BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131013T160000
DTEND;TZID=UTC:20131013T170000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131009T144717Z
LAST-MODIFIED:20131013T121935Z
UID:10000053-1381680000-1381683600@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman
DESCRIPTION:Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum\, gjarnan með áfengi um hönd. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks. Fyrsta söngstundin\, verður haldin sunnudaginn 13.október kl.16\, og mun Þórunn Björnsdóttir\, kórstjóri leiða sönginn\, Karl Olgeirsson sjá um píanóleik og Jón Rafnsson bassaleikari spila með. Textar munu birtast á skjá. Aðgangseyrir kr.1000. \nBorðstofan verður opin á fyrstu hæð hússins\, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir söngstundinni. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman/
LOCATION:1.hæð og Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131013T200000
DTEND;TZID=UTC:20131013T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20130920T205400Z
LAST-MODIFIED:20131013T121104Z
UID:10000088-1381694400-1381701600@hannesarholt.is
SUMMARY:Mini forleikur að Carmen
DESCRIPTION:Á góðri stund með Bizet og vinum: \nÍ tilefni af því að nú líður senn að frumsýningu á óperunni Carmen eftir Bizet ætlar Elsa Waage söngkona að fá til sín góða gesti í Hljóðberg. Þau munu ræða um Bizet og tíðarandann sem óperan Carmen spratt upp úr. Meðal gesta verður leikstjórinn Jamie Hayes\, sem stjórnar uppfærslu Íslensku Óperunnar á Carmen. Elsa mun syngja aríur úr Carmen ásamt ungum og upprennandi söngvurum og einnig verða flutt tóndæmi af diskum.Kaffi og meðlæti innifalið í verði\, kr.3000. Miðapantanir á: http://midi.is/leikhus/1/7891\n\nBorðstofan verður opin og býður uppá kvöldverð á undan. Borðapantanir í síma 511-1904\n\n\n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/a-godri-stund-med-bizet-og-vinum-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/carmen_poster.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131014T200000
DTEND;TZID=UTC:20131014T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20130930T190548Z
LAST-MODIFIED:20130930T191021Z
UID:10000044-1381780800-1381788000@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntakvöld - Pater Jón Sveinsson – NONNI
DESCRIPTION:… of ótrúlegur til að vera sannur; og of sannur til að vera trúlegur …“\n\n  \nHannesarholt og Bókaútgáfan Opna efna til bókmenntakvölds í Hannesarholti mánudaginn 14. október klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og greiðist við inngang. Gengið er inn frá Skálholtsstíg. \nFjallað verður um bókina Pater Jón Sveinsson – NONNI\, eftir Gunnar F. Guð­mundsson\, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita og bóka almenns efnis á síðasta ári. Brynhildur Pétursdóttir\, alþingismaður og fyrrum forstöðumaður Nonnasafns á Akureyri mun ræða við Gunnar um pater Jón Sveinsson\, ævisöguritunina og Nonnabækurnar sem báru hróður höfundar um veröld víða. \nJón Sveinsson lifði og hrærðist i bókum sínum\, Nonnabókunum. En honum fannst hann jafnframt þurfa að fylgja sögum sínum eftir með því að ferðast um heiminn\, hitta fólk og komast í lifandi samband við það. Þannig fékk einnig eirðarleysi hans „postullegan“ tilgang. Hann var heimsmaður án föðurlands\, talaði mörg tungumál en sjaldnast sitt eigið móðurmál\, rótslitinn einstæðingur með kjölfestu í voninni\, alla sína ævi á leiðinni heim. \nÞannig kemst Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur að orði undir lok bókar sinnar um Jón Sveinsson sem árið 1870 yfirgaf föðurland og heimili og sneri einungis til baka sem gestur. Ævi þessa manns var einstök – andstæðurnar í lífi hans með ólíkindum. Dagbækur föður hans\, sem dó meðan Jón var enn á barnsaldri\, og sendibréf móður hans\, lýsa á sláandi hátt endalausu basli\, harðræði og veikindum en jafnframt einlægri löngun til að koma þeim börnum sem lifðu til manns. Þess vegna tekur móðir Jóns boði um senda hann utan til mennta aðeins 12 ára gamlan – og þau sáust aldrei framar. \nJón hlaut langa og stranga menntun og gekk inn í samfélag sem var eins fjarri íslenskum veruleika og hugsast gat. Hann gerðist kaþólskur prestur og kennari meðal Jesúíta og var sendur víða til starfa – en þó aldrei til Íslands eins og hugur hans stóð til. Iðulega átti hann í innri togstreitu sem birtist vel í dagbókarskrifum hans og bréfum. Sagnamaðurinn var aldrei langt undan\, strax í æsku skrifaði hann sögur í stílakompuna sína. Köllun hans til ritstarfa\, ásamt löngun til að hverfa aftur til bernskuáranna\, varð að miklu höfundarverki og bækurnar um Nonna víðfrægar. Sögur hans voru þýddar á um 30 tungumál og komu út í stórum upplögum. \nJón lést í Þýskalandi árið 1944\, þar sem sprengjurnar drundu allt um kring. Hann lifði alla ævi í heimi bernskunnar þrátt fyrir að vera einn víðförlasti og þekktasti Íslendingur síns tíma. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntakvold-pater-jon-sveinsson-nonni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Nonni_cover_150dpi_crop.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131015T200000
DTEND;TZID=UTC:20131015T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20130930T205545Z
LAST-MODIFIED:20131008T173256Z
UID:10000046-1381867200-1381874400@hannesarholt.is
SUMMARY:Verkir: til þrauta eða þroska?
DESCRIPTION:  \nHeilbrigðiserindi í samfélagslegu samhengi í umsjá Arnórs Víkingssonar læknis\, sem fær til liðs við sig ýmsa sérfræðinga. \nFyrirlesari á þessu fyrsta heilbrigðiserindi Hannesarholts er Arnór Víkingsson \nVerkir – til þrauta eða þroska ?\nVerkir eru samofnir náttúrulegri tilvist okkar allra; stingir eða seiðingur hér og þar\, tímabundinn sársauki við áverka og mánaðarlegir verkir hjá konum á frjósemisaldri tengdir tíðablæðingum.  Auðvelt er að skilja gildi þess að finna sársauka þegar mögulega hættulegir sjúkdómar eða aðstæður steðja að\, en öllu flóknara er að skila þýðingu þess að finna sársauka þegar “ekkert” er að.  Að maður nefni nú ekki þær aðstæður þegar einstaklingur fær langvarandi\, nær stöðuga verki með tilsvarandi áhrifum á daglega líðan og lífsgæði.   Hvað veldur?  Öll menningarsamfélög sögunnar hafa leitað svara við þessari spurningu og komist að mismunandi niðurstöðu.\nÍ þessum fyrirlestri verður gerð grein fyrir einni undursamlegustu sköpun lífsins:  Verkjakerfi líkamans.  Rætt verður um hvernig verkir hjálpa okkur til að lifa af\, þrífast og þroskast.   En einnig verður fjallað um verki sem vanheilsu eða sjúkdóm; sennilega ein af tveimur algengustu ástæðum slakra lífsgæða vegna heilsubrests. \nAðgangseyrir IKR 1000\, miðar seldir á midi.is: http://midi.is/atburdir/1/7890 \nBorðstofan verður opin til kl.20. Hægt verður að panta sér kvöldmat á undan erindinu með því að hringja í síma 511-1904
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/3281/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Arnór.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131016T160000
DTEND;TZID=UTC:20131016T180000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20130929T230316Z
LAST-MODIFIED:20130929T230316Z
UID:10000041-1381939200-1381946400@hannesarholt.is
SUMMARY:Prjónakaffi með styrktarfélaginu Göngum saman
DESCRIPTION:Miðvikudagana 2.  9. 16. og 23. október kl. 16:00 – 18:00 stendur styrktarfélagið Göngum saman fyrir prjónakaffi í Hannesarholti. Þar gefst félögum og öðrum velunnurum tækifæri á að hittast og prjóna saman húfur til styrktar Göngum saman. \nFjallaverksmiðja Íslands (https://www.facebook.com/IcelandMountainFactory) leggur til hönnun og verksmiðjustúlkur aðstoða og mæta með uppskriftir. Ístex styrkir verkefnið með lopa en prjónendur þurfa að taka með sér 40 cm. hringprjóna nr. 4-5 og sokkaprjóna. \nFjallkonubrjóstin verða svo seld og fer allur ágóðinn í styrktarsjóð Göngum saman.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/prjonakaffi-med-styrktarfelaginu-gongum-saman-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131021T200000
DTEND;TZID=UTC:20131021T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20130920T112628Z
LAST-MODIFIED:20131018T165304Z
UID:10000082-1382385600-1382392800@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall - Lýðræði á öllum sviðum.
DESCRIPTION:N.k mánudagskvöld er komið að öðru „Heimspekispjalli „af þremur sem verða hér í Hannesarholti á þessu hausti. Að þessu sinni munu Björn Þorsteinsson sérfræðingur hjá Heimspekistofnun HÍ  og Sólveig Alda Halldórsdóttir myndlistarmaður og stjórnarmanneskja í Öldu – félagi um sjálfbærni og lýðræði\,  leiða umræðu um lýðræði. \nHvert er hlutverk gagnrýninnar hugsunar í þjóðfélagi sem vill kenna sig við lýðræði?\n Hvernig má koma á alvöru lýðræði? \nÍ erindunum verður fjallað um hlutverk gagnrýninnar hugsunar í\nlýðræðisþjóðfélagi og tekist á við þá spurningu\, hvernig koma megi á alvöru\nlýðræði. \nBjörn Þorsteinsson veltir vöngum yfir inntaki lýðræðisins í ljósi\nhugmynda frá 18. öld um upplýsingu og sjálfstæða hugsun. Jafnframt verður\nvarpað fram spurningum um tengsl valdhafa og almennings og hvernig þeim\nverði best fyrir komið. \nSólveig Alda Halldórsdóttir beinir sjónum að því\nhvernig megi efla lýðræðið og koma á sannkölluðu lýðræði á öllum sviðum\nsamfélagsins með aukinni þátttöku almennings í umræðum og ákvörðunum. Meðal\nannars mun hún ræða um lýðræðisleg fyrirtæki nær og fjær.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lydraedi-a-ollum-svidum/
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Björn_Þorsteinsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131023T160000
DTEND;TZID=UTC:20131023T180000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20130929T230436Z
LAST-MODIFIED:20131022T004825Z
UID:10000042-1382544000-1382551200@hannesarholt.is
SUMMARY:Prjónakaffi með styrktarfélaginu Göngum saman
DESCRIPTION:Miðvikudagana 2.  9. 16. og 23. október kl. 16:00 – 18:00 stendur styrktarfélagið Göngum saman fyrir prjónakaffi í Hannesarholti. Þar gefst félögum og öðrum velunnurum tækifæri á að hittast og prjóna saman húfur til styrktar Göngum saman. \nFjallaverksmiðja Íslands (https://www.facebook.com/IcelandMountainFactory) leggur til hönnun og verksmiðjustúlkur aðstoða og mæta með uppskriftir. Ístex styrkir verkefnið með lopa en prjónendur þurfa að taka með sér 40 cm. hringprjóna nr. 4-5 og sokkaprjóna. \nFjallkonubrjóstin verða svo seld á sérstakri uppákomu í Hannesarholti laugardaginn 9.nóvemberog rennur allur ágóði í styrktarsjóð Göngum saman. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/prjonakaffi-med-styrktarfelaginu-gongum-saman-3/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131023T200000
DTEND;TZID=UTC:20131023T213000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131016T121506Z
LAST-MODIFIED:20131017T205045Z
UID:10000089-1382558400-1382563800@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með listamanni - Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarmaður
DESCRIPTION:Guðrún Kristjánsdóttir\, myndlistarmaður\, verður gestur Hannesarholts miðvikudagskvöldið 23. október kl. 20:00. Guðrún hefur unnið að list sinni í yfir þrjátíu ár og sýnt víða í Evrópu\, Ameríku og í Asíu. Hún hefur með verkum sínum náð að skapa sérstaka sýn á náttúruna sem hún miðlar í málverkum sínum\, prent- og vídeóverkum auk stórra veggmynda og innsetninga. Hún leitast við að höndla hreyfingu og hringrás síkvikrar náttúru\, veðrabrigði\, birtuskil og fasaskipti landsins. Umhleypingar í veðri teikna í landslagið “handrit” sem endurnýjast í sífellu og finna sér stað í verkum Guðrúnar. Í spjalli eina kvöldstund með Guðrúnu í Hannesarholti ræðir Guðni Tómasson\, listsagnfræðingur\, við hana um verk hennar og hugmyndir. Fjallshlíðar og vatn í fjölbreyttum myndum koma við sögu og myndir af verkum verða sýndar um leið og rætt verður um verkin\, hugmyndaheiminn og aðferðir listakonunnar. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gudrun-kristjansdottir-listakona-heimsaekir-gudna-tomasson-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni,Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/10/GK-mynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131031T210000
DTEND;TZID=UTC:20131031T230000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131016T162850Z
LAST-MODIFIED:20131028T205259Z
UID:10000092-1383253200-1383260400@hannesarholt.is
SUMMARY:Bjössi Thor & Bítlarnir á fimmtudag - tryggðu þér miða.
DESCRIPTION:Gítarsnillingurinn Björn Thoroddsen hefur árum saman unnið með lagasmíðar Bítlanna enda ætlaði hann að ganga í hljómsveitina á yngri árum. Úr því varð ekki. Bítlarnir vissu ekki af honum og hættu\, reyndar áður en Bjössi lærði almennilega á gítar. \nBítlalögin hafa gegnum árin verið á efnisskrá Björns\, oft í mögnuðum útsetningum. Hann hefur brotið lögin niður í frumeindir og byggt þau upp að nýju. Á nýrri plötu sinni spilar hann lögin einn og óstuddur þótt stundum hljómi þau eins og í flutningi hefðbundinnar Bítlahljómsveitar með tveimur gíturum\, bassa og trommum. \nTúlkun Björns á Bítlalögunum hefur vakið verðskuldaða athygli á tónleikum hans víða um lönd á síðustu misserum. Nú geta íslenskir aðdáendur Bjössa og Bítlanna notið þeirra á tónleikum í Hannesarholti\, fimmtudaginn 31. október kl. 21.00. Tryggðu þér miða hér.\n \nhttp://www.youtube.com/watch?v=2CM6m9OWemg
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bjossi-thor-bitlarnir-i-hannesarholti-fimmtudaginn-31-oktober/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/10/Björn-Thoroddsen-e1381941689111.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131103T160000
DTEND;TZID=UTC:20131103T170000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131020T214956Z
LAST-MODIFIED:20131101T171757Z
UID:10000070-1383494400-1383498000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman allir sem einn
DESCRIPTION:Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, Íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks.  Næsta söngstund verður haldin sunnudaginn 3.nóvember kl.16\, og mun Þórunn Björnsdóttir\, kórstjóri leiða sönginn í um klukkustund\, Karl Olgeirsson spilar undir á píanó  og Jón Rafnsson á bassa. Textar munu birtast á skjá. Aðgangseyrir er  kr.1000. \nBorðstofan verður opin á fyrstu hæð hússins\, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir. \nHér má sjá myndband frá fyrstu söngstundinni: http://youtu.be/Dmzbs28RWQ4 \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-allir-sem-einn/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131109T150000
DTEND;TZID=UTC:20131109T170000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131101T171618Z
LAST-MODIFIED:20131101T171643Z
UID:10000064-1384009200-1384016400@hannesarholt.is
SUMMARY:Göngum saman - Fjallkonubrjóst til sölu
DESCRIPTION:Hátt í hundrað konur hafa setið við í október og prjónað Fjallkonubrjóst. Hugmyndina á Kristín Helga Gunnarsdóttir hjá Fjallaverksmiðjunni en hún gaf Göngum saman uppskriftina. Ístex gaf Léttlopa og Hannesarholt bauð prjónara velkomna fjóra miðvikudaga. Á Reyðarfirði og á Akureyri hafa einnig verið prjónuð brjóst.\nNú getur þú eignast Fjallkonubrjóst og styrkt um leið grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fjallkonubrjost-til-solu/
LOCATION:Hljóðberg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131112T200000
DTEND;TZID=UTC:20131112T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20130930T211112Z
LAST-MODIFIED:20131105T184930Z
UID:10000047-1384286400-1384293600@hannesarholt.is
SUMMARY:"Hvernig heilsast þjóðinni?" Fæðingar fyrr og nú
DESCRIPTION:Heilbrigðiserindi í samfélagslegu samhengi í umsjón Arnórs Víkingssonar læknis\, sem fær til liðs við sig ýmsa sérfræðinga. \nMeðganga og fæðing er stór atburður í lífi hverrar konu og fjölskyldu hennar.   Hjá verðandi móður kvikna áður óþekktar tilfinningar með eftirvæntingu í bland við ótta og heitri ósk um að allt fari nú vel.  En ýmsar hættur leynast á leiðinni\, bæði fyrir móður og barn\, og þannig finnast í Íslandssögunni alltof margar frásagnir af barnshafandi konum sem fengu dapurlegan endi.\nStaða þungaðra kvenna á Íslandi í dag er gjörólík og óhætt er að fullyrða að ótrúlegur árangur hefur náðst í að lækka burðarmálsdauða og mæðradauða.\nÍ þessu erindi mun Hildur Harðardóttir\, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir ræða um þær breytingar sem orðið hafa á stöðu verðandi mæðra og barna þeirra\, og um skipulag fæðingarþjónustunnar á Íslandi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/faedingin-dasamlegur-atburdur-en-ekki-haettulaus/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/hh1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131113T200000
DTEND;TZID=UTC:20131113T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131020T220500Z
LAST-MODIFIED:20131111T233318Z
UID:10000055-1384372800-1384380000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með listamanni: Snorri Sigfús Birgisson og Guðni Tómasson
DESCRIPTION:Snorri Sigfús Birgisson\, tónskáld\, verður gestur Hannesarholts miðvikudagskvöldið 13. nóvember kl. 20:00. Snorri hefur starfað sem tónskáld\, píanóleikari\, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim úr námi árið 1980. Verkalistinn er fjölbreyttur og inniheldur einleiksverk\, kammertónlist\, raftónlist\, kórtónlist og sinfónísk verk. Snorri er félagi í Caput-hópnum og hefur verið áberandi í nýrri íslenskri tónsköpun á undanförnum áratugum auk þess sem hann hefur nýtt íslenskan tónlistararf í tónsmíðum sínum á spennandi hátt. \nSnorri verður gestur Hannesarholts en það er Guðni Tómasson\, listfræðingur og tónlistaráhugamaður\, sem ræðir við Snorra. Tónskáldið segir gestum frá verkum sínum og hugmyndum að baki þeim. Snorri leikur einnig brot úr verkum sínum á flygilinn góða sem stendur í tónleikasal Hannesarholts. \nhttp://notendur.centrum.is/~ssb/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-listamanni-snorri-sigfus-birgisson-og-gudni-tomasson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni,Listaspjall,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/10/G6PGLE6V-Snorri-Sigfús.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131117T150000
DTEND;TZID=UTC:20131117T170000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131105T203829Z
LAST-MODIFIED:20131111T173850Z
UID:10000030-1384700400-1384707600@hannesarholt.is
SUMMARY:Sagnaarfur í nýju ljósi.
DESCRIPTION:Í tilefni af útkomu bókanna Ástarsaga Íslendinga að fornu eftir Gunnar Karlsson og Leiftur á horfinni öld eftir Gísla Sigurðsson efnir Forlagið til sögusamkomu í Hannesarholti\, sunnudaginn 17. nóvember kl. 15.  Aðgangur ókeypis\, allir velkomnir. \nBáðar þessar bækur varpa nýju og óvæntu ljósi á sagnaarf okkar Íslendinga. Höfundar munu greina stuttlega frá verkum sínum og rannsóknum en Vilborg Davíðsdóttir\, rithöfundur og þjóðfræðingur\, mun síðan stýra óformlegum umræðum um efnin. \nBók Gunnars Karlsson beinir sjónum lesenda að sögu tilfinninganna og fjallar á lifandi og aðgengilegan hátt um ástir Íslendinga á tímabilinu 870–1300. Þar er til að mynda fjallað um rétt landsmanna til að elska\, makaval þeirra\, skilnaði og frillulíf. Gunnar leitar víða fanga\, í forn kvæði\, lögbækur\, Íslendingasögur\, Sturlungu\, biskupasögur og fleiri rit og kemst að því að ástin réði furðumiklu í lífi forfeðra okkar. \nÍ Leiftri á horfinni öld rýnir Gísli Sigurðsson í hvað sé merkilegt við íslenskar fornbókmenntir og bendir á að þær séu frumbyggjabókmenntir\, skráðar af frumbyggjunum sjálfum um landnám fólks í nýju landi – eftir leifturhugmynd Snorra Sturlusonar um hvernig rittæknin gæti miðlað hinum hefðbundnu munnlegu fræðum. Þær fangi lífs- og heimssýn fólks sem túlkaði veröldina með goðsögum og náði tökum á umhverfi sínu með því að þekja það minningum og örnefnum – innblásið af sagnaranda gelískra þjóða á Bretlandseyjum. \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sagnaarfur-i-nyju-ljosi/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/gisli-og-gunnar-e1384191376692.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131118T200000
DTEND;TZID=UTC:20131118T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20130920T113955Z
LAST-MODIFIED:20131118T100740Z
UID:10000087-1384804800-1384812000@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall - Beita íslenskir fjölmiðlar gagnrýninni hugsun?
DESCRIPTION:Mánudaginn 18. nóvember kl. 20.00 flytur Róbert Haraldsson\, prófessor við sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands fyrirlestur í Hannesarholti um íslenska fréttamennsku út frá viðmiðum um gagnrýna hugsun. \nFyrirlesturinn er sá fjórði í röð fyrirlestra í umsjá Páls Skúlasonar og Henry Alexanders Henryssonar\,. Hann hefur hlotið yfirskriftina „Heimspekispjall“. Róbert mun fara yfir þrenns konar tilhneigingar í íslenskri  fréttamennsku sem hann telur að geti hver um sig grafið undan vandaðri og hlutlægri blaðamennsku og ógnað sjálfstæði fjölmiðla. Hann heldur því fram að fái þessar tilhneigingar að vaxa óhindraðar sé úti um gagnrýna fréttamennsku á Íslandi. \nÍ fyrsta lagi verður spurt hvort mörk frétta og auglýsinga hafa smám saman verið að mást út á undanförnum áratugum hér á landi. Í öðru lagi verður skoðað það einkenni á íslenskri blaðamennsku sem nefna mætti „hann sagði\, hún sagði“ fréttamennska\, en þar eru viðhorf ólíkra viðmælenda leidd fram án þess að tilraun sé gerð til að meta sanngildi eða trúverðugleika þeirra. Í þriðja lagi verður skoðað hvernig íslenskir fréttamenn setja sig í auknum mæli í spor nokkurs konar þerapista sem hlusta með ógagnrýnum hætti á sögur þolenda af hvers kyns óréttlæti sem þeir telja sig hafa orðið fyrir. \nRóbert Haraldsson er heimspekingur og prófessor við Háskóla Íslands. Hann lauk B.A.-gráðu í heimspeki og sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1985. Róbert nam heimspeki við University of Pittsburgh og lauk þaðan M.A.-gráðu árið 1989 og Ph.D.-gráðu árið 1997. Hann hefur verið forstöðumaður Heimspekistofnunar Háskóla Íslands frá 2003 og ritstjóri Sats\, samnorræns tímarits um heimspeki\, frá 2001. Róbert var ritstjóri Skírnis árin 1995-1999 (ásamt Jóni Karli Helgasyni) og hefur flutt fjölda erinda m.a. um starfsemi fjölmiðla. \nMarkmið Hannesarholts er að efla jákvæða\, gagnrýna hugsun í íslensku samfélagi\, auka skilning á gildi sögunnar og hvetja til uppbyggilegrar umræðu og samveru.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gagnrynin-hugsun-og-fjolmidlar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Róbert-Haraldsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131120T200000
DTEND;TZID=UTC:20131120T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131111T235550Z
LAST-MODIFIED:20131119T162839Z
UID:10000026-1384977600-1384984800@hannesarholt.is
SUMMARY:BRÆÐRALÖG -  samræða um fagurfræði íslenskrar stjórnmálabaráttu
DESCRIPTION:Hvernig leita íslenskir stjórnmálamenn í menningarlífið og menningarsöguna\ntil að styðja við stefnumál sín og ímynd? Hver eru tengslin milli Jónasar\nHallgrímssonar\, Hannesar Hafstein\, Jónasar frá Hriflu\, Einars Olgeirssonar\nSigurðar Nordals og Davíðs Oddssonar? Leitað verður svara\nvið þessum spurningum á samræðu sem Sögufélag og Hannesarholt standa\nfyrir miðvikudaginn 20. nóvember um fagurfræði íslenskrar stjórnmálabaráttu.\nSagnfræðingarnir Guðni Th. Jóhannesson\, Ragnheiður Kristjánsdóttir og\nÓlafur Rastrick og bókmenntafræðingurinn Jón Karl Helgason verða\nmálshefjendur en einnig er gert ráð fyrir virkri þátttöku gesta.\nTilefni samræðunnar eru nýútkomnar bækur þeirra Ólafs og Jóns Karls\,\nHáborgin – menning\, fagurfræði og pólitík og Ódáinsakur: Helgifesta\nþjóðardýrlinga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/braedralog-samraeda-um-fagurfraedi-islenskrar-stjornmalabarattu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/jon_karl_helgason-e1384214021956.jpg
ORGANIZER;CN="S%C3%B6guf%C3%A9lag og Hannesarholt":MAILTO:hannesarholt@hannesarholt.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131121T200000
DTEND;TZID=UTC:20131121T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131118T224152Z
LAST-MODIFIED:20131119T152359Z
UID:10000067-1385064000-1385071200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kamban\, bókin og myndin
DESCRIPTION:Guðmundur Kamban (1888-1945) var í hópi þekktustu rithöfunda Íslendinga um sína daga. Hann hefur verið talinn í hópi fremstu leikskálda þjóðarinnar og skáldsögur hans\, einkum Skálholt\, voru þýddar á annan tug tungumála og m.a. gefnar út í Bretlandi og Bandaríkjunum\, en það var óalgengt á millistríðsárunum. \nHann var líkt og Gunnar Gunnarsson meira að segja orðaður við Nóbelsverðlaunin í sænskum blöðum. Um nokkurra ára skeið á fjórða áratugnum var hann búsettur í Þýskalandi og sú dvöl reyndist honum afdrifarík því að það orð komst á að hann hefði verið hallur undir stjórnvöld þar.\nNýlega kom út bók um Kamban eftir bókmennta- og leikhúsmanninn Svein Einarsson og hefur ferill Kambans aldrei verið rakinn jafn ítarlega\, né heldur tildrögin að morðinu á frelsisdegi Dana 5. maí 1945. Margt nýtt kemur fram í þessari bók um stórbrotinn höfund og dramatíska ævi hans.\nHúsfyllir var á Kambanskvöldi hjá Rithöfundasambandi Íslands á dögunum og áhugi mikill á lífi þessa merka manns. Því verður haldið annað kvöld til heiðurs Guðmundi Kamban nk. fimmtudagskvöld í Hannesarholti við Grundarstíg. Þar mun Sveinn segja frá bókinni og sýnd verður mynd þeirra Viðars Víkingssonar og Hallgríms H. Helgasonar\, frænda skáldsins\, um Kamban. Myndin var gerð fyrir RÚV þegar 100 ára afmælis Kambans  var minnst árið 1988. \n  \nDagskráin hefst kl. 20 og er öllum opinn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kamban-bokin-og-myndin/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Kamban_175.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131122T210000
DTEND;TZID=UTC:20131122T223000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131101T010623Z
LAST-MODIFIED:20131105T190932Z
UID:10000057-1385154000-1385159400@hannesarholt.is
SUMMARY:"Britten í öll mál"
DESCRIPTION:Á fæðingardegi tónskáldsins Benjamins Britten og degi heilagrar Sesselíu\, verndardýrlings tónlistarinnar\, 22. nóvember\, halda Hlín Pétursdóttir Behrens\, sópran og Gerrit Schuil píanóleikari upp á hundrað ára ártíð tónskáldsins með tónleikum í Hljóðbergi Hannesarholts\, Grundarstíg 10 í Reykjavík. Tónleikarnir hefjast kl 21.00 og verða endurteknir sunnudaginn 24. nóvember kl 11.00. Efnisskráin endurspeglar sérstaklega hið frjóa samstarf tónskáldins við ljóðskáldið Wystan Hugh Auden m.a. með ljóðaflokkunum On this Island og Cabaret Songs.\n\nBorðstofan er opin fyrir tónleikana á föstudag og hægt er að panta kvöldverð að hætti hússins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/britten-i-oll-mal/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Britten1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131124T110000
DTEND;TZID=UTC:20131124T123000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131101T011501Z
LAST-MODIFIED:20131105T190741Z
UID:10000059-1385290800-1385296200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Britten í öll mál"
DESCRIPTION:Hlín Pétursdóttir Behrens\, sópran og Gerrit Schuil píanóleikari endurtaka tónleika frá föstudeginum 22.nóvember\, fæðingardegi tónskáldsins Benjamins Britten og degi heilagrar Sesselíu\, verndardýrlings tónlistarinnar.  Tónleikarnir eru haldnir tónskáldinu til heiðurs í tilefni af hundrað ára fæðingarafmæli hans. Sunnudagstónleikarnir  24. nóvember hefjast kl 11.00. Efnisskráin endurspeglar sérstaklega hið frjóa samstarf tónskáldins við ljóðskáldið Wystan Hugh Auden m.a. með ljóðaflokkunum On this Island og Cabaret Songs.\n\n\nEftir tónleikana á sunnudag verður Borðstofan með freistandi kræsingar á boðstólum.\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/britten-i-oll-mal-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Britten1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131124T140000
DTEND;TZID=UTC:20131124T150000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131106T123442Z
LAST-MODIFIED:20131113T150627Z
UID:10000032-1385301600-1385305200@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikadagskráin Vintage með Margréti Sigurðardóttur og hljómsveit
DESCRIPTION:Söngkonan og píanóleikarinn Margrét Sigurðardóttir og hljómsveit skipuð tónlistarmönnunum Gunnari Hrafnssyni á kontrabassa\, gítarleikurunum Ásgeiri Ásgeirssyni og Magnúsi Einarssyni og trommu- og slagverksleikaranum Ásgeiri Óskarssyni flytja tónleikadagskrána Vintage í Hljóðbergi Hannesarholts. Sérstakur gestasöngvari á tónleikunum er Þórhallur Sigurðsson.\n \nTónlistarfólkið hefur unnið að undirbúningi útgáfu með tónlistinni sem hér verður flutt en þar er bæði að finna þroskuð lög frá ýmsum tímabilum sem heyrast hér í nýjum útsetningum og nýútsprungin lög eftir Margréti. \n\nMiðar eru seldir á midi.is og við inngang.\n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikadagskrain-vintage-14-november/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/MS-fertugsafmæli-Version-2.jpg
ORGANIZER;CN="Margr%C3%A9t Sigur%C3%B0ard%C3%B3ttir":MAILTO:margret.sig@me.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131125T200000
DTEND;TZID=UTC:20131125T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131111T234826Z
LAST-MODIFIED:20131113T161506Z
UID:10000035-1385409600-1385416800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ást í ýmsum myndum - Ragnheiður Ólafsdóttir syngur með Tríói Sunnu Gunnlaugs
DESCRIPTION:Ragnheiður Ólafsdóttir gaf út hljómdiskinn Söng riddarans ásamt Þórarni Hjartarsyni árið 2001 og hefur rödd hennar því hljómað í eyrum landsmanna\, þó hún hafi sjálf búið erlendis mörg undanfarin ár.  Á þessum tónleikum kemur ástarskáldið Páll Ólafsson enn við sögu\, en ekki verða sagðar af honum sögur\, heldur eru ljóðin hans sum hver komin í jazzaðan búning. Lögin á tónleikunum eru eftir Ragnheiði\, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og fleiri. Einnig verða fluttar nokkrar sígildar ástarballlöður eftir þekkt jazz-skáld. Ragnheiði til fulltingis í söngnum verða þrír fyrrum félagar í Sönghópnum Sólarmegin. \nTríó Sunnu Gunnlaugs er vel þekkt fyrir frumsaminn jazz og mergjaðan flutning innan lands sem utan. Tríóið hefur nýlega gefið út tvo diska sem fengið hafa afar góða dóma í virtum tónlistartímaritum. Sunna leikur á píanóið\, Þorgrímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á trommur. \n \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-ragnheidur-olafsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Ragnheiður-Ólafs-e1384354279563.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131128T200000
DTEND;TZID=UTC:20131128T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131105T182720Z
LAST-MODIFIED:20131106T123745Z
UID:10000028-1385668800-1385676000@hannesarholt.is
SUMMARY:SoundPost Jass - tónleikar
DESCRIPTION:Jazz kvintettinn SoundPost var stofnaður af Haraldi Guðmundssyni kontrabassaleikara og Hörpu Þorvaldsdóttur söngkonu í Salzburg Austurríki sumarið 2010. Hljómsveitarskipan hefur verið fjölbreytt frá stofnun\, allt frá trommulausu tríói yfir í þéttan kvintett\, með Lukasi Kletzander á piano\, Julian Urabl á gítar og Þorvaldi Þorvaldssyni á trommur.\n\nÍ Mars 2012 gaf hljómsveitin út geisladiskinn „Stories“\, en hann inniheldur 11 frumsamin jazzlög í stíl Billie Holiday/Diane Krall og var diskurinn hljóðblandaður i Los Angeles af íslenskum Grammyverðlaunahafa Husky Hösk (fyrir vinnu með Norah Jones\, Sheryl Crow\, Salomon Burke ofl.). Þýska útgafyfyrirtækið Timezone Records dreifir „Stories“ í Þýskalandi og Austurriki.\n\nSoundPost hefur hlotið góðar undirtektir og hafa lög hljómsveitarinnar verið notuð í þýskri kvikmynd svo eitthvað sé nefnt.\n\nEftir 7 ára búsetu í Austurríki eru hjónin Haraldur og Harpa flutt aftur heim og koma fram og kynna tónlist Soundpost í Hannesarholti fimmtudaginn 28. nóvember. Þar koma þau fram með einvala liði hljóðfæraleikara\, þeim Sunnu Gunnlaugsdóttur píanóleikara\, Scott McLemore trommuleikara og Andrési Gunnlaugssyni gítarleikara.\n\nÁ tónleikunum flytja þau lög af fyrstu hljómplötu sinni „Stories“\, ásamt nýjum efni með dassi af kanil.\n\nMiða má kaupa á
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/soundpost-jass-tonleikar-28-november/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Soundpost.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131130T140000
DTEND;TZID=UTC:20131130T170000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131112T003657Z
LAST-MODIFIED:20131119T170707Z
UID:10000065-1385820000-1385830800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sól í Togo
DESCRIPTION:Hjálparsamtökin Sól í Tógó halda uppboð á verkum íslenskra myndlistarmanna í Hannesarholti\, 30. nóvember kl. 16. \nMeðal listamanna má nefna Elínu Hansdóttur\, Ólaf Elíasson\, Eggert Pétursson\, Harald Jónsson\, Gjörningaklúbbinn og Ragnar Kjartansson. \nÁgóðinn rennur til byggingar heimilis fyrir munaðarlaus börn í Anehó í Tógó. Til að kynna sér starfið nánar er bent á:https://www.facebook.com/solitogo?fref=ts\nhttp://solitogo.org/\n\nNánar um uppboðið:\nhttp://uppbod.solitogo.org/\n\nOpnun á sýningu verkanna hefst viku fyrir uppboð eða þann 23. nóvember kl. 16.\n\nKaffihúsið í Borðstofunni opið.\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sol-i-togo-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Listaspjall
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131201T160000
DTEND;TZID=UTC:20131201T170000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131122T152148Z
LAST-MODIFIED:20131122T152916Z
UID:10000097-1385913600-1385917200@hannesarholt.is
SUMMARY:Frá ljósanna hásal - jólatónleikar Ingunnar Sigurðardóttur
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-ingunnar-sigurdardottur/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Ingunn-Jólatón-2013.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131203T200000
DTEND;TZID=UTC:20131203T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131001T162327Z
LAST-MODIFIED:20131203T004120Z
UID:10000049-1386100800-1386108000@hannesarholt.is
SUMMARY:Þjáning og seigla - að lifa af eða ekki.
DESCRIPTION:Sársauki er óumflýjanlegur\, þjáningin er valkostur er yfirskrift fyrirlestrar sem Högni Óskarsson geðlæknir mun flytja í Hannesarholti þriðjudaginn 3. desember kl. 20:00. Hann er sá þriðji í fyrirlestraröðinni Hvernig heilsast þjóðinni? sem hefur verið á dagskrá í Hannesarholti  í haust\, í umsjá Arnórs Víkingssonar\, gigtarlækis. \nÍ fyrirlestrinum verður fjallað um þjáninguna í tengslum við þunglyndi\, dauðaóskir og sjálfsvígshættu. Fjallað verður um tíðni sjálfsvíga\, áhættuhópa og um forvarnir og meðferð. \nÞjáningin er ríkur þáttur í vestrænni menningararfleifð\, í trúarbragðasögunni jafnt sem í hetjusögum og ævintýrum. Þjáning er hluti af lífinu og lífið er hverfult\, er ein af grunnkenningum Búddah. Þjáningin togast á við vellíðan og draum okkar um stöðuga hamingju. Hún getur sprottið upp úr sjúkdómum eða slysum\, óstöðugri félagslegri stöðu\, missi og sorg eða ófullnægðum þörfum. Við leitumst stöðugt við að útrýma þjáningunni úr lífi okkar\, en dæmum okkur þannig til að viðhalda henni. \nSú stund getur komið í lífi margra að þjáningin  verður svo yfirþyrmandi að þeir sjá þá einu lausn að taka skrefið út úr lífinu. Sumir stíga skrefið\, aðrir ekki. Aðdragandinn er oftast allnokkur en framkvæmdin er oft gerð í skyndigeðshræringu\, stundum eftir langa baráttu við þunglyndi og vonleysi\, sem endar í uppgjöf.  Sem betur fer eru sjálfsvíg tiltölulega fátíð. Miklu fleiri eru þeir sem sleppa lifandi úr þessari lífshættulegu vegferð. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thjaning-og-seigla-ad-lifa-af-eda-ekki/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/2003_021730009-e1385135715171.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20131204
DTEND;VALUE=DATE:20131205
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131020T220015Z
LAST-MODIFIED:20131202T155638Z
UID:10000073-1386115200-1386201599@hannesarholt.is
SUMMARY:Afmælisdagur Hannesar Hafstein
DESCRIPTION:Hannes Hafstein var fæddur þann 4.desember 1861. Þar sem Grundarstígur 10 var heimili hans og fjölskyldu hans\, hafa forráðamenn Hannesarholts heiðrað minningu hans á afmælisdaginn með því að hafa kaffi á könnunni og með því\, ef einhvern skyldi líta við\, eins og tíðkast hefur á íslenskum heimilum í gegnum tíðina. Nú er hins vegar starfrækt í húsinu veitingahúsið Borðstofan og verður það opið frá 11-18 eins og aðra daga. Í tilefni afmælisdagsins verður sýnd í Hljóðbergi stuttmynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar\, sem tekur um 12 mínútur í flutningi. Myndin verður sýnd á heila tímanum allan daginn frá kl.13-17 í Hljóðbergi\, gestum að endurgjaldslausu. Heyrust hefur að Borðstofan muni bjóða uppá heitar vöfflur með rjóma og fleira góðgæti á afmælistilboði.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/afmaeliskaffi-vegna-hannesar-hafstein/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131204T200000
DTEND;TZID=UTC:20131204T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131129T152951Z
LAST-MODIFIED:20131129T152951Z
UID:10000002-1386187200-1386194400@hannesarholt.is
SUMMARY:Skáldaskraf á aðventu.
DESCRIPTION:Félag íslenskra fræða býður til skáldaskrafs á aðventu. Tveir rithöfundar\nmæta til leiks\, lesa úr nýútkomnum bókum og spjalla við viðstadda. Gestir\nkvöldins eru Eiríkur Guðmundsson (höfundur skáldsögunnar 1983) og Þórunn\nErlu- og Valdimarsdóttir (höfundur skáldættarsögunnar Stúlka með maga).\nMörk skáldskapar\, endurminninga\, sjálfslýsinga og ættarsagna verða í\nbrennidepli. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/skaldaskraf-a-adventu/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/skaldaskraf2013.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131206T140000
DTEND;TZID=UTC:20131206T170000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131128T170300Z
LAST-MODIFIED:20131128T170300Z
UID:10000025-1386338400-1386349200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Náttúran í verkum Camus"
DESCRIPTION:Í tilefni þess að nú eru 100 ár liðin frá fæðingu Alberts Camus\, stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fyrir málþingi um verk hans sem ber yfirskriftina „Náttúran í verkum Camus“. \nFyrirlesarar verða: \n\nÁsdís R. Magnúsdóttir\, prófessor í frönsku máli og bókmenntum: „Að þýða hafið. Um náttúruna í ljóðrænum ritgerðum Alberts Camus“\nBjörn Þorsteinsson\, sérfræðingur við Heimspekistofnu: „Rottur og annar ófögnuður: Náttúran í Plágunni“\nIrma Erlingsdóttir\, dósent í frönskum samtímabókmenntum: „Hið pólitíska í náttúrulýsingum Camus“\nPétur Gunnarsson rithöfundur: „Sól\, sjór\, sandur – og syndafall“\nTorfi Tulinius\, prófessor í íslenskum miðaldafræðum: „Haf\, sól og tunga í Útlendingnum“                      \n\nMálþingið fer fram föstudaginn 6. desember kl. 14-17 í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, 101 Reykjavík. \nAðgangur er ókeypis og öllum heimill.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/natturan-i-verkum-camus/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Camus.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131208T160000
DTEND;TZID=UTC:20131208T170000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131120T090937Z
LAST-MODIFIED:20131206T193645Z
UID:10000068-1386518400-1386522000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngum saman allir sem einn
DESCRIPTION:Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, Íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks.  Næsta söngstund verður haldin sunnudaginn 8.desember kl.16\, og mun Þórunn Björnsdóttir\, kórstjóri leiða sönginn í um klukkustund\, Ástvaldur Traustason spilar undir á píanó  og Jón Rafnsson á bassa. Textar munu birtast á skjá. Þar sem jólin eru á næsta leiti verða jólalögin að sjálfsögðu í aðalhlutverki. \nAðgangseyrir er  kr.1000. Hægt er að tryggja sér miða á: www.miði.s \nhttp://midi.is/tonleikar/1/7997/ \nBorðstofan verður opin á fyrstu hæð hússins\, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir. \nHér má sjá myndbönd frá fyrri söngstundum í Hannesarholti: \nhttp://youtu.be/Dmzbs28RWQ4 \nhttp://youtu.be/hBBR155TAFQ \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngum-saman-allir-sem-einn/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131209T080000
DTEND;TZID=UTC:20131209T220000
DTSTAMP:20260530T192447
CREATED:20131206T143220Z
LAST-MODIFIED:20131206T162647Z
UID:10000001-1386576000-1386626400@hannesarholt.is
SUMMARY:Hugsuðu þær öðruvísi? – Konur í heimspeki\, frá fornöld til samtímans
DESCRIPTION:  \nSvo virðist sem hugðarefni margra kvenheimspekinga séu og hafi verið á skjön við ýmis ráðandi stef í kenningum karl-heimspekinga. Í framsögu sinni veltir Sigríður Þorgeirsdóttir upp þeirri spurningu hvort saga vestrænnar heimspeki sé á einhvern hátt öðruvísi þegar hún er sögð í ljósi kvennanna sem lagt hafa stund á heimspeki í gegnum tíðina. Hugsuðu þær á einhvern hátt öðruvísi?\nÚt er komin bók eftir Sigríði sem hefur að geyma stuttar lýsingar á mörgum helstu  kven-heimspekingum veraldarsögunnar allt frá fornöld til samtímans. Sigríður er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hugsudu-thaer-odruvisi-konur-i-heimspeki-fra-fornold-til-samtimans/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Dagbók-2014-net.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR