BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260418T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260502T160000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260416T120608Z
LAST-MODIFIED:20260417T141840Z
UID:10001288-1776520800-1777737600@hannesarholt.is
SUMMARY:LANDIÐ MITT - opnun myndlistarsýningar Áslaugar Saja
DESCRIPTION:Listamaðurinn og textílhönnuðurinn Áslaug Saja sýnir landslags- og abstraktverk innblásin af skynjun þess smáa og víðernum. Náttúruna fangar hún með blandaðri tækni á striga og notar akríl í ýmsum formum ásamt olíu og það sem hönd á festir. Viðkvæm en ríkuleg náttúran færir listamanninum hugarró og kraft. Áslaug Saja hefur unnið með munsturgerð\, þrykk og málun frá útskrift úr textíldeildum MHÍ og UIAH í Finnlandi og er óþreytandi í teikningu og málun með ólík efni. Sýningin er sölusýning og stendur frá 18.apríl til 6.maí. \nTextile designer and artist\, Áslaug Saja’s paintings are inspired by Icelandic nature and her emotions brought about when enjoying the outdoors. The microcosmos and vast scapes blend on canvas in an expressive way. The richness of our fragile nature brings such tranquility and enhancement to life. Áslaug Saja has worked with pattern\, printmaking and painting since her studies of textiles in MHÍ\, Iceland and UIAH in Finland. She enthusiastically experiments with drawing and painting in different media. The exhibit is open from April 18th to May 6th. All the pieces are for sale.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/abstrakt-landslag/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/IMG_5181-1-1-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260430T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260430T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260416T120853Z
LAST-MODIFIED:20260416T120853Z
UID:10001289-1777579200-1777584600@hannesarholt.is
SUMMARY:Juno Paul unplugged
DESCRIPTION:Juno Paul er alter ego/hljómsveit frá Reykjavík sem hefur vakið athygli í grasrótarsenu Íslands undanfarin ár. \nTónlistin er kölluð „Galaxy Exploding Rock Music“ og blandar saman gítarriffum\, trommum og 8-bita tölvuleikjahljóðum. Útkoman eru orkumikil og aðeins chaotic lög með einlægum textum. \nÞað byrjaði sem “one man band” en í fyrsta skipti mun Juno spila unplugged í Hannesarholti. Ekki missa af þessari snilld. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/juno-paul-unplugged/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/junopaul1920x1080rett-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260502T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260502T170000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260416T114622Z
LAST-MODIFIED:20260416T114622Z
UID:10001287-1777737600-1777741200@hannesarholt.is
SUMMARY:Grísk tónlist í Hannesarholti
DESCRIPTION:Dúettinn í Kleftes tú rebetikú (Rebetikó ræningjarnir) fjallar um gríska tónlist í tali og tónum á Hannesarholti. Leikinn verður rebetíka af fingrum fram en það er tónlist sem utangarðsfólk lék í földum knæpum í hafnarborg Aþenu snemma á síðustu öld. Svo taka við lög frægra tónskálda sem sýna áheyrendum hvernig þessi tónlist þróaðist í áranna rás. Farið verður vítt og breytt um hið tónlistarlega stórveldi sem Grikkland er og þó ræningjarnir séu aðeins tveir koma mörg hljóðfæri við sögu þó vissulega sé hið gríska búzúkí í lykilhlutverki. Eins fá þeir til sín gesti sem syngja.\nRæningjarnir eru þeir Ásgeir Ásgeirsson og Jón Sigurður Eyjólfsson eða Jón Prímus. Ásgeir gítarleikari\, sem fólk þekkir meðal annars frá Sóldöggu og af löngum jazzferli\, hefur undanfarin ár starfað með tónlistarmönnum frá Mið Austurlöndum og hefur í seinni tíð getið sér gott orð bæði sem búzúkí- og lútúleikari. Afrekstur þessarar vinnu má meðal annars finna á plötunni Crossing Boarders sem hlaut íslensku tónlistarverðlaunin í ár sem besta jazz plata ársins.  Hún inniheldur lög eftir Ásgeir flutt af íslensku\, írönsku\, jórdönsku og indversku tónlistarfólki.\nJón Prímus hefur mikið fjallað um gríska tónlist einsog í bók sinni Tvíflautan sem Salka gaf út árið 2017 og eins í útvarpsþáttunum Á búzúkíslóðum sem tvívegis hafa verið fluttir í Ríkisútvarpinu. En hann hefur einnig leikið og sungið rebetíkalögin með íslenskum og grískum tónlistarmönnum í gegnum tíðina. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/grisk-tonlist-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/gisk1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260507T180000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260510T160000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260502T145010Z
LAST-MODIFIED:20260502T145010Z
UID:10001295-1778176800-1778428800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ekkó í Hannesarholti - Forystufé
DESCRIPTION:Ekkó í Hannesarholti – Forystufé \nForystufé er hópur 9 nemenda á Fata- og textílbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Hópurinn setur upp sýninguna EKKÓ í Hannesarholti á Hönnunarmars 2026. Sýningin endurspeglar framtíðarsýn þeirra tengdri sjálfbærni\, þar sem gömlum textíl og ullarúrgangi er umbreytt í ný og lifandi verk.\nÍslenska ullin er rauði þráðurinn í allri sköpun hópsins\, efniviður sem þau hafa alist upp með og þekkja vel fyrir notagildi sitt í gegnum sögu íslensku þjóðarinnar. Með fjölbreyttum handverksaðferðum á borð við prjón\, þæfingu\, vefnað og saum sýna þau hvernig ullin getur tekið á sig óteljandi myndir í áhugaverðri sköpun.\nSýningin Ekkó flæðir um rými Hannesarholts þar sem verkin skapa áhugaverðar tengingar sín á milli og kallast á við hugmyndafræði Hannesarholts. Verkin kallast á við hvert annað og skapa þannig áhugavert samtal um fortíð\, nútíð og framtíð textíls. \nEnglish\nForystufé is a group of nine students from the Fashion and Textile Department at Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. Together\, they present the exhibition EKKÓ at Hannesarholt during DesignMarch 2026. The exhibition reflects their forward-looking approach to sustainability\, where old textiles and wool waste are transformed into new and vibrant works.\nIcelandic wool forms the guiding thread throughout the group’s creations — a material they have grown up with and know well for its historical and cultural significance within Icelandic life. Through diverse textile techniques such as knitting\, felting\, weaving\, and sewing\, they explore the countless possibilities of wool in contemporary design.\nEKKÓ flows through the spaces of Hannesarholt\, where the works create subtle connections with one another and resonate with the philosophy of the house itself. The pieces engage in a visual dialogue about the past\, present\, and future of textiles\, offering visitors a layered and immersive experience.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ekko-i-hannesarholti-forystufe/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Hönnun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/forystufe_Hannesarholt.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260513T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260513T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260421T154422Z
LAST-MODIFIED:20260421T154422Z
UID:10001290-1778702400-1778707800@hannesarholt.is
SUMMARY:Úr smiðju Umbru: Spákonan og skáldið
DESCRIPTION:Tónlistarhópurinn Umbra vinnur nú að tveimur stór verkefnum samhliða. Annars vegar er hópurinn að semja tónlist við Völuspá\, eitt merkasta kvæði íslands þar sem spákona lýsir sköpun heimsins\, falli hans og endurreisn. Hins vegar er unnið að verkefninu Tvær hliðar Hallgríms\, þar sem jöfnum höndum er tónsett úr veraldlegum og trúarlegum kvæðum Hallgríms Péturssonar. Veraldleg ljóð Hallgríms hafa lítið verið tónsett þrátt fyrir að vera magnaður spegill merkilegrar ævi og heimsmyndar sautjándu aldar. Við tónsmíðar sínar sækir Umbra innblástur í lagboða frá miðöldum\, varðveittar stemmur og þjóðlög fyrri alda. \nBæði verkefnin eru enn í sköpun og á þessum tónleikum gefst áhorfendum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í smiðjuna og heyra hluta verkanna í fyrsta sinn\, sem upptakt að stærri heild. \nLögð er rík áhersla á nánd við áhorfendur\, sem fá að kynnast sagnaarfi og kveðskap liðinna alda í gegnum tóna og tal. \nUm Umbru\nUmbra hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir einstakan hljóm og framúrskarandi útsetningar á þjóðlagatónlist. Hljómsveitin var stofnuð árið 2014 af fjórum tónlistarkonum og sameinar íslenska þjóðlagatónlist\, miðaldatónlist og frumsamdar tónsmíðar í tilfinningaríkum\, vandlega útfærðum flutningi. Hópurinn hefur komið fram á fjölmörgum hátíðum í Evrópu og Asíu og gefið út fimm plötur. Platan Solstitium frá 2018 var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ur-smidju-umbru-spakonan-og-skaldid/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/umbra13mai1920.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260515T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260515T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260427T111400Z
LAST-MODIFIED:20260427T111400Z
UID:10001291-1778875200-1778880600@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-2/2026-05-15/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T150000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260508T153528Z
LAST-MODIFIED:20260508T153528Z
UID:10001298-1778940000-1778943600@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum Saman í Hannesarholti með Jóhönnu Elísu
DESCRIPTION:Syngjum saman í Hannesarholti með Jóhönnu Elísu laugardaginn 16.maí kl.14.\nJóhanna Elísa er tónlistar- og leiðsögukona með fjölbreytta reynslu á sviði tónlistar\, meðal annars sem píanó- og söngkennari. Hún spilar reglulega fyrir ferðamenn og kynnir íslenska tónlist á skemmtilegan og lifandi hátt. Jóhanna hefur gefið út tvær plötur og er þekkt fyrir tæra og fallega rödd. Hún leggur áherslu á notalega stemningu þar sem áheyrendur taka þátt og njóta saman.\nTextar á tjaldi og allir syngja með. Enginn aðgangseyrir. Sem fyrr eru allar kynslóðir velkomnar.\nKaffihúsið á 1.hæðinni er opið bæði á undan og eftir söngstundinni\, frá kl.11.30-16.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-johonnu-elisu/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/IMG_1611-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T160000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260508T121235Z
LAST-MODIFIED:20260508T153256Z
UID:10001297-1778940000-1778947200@hannesarholt.is
SUMMARY:Opnun - ÖR sýning Harpa Másdóttir
DESCRIPTION:ÖRsýning\nHarpa Másdóttir opnar myndlistasýningu í Hannesarholti undir yfirskriftinni Ör laugardaginn 16.maí kl.14-16. Sýningin Ör er persónuleg ferð þar sem minningar\, umbreyting og seigla fléttast saman í litum\, formum og áferð. Í verkum sínum tekst Harpa á við hið brothætta og sterka í senn; örin sem tíminn\, reynslan og lífið sjálft skilja eftir. Sýningin er áminning um að ör eru ekki aðeins vitnisburður um ofangreint\, heldur líka vitnisburður um það sem hefur gróið.\nSnerting skilur eftir ör.Fjarlægð líka.\nSýningin er sölusýning og stendur út mánuðinn. Hún er opinn á opnunartímum Hannesarholts\, miðvikudaga – laugardaga kl.11.30-16.00.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/opnun-orsyning-harpa-masdottir/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/BLEIKURK-KATKTUS.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T170000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260428T110034Z
LAST-MODIFIED:20260428T110034Z
UID:10001294-1778947200-1778950800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sónötur fyrir fiðlu og píanó. Grieg\, Beach og Faure
DESCRIPTION:Á þessum tónleikum flytja þær Chrissie Telma Guðmundsdóttir\, fiðluleikari og Jane Ade Sutarjo\, píanóleikari\, fjölbreytt prógramm úr kammertónlist rómantíska tímabilsins. Á efnisskránni eru verk eftir Edvard Grieg\, Amy Beach og Gabriel Fauré\, þar sem rík tónlistartjáning\, ljóðrænar laglínur og kraftmikið samspil hljóðfæranna fá að njóta sín. \nJane Ade Sutarjo fæddist í Jakarta í Indónesíu. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni\, Marthalenu Sugito en hlaut siðan kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið\n2008. Hún hóf nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði á fiðlu hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttur og seinna hjá Peter Máté\, en Jane er sú fyrsta sem hefði lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla íslands.\nSíðan Jane kom til Íslands hefur hún verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi. Hún hefur komið fram sem einleikari\, meðleikari og í ýmsum kammertónlistarhópum. Hún spilaði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2011 og hélt debut tónleikana sína í Salnum í febrúar 2014. Hún hefur einnig tekið þátt í píanókeppnum bæði hér á Íslandi og erlendis. Hún hlaut 1. sæti í fimmtu EPTA píanókeppninni á Íslandi árið 2012.\nEftir að hún útskrifaðist frá LHÍ árið 2012 hefur hún kennt á píanó auk þess að starfa sem meðleikari. Sumarið 2017 lauk hún meistaragráðu frá Tónlistarháskóla Noregs (Norges Musikkhøgskole)\, þar sem hún lærði hjá Jens Harald Bratlie og Kathryn Stott. Einnig lærði hún á fortepíanó hjá Liv Glaser.\nNú starfar hún sem meðleikari við Menntaskóla í Tónlist og Listaháskóla Íslands. \nChrissie Telma Guðmundsdóttir lauk B.Mus gráðu í fiðluleik frá Listaháskóli\nÍslands vorið 2014 undir handleiðslu Auður Hafsteinsdóttir og Guðný\nGuðmundsdóttir.\nSama ár hlaut hún styrk frá Fulbright Program og hélt til Bandaríkjanna þar\nsem hún lauk M.M gráðu frá Arizona State University undir handleiðslu\nprófessors Danwen Jiang.\nChrissie er fullgildur Suzuki-fiðlukennari með fimm kennslustig\, lokið undir\nhandleiðslu Lilja Hjaltadóttir.\nHún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og\nSinfóníuhljómsveit Áhugamanna\, og er nú fastráðinn meðlimur\nSinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hún heldur reglulega einleikstónleika víðs\nvegar um landið.\nChrissie starfar sem Suzuki-kennari við Tónlistarskóli Kópavogs og er\njafnframt virk í íslensku tónlistarlífi með reglulegri þátttöku í tónleikum og\nfjölbreyttum tónlistarverkefnum \nSónata fyrir fiðlu og píanó no.3 Op.45 eftir E.Grieg\nI. Allegro molto appassionato\nII. Allegretto espressivo alla Romanza\nIII. Allegro animato \nRómansa fyrir fiðlu og píanó Op.23 eftir A.Beach \nSónata fyrir fiðlu og píanó No.1 Op.13 eftir G.Fauré\nI. Allegro molto\nII. Andante\nIII. Scherzo: Allegro vivo\nIV. Finale: Allegro quasi presto \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sonotur-fyrir-fidlu-og-piano-grieg-beach-og-faure/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/chrissie19201080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260427T111400Z
LAST-MODIFIED:20260427T111400Z
UID:10001292-1778961600-1778967000@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-2/2026-05-16/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260526T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260526T170000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260526T161849Z
LAST-MODIFIED:20260526T161849Z
UID:10001299-1779782400-1779814800@hannesarholt.is
SUMMARY:Dúó tónleikar\, fiðla og píanó\, Bjargey og Ólína
DESCRIPTION:Bjargey Birgisdóttir fiðluleikari og Ólína Ákadóttir píanóleikari eru ungar listakonur sem þegar hafa getið sér gott orð fyrir hljóðfæraleik sinn. Þær leiða hér saman hesta sína í Hannesarholti og flytja saman þrjú verk eftir Beethoven\, Grieg\, Jórunni Viðar. \nBjargey Birgisdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Helgu Steinunni Torfadóttur í Allegro Suzukitónlistarskólanum og útskrifaðist frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar þar sem kennari hennar var Auður Hafsteinsdóttir. Hún lauk bakkalárgráðu frá Hochschule für Musik Basel undir handleiðslu Barböru Doll árið 2023 og útskrifaðist nýverið með meistaragráðu frá Hochschule für Musik Freiburg undir handleiðslu Simone Zgraggen. Bjargey hefur hlotið margvísleg verðlaun og styrki fyrir fiðluleik sinn\, leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið konsertmeistari Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún var í starfsnámi hjá Philharmonisches Orchester Freiburg árið 2024 og er meðlimur hinnar virtu Gustav Mahler Jugendorchester. \nÓlína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún lauk bakkalárnámi við Tónlistarháskóla Noregs með eins árs skiptinámi í Tbilisi í Georgíu. Nú stundar hún meistaranám við Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Ólína hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og fleirum. Hún hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum eins og Seiglu\, Óperudögum\, Asker Kammerkonserter\, Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar\, Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Einnig stendur Ólína fyrir ýmsum sjálfstæðum verkefnum\, þ.á.m. hefur hún sett saman söngleik við verk Jórunnar Viðar\, einleikstónleikana Ferðasögur frá Georgíu\, barnasýningar\, tónlistarsmiðjur og stofutónleikaröð. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-tonleikar-fidla-og-piano-bjargey-og-olina/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/bjargey.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260528T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260528T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260317T093139Z
LAST-MODIFIED:20260317T093139Z
UID:10001280-1779998400-1780003800@hannesarholt.is
SUMMARY:Anna Magga & Sigurhjörtur
DESCRIPTION:Leik- og söngkonan Anna Magga og píanóleikarinn Sigurhjörtur Pálmason halda tónleika í Hannesarholti fimmtudaginn 28. maí kl. 20:30.\n\nÁ efnisskránni verður fjölbreytt úrval laga – íslensk og erlend\, ásamt lögum sem Anna Magga hefur samið sjálf. Flutt verða lög ípersónulegum og hlýlegum útsetningum fyrir rödd og píanó.\n\nTónleikarnir bjóða upp á notalega kvöldstund í fallegu umhverfi Hannesarholts þar sem tónlist og frásögn fléttast saman.\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/anna-magga-sigurhjortur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/03/Anna-Magga-og-Sigurhjortur-banner-tix.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260530T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260530T150000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260526T164315Z
LAST-MODIFIED:20260526T164315Z
UID:10001302-1780149600-1780153200@hannesarholt.is
SUMMARY:Leiðsögn um ÖRsýningu Hörpu Másdóttur
DESCRIPTION:Harpa Másdóttir leiðir gesti um myndlistarsýningu sína í Hannesarholti\, á síðasta degi sýningarinnar\, 30. maí kl.14.Sýningin Ör er persónuleg ferð þar sem minningar\, umbreyting og seigla fléttast saman í litum\, formum og áferð. Í verkum sínum tekst Harpa á við hið brothætta og sterka í senn; örin sem tíminn\, reynslan og lífið sjálft skilja eftir. Sýningin er áminning um að ör eru ekki aðeins vitnisburður um ofangreint\, heldur líka vitnisburður um það sem hefur gróið.Snerting skilur eftir ör.Fjarlægð líka.Sýningin er sölusýning og stendur út mánuðinn. Hún er opinn á opnunartímum Hannesarholts\, miðvikudaga – laugardaga kl.11.30-16.00.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leidsogn-um-orsyningu-horpu-masdottur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/BLEIKURK-KATKTUS.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260614T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260614T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260401T101914Z
LAST-MODIFIED:20260526T131644Z
UID:10001285-1781467200-1781472600@hannesarholt.is
SUMMARY:Duo Ingolfsson-Stoupel
DESCRIPTION:Duo Ingolfsson–Stoupel flytur dagskrá sem fagnar listrænum vináttuböndum og hinum ríka fransk-belgíska strengjastíl. Í fyrri hluta tónleikanna er fiðlan í brennidepli með hinni sögulegu F–A–E sónötu\, sem vinirnir Brahms\, Schumann og Dietrich sömdu í sameiningu\, og hinu dularfulla Poème eftir Chausson. Eftir hlé færum við okkur yfir á víóluna með draumkenndu verki Rebeccu Clarke og glæsilegri sónötu Vieuxtemps. Dagskráin dregur fram tengsl tónskáldanna við meistara á borð við Eugène Ysaÿe og býður upp á ferðalag um ljóðræna nánd og kraftmikla virtúósítet. \n\nDietrich / Schumann / Brahms: Sónata í a-moll („F–A–E“)\nErnest Chausson: Poème\, op. 25\nRebecca Clarke: Morpheus\nHenri Vieuxtemps: Sónata fyrir víólu og píanó í B-dúr\, op. 36\n\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-ingolfsson-stoupel-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/judithogvlad.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260819T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260819T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260526T163901Z
LAST-MODIFIED:20260526T163901Z
UID:10001301-1787169600-1787175000@hannesarholt.is
SUMMARY:Yfir hafið og heim
DESCRIPTION:Á tónleikunum flytja sellóleikarinn María Qing Sigríðardóttir og píanóleikarinn Ásta Dóra Finnsdóttir tónverk með ólíkum stíl og menningarheimum handan hafsins — allt frá sígildum tónum Beethovens til spænskra hljóma Cassados. \nÁsta Dóra Finnsdóttir\, 19 ára\, hóf píanónám samkvæmt Suzuki-aðferðinni fjögurra ára gömul. Hún nam við Menntaskólann í tónlist og Barratt Due tónlistarskólann í Osló áður en hún hóf háskólanám við Curtis Institute of Music í Bandaríkjunum\, þar sem hún hefur nú lokið fyrsta ári. \nMaría Qing Sigríðardóttir hefur sérstaka ástríðu fyrir kammertónlist og að miðla tónlist á fjölbreyttan hátt til áheyrenda en hún helgar því stóran hluta listsköpun sinnar. Hún nam við Tónskóla Sigursveins og hefur stundað nám við tónlistarháskólann í Stuttgart frá árinu 2023. (www.mariaqingsig.com) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/yfir-hafid-og-heim/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/mariaqing1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260829T120000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260829T130000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260528T145047Z
LAST-MODIFIED:20260528T145047Z
UID:10001307-1788004800-1788008400@hannesarholt.is
SUMMARY:Jazzhrekkur
DESCRIPTION:Jazzhrekkur á Jazzhátíð Reykjavíkur \nLaugardaginn 29. ágúst kl. 12:00 & 13:30 \nNú ætlum við\, Ingibjörg\, Sunna og Leifur\, að vera með Jazzhrekk á Jazzhátíð Reykjavíkur og við hlökkum ofboðslega mikið til! Við ætlum að spila fyrir ykkur spriklandi nýja jazztónlist undir yfirskriftinni Jazzhrekkur en lögin fjalla um fyrirbæri tengd hrekkjavöku; drauga\, nornir\, afturgöngur og kóngulær. Við verðum með tvenna tónleika\, kl. 12:00 og 13:30 laugardaginn 29. ágúst. \nÞað er ókeypis aðgangur en eina sem þið þurfið að gera er að panta miða í gegnum Tix.is \nMiðar
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jazzhrekkur/2026-08-29/1/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/reykjavikJazz.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260829T133000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260829T143000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260528T145047Z
LAST-MODIFIED:20260528T145047Z
UID:10001308-1788010200-1788013800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jazzhrekkur
DESCRIPTION:Jazzhrekkur á Jazzhátíð Reykjavíkur \nLaugardaginn 29. ágúst kl. 12:00 & 13:30 \nNú ætlum við\, Ingibjörg\, Sunna og Leifur\, að vera með Jazzhrekk á Jazzhátíð Reykjavíkur og við hlökkum ofboðslega mikið til! Við ætlum að spila fyrir ykkur spriklandi nýja jazztónlist undir yfirskriftinni Jazzhrekkur en lögin fjalla um fyrirbæri tengd hrekkjavöku; drauga\, nornir\, afturgöngur og kóngulær. Við verðum með tvenna tónleika\, kl. 12:00 og 13:30 laugardaginn 29. ágúst. \nÞað er ókeypis aðgangur en eina sem þið þurfið að gera er að panta miða í gegnum Tix.is \nMiðar
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jazzhrekkur/2026-08-29/2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/reykjavikJazz.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260903T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260903T220000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260528T190216Z
LAST-MODIFIED:20260528T190216Z
UID:10001310-1788465600-1788472800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sunna Guðlaugsdóttir
DESCRIPTION:Tónlistarkonan Sunna Guðlaugsdóttir býður til tónleika í Hannesarholti. Á efnisskránni eru frumsamin lög\, sögur og spjall. Þessi kvöldstund verður laus við allan hátíðleika og formlegheit\, en áheyrendum er boðið að stíga inn í líflegan hugarheim Sunnu. Lögin sem flutt verða fjalla um allt frá ást og söknuði til útbreiðslu lúpínunnar á Íslandi. Tónleikarnir verða í besta „spillemands“-anda\, þar sem nálægð við áhorfendur og notaleg stemning er í fyrirrúmi. \nSunnu til halds og trausts verður Haukur Þórðarson á gítar. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sunna-gudlaugsdottir/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/sunnagud1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260904T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260904T210000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260306T203329Z
LAST-MODIFIED:20260526T100711Z
UID:10001279-1788552000-1788555600@hannesarholt.is
SUMMARY:Norðan þeyr
DESCRIPTION:Þórður og Atli koma suður með seiðandi horn og píanótónleika. \nÞórður Sigurðarson hefur hefur starfað við tónlist frá 17 ára aldri. Hann lauk kirkjuorganista prófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar meðfram menntaskóla\, fór því næst til Noregs og lauk þar námi við Viken folkehögskole í Rytma tónlist og hefur einnig lokið grunnnámi í jazz píanóleik við The New School for Jazz and Contemporary Music í New York. \nÞrátt fyrir ungan aldur er reynsla Þórðar víðtæk á sviði tónlistarinnar og spannar þátttöku í verkefnum á sviði Jazz\, popp\, rokk og klassískur. Hann hefur sungið í kórum frá unga aldri og stjórnað Kirkjukórum á Langanesi\, Norðfirði\, Mosfellsbæ og einnig Karlakór Kjalnesinga. Meðfram organistastarfi í Neskaupstað stjórnaði hann tónlist við flutning á söngleikjum listadeildar Verkmenntaskóla Austurlands og þurfti þá einnig að útsetja fyrir kórinn. Hann hefur sett upp stór klassísk og trúarleg verk í starfi sínu innan kirkjunnar og stjórnað kór og stórri hljómsveit. Rytma tónlistin hefur spilað stóran þátt í lífi hans og hefur hann spilað í hinum ýmsu hljómsveitum\, m.a. Rock Paper Sisters sem hituðu upp þegar Billy Idol spilaði í Laugardalshöll. \nAtli Sigurðsson hóf sitt tónlistarnám við 10 ára aldurinn á Baritón horn hjá Eiríki Stephensen (Hundur í óskilum) við Tónlistarskóla Dalvíkur og síðar lítillega hjá Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur. Hann hóf sitt hornnám hjá Helga Þ. Svavarssyni við Tónlistarskólann á Akureyri og fór svo suður og lærði hjá Joe Ognibene við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann hætti í tvö ár að spila og hóf nám aftur við Tónlistarskólann á Akureyri aftur hjá Helga Þ. Svavarssyni og fór þaðan til Ellu Völu Ármannsdóttur og kláraði framhaldsprófið vorið 2017. Þaðan lá leiðin í Listaháskólann og var þar undir handleiðslu Emils Friðfinnssonar í 4 ár og kláraði B.A. gráðu í hornleik þaðan. \nAtli hefur spilað með Nordiska Ungdomsorkestern\, Orkester Norden\, Sinfóníuhljómsveit Unga Fólksins\, Ungsveit SÍ\, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands\, Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna. \nFyrsta verkið eða Ave Maria eftir Gonoud með melódíunni frægu úr verki Bachs eða Prelúdíu í C dúr er bland af barrokki og rómantík (Gounod). Verkið er ódauðlegt og mun lifa um ókomin ár. \nNæsta verk er Ave verum corpus sem er stuttur Eucharistic söngur frá 13. Öld. Hefur öðlast mikið vægi og er jafnan flutt í jarðarförum og brúðkaupum og helst messum. \nÞriðja verkið er þekktasta af þessum þremur eða Ave Maria eftir Franz Schubert. Verkið er klassískt samið fyrir rödd og píanó eða orgel. Það er oftast í jarðarförum og messum í kirkjum. Hefur verið flutt af t.d. Pavarotti og drengjakór Vínar Fílharmóníunnar í Vín. \nFjórða verkið er Nocturno op. 7 eftir Franz Strauss. Franz var hornleikari og faðir Richard Strauss. Verkið telst til rómantíkur með fallegum og lýrískum melódíum og spannar 3 áttundir. \nFimmta verkið er Laudatio eftir Bernhard Krol (Var lowhorn leikari í einni af Berlínar atvinnu hljómsveitunum á 7. Og 8. Áratug síðustu aldar. Verkið var samið sér fyrir Hermann Baumann (virtúós sem er sá þekktasti á hornið) og er módernískt. Verkið byrjar með ákveðnu mótífi sem spyr trúarlegrar spurningar. Eftir fylgir ferðalag þar sem er gerð leit að skilningi. Þetta er eitt mest flutta sólóverk fyrir horn. \nSjötta verkið er hornkonsert nr. 3 eftir W.A. Mozart í Es dúr KV 447 \n(Allegro/Andante/Rondo Allegro). Verkið er einn af fjórum hornkonsertum og einu auka rondói sem var skrifað fyrir ostagerðarmanninn og vin Mozarts Josef Leutgebs sem var fiðluleikari og náttúruhornleikari. Verkið telst til klassíkur og inniheldur eina kadensu í lok 1. Kafla (Kadensan sem ég spila er eftir Dennis Brain horn virtúós dó 1957 í bílslysi). \nSíðasta verkið er Rómansa op. 36 e. Camille Saint-Saens. Undurfalleg rómantísk melódía í horninu og brotnir hljómar frekar einfaldir í píanóinu. Smá drama sem byggist upp og leysist frá hápunkti niður í lágpunkti. Grunnstigsverkefni en Meira segja Radovan Vlatkovic (frægasti og besti hornleikarinn) spilar það sem aukalag eða jafnvel Gabriel Chopka (Sóló horn Varsjár Fílhamóníunni.) (Orkestria filharmoni narodówej). \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/nordan-theyr/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/03/atli1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260911T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260911T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260528T125637Z
LAST-MODIFIED:20260528T125637Z
UID:10001306-1789156800-1789162200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kynlegir kvistir
DESCRIPTION:Kvistir er tvíeyki tveggja Inga\, Arnaldar og Össurar. Sá fyrri leikur á rafgítar\, píanó\, og raular\, sá seinni syngur með og blæs í óbó og englahorn. Tónlistin er mjúk og þung eins og slakur köttur eða skýjaþykkni yfir sólsetri við sjóinn. Orðin snerta á einmanaleika\, umferðinni\, fíkn\, og lopa\, ekki mjög hresst kveðið en yfirleitt vel rímað. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kynlegir-kvistir/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/Kynlegir1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260912T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260912T180000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260528T125101Z
LAST-MODIFIED:20260528T125101Z
UID:10001305-1789232400-1789236000@hannesarholt.is
SUMMARY:Perlur klarinettubókmenntanna
DESCRIPTION:Birkir Örn Hafsteinsson\, klarinettuleikari og Jane Ade Sutarjo\, píanisti\, leiða saman hesta sína á þessum dúó tónleikum og flytja nokkrar af helstu perlum klarinettubókmenntanna\, á efnisskrá eru verk eftir J. Brahms\, C. M. von Weber\, R. Schumann og Jón Nordal. \nBirkir Örn Hafsteinsson\, fæddur í Reykjavík árið 1997\, hóf klarínettunám ungur að aldri hjá Skólahljómsveit Austurbæjar hjá Kristjáni Þ. Stephensen og Grími Helgasyni. Þaðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann lauk framhalds- og burtfararprófi undir handleiðslu Freyju Gunnlaugsdóttur. Árið 2022 brautskráðist Birkir með bakkalárgráðu í klarínettuleik frá Hochschule für Musik Dresden\, þar sem Henry Philipp var aðalkennari hans. Hann hefur einnig sótt tíma í bassaklarínettuleik hjá Christian Dolfuß. \nBirkir hefur m.a. spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Orkester Norden\, hljómsveit Óperudaga og kammersveitinni Elju. Hann er einn sigurvegara keppninnar Ungir einleikarar 2022 og flutti einleik með hljómsveitinni það ár. Hann hefur tekið þátt í meistaranámskeiðum hjá Barnaby Robson\, Luigi Magistrelli\, Jörg Widmann og Manuel Siles. Birkir hefur verið virkur þátttakandi í flutningi á samtímatónlist í Dresden en þar hefur hann frumflutt fjölda verka eftir samnemendur sína og tekið þátt í samspilsverkefnum undir leiðsögn tónskáldanna Helmut Lachenmann og Söru Nemtsov. Birkir starfar sem klarínettukennari hjá Menntaskóla í Tónlist og Skólahljómsveit Austurbæjar\, þar sem hann er einnig skólahljómsveitarstjórnandi. \nJane Ade Sutarjo fæddist í Jakarta í Indónesíu. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni\, Marthalenu Sugito en hlaut siðan kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið \n2008. Hún hóf nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði á fiðlu hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttur og seinna hjá Peter Máté\, en Jane er sú fyrsta sem hefði lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla íslands. \nSíðan Jane kom til Íslands hefur hún verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi. Hún hefur komið fram sem einleikari\, meðleikari og í ýmsum kammertónlistarhópum. Hún spilaði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2011 og hélt debut tónleikana sína í Salnum í febrúar 2014. Hún hefur einnig tekið þátt í píanókeppnum bæði hér á Íslandi og erlendis. Hún hlaut 1. sæti í fimmtu EPTA píanókeppninni á Íslandi árið 2012. \nEftir að hún útskrifaðist frá LHÍ árið 2012 hefur hún kennt á píanó auk þess að starfa sem meðleikari. Sumarið 2017 lauk hún meistaragráðu frá Tónlistarháskóla Noregs (Norges Musikkhøgskole)\, þar sem hún lærði hjá Jens Harald Bratlie og Kathryn Stott. Einnig lærði hún á fortepíanó hjá Liv Glaser. \nNú starfar hún sem meðleikari við Menntaskóla í Tónlist og Listaháskóla Íslands \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/perlur-klarinettubokmenntanna/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/birkirogjane1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260918T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260918T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260427T144144Z
LAST-MODIFIED:20260427T144144Z
UID:10001293-1789761600-1789767000@hannesarholt.is
SUMMARY:Les métèques: Frönsk flökkulög
DESCRIPTION:Tónlist á sér engin landamæri\, dægurlög ferðast milli landa\, tungumála og menningarheima og öðlast sífellt nýtt líf. Sum þeirra verða jafnvel vinsælli í nýjum búningi en í sinni upprunalegu mynd.\nLes Métèques flytja sínar eigin útgáfur af þekktum frönskum perlum frá síðustu öld. Hér hljóma m.a. kunnugleg lög í nýju ljósi; lög sem margir þekkja betur í enskum útgáfum\, eins og Les feuilles mortes (Autumn Leaves)\, Je t’appartiens (Let It Be Me) og Comme d’habitude (My Way).\nLes Métèques skipa: Ásta Ingibjartsdóttir (söngur)\, Eyjólfur Már Sigurðsson (söngur og gítar)\, Olivier Moschetta (söngur og bassi) og Ragnar Skúlason (fiðla). Kynnir og sögumaður er Gérard Lemarquis\, sem leiðir áheyrendur í gegnum sögur laganna og listamannanna sem gerðu þau ódauðleg. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/les-meteques-fronsk-flokkulog/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/lesmeteques1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260927T130000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260927T140000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260504T155514Z
LAST-MODIFIED:20260507T125710Z
UID:10001296-1790514000-1790517600@hannesarholt.is
SUMMARY:Bríet\, blómin og Hannes
DESCRIPTION:Dagskráin „Bríet\, blómin og Hannes“ var flutt í Hannesarholti – Hljóðbergi 27. september\, 2025 til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur\, kvenréttindakonu\, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á afmælisdegi hennar\, og verður nú endurtekið í september 2026.. Fjallað verður um samstarf Hannesar Hafstein\, fyrsta ráðherra Íslands og Bríetar\, ólíka æsku þeirra og kjör og hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman\, meðan bæði lifðu. Samstarf þeirra hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda hér á landi. Sá sögulegi sannleikur má ekki gleymast.En hvaða blóm eru þetta ? – Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt þann 27. september.\nSýningin er samvinnuverkefni Leikhúslistakvenna 50 + og Hannesarholts.Dagskráin er um eina klst.\nÞáttakendurÁsdís Skúladóttir leikstjóri\, skrifaði handritið ásamt hópnumEdda Þórarinsdóttir leikkonaHelga E. Jónsdóttir leikkonaÞórey Sigþórsdóttir leikkonaLaufey Sigurðardóttir fiðluleikari\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/briet-blomin-og-hannes/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/09/BrietBlominHannes.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260930T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260930T210000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260528T145554Z
LAST-MODIFIED:20260528T145554Z
UID:10001309-1790798400-1790802000@hannesarholt.is
SUMMARY:Dúó tónleikar\, fiðla og píanó\, Bjargey og Ólína
DESCRIPTION:Bjargey Birgisdóttir fiðluleikari og Ólína Ákadóttir píanóleikari eru ungar listakonur sem þegar hafa getið sér gott orð fyrir hljóðfæraleik sinn. Þær leiða hér saman hesta sína í Hannesarholti og flytja saman þrjú verk eftir Beethoven\, Grieg\, Jórunni Viðar. \nBjargey Birgisdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Helgu Steinunni Torfadóttur í Allegro Suzukitónlistarskólanum og útskrifaðist frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar þar sem kennari hennar var Auður Hafsteinsdóttir. Hún lauk bakkalárgráðu frá Hochschule für Musik Basel undir handleiðslu Barböru Doll árið 2023 og útskrifaðist nýverið með meistaragráðu frá Hochschule für Musik Freiburg undir handleiðslu Simone Zgraggen. Bjargey hefur hlotið margvísleg verðlaun og styrki fyrir fiðluleik sinn\, leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið konsertmeistari Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún var í starfsnámi hjá Philharmonisches Orchester Freiburg árið 2024 og er meðlimur hinnar virtu Gustav Mahler Jugendorchester. \nÓlína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún lauk bakkalárnámi við Tónlistarháskóla Noregs með eins árs skiptinámi í Tbilisi í Georgíu. Nú stundar hún meistaranám við Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Ólína hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og fleirum. Hún hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum eins og Seiglu\, Óperudögum\, Asker Kammerkonserter\, Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar\, Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Einnig stendur Ólína fyrir ýmsum sjálfstæðum verkefnum\, þ.á.m. hefur hún sett saman söngleik við verk Jórunnar Viðar\, einleikstónleikana Ferðasögur frá Georgíu\, barnasýningar\, tónlistarsmiðjur og stofutónleikaröð. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-tonleikar-fidla-og-piano-bjargey-og-olina-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/bjargey.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261002T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261002T220000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260527T103846Z
LAST-MODIFIED:20260527T105329Z
UID:10001303-1790971200-1790978400@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-3/2026-10-02/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261003T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261003T220000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260527T103846Z
LAST-MODIFIED:20260527T105329Z
UID:10001304-1791057600-1791064800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-3/2026-10-03/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261014T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261014T213000
DTSTAMP:20260530T180113
CREATED:20260526T162633Z
LAST-MODIFIED:20260526T162633Z
UID:10001300-1792008000-1792013400@hannesarholt.is
SUMMARY:Raddir að austan
DESCRIPTION:Einstök tónlistarupplifun í Hannesarholti þar sem áheyrendum er boðið í ferðalag um menningarheima austur-Evrópu og Anatólíu. Þrjú ólík en áhrifamikil verk munu hljóma en á efnisskránni eru sellósónata eftir Dmitri Shostakovich\, sellósónata eftir Nikolai Myaskovsky og verkið Four Cities eftir Fazıl Say. \nÍ sellósónötu Shostakovich skiptast á angurværð og kaldhæðni\, dramatískar tilfinningar sem eru einkennandi fyrir tónskáldið. Myaskovsky leikur sér að hlýjum og rómantískumi tónum\, þar sem sellóið fær að njóta sín í ríkum og ljóðrænum línum. Four Cities eftir Fazıl Say er hins vegar litrík og nútímaleg tónsmíð sem sækir innblástur í ólíkar borgir og menningarheima\, með rytmískum og kraftmiklum þáttum. Þetta verður kvöld þar sem fortíð og nútíð mætast\, með tónum sem snerta hjartað og kveikja í ímyndunaraflinu. \nAnna Þórhildur Gunnarsdóttir lauk B.Mus gráðu í píanóeinleik frá Listaháskóla Íslands\, undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur og MA-gráðu í píanóeinleik við Conservatorium Maastricht hjá prof. Katia Veekmans. Anna hefur hlotið margvíslega styrki\, þ.á.m. úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar og Henrïette Hustinx-hvatningarverðlaunini. Í dag starfar Anna sem píanókennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar\, ásamt kennslunni leggur hún stund á Suzuki píanókennaranám sem og Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Þórdís Gerður Jónsdóttir er sellóleikari sem hefur þá sérstöðu að leika jöfnum höndum sígilda tónlist og jazz. Sígildan sellóleik nam hún við Listaháskóla Íslands á árunum 2014-2017 og í konunglega danska konservatoríinu í Árósum\, en þaðan lauk hún meistaragráðu sumarið 2021. Þórdís lauk burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2015 en í náminu lagði hún áherslu á spuna og tónsmíðar. Hún er stofnmeðlimur kammerhópsins Cauda Collective\, sem hefur vakið eftirtekt fyrir frumlegt verkefnaval og útvíkkun á hlutverki hins klassíska flytjenda. Þórdís er hjúkrunarfræðingur\, með viðbótardiplómu í lýðheilsuvísindum og meistaragráðu í bráðahjúkrun. Hún starfar í hlutastarfi við skólahjúkrun á vegum Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðins við Menntaskólann við Hamrahlíð. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/raddir-ad-austan/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/raddiradausta1920x1080.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR