BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131109T150000
DTEND;TZID=UTC:20131109T170000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131101T171618Z
LAST-MODIFIED:20131101T171643Z
UID:10000064-1384009200-1384016400@hannesarholt.is
SUMMARY:Göngum saman - Fjallkonubrjóst til sölu
DESCRIPTION:Hátt í hundrað konur hafa setið við í október og prjónað Fjallkonubrjóst. Hugmyndina á Kristín Helga Gunnarsdóttir hjá Fjallaverksmiðjunni en hún gaf Göngum saman uppskriftina. Ístex gaf Léttlopa og Hannesarholt bauð prjónara velkomna fjóra miðvikudaga. Á Reyðarfirði og á Akureyri hafa einnig verið prjónuð brjóst.\nNú getur þú eignast Fjallkonubrjóst og styrkt um leið grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fjallkonubrjost-til-solu/
LOCATION:Hljóðberg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131112T200000
DTEND;TZID=UTC:20131112T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20130930T211112Z
LAST-MODIFIED:20131105T184930Z
UID:10000047-1384286400-1384293600@hannesarholt.is
SUMMARY:"Hvernig heilsast þjóðinni?" Fæðingar fyrr og nú
DESCRIPTION:Heilbrigðiserindi í samfélagslegu samhengi í umsjón Arnórs Víkingssonar læknis\, sem fær til liðs við sig ýmsa sérfræðinga. \nMeðganga og fæðing er stór atburður í lífi hverrar konu og fjölskyldu hennar.   Hjá verðandi móður kvikna áður óþekktar tilfinningar með eftirvæntingu í bland við ótta og heitri ósk um að allt fari nú vel.  En ýmsar hættur leynast á leiðinni\, bæði fyrir móður og barn\, og þannig finnast í Íslandssögunni alltof margar frásagnir af barnshafandi konum sem fengu dapurlegan endi.\nStaða þungaðra kvenna á Íslandi í dag er gjörólík og óhætt er að fullyrða að ótrúlegur árangur hefur náðst í að lækka burðarmálsdauða og mæðradauða.\nÍ þessu erindi mun Hildur Harðardóttir\, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir ræða um þær breytingar sem orðið hafa á stöðu verðandi mæðra og barna þeirra\, og um skipulag fæðingarþjónustunnar á Íslandi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/faedingin-dasamlegur-atburdur-en-ekki-haettulaus/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/hh1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131113T200000
DTEND;TZID=UTC:20131113T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131020T220500Z
LAST-MODIFIED:20131111T233318Z
UID:10000055-1384372800-1384380000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með listamanni: Snorri Sigfús Birgisson og Guðni Tómasson
DESCRIPTION:Snorri Sigfús Birgisson\, tónskáld\, verður gestur Hannesarholts miðvikudagskvöldið 13. nóvember kl. 20:00. Snorri hefur starfað sem tónskáld\, píanóleikari\, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim úr námi árið 1980. Verkalistinn er fjölbreyttur og inniheldur einleiksverk\, kammertónlist\, raftónlist\, kórtónlist og sinfónísk verk. Snorri er félagi í Caput-hópnum og hefur verið áberandi í nýrri íslenskri tónsköpun á undanförnum áratugum auk þess sem hann hefur nýtt íslenskan tónlistararf í tónsmíðum sínum á spennandi hátt. \nSnorri verður gestur Hannesarholts en það er Guðni Tómasson\, listfræðingur og tónlistaráhugamaður\, sem ræðir við Snorra. Tónskáldið segir gestum frá verkum sínum og hugmyndum að baki þeim. Snorri leikur einnig brot úr verkum sínum á flygilinn góða sem stendur í tónleikasal Hannesarholts. \nhttp://notendur.centrum.is/~ssb/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-listamanni-snorri-sigfus-birgisson-og-gudni-tomasson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni,Listaspjall,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/10/G6PGLE6V-Snorri-Sigfús.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131117T150000
DTEND;TZID=UTC:20131117T170000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131105T203829Z
LAST-MODIFIED:20131111T173850Z
UID:10000030-1384700400-1384707600@hannesarholt.is
SUMMARY:Sagnaarfur í nýju ljósi.
DESCRIPTION:Í tilefni af útkomu bókanna Ástarsaga Íslendinga að fornu eftir Gunnar Karlsson og Leiftur á horfinni öld eftir Gísla Sigurðsson efnir Forlagið til sögusamkomu í Hannesarholti\, sunnudaginn 17. nóvember kl. 15.  Aðgangur ókeypis\, allir velkomnir. \nBáðar þessar bækur varpa nýju og óvæntu ljósi á sagnaarf okkar Íslendinga. Höfundar munu greina stuttlega frá verkum sínum og rannsóknum en Vilborg Davíðsdóttir\, rithöfundur og þjóðfræðingur\, mun síðan stýra óformlegum umræðum um efnin. \nBók Gunnars Karlsson beinir sjónum lesenda að sögu tilfinninganna og fjallar á lifandi og aðgengilegan hátt um ástir Íslendinga á tímabilinu 870–1300. Þar er til að mynda fjallað um rétt landsmanna til að elska\, makaval þeirra\, skilnaði og frillulíf. Gunnar leitar víða fanga\, í forn kvæði\, lögbækur\, Íslendingasögur\, Sturlungu\, biskupasögur og fleiri rit og kemst að því að ástin réði furðumiklu í lífi forfeðra okkar. \nÍ Leiftri á horfinni öld rýnir Gísli Sigurðsson í hvað sé merkilegt við íslenskar fornbókmenntir og bendir á að þær séu frumbyggjabókmenntir\, skráðar af frumbyggjunum sjálfum um landnám fólks í nýju landi – eftir leifturhugmynd Snorra Sturlusonar um hvernig rittæknin gæti miðlað hinum hefðbundnu munnlegu fræðum. Þær fangi lífs- og heimssýn fólks sem túlkaði veröldina með goðsögum og náði tökum á umhverfi sínu með því að þekja það minningum og örnefnum – innblásið af sagnaranda gelískra þjóða á Bretlandseyjum. \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sagnaarfur-i-nyju-ljosi/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/gisli-og-gunnar-e1384191376692.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131118T200000
DTEND;TZID=UTC:20131118T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20130920T113955Z
LAST-MODIFIED:20131118T100740Z
UID:10000087-1384804800-1384812000@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall - Beita íslenskir fjölmiðlar gagnrýninni hugsun?
DESCRIPTION:Mánudaginn 18. nóvember kl. 20.00 flytur Róbert Haraldsson\, prófessor við sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands fyrirlestur í Hannesarholti um íslenska fréttamennsku út frá viðmiðum um gagnrýna hugsun. \nFyrirlesturinn er sá fjórði í röð fyrirlestra í umsjá Páls Skúlasonar og Henry Alexanders Henryssonar\,. Hann hefur hlotið yfirskriftina „Heimspekispjall“. Róbert mun fara yfir þrenns konar tilhneigingar í íslenskri  fréttamennsku sem hann telur að geti hver um sig grafið undan vandaðri og hlutlægri blaðamennsku og ógnað sjálfstæði fjölmiðla. Hann heldur því fram að fái þessar tilhneigingar að vaxa óhindraðar sé úti um gagnrýna fréttamennsku á Íslandi. \nÍ fyrsta lagi verður spurt hvort mörk frétta og auglýsinga hafa smám saman verið að mást út á undanförnum áratugum hér á landi. Í öðru lagi verður skoðað það einkenni á íslenskri blaðamennsku sem nefna mætti „hann sagði\, hún sagði“ fréttamennska\, en þar eru viðhorf ólíkra viðmælenda leidd fram án þess að tilraun sé gerð til að meta sanngildi eða trúverðugleika þeirra. Í þriðja lagi verður skoðað hvernig íslenskir fréttamenn setja sig í auknum mæli í spor nokkurs konar þerapista sem hlusta með ógagnrýnum hætti á sögur þolenda af hvers kyns óréttlæti sem þeir telja sig hafa orðið fyrir. \nRóbert Haraldsson er heimspekingur og prófessor við Háskóla Íslands. Hann lauk B.A.-gráðu í heimspeki og sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1985. Róbert nam heimspeki við University of Pittsburgh og lauk þaðan M.A.-gráðu árið 1989 og Ph.D.-gráðu árið 1997. Hann hefur verið forstöðumaður Heimspekistofnunar Háskóla Íslands frá 2003 og ritstjóri Sats\, samnorræns tímarits um heimspeki\, frá 2001. Róbert var ritstjóri Skírnis árin 1995-1999 (ásamt Jóni Karli Helgasyni) og hefur flutt fjölda erinda m.a. um starfsemi fjölmiðla. \nMarkmið Hannesarholts er að efla jákvæða\, gagnrýna hugsun í íslensku samfélagi\, auka skilning á gildi sögunnar og hvetja til uppbyggilegrar umræðu og samveru.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gagnrynin-hugsun-og-fjolmidlar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Róbert-Haraldsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131120T200000
DTEND;TZID=UTC:20131120T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131111T235550Z
LAST-MODIFIED:20131119T162839Z
UID:10000026-1384977600-1384984800@hannesarholt.is
SUMMARY:BRÆÐRALÖG -  samræða um fagurfræði íslenskrar stjórnmálabaráttu
DESCRIPTION:Hvernig leita íslenskir stjórnmálamenn í menningarlífið og menningarsöguna\ntil að styðja við stefnumál sín og ímynd? Hver eru tengslin milli Jónasar\nHallgrímssonar\, Hannesar Hafstein\, Jónasar frá Hriflu\, Einars Olgeirssonar\nSigurðar Nordals og Davíðs Oddssonar? Leitað verður svara\nvið þessum spurningum á samræðu sem Sögufélag og Hannesarholt standa\nfyrir miðvikudaginn 20. nóvember um fagurfræði íslenskrar stjórnmálabaráttu.\nSagnfræðingarnir Guðni Th. Jóhannesson\, Ragnheiður Kristjánsdóttir og\nÓlafur Rastrick og bókmenntafræðingurinn Jón Karl Helgason verða\nmálshefjendur en einnig er gert ráð fyrir virkri þátttöku gesta.\nTilefni samræðunnar eru nýútkomnar bækur þeirra Ólafs og Jóns Karls\,\nHáborgin – menning\, fagurfræði og pólitík og Ódáinsakur: Helgifesta\nþjóðardýrlinga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/braedralog-samraeda-um-fagurfraedi-islenskrar-stjornmalabarattu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/jon_karl_helgason-e1384214021956.jpg
ORGANIZER;CN="S%C3%B6guf%C3%A9lag og Hannesarholt":MAILTO:hannesarholt@hannesarholt.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131121T200000
DTEND;TZID=UTC:20131121T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131118T224152Z
LAST-MODIFIED:20131119T152359Z
UID:10000067-1385064000-1385071200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kamban\, bókin og myndin
DESCRIPTION:Guðmundur Kamban (1888-1945) var í hópi þekktustu rithöfunda Íslendinga um sína daga. Hann hefur verið talinn í hópi fremstu leikskálda þjóðarinnar og skáldsögur hans\, einkum Skálholt\, voru þýddar á annan tug tungumála og m.a. gefnar út í Bretlandi og Bandaríkjunum\, en það var óalgengt á millistríðsárunum. \nHann var líkt og Gunnar Gunnarsson meira að segja orðaður við Nóbelsverðlaunin í sænskum blöðum. Um nokkurra ára skeið á fjórða áratugnum var hann búsettur í Þýskalandi og sú dvöl reyndist honum afdrifarík því að það orð komst á að hann hefði verið hallur undir stjórnvöld þar.\nNýlega kom út bók um Kamban eftir bókmennta- og leikhúsmanninn Svein Einarsson og hefur ferill Kambans aldrei verið rakinn jafn ítarlega\, né heldur tildrögin að morðinu á frelsisdegi Dana 5. maí 1945. Margt nýtt kemur fram í þessari bók um stórbrotinn höfund og dramatíska ævi hans.\nHúsfyllir var á Kambanskvöldi hjá Rithöfundasambandi Íslands á dögunum og áhugi mikill á lífi þessa merka manns. Því verður haldið annað kvöld til heiðurs Guðmundi Kamban nk. fimmtudagskvöld í Hannesarholti við Grundarstíg. Þar mun Sveinn segja frá bókinni og sýnd verður mynd þeirra Viðars Víkingssonar og Hallgríms H. Helgasonar\, frænda skáldsins\, um Kamban. Myndin var gerð fyrir RÚV þegar 100 ára afmælis Kambans  var minnst árið 1988. \n  \nDagskráin hefst kl. 20 og er öllum opinn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kamban-bokin-og-myndin/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Kamban_175.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131122T210000
DTEND;TZID=UTC:20131122T223000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131101T010623Z
LAST-MODIFIED:20131105T190932Z
UID:10000057-1385154000-1385159400@hannesarholt.is
SUMMARY:"Britten í öll mál"
DESCRIPTION:Á fæðingardegi tónskáldsins Benjamins Britten og degi heilagrar Sesselíu\, verndardýrlings tónlistarinnar\, 22. nóvember\, halda Hlín Pétursdóttir Behrens\, sópran og Gerrit Schuil píanóleikari upp á hundrað ára ártíð tónskáldsins með tónleikum í Hljóðbergi Hannesarholts\, Grundarstíg 10 í Reykjavík. Tónleikarnir hefjast kl 21.00 og verða endurteknir sunnudaginn 24. nóvember kl 11.00. Efnisskráin endurspeglar sérstaklega hið frjóa samstarf tónskáldins við ljóðskáldið Wystan Hugh Auden m.a. með ljóðaflokkunum On this Island og Cabaret Songs.\n\nBorðstofan er opin fyrir tónleikana á föstudag og hægt er að panta kvöldverð að hætti hússins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/britten-i-oll-mal/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Britten1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131124T110000
DTEND;TZID=UTC:20131124T123000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131101T011501Z
LAST-MODIFIED:20131105T190741Z
UID:10000059-1385290800-1385296200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Britten í öll mál"
DESCRIPTION:Hlín Pétursdóttir Behrens\, sópran og Gerrit Schuil píanóleikari endurtaka tónleika frá föstudeginum 22.nóvember\, fæðingardegi tónskáldsins Benjamins Britten og degi heilagrar Sesselíu\, verndardýrlings tónlistarinnar.  Tónleikarnir eru haldnir tónskáldinu til heiðurs í tilefni af hundrað ára fæðingarafmæli hans. Sunnudagstónleikarnir  24. nóvember hefjast kl 11.00. Efnisskráin endurspeglar sérstaklega hið frjóa samstarf tónskáldins við ljóðskáldið Wystan Hugh Auden m.a. með ljóðaflokkunum On this Island og Cabaret Songs.\n\n\nEftir tónleikana á sunnudag verður Borðstofan með freistandi kræsingar á boðstólum.\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/britten-i-oll-mal-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Britten1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131124T140000
DTEND;TZID=UTC:20131124T150000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131106T123442Z
LAST-MODIFIED:20131113T150627Z
UID:10000032-1385301600-1385305200@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikadagskráin Vintage með Margréti Sigurðardóttur og hljómsveit
DESCRIPTION:Söngkonan og píanóleikarinn Margrét Sigurðardóttir og hljómsveit skipuð tónlistarmönnunum Gunnari Hrafnssyni á kontrabassa\, gítarleikurunum Ásgeiri Ásgeirssyni og Magnúsi Einarssyni og trommu- og slagverksleikaranum Ásgeiri Óskarssyni flytja tónleikadagskrána Vintage í Hljóðbergi Hannesarholts. Sérstakur gestasöngvari á tónleikunum er Þórhallur Sigurðsson.\n \nTónlistarfólkið hefur unnið að undirbúningi útgáfu með tónlistinni sem hér verður flutt en þar er bæði að finna þroskuð lög frá ýmsum tímabilum sem heyrast hér í nýjum útsetningum og nýútsprungin lög eftir Margréti. \n\nMiðar eru seldir á midi.is og við inngang.\n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikadagskrain-vintage-14-november/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/MS-fertugsafmæli-Version-2.jpg
ORGANIZER;CN="Margr%C3%A9t Sigur%C3%B0ard%C3%B3ttir":MAILTO:margret.sig@me.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131125T200000
DTEND;TZID=UTC:20131125T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131111T234826Z
LAST-MODIFIED:20131113T161506Z
UID:10000035-1385409600-1385416800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ást í ýmsum myndum - Ragnheiður Ólafsdóttir syngur með Tríói Sunnu Gunnlaugs
DESCRIPTION:Ragnheiður Ólafsdóttir gaf út hljómdiskinn Söng riddarans ásamt Þórarni Hjartarsyni árið 2001 og hefur rödd hennar því hljómað í eyrum landsmanna\, þó hún hafi sjálf búið erlendis mörg undanfarin ár.  Á þessum tónleikum kemur ástarskáldið Páll Ólafsson enn við sögu\, en ekki verða sagðar af honum sögur\, heldur eru ljóðin hans sum hver komin í jazzaðan búning. Lögin á tónleikunum eru eftir Ragnheiði\, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og fleiri. Einnig verða fluttar nokkrar sígildar ástarballlöður eftir þekkt jazz-skáld. Ragnheiði til fulltingis í söngnum verða þrír fyrrum félagar í Sönghópnum Sólarmegin. \nTríó Sunnu Gunnlaugs er vel þekkt fyrir frumsaminn jazz og mergjaðan flutning innan lands sem utan. Tríóið hefur nýlega gefið út tvo diska sem fengið hafa afar góða dóma í virtum tónlistartímaritum. Sunna leikur á píanóið\, Þorgrímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á trommur. \n \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-ragnheidur-olafsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Ragnheiður-Ólafs-e1384354279563.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131128T200000
DTEND;TZID=UTC:20131128T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131105T182720Z
LAST-MODIFIED:20131106T123745Z
UID:10000028-1385668800-1385676000@hannesarholt.is
SUMMARY:SoundPost Jass - tónleikar
DESCRIPTION:Jazz kvintettinn SoundPost var stofnaður af Haraldi Guðmundssyni kontrabassaleikara og Hörpu Þorvaldsdóttur söngkonu í Salzburg Austurríki sumarið 2010. Hljómsveitarskipan hefur verið fjölbreytt frá stofnun\, allt frá trommulausu tríói yfir í þéttan kvintett\, með Lukasi Kletzander á piano\, Julian Urabl á gítar og Þorvaldi Þorvaldssyni á trommur.\n\nÍ Mars 2012 gaf hljómsveitin út geisladiskinn „Stories“\, en hann inniheldur 11 frumsamin jazzlög í stíl Billie Holiday/Diane Krall og var diskurinn hljóðblandaður i Los Angeles af íslenskum Grammyverðlaunahafa Husky Hösk (fyrir vinnu með Norah Jones\, Sheryl Crow\, Salomon Burke ofl.). Þýska útgafyfyrirtækið Timezone Records dreifir „Stories“ í Þýskalandi og Austurriki.\n\nSoundPost hefur hlotið góðar undirtektir og hafa lög hljómsveitarinnar verið notuð í þýskri kvikmynd svo eitthvað sé nefnt.\n\nEftir 7 ára búsetu í Austurríki eru hjónin Haraldur og Harpa flutt aftur heim og koma fram og kynna tónlist Soundpost í Hannesarholti fimmtudaginn 28. nóvember. Þar koma þau fram með einvala liði hljóðfæraleikara\, þeim Sunnu Gunnlaugsdóttur píanóleikara\, Scott McLemore trommuleikara og Andrési Gunnlaugssyni gítarleikara.\n\nÁ tónleikunum flytja þau lög af fyrstu hljómplötu sinni „Stories“\, ásamt nýjum efni með dassi af kanil.\n\nMiða má kaupa á
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/soundpost-jass-tonleikar-28-november/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Soundpost.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131130T140000
DTEND;TZID=UTC:20131130T170000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131112T003657Z
LAST-MODIFIED:20131119T170707Z
UID:10000065-1385820000-1385830800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sól í Togo
DESCRIPTION:Hjálparsamtökin Sól í Tógó halda uppboð á verkum íslenskra myndlistarmanna í Hannesarholti\, 30. nóvember kl. 16. \nMeðal listamanna má nefna Elínu Hansdóttur\, Ólaf Elíasson\, Eggert Pétursson\, Harald Jónsson\, Gjörningaklúbbinn og Ragnar Kjartansson. \nÁgóðinn rennur til byggingar heimilis fyrir munaðarlaus börn í Anehó í Tógó. Til að kynna sér starfið nánar er bent á:https://www.facebook.com/solitogo?fref=ts\nhttp://solitogo.org/\n\nNánar um uppboðið:\nhttp://uppbod.solitogo.org/\n\nOpnun á sýningu verkanna hefst viku fyrir uppboð eða þann 23. nóvember kl. 16.\n\nKaffihúsið í Borðstofunni opið.\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sol-i-togo-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Listaspjall
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131201T160000
DTEND;TZID=UTC:20131201T170000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131122T152148Z
LAST-MODIFIED:20131122T152916Z
UID:10000097-1385913600-1385917200@hannesarholt.is
SUMMARY:Frá ljósanna hásal - jólatónleikar Ingunnar Sigurðardóttur
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-ingunnar-sigurdardottur/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Ingunn-Jólatón-2013.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131203T200000
DTEND;TZID=UTC:20131203T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131001T162327Z
LAST-MODIFIED:20131203T004120Z
UID:10000049-1386100800-1386108000@hannesarholt.is
SUMMARY:Þjáning og seigla - að lifa af eða ekki.
DESCRIPTION:Sársauki er óumflýjanlegur\, þjáningin er valkostur er yfirskrift fyrirlestrar sem Högni Óskarsson geðlæknir mun flytja í Hannesarholti þriðjudaginn 3. desember kl. 20:00. Hann er sá þriðji í fyrirlestraröðinni Hvernig heilsast þjóðinni? sem hefur verið á dagskrá í Hannesarholti  í haust\, í umsjá Arnórs Víkingssonar\, gigtarlækis. \nÍ fyrirlestrinum verður fjallað um þjáninguna í tengslum við þunglyndi\, dauðaóskir og sjálfsvígshættu. Fjallað verður um tíðni sjálfsvíga\, áhættuhópa og um forvarnir og meðferð. \nÞjáningin er ríkur þáttur í vestrænni menningararfleifð\, í trúarbragðasögunni jafnt sem í hetjusögum og ævintýrum. Þjáning er hluti af lífinu og lífið er hverfult\, er ein af grunnkenningum Búddah. Þjáningin togast á við vellíðan og draum okkar um stöðuga hamingju. Hún getur sprottið upp úr sjúkdómum eða slysum\, óstöðugri félagslegri stöðu\, missi og sorg eða ófullnægðum þörfum. Við leitumst stöðugt við að útrýma þjáningunni úr lífi okkar\, en dæmum okkur þannig til að viðhalda henni. \nSú stund getur komið í lífi margra að þjáningin  verður svo yfirþyrmandi að þeir sjá þá einu lausn að taka skrefið út úr lífinu. Sumir stíga skrefið\, aðrir ekki. Aðdragandinn er oftast allnokkur en framkvæmdin er oft gerð í skyndigeðshræringu\, stundum eftir langa baráttu við þunglyndi og vonleysi\, sem endar í uppgjöf.  Sem betur fer eru sjálfsvíg tiltölulega fátíð. Miklu fleiri eru þeir sem sleppa lifandi úr þessari lífshættulegu vegferð. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thjaning-og-seigla-ad-lifa-af-eda-ekki/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/2003_021730009-e1385135715171.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20131204
DTEND;VALUE=DATE:20131205
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131020T220015Z
LAST-MODIFIED:20131202T155638Z
UID:10000073-1386115200-1386201599@hannesarholt.is
SUMMARY:Afmælisdagur Hannesar Hafstein
DESCRIPTION:Hannes Hafstein var fæddur þann 4.desember 1861. Þar sem Grundarstígur 10 var heimili hans og fjölskyldu hans\, hafa forráðamenn Hannesarholts heiðrað minningu hans á afmælisdaginn með því að hafa kaffi á könnunni og með því\, ef einhvern skyldi líta við\, eins og tíðkast hefur á íslenskum heimilum í gegnum tíðina. Nú er hins vegar starfrækt í húsinu veitingahúsið Borðstofan og verður það opið frá 11-18 eins og aðra daga. Í tilefni afmælisdagsins verður sýnd í Hljóðbergi stuttmynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar\, sem tekur um 12 mínútur í flutningi. Myndin verður sýnd á heila tímanum allan daginn frá kl.13-17 í Hljóðbergi\, gestum að endurgjaldslausu. Heyrust hefur að Borðstofan muni bjóða uppá heitar vöfflur með rjóma og fleira góðgæti á afmælistilboði.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/afmaeliskaffi-vegna-hannesar-hafstein/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131204T200000
DTEND;TZID=UTC:20131204T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131129T152951Z
LAST-MODIFIED:20131129T152951Z
UID:10000002-1386187200-1386194400@hannesarholt.is
SUMMARY:Skáldaskraf á aðventu.
DESCRIPTION:Félag íslenskra fræða býður til skáldaskrafs á aðventu. Tveir rithöfundar\nmæta til leiks\, lesa úr nýútkomnum bókum og spjalla við viðstadda. Gestir\nkvöldins eru Eiríkur Guðmundsson (höfundur skáldsögunnar 1983) og Þórunn\nErlu- og Valdimarsdóttir (höfundur skáldættarsögunnar Stúlka með maga).\nMörk skáldskapar\, endurminninga\, sjálfslýsinga og ættarsagna verða í\nbrennidepli. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/skaldaskraf-a-adventu/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/skaldaskraf2013.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131206T140000
DTEND;TZID=UTC:20131206T170000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131128T170300Z
LAST-MODIFIED:20131128T170300Z
UID:10000025-1386338400-1386349200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Náttúran í verkum Camus"
DESCRIPTION:Í tilefni þess að nú eru 100 ár liðin frá fæðingu Alberts Camus\, stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fyrir málþingi um verk hans sem ber yfirskriftina „Náttúran í verkum Camus“. \nFyrirlesarar verða: \n\nÁsdís R. Magnúsdóttir\, prófessor í frönsku máli og bókmenntum: „Að þýða hafið. Um náttúruna í ljóðrænum ritgerðum Alberts Camus“\nBjörn Þorsteinsson\, sérfræðingur við Heimspekistofnu: „Rottur og annar ófögnuður: Náttúran í Plágunni“\nIrma Erlingsdóttir\, dósent í frönskum samtímabókmenntum: „Hið pólitíska í náttúrulýsingum Camus“\nPétur Gunnarsson rithöfundur: „Sól\, sjór\, sandur – og syndafall“\nTorfi Tulinius\, prófessor í íslenskum miðaldafræðum: „Haf\, sól og tunga í Útlendingnum“                      \n\nMálþingið fer fram föstudaginn 6. desember kl. 14-17 í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, 101 Reykjavík. \nAðgangur er ókeypis og öllum heimill.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/natturan-i-verkum-camus/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Camus.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131208T160000
DTEND;TZID=UTC:20131208T170000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131120T090937Z
LAST-MODIFIED:20131206T193645Z
UID:10000068-1386518400-1386522000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngum saman allir sem einn
DESCRIPTION:Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, Íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks.  Næsta söngstund verður haldin sunnudaginn 8.desember kl.16\, og mun Þórunn Björnsdóttir\, kórstjóri leiða sönginn í um klukkustund\, Ástvaldur Traustason spilar undir á píanó  og Jón Rafnsson á bassa. Textar munu birtast á skjá. Þar sem jólin eru á næsta leiti verða jólalögin að sjálfsögðu í aðalhlutverki. \nAðgangseyrir er  kr.1000. Hægt er að tryggja sér miða á: www.miði.s \nhttp://midi.is/tonleikar/1/7997/ \nBorðstofan verður opin á fyrstu hæð hússins\, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir. \nHér má sjá myndbönd frá fyrri söngstundum í Hannesarholti: \nhttp://youtu.be/Dmzbs28RWQ4 \nhttp://youtu.be/hBBR155TAFQ \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngum-saman-allir-sem-einn/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131209T080000
DTEND;TZID=UTC:20131209T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131206T143220Z
LAST-MODIFIED:20131206T162647Z
UID:10000001-1386576000-1386626400@hannesarholt.is
SUMMARY:Hugsuðu þær öðruvísi? – Konur í heimspeki\, frá fornöld til samtímans
DESCRIPTION:  \nSvo virðist sem hugðarefni margra kvenheimspekinga séu og hafi verið á skjön við ýmis ráðandi stef í kenningum karl-heimspekinga. Í framsögu sinni veltir Sigríður Þorgeirsdóttir upp þeirri spurningu hvort saga vestrænnar heimspeki sé á einhvern hátt öðruvísi þegar hún er sögð í ljósi kvennanna sem lagt hafa stund á heimspeki í gegnum tíðina. Hugsuðu þær á einhvern hátt öðruvísi?\nÚt er komin bók eftir Sigríði sem hefur að geyma stuttar lýsingar á mörgum helstu  kven-heimspekingum veraldarsögunnar allt frá fornöld til samtímans. Sigríður er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hugsudu-thaer-odruvisi-konur-i-heimspeki-fra-fornold-til-samtimans/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Dagbók-2014-net.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131210T200000
DTEND;TZID=UTC:20131210T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131122T112640Z
LAST-MODIFIED:20131125T134534Z
UID:10000107-1386705600-1386712800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar "Rósirnar hennar Elsu"
DESCRIPTION:  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-rosirnar-hennar-elsu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/jólarósir-elsu-waage-mynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131212T200000
DTEND;TZID=UTC:20131212T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131203T003927Z
LAST-MODIFIED:20131212T001415Z
UID:10000003-1386878400-1386885600@hannesarholt.is
SUMMARY:Andri Snær\, Vigdís Gríms\, Gissur Páll og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar
DESCRIPTION:Verðlaunarithöfundarnir Andri Snær Magnason\, Vigdís Grímsdóttir\, tenórinn Gissur Páll Gissurarson og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar munu leiða saman hesta sína í fjölbreyttu menningarkvöldi í Hannesarholti fimmtudaginn 12. desember. \nÞessi fjölbreytti hópur listamanna mun koma fram\, lesa\, syngja\, spila og skarast svo á ýmsan hátt. Árni Heiðar hefur nýverið sent frá sér geisladiskinn Mold ásamt tríói sínu en fyrir þessa kvöldvöku hefur hann samið stef við texta Andra Snæs sem tríóið hans mun frumflytja. Þau munu lesa úr Tímakistunni og Dísusögu sem báðar eru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna\, hvor í sínum flokki. Auk þessa mun söngvarinn Gissur Páll syngja jólastemninguna inn í hjörtu gesta eins og honum er einum lagið við undirleik Árna Heiðars\, en Gissur er löngu orðinn einn af okkar ástsælustu söngvurum. Til að kóróna jólastemninguna verður gestum boðið upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Hér er hægt að kaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/andri-snaer-vigdis-grims-gissur-pall-og-djasstrio-arna-heidars-karlssonar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/fimmtudagur-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131214T120000
DTEND;TZID=UTC:20131214T180000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131211T111632Z
LAST-MODIFIED:20131211T111632Z
UID:10000006-1387022400-1387044000@hannesarholt.is
SUMMARY:Gefum og gleðjumst!
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gefum-og-gledjumst-2/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/gefum-og-gleðjumst.a3.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131216T200000
DTEND;TZID=UTC:20131216T220000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131112T004905Z
LAST-MODIFIED:20131216T125739Z
UID:10000066-1387224000-1387231200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Myndir af fortíðinni" - bókmenntakvöld: Einar Már Jónsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir
DESCRIPTION:  \nKvölddagskrá með Einari Má Jónssyni\, sem hann nefnir „Myndir af fortíðinni\,“ og fjallar um söguritun og stöðu hennar\, og hinar ýmsu leiðir til að lýsa fortíðinni. Kvöldið hefst á fyrirlestri Einars\, og eftir hlé les hann upp úr óútkominni bók sinni sem er framhald af  Örlagaborginni sem hann gaf  út á síðasta ári. Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari leikur Les barricades mysterieuses eftir Francois Couperin\, sem tengist beint efni fyrirlestursins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntakvold-einar-mar-jonsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Kvöldstund með listamanni,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/04/EMJ.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131217T200000
DTEND;TZID=UTC:20131217T213000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131210T215913Z
LAST-MODIFIED:20131217T143328Z
UID:10000005-1387310400-1387315800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar Íslenska sönglistahópsins
DESCRIPTION:Jólasöngvar í holti óma. \n\nÞriðjudagskvöldið 17. desember heldur Íslenski sönglistahópurinn jólatónleika í Hljóðbergi\, hinum rómaða tónleikasal Hannesarholts að Grundarstíg 10. \nTónleikarnir eru skemmtun og hátíðleiki í bland. Efnisskráin samanstendur af kórtónlist tuttugustu aldar meistara\, m.a. Britten\, Brahms\, Taverner og Kodály\, ásamt jólalögum sem allir þekkja. Verkin verða ýmist flutt í einsöng\, tríó\, kvartettum eða í stærri hópum. \nFram koma:\nElma Atladóttir\, Eygló Rúnarsdóttir\, Halldór Unnar Ómarsson\, Pétur Pétursson\, Ragnheiður Sara Grímsdóttir\, Sigþrúður Erla Arnardóttir\, Sigurjón Jóhannesson\, Sæberg Sigurðsson\, Tinna Sigurðardóttir\,\nÚlfur Sveinbjarnarson og Valgerður Guðrún Halldórsdóttir. \nPíanóleik annast Renata Ivan. Stjórnandi er Egill Gunnarsson \nMiðasala við inngang og á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/3754/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/mynd_isl_songlist.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131222T180000
DTEND;TZID=UTC:20131222T184500
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131202T105521Z
LAST-MODIFIED:20131222T131836Z
UID:10000004-1387735200-1387737900@hannesarholt.is
SUMMARY:Söngperlur Sefarda\, Baska og Lorca. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Dúó Roncesvalles
DESCRIPTION:Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópransöngkona\, sem búsett er í Madrid\, og Dúó Roncesvalles munu leiða áheyrendur inn í hinn heillandi spænska tónheim sefardískra gyðinga frá miðöldum\, basneskra þjóðlaga og söngva frá Andalúsíu\, í útsetningum rithöfundarins og skáldsins Federico Garcia Lorca. \nDúo Roncesvalles: \nElena Jáuregui\, fiðla    www.elenajauregui.com \nFrancisco Javier Jáuregui\, gítar    javierjauregui.com \n  \nGuðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópran     www.gudrunolafsdottir.com \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/songperlur-sefarda-baska-og-lorca-gudrun-johanna-olafsdottir-og-duo-roncesvalles/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Guðrún-Jóhanna-photo.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131222T220000
DTEND;TZID=UTC:20131231T230000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131219T230257Z
LAST-MODIFIED:20131219T231134Z
UID:10000007-1387749600-1388530800@hannesarholt.is
SUMMARY:
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gefum-og-gledjumst-til-aramota/
LOCATION:Hanesarholt.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131223T200000
DTEND;TZID=UTC:20140106T230000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131223T182341Z
LAST-MODIFIED:20131229T001151Z
UID:10000009-1387828800-1389049200@hannesarholt.is
SUMMARY:Gefum og gleðjumst öll jólin
DESCRIPTION:Á meðan Hannesarholt og Borðstofan loka vegna jólaleyfis\, geta gestir hannesarholts.is notið þess að hlýða á jólahugvekjur og tónlist\, sem flutt var á góðgerðardegi í Hannesarholti á aðventunni\, 14.desember. Sjá nánar hér við hliðina.\nSöfnun fyrir Fjölskyldumiðstöð Rauða krossins í Reykjavík var sett af stað þennan dag og stendur fram á þrettándann.\nSímanúmer: 902 – 5100 gefur 1000 kr framlag til Fjölskyldumiðstöðvar Rauða krossins í Reykjavík\nSímanúmer: 902 – 5150 gefur  500 kr framlag til Fjölskyldumiðstöðvar Rauða krossins í Reykjavík
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gefum-og-gledjumst-oll-jolin/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/IMG_23761-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140126T160000
DTEND;TZID=UTC:20140126T170000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20140123T134606Z
LAST-MODIFIED:20140208T001154Z
UID:10000010-1390752000-1390755600@hannesarholt.is
SUMMARY:Heiðrum Dick Ringler áttræðan - Jónasarlögin á íslensku og ensku
DESCRIPTION:Dick Ringler\, fyrrum prófessor í enskum miðaldabókmenntum og norrænum fræðum við Wisconsinháskóla í Madison er áttræður um þessar mundir\, og verður af því tilefni lesið úr ljóðum hans í heimahögunum. Hann hefur gefið íslenskri þjóð stærstu gjöf sem einn maður getur gefið með því að endurskapa á erlendu tungumáli höfundarverk eins af þjóðskáldunum\, Jónasar Hallgrímssonar. Afraksturinn er slíkur\, að öll Jónasarlögin sem við syngjum gjarnan á góðum stundum má með hægðarleik syngja á ensku jafnvel og á íslensku. Ringler þýddi Jónas vegna þess að honum fannst hann eiga erindi við heiminn\, að hans mati engu síðra skáld en William Wordsworth. Nú viljum við heiðra Dick áttræðan\, með því að syngja úrval Jónasarljóða á íslensku og ensku í Hljóðbergi Hannesarholts\, sunnudaginn 26.janúar kl.16. Textar munu birtast á tjaldi\, til að allir geti sungið með. Margrét Pálmadóttir mun hjálpa til með forsöng og Ástvaldur Traustason mun spila með á flygilinn. Viðar Víkingsson mun kvikmynda söngstundina\, og brot úr henni mun birtast á vef Hannesarholts\, þar sem Dick Ringler mun geta notið hennar á heimili sínu í Madison\, þegar honum hentar. \nÞýðingar Ringlers á höfundarverki Jónasar birtust í bókinni Bard of Iceland\, eða Sagnaskáld Íslands\, sem gefin var út hjá University of Wiscsonin Press 2002 og endurútgefin hjá Forlaginu 2010. Einnig var sett upp í Wisconsinháskóla vegleg heimasíða á vegum Ringlers um Jónas Hallgrímsson. http://www.library.wisc.edu/etext/jonas/ \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heidrum-dick-ringler-attraedan-jonasarlogin-a-islensku-og-ensku/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/01/Bard_of_Iceland_175-copy.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140208T160000
DTEND;TZID=UTC:20140208T170000
DTSTAMP:20260530T183424
CREATED:20131221T155319Z
LAST-MODIFIED:20140207T123046Z
UID:10000008-1391875200-1391878800@hannesarholt.is
SUMMARY:Eins árs afmæli Hannesarholts
DESCRIPTION:Laugardaginn 8.febrúar verður eitt ár liðið frá því að Hannesarholt var formlega opnað. Af því tilefni verður efnt til afmælishátíðar í Hljóðbergi kl.16-17.\nDagskrá:\n1. Ávarp: Ragnheiður Jóna Jónsdóttir stofnandi og forstöðumaður býður gesti velkomna.\n2. Ljóðaflutningur: Systurnar Ragnheiður Elín og Þórunn Erna Clausen flytja ljóð Hannesar Hafstein langafa síns til Ragnheiðar Hafstein.\n3. Bronsmynd af Ragnheiði Hafstein boðin velkomin aftur í húsið.\n4. Tónlistarflutningur: Schola Cantorum syngur nokkur lög í tilefni dagsins.\n5. Pistill um Hannes Hafstein: Guðmundur Andri Thorsson flytur. \nLéttar veitingar. \nVelunnarar velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/arsafmaeli-hannesarholts/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Hannesarholt-e1391776206842.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR