigurdis-gunnarsdottir-hugarorar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/sigurdis16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250327T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250327T213000
DTSTAMP:20250225T150341Z
CREATED:20250217T121705Z
LAST-MODIFIED:20250225T150341Z
UID:10001119-1743105600-1743111000@hannesarholt.is
SUMMARY:Fjör og fegurð fyrir selló og píanó
DESCRIPTION:Kitty og Þórdís snúa aftur í Hannesarholt með fjöruga efnisskrá sónata fyrir selló og píanó frá fyrri hluta 20. aldar. Flutt verða sónötur eftir Sergei Prokofiev og Claude Debussy sem báðar einkennast af léttlleika\, hljómrænum áhrifum frá dægurtónlst fyrri hluta 20. aldar og algjörs jafnræðis hljóðfæra.\nDebussy skrifaði sónötu sína ásið 1915 og var fyrsta af sex sónötum sem hann hugðist semja sem afturhvarf frá gerð stórra hljómsveitasrverka til kammertónlistar og var innblásin af og skrifuð til heiðurs frönsku barokktónskáldanna Rameau og Couperin. Debussy\, sem á þessum tíma var orðinn heilsuveill\, skrifaði sónötuna í smábæ við sjávarsíðu Normandy og tileinkaði eiginkonu sinni\, Emmu.\nVerk Prokofievs var samið árið 1949 eftir að tónskádlið sá sellóleikarann Mistislav Rostropovich leika aðra sónötu Miaskovkys og var Prokofiev svo hrifinn að hann samdi sónötuna sína fyrir sellóleikarann. Ári síðar var tónskáldið sakað um formalisma og megnið af tónlist hans bönnuð í Sovétríkjunum. Sónatan var frumflutt af Rostrapovic og Sviatoslav Richter í maí árið 1950 og þurftu þeir að spila hana fyrir ráð tónskáldafélagsins til að fá úr því skorið hvort verkið þætti viðeigandi og í anda stefnu Sovétríkjanna. Miaskovsky var viðstaddur frumflutninginn og lýsti verkinu sem undraverðu tónverki.\n\n\nKitty Kovács er fædd í Gyor í Ungverjalandi árið 1980 og útskrifaðist árið 2003 frá tónlistardeild Széchenyi István háskólans þar í borg með diplómu í píanó- og kammertónlist. Eftir útskriftina starfaði hún sem undirleikari í Gyor og lagði síðan stund á undirleikaranám við Ferenc Liszt Akademíuna í Búdapest. Á námsárum sínum vann hún í píanókeppnum\, m.a. árið 1997 í Salt Lake City og árið 2000 varð hún í 3. sæti í Chopin keppninni. Kitty kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað sem píanókennari og organisti. Frá árinu 2011 hefur hún verið kirkjuorganisti við Landakirkju í Vestmannaeyjum og kennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Frá árinu 2012 hefur Kitty stundað orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar og vorið 2017 lauk hún kantorsnámi þaðan.\n\n \nÞórdís Gerður Jónsdóttir er sellóleikari sem hefur þá sérstöðu að leika jöfnum höndum sígilda tónlist og jazz. Sígildan sellóleik nam hún við Listaháskóla Íslands á árunum 2014-2017 og í konunglega danska konservatoríinu í Árósum\, en þaðan lauk hún meistaragráðu sumarið 2021. Þórdís lauk burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2015 en í náminu lagði hún áherslu á spuna og tónsmíðar. Þórdís er stofnmeðlimur kammerhópsins Cauda Collective sem er hópur skapandi tónlistarflytjenda sem leita út fyrir rammann í tónlistarflutningi sínum. Hlutverki flytjandans er ögrað\, hann semur líka tónlist\, útsetur\, spinnur og vinnur þvert á miðla. Hópurinn leitar einnig nýrra leiða til að túlka gamla tónlist í samtali við nútímann\, gjarnan með hjálp annarra listforma. Einnig er unnið náið með tónskáldum og lögð áhersla á að frumflytja ný tónverk. Þórdís hefur leikið reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2018\, hún var fastráðin þar veturinn 2021-2022\, og hefur verið í leikhúshljómsveitum við Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið. Hún gaf út hljómplötuna Vistir með hennar eigin jazz-tónsmíðum og útsetningum vorið 2021. Síðustu misseri hefur Þórdís hefur lagt sérstaka áherslu á að frumflytja á Íslandi sjaldheyrð eldri erlend verk\, sem dæmi frumflutti hún á Íslandi 100 ára sónötu fyrir selló og píanó eftir Kurt Weill\, ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur\, á Jazzhátíð Reykjavíkur í ágúst 2020. Þá frumflutti hún á Íslandi þrjár einleikssvítur eftir Ernst Bloch í maí 2023. Þórdís hefur einnig brennandi áhuga á miðlun menningar og hefur m.a. gefið út eigið hlaðvarp um þýska tónskáldið Kurt Weill. Þórdís er eftirsóttur útsetjari og hefur m.a. útsett tónlist Mugisonar\, bæði fyrir tónleika og upptökur\, auk sönglaga Kurts Weills fyrir 7 manna jazzhljómmsveit. Vorið 2014 lauk Þórdís námi í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og viðbótardiplómu í lýðheilsuvísindum vorið 2019. Hún starfar á Bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins á milli tónleika.\n\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fjor-og-fegurd-fyrir-sello-og-piano/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/vikingcelloogpiano16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250328T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250328T213000
DTSTAMP:20250317T113310Z
CREATED:20250217T164401Z
LAST-MODIFIED:20250317T113310Z
UID:10001121-1743192000-1743197400@hannesarholt.is
SUMMARY:AFLÝST Vetrarkveðja: Kristína Mekkín og Alexander Grybko
DESCRIPTION:Þann 28. mars næstkomandi verður boðið upp á notalega vortóna í Hannesarholti.\nFlytjendur kvöldsins er dúóið Kristína Mekkin og Alexander Grybos. \nKristína er lærður dansari og hæfileikarík söngkona sem hefur komið fram víða og bjó m.a. í London og New York\, þar sem djassinn seytlaðist inn í vitundina og náði sér rótfestu í sálinni. Á undanförnum árum hefur tónlistin verið í fyrirrúmi og nú er hún lent aftur á klakanum til að ylja í okkur sálartetrið eftir veturinn. \nAlexander Grybos er ungur og efnilegur gítarleikari sem hefur tekið þátt í fjölbreyttum tónlistarverkefnum með hinum ýmsu hljómsveitum og tónlistarfólki bæði hér á landi og erlendis þ.m.t. í Póllandi og New York. Síðasta sumar spreytti hann sig í djass með HAG tríóinu sem spilaði víða um land síðasta sumar. \nLeiðir þeirra Kristínu og Alexanders lágu saman haustið 2024 þegar þau byrjuðu að halda innilega djass tónleika á vínbar í miðbæ Reykjavíkur. \nFjölbreytileiki djassins er það sem heillaði þau bæði\, enda er takturinn reglubundin óreiða sem býður upp á bæði hjartnæm augnablik eða ævintýralegar sveiflur.\nBragur kvöldins verður í meðalhófum takti þar sem hlýjir straumar vorsins fá að læðast inn með ábreiðum af allskyns toga með djass ívafi. \nTextagerð: Anný Tinna Aubertsdóttir \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vetrarkvedja-kristina-mekkin-og-alexander-grybko/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/logokriaoggrybko.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250329T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250329T150000
DTSTAMP:20250313T155930Z
CREATED:20250313T155533Z
LAST-MODIFIED:20250313T155930Z
UID:10001135-1743256800-1743260400@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum Saman með Björgu og Jóni
DESCRIPTION:Björg Birgisdóttir söngkona og Jón Elísson píanóleikari munu leiða Syngjum saman í Hannesarholti\, þann 29 mars\, með slögurum sem allir þekkja. Tekin verða lög með heimsþekktum tónlistarmönnum eins og bítlunum\, ABBA\, Elton John og fleirum. Textar á tjaldi svo allir geti tekið undir\, ungir og gamlir.\nJón hefur spilað með fjölda hljómsveita og tónlistarmanna víða um heim.\nBjörg hefur komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri\, bæði hérlendis og víðar í Evrópu.\nBjörg og Jón starfa nú saman í Sönghúsi Domus Vox hjá Margréti Pálmadóttur og njóta þess að miðla til upprennandi nýs tónlistarfólks.\nEnginn aðgangseyrir.\nVeitingahúsið í Hannesarholti er opið frá kl.11.30-16.00
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-bjorgu-og-joni-elis/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/jonogbjorg16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250329T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250329T220000
DTSTAMP:20251006T113226Z
CREATED:20241218T163910Z
LAST-MODIFIED:20251006T113226Z
UID:10001145-1743278400-1743285600@hannesarholt.is
SUMMARY:Níels er Napoleon
DESCRIPTION:Hver var Napoleon? Hver er Níels? Níels er Napoleon. \n„Níels er Napoleon“ er lífleg leiksýning og óhefðbundin vínsmökkun. Láttu leiða þig í töfrandi ferðalag um söguslóðir Napóleons þar sem þú kynnist keisaranum í gegnum keiminn. Tres amusant og tres charmant leiksýning úr smiðju Gunnars S. Jóhannessonar í meðförum Níelsar. \nNíels Girerd er hálfur Frakki sem þráir það eitt að verða heill. Í þessari bráðfyndnu sýningu setur Níels sig í hlutverk franskasta manns sögunnar\, sem var þó ekki franskur. Níels túlkar fátæka föðurlandssinnan\, ástríðufulla elskhugann\, hershöfðingjann\, keisarann og útlagann. Níels Thibaud Girerd er Napoleon \nVið finnum keiminn af hafi\, púðri\, löðrungi\, kynlífi og Korsíku í gegnum vín keisarans. Í þessari vínsmökkun fá áhorfendur að bragða á ljúffengu frönsku víni og heyra fánýtan fróðleik um konungsfólk\, byltingarsinna og samferðafólk Napoleons í þessari veglegu vínsmökkun. \nEinnig verður hægt að koma sér í réttu stemninguna með franskri óvissuferð í borðstofunni á fyrstu hæð fyrir sýningu. Athugið að panta þarf matinn á tix.is og borðhald hefst kl. 18:00. \n„Si vous escomptez avoir du succès dans le monde\, promettez tout\, ne donnez rien.“  (Ef þér viljið ná árangri í þessum heimi\, skuluð þér öllu lofa og ekkert efna.) –  Napóleon I. keisari Frakka. \nNíels er Napoleon \nHöfundur: Gunnar S. Jóhannesson \nLeikstjóri: Gunnar S. Jóhannesson \nLeikari: Níels Thibaud Girerd \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/niels-er-napoleon/2025-03-29/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús,Vínsmakk
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/1920x1080-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR