BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131125T200000
DTEND;TZID=UTC:20131125T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131111T234826Z
LAST-MODIFIED:20131113T161506Z
UID:10000035-1385409600-1385416800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ást í ýmsum myndum - Ragnheiður Ólafsdóttir syngur með Tríói Sunnu Gunnlaugs
DESCRIPTION:Ragnheiður Ólafsdóttir gaf út hljómdiskinn Söng riddarans ásamt Þórarni Hjartarsyni árið 2001 og hefur rödd hennar því hljómað í eyrum landsmanna\, þó hún hafi sjálf búið erlendis mörg undanfarin ár.  Á þessum tónleikum kemur ástarskáldið Páll Ólafsson enn við sögu\, en ekki verða sagðar af honum sögur\, heldur eru ljóðin hans sum hver komin í jazzaðan búning. Lögin á tónleikunum eru eftir Ragnheiði\, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og fleiri. Einnig verða fluttar nokkrar sígildar ástarballlöður eftir þekkt jazz-skáld. Ragnheiði til fulltingis í söngnum verða þrír fyrrum félagar í Sönghópnum Sólarmegin. \nTríó Sunnu Gunnlaugs er vel þekkt fyrir frumsaminn jazz og mergjaðan flutning innan lands sem utan. Tríóið hefur nýlega gefið út tvo diska sem fengið hafa afar góða dóma í virtum tónlistartímaritum. Sunna leikur á píanóið\, Þorgrímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á trommur. \n \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-ragnheidur-olafsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Ragnheiður-Ólafs-e1384354279563.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131128T200000
DTEND;TZID=UTC:20131128T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131105T182720Z
LAST-MODIFIED:20131106T123745Z
UID:10000028-1385668800-1385676000@hannesarholt.is
SUMMARY:SoundPost Jass - tónleikar
DESCRIPTION:Jazz kvintettinn SoundPost var stofnaður af Haraldi Guðmundssyni kontrabassaleikara og Hörpu Þorvaldsdóttur söngkonu í Salzburg Austurríki sumarið 2010. Hljómsveitarskipan hefur verið fjölbreytt frá stofnun\, allt frá trommulausu tríói yfir í þéttan kvintett\, með Lukasi Kletzander á piano\, Julian Urabl á gítar og Þorvaldi Þorvaldssyni á trommur.\n\nÍ Mars 2012 gaf hljómsveitin út geisladiskinn „Stories“\, en hann inniheldur 11 frumsamin jazzlög í stíl Billie Holiday/Diane Krall og var diskurinn hljóðblandaður i Los Angeles af íslenskum Grammyverðlaunahafa Husky Hösk (fyrir vinnu með Norah Jones\, Sheryl Crow\, Salomon Burke ofl.). Þýska útgafyfyrirtækið Timezone Records dreifir „Stories“ í Þýskalandi og Austurriki.\n\nSoundPost hefur hlotið góðar undirtektir og hafa lög hljómsveitarinnar verið notuð í þýskri kvikmynd svo eitthvað sé nefnt.\n\nEftir 7 ára búsetu í Austurríki eru hjónin Haraldur og Harpa flutt aftur heim og koma fram og kynna tónlist Soundpost í Hannesarholti fimmtudaginn 28. nóvember. Þar koma þau fram með einvala liði hljóðfæraleikara\, þeim Sunnu Gunnlaugsdóttur píanóleikara\, Scott McLemore trommuleikara og Andrési Gunnlaugssyni gítarleikara.\n\nÁ tónleikunum flytja þau lög af fyrstu hljómplötu sinni „Stories“\, ásamt nýjum efni með dassi af kanil.\n\nMiða má kaupa á
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/soundpost-jass-tonleikar-28-november/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Soundpost.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131130T140000
DTEND;TZID=UTC:20131130T170000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131112T003657Z
LAST-MODIFIED:20131119T170707Z
UID:10000065-1385820000-1385830800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sól í Togo
DESCRIPTION:Hjálparsamtökin Sól í Tógó halda uppboð á verkum íslenskra myndlistarmanna í Hannesarholti\, 30. nóvember kl. 16. \nMeðal listamanna má nefna Elínu Hansdóttur\, Ólaf Elíasson\, Eggert Pétursson\, Harald Jónsson\, Gjörningaklúbbinn og Ragnar Kjartansson. \nÁgóðinn rennur til byggingar heimilis fyrir munaðarlaus börn í Anehó í Tógó. Til að kynna sér starfið nánar er bent á:https://www.facebook.com/solitogo?fref=ts\nhttp://solitogo.org/\n\nNánar um uppboðið:\nhttp://uppbod.solitogo.org/\n\nOpnun á sýningu verkanna hefst viku fyrir uppboð eða þann 23. nóvember kl. 16.\n\nKaffihúsið í Borðstofunni opið.\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sol-i-togo-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Listaspjall
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131201T160000
DTEND;TZID=UTC:20131201T170000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131122T152148Z
LAST-MODIFIED:20131122T152916Z
UID:10000097-1385913600-1385917200@hannesarholt.is
SUMMARY:Frá ljósanna hásal - jólatónleikar Ingunnar Sigurðardóttur
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-ingunnar-sigurdardottur/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Ingunn-Jólatón-2013.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131203T200000
DTEND;TZID=UTC:20131203T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131001T162327Z
LAST-MODIFIED:20131203T004120Z
UID:10000049-1386100800-1386108000@hannesarholt.is
SUMMARY:Þjáning og seigla - að lifa af eða ekki.
DESCRIPTION:Sársauki er óumflýjanlegur\, þjáningin er valkostur er yfirskrift fyrirlestrar sem Högni Óskarsson geðlæknir mun flytja í Hannesarholti þriðjudaginn 3. desember kl. 20:00. Hann er sá þriðji í fyrirlestraröðinni Hvernig heilsast þjóðinni? sem hefur verið á dagskrá í Hannesarholti  í haust\, í umsjá Arnórs Víkingssonar\, gigtarlækis. \nÍ fyrirlestrinum verður fjallað um þjáninguna í tengslum við þunglyndi\, dauðaóskir og sjálfsvígshættu. Fjallað verður um tíðni sjálfsvíga\, áhættuhópa og um forvarnir og meðferð. \nÞjáningin er ríkur þáttur í vestrænni menningararfleifð\, í trúarbragðasögunni jafnt sem í hetjusögum og ævintýrum. Þjáning er hluti af lífinu og lífið er hverfult\, er ein af grunnkenningum Búddah. Þjáningin togast á við vellíðan og draum okkar um stöðuga hamingju. Hún getur sprottið upp úr sjúkdómum eða slysum\, óstöðugri félagslegri stöðu\, missi og sorg eða ófullnægðum þörfum. Við leitumst stöðugt við að útrýma þjáningunni úr lífi okkar\, en dæmum okkur þannig til að viðhalda henni. \nSú stund getur komið í lífi margra að þjáningin  verður svo yfirþyrmandi að þeir sjá þá einu lausn að taka skrefið út úr lífinu. Sumir stíga skrefið\, aðrir ekki. Aðdragandinn er oftast allnokkur en framkvæmdin er oft gerð í skyndigeðshræringu\, stundum eftir langa baráttu við þunglyndi og vonleysi\, sem endar í uppgjöf.  Sem betur fer eru sjálfsvíg tiltölulega fátíð. Miklu fleiri eru þeir sem sleppa lifandi úr þessari lífshættulegu vegferð. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thjaning-og-seigla-ad-lifa-af-eda-ekki/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/2003_021730009-e1385135715171.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20131204
DTEND;VALUE=DATE:20131205
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131020T220015Z
LAST-MODIFIED:20131202T155638Z
UID:10000073-1386115200-1386201599@hannesarholt.is
SUMMARY:Afmælisdagur Hannesar Hafstein
DESCRIPTION:Hannes Hafstein var fæddur þann 4.desember 1861. Þar sem Grundarstígur 10 var heimili hans og fjölskyldu hans\, hafa forráðamenn Hannesarholts heiðrað minningu hans á afmælisdaginn með því að hafa kaffi á könnunni og með því\, ef einhvern skyldi líta við\, eins og tíðkast hefur á íslenskum heimilum í gegnum tíðina. Nú er hins vegar starfrækt í húsinu veitingahúsið Borðstofan og verður það opið frá 11-18 eins og aðra daga. Í tilefni afmælisdagsins verður sýnd í Hljóðbergi stuttmynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar\, sem tekur um 12 mínútur í flutningi. Myndin verður sýnd á heila tímanum allan daginn frá kl.13-17 í Hljóðbergi\, gestum að endurgjaldslausu. Heyrust hefur að Borðstofan muni bjóða uppá heitar vöfflur með rjóma og fleira góðgæti á afmælistilboði.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/afmaeliskaffi-vegna-hannesar-hafstein/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131204T200000
DTEND;TZID=UTC:20131204T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131129T152951Z
LAST-MODIFIED:20131129T152951Z
UID:10000002-1386187200-1386194400@hannesarholt.is
SUMMARY:Skáldaskraf á aðventu.
DESCRIPTION:Félag íslenskra fræða býður til skáldaskrafs á aðventu. Tveir rithöfundar\nmæta til leiks\, lesa úr nýútkomnum bókum og spjalla við viðstadda. Gestir\nkvöldins eru Eiríkur Guðmundsson (höfundur skáldsögunnar 1983) og Þórunn\nErlu- og Valdimarsdóttir (höfundur skáldættarsögunnar Stúlka með maga).\nMörk skáldskapar\, endurminninga\, sjálfslýsinga og ættarsagna verða í\nbrennidepli. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/skaldaskraf-a-adventu/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/skaldaskraf2013.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131206T140000
DTEND;TZID=UTC:20131206T170000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131128T170300Z
LAST-MODIFIED:20131128T170300Z
UID:10000025-1386338400-1386349200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Náttúran í verkum Camus"
DESCRIPTION:Í tilefni þess að nú eru 100 ár liðin frá fæðingu Alberts Camus\, stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fyrir málþingi um verk hans sem ber yfirskriftina „Náttúran í verkum Camus“. \nFyrirlesarar verða: \n\nÁsdís R. Magnúsdóttir\, prófessor í frönsku máli og bókmenntum: „Að þýða hafið. Um náttúruna í ljóðrænum ritgerðum Alberts Camus“\nBjörn Þorsteinsson\, sérfræðingur við Heimspekistofnu: „Rottur og annar ófögnuður: Náttúran í Plágunni“\nIrma Erlingsdóttir\, dósent í frönskum samtímabókmenntum: „Hið pólitíska í náttúrulýsingum Camus“\nPétur Gunnarsson rithöfundur: „Sól\, sjór\, sandur – og syndafall“\nTorfi Tulinius\, prófessor í íslenskum miðaldafræðum: „Haf\, sól og tunga í Útlendingnum“                      \n\nMálþingið fer fram föstudaginn 6. desember kl. 14-17 í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, 101 Reykjavík. \nAðgangur er ókeypis og öllum heimill.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/natturan-i-verkum-camus/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Camus.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131208T160000
DTEND;TZID=UTC:20131208T170000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131120T090937Z
LAST-MODIFIED:20131206T193645Z
UID:10000068-1386518400-1386522000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngum saman allir sem einn
DESCRIPTION:Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, Íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks.  Næsta söngstund verður haldin sunnudaginn 8.desember kl.16\, og mun Þórunn Björnsdóttir\, kórstjóri leiða sönginn í um klukkustund\, Ástvaldur Traustason spilar undir á píanó  og Jón Rafnsson á bassa. Textar munu birtast á skjá. Þar sem jólin eru á næsta leiti verða jólalögin að sjálfsögðu í aðalhlutverki. \nAðgangseyrir er  kr.1000. Hægt er að tryggja sér miða á: www.miði.s \nhttp://midi.is/tonleikar/1/7997/ \nBorðstofan verður opin á fyrstu hæð hússins\, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir. \nHér má sjá myndbönd frá fyrri söngstundum í Hannesarholti: \nhttp://youtu.be/Dmzbs28RWQ4 \nhttp://youtu.be/hBBR155TAFQ \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngum-saman-allir-sem-einn/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131209T080000
DTEND;TZID=UTC:20131209T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131206T143220Z
LAST-MODIFIED:20131206T162647Z
UID:10000001-1386576000-1386626400@hannesarholt.is
SUMMARY:Hugsuðu þær öðruvísi? – Konur í heimspeki\, frá fornöld til samtímans
DESCRIPTION:  \nSvo virðist sem hugðarefni margra kvenheimspekinga séu og hafi verið á skjön við ýmis ráðandi stef í kenningum karl-heimspekinga. Í framsögu sinni veltir Sigríður Þorgeirsdóttir upp þeirri spurningu hvort saga vestrænnar heimspeki sé á einhvern hátt öðruvísi þegar hún er sögð í ljósi kvennanna sem lagt hafa stund á heimspeki í gegnum tíðina. Hugsuðu þær á einhvern hátt öðruvísi?\nÚt er komin bók eftir Sigríði sem hefur að geyma stuttar lýsingar á mörgum helstu  kven-heimspekingum veraldarsögunnar allt frá fornöld til samtímans. Sigríður er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hugsudu-thaer-odruvisi-konur-i-heimspeki-fra-fornold-til-samtimans/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Dagbók-2014-net.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131210T200000
DTEND;TZID=UTC:20131210T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131122T112640Z
LAST-MODIFIED:20131125T134534Z
UID:10000107-1386705600-1386712800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar "Rósirnar hennar Elsu"
DESCRIPTION:  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-rosirnar-hennar-elsu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/jólarósir-elsu-waage-mynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131212T200000
DTEND;TZID=UTC:20131212T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131203T003927Z
LAST-MODIFIED:20131212T001415Z
UID:10000003-1386878400-1386885600@hannesarholt.is
SUMMARY:Andri Snær\, Vigdís Gríms\, Gissur Páll og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar
DESCRIPTION:Verðlaunarithöfundarnir Andri Snær Magnason\, Vigdís Grímsdóttir\, tenórinn Gissur Páll Gissurarson og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar munu leiða saman hesta sína í fjölbreyttu menningarkvöldi í Hannesarholti fimmtudaginn 12. desember. \nÞessi fjölbreytti hópur listamanna mun koma fram\, lesa\, syngja\, spila og skarast svo á ýmsan hátt. Árni Heiðar hefur nýverið sent frá sér geisladiskinn Mold ásamt tríói sínu en fyrir þessa kvöldvöku hefur hann samið stef við texta Andra Snæs sem tríóið hans mun frumflytja. Þau munu lesa úr Tímakistunni og Dísusögu sem báðar eru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna\, hvor í sínum flokki. Auk þessa mun söngvarinn Gissur Páll syngja jólastemninguna inn í hjörtu gesta eins og honum er einum lagið við undirleik Árna Heiðars\, en Gissur er löngu orðinn einn af okkar ástsælustu söngvurum. Til að kóróna jólastemninguna verður gestum boðið upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Hér er hægt að kaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/andri-snaer-vigdis-grims-gissur-pall-og-djasstrio-arna-heidars-karlssonar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/fimmtudagur-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131214T120000
DTEND;TZID=UTC:20131214T180000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131211T111632Z
LAST-MODIFIED:20131211T111632Z
UID:10000006-1387022400-1387044000@hannesarholt.is
SUMMARY:Gefum og gleðjumst!
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gefum-og-gledjumst-2/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/gefum-og-gleðjumst.a3.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131216T200000
DTEND;TZID=UTC:20131216T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131112T004905Z
LAST-MODIFIED:20131216T125739Z
UID:10000066-1387224000-1387231200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Myndir af fortíðinni" - bókmenntakvöld: Einar Már Jónsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir
DESCRIPTION:  \nKvölddagskrá með Einari Má Jónssyni\, sem hann nefnir „Myndir af fortíðinni\,“ og fjallar um söguritun og stöðu hennar\, og hinar ýmsu leiðir til að lýsa fortíðinni. Kvöldið hefst á fyrirlestri Einars\, og eftir hlé les hann upp úr óútkominni bók sinni sem er framhald af  Örlagaborginni sem hann gaf  út á síðasta ári. Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari leikur Les barricades mysterieuses eftir Francois Couperin\, sem tengist beint efni fyrirlestursins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntakvold-einar-mar-jonsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Kvöldstund með listamanni,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/04/EMJ.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131217T200000
DTEND;TZID=UTC:20131217T213000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131210T215913Z
LAST-MODIFIED:20131217T143328Z
UID:10000005-1387310400-1387315800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar Íslenska sönglistahópsins
DESCRIPTION:Jólasöngvar í holti óma. \n\nÞriðjudagskvöldið 17. desember heldur Íslenski sönglistahópurinn jólatónleika í Hljóðbergi\, hinum rómaða tónleikasal Hannesarholts að Grundarstíg 10. \nTónleikarnir eru skemmtun og hátíðleiki í bland. Efnisskráin samanstendur af kórtónlist tuttugustu aldar meistara\, m.a. Britten\, Brahms\, Taverner og Kodály\, ásamt jólalögum sem allir þekkja. Verkin verða ýmist flutt í einsöng\, tríó\, kvartettum eða í stærri hópum. \nFram koma:\nElma Atladóttir\, Eygló Rúnarsdóttir\, Halldór Unnar Ómarsson\, Pétur Pétursson\, Ragnheiður Sara Grímsdóttir\, Sigþrúður Erla Arnardóttir\, Sigurjón Jóhannesson\, Sæberg Sigurðsson\, Tinna Sigurðardóttir\,\nÚlfur Sveinbjarnarson og Valgerður Guðrún Halldórsdóttir. \nPíanóleik annast Renata Ivan. Stjórnandi er Egill Gunnarsson \nMiðasala við inngang og á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/3754/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/mynd_isl_songlist.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131222T180000
DTEND;TZID=UTC:20131222T184500
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131202T105521Z
LAST-MODIFIED:20131222T131836Z
UID:10000004-1387735200-1387737900@hannesarholt.is
SUMMARY:Söngperlur Sefarda\, Baska og Lorca. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Dúó Roncesvalles
DESCRIPTION:Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópransöngkona\, sem búsett er í Madrid\, og Dúó Roncesvalles munu leiða áheyrendur inn í hinn heillandi spænska tónheim sefardískra gyðinga frá miðöldum\, basneskra þjóðlaga og söngva frá Andalúsíu\, í útsetningum rithöfundarins og skáldsins Federico Garcia Lorca. \nDúo Roncesvalles: \nElena Jáuregui\, fiðla    www.elenajauregui.com \nFrancisco Javier Jáuregui\, gítar    javierjauregui.com \n  \nGuðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópran     www.gudrunolafsdottir.com \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/songperlur-sefarda-baska-og-lorca-gudrun-johanna-olafsdottir-og-duo-roncesvalles/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Guðrún-Jóhanna-photo.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131222T220000
DTEND;TZID=UTC:20131231T230000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131219T230257Z
LAST-MODIFIED:20131219T231134Z
UID:10000007-1387749600-1388530800@hannesarholt.is
SUMMARY:
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gefum-og-gledjumst-til-aramota/
LOCATION:Hanesarholt.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131223T200000
DTEND;TZID=UTC:20140106T230000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131223T182341Z
LAST-MODIFIED:20131229T001151Z
UID:10000009-1387828800-1389049200@hannesarholt.is
SUMMARY:Gefum og gleðjumst öll jólin
DESCRIPTION:Á meðan Hannesarholt og Borðstofan loka vegna jólaleyfis\, geta gestir hannesarholts.is notið þess að hlýða á jólahugvekjur og tónlist\, sem flutt var á góðgerðardegi í Hannesarholti á aðventunni\, 14.desember. Sjá nánar hér við hliðina.\nSöfnun fyrir Fjölskyldumiðstöð Rauða krossins í Reykjavík var sett af stað þennan dag og stendur fram á þrettándann.\nSímanúmer: 902 – 5100 gefur 1000 kr framlag til Fjölskyldumiðstöðvar Rauða krossins í Reykjavík\nSímanúmer: 902 – 5150 gefur  500 kr framlag til Fjölskyldumiðstöðvar Rauða krossins í Reykjavík
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gefum-og-gledjumst-oll-jolin/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/IMG_23761-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140126T160000
DTEND;TZID=UTC:20140126T170000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140123T134606Z
LAST-MODIFIED:20140208T001154Z
UID:10000010-1390752000-1390755600@hannesarholt.is
SUMMARY:Heiðrum Dick Ringler áttræðan - Jónasarlögin á íslensku og ensku
DESCRIPTION:Dick Ringler\, fyrrum prófessor í enskum miðaldabókmenntum og norrænum fræðum við Wisconsinháskóla í Madison er áttræður um þessar mundir\, og verður af því tilefni lesið úr ljóðum hans í heimahögunum. Hann hefur gefið íslenskri þjóð stærstu gjöf sem einn maður getur gefið með því að endurskapa á erlendu tungumáli höfundarverk eins af þjóðskáldunum\, Jónasar Hallgrímssonar. Afraksturinn er slíkur\, að öll Jónasarlögin sem við syngjum gjarnan á góðum stundum má með hægðarleik syngja á ensku jafnvel og á íslensku. Ringler þýddi Jónas vegna þess að honum fannst hann eiga erindi við heiminn\, að hans mati engu síðra skáld en William Wordsworth. Nú viljum við heiðra Dick áttræðan\, með því að syngja úrval Jónasarljóða á íslensku og ensku í Hljóðbergi Hannesarholts\, sunnudaginn 26.janúar kl.16. Textar munu birtast á tjaldi\, til að allir geti sungið með. Margrét Pálmadóttir mun hjálpa til með forsöng og Ástvaldur Traustason mun spila með á flygilinn. Viðar Víkingsson mun kvikmynda söngstundina\, og brot úr henni mun birtast á vef Hannesarholts\, þar sem Dick Ringler mun geta notið hennar á heimili sínu í Madison\, þegar honum hentar. \nÞýðingar Ringlers á höfundarverki Jónasar birtust í bókinni Bard of Iceland\, eða Sagnaskáld Íslands\, sem gefin var út hjá University of Wiscsonin Press 2002 og endurútgefin hjá Forlaginu 2010. Einnig var sett upp í Wisconsinháskóla vegleg heimasíða á vegum Ringlers um Jónas Hallgrímsson. http://www.library.wisc.edu/etext/jonas/ \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heidrum-dick-ringler-attraedan-jonasarlogin-a-islensku-og-ensku/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/01/Bard_of_Iceland_175-copy.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140208T160000
DTEND;TZID=UTC:20140208T170000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20131221T155319Z
LAST-MODIFIED:20140207T123046Z
UID:10000008-1391875200-1391878800@hannesarholt.is
SUMMARY:Eins árs afmæli Hannesarholts
DESCRIPTION:Laugardaginn 8.febrúar verður eitt ár liðið frá því að Hannesarholt var formlega opnað. Af því tilefni verður efnt til afmælishátíðar í Hljóðbergi kl.16-17.\nDagskrá:\n1. Ávarp: Ragnheiður Jóna Jónsdóttir stofnandi og forstöðumaður býður gesti velkomna.\n2. Ljóðaflutningur: Systurnar Ragnheiður Elín og Þórunn Erna Clausen flytja ljóð Hannesar Hafstein langafa síns til Ragnheiðar Hafstein.\n3. Bronsmynd af Ragnheiði Hafstein boðin velkomin aftur í húsið.\n4. Tónlistarflutningur: Schola Cantorum syngur nokkur lög í tilefni dagsins.\n5. Pistill um Hannes Hafstein: Guðmundur Andri Thorsson flytur. \nLéttar veitingar. \nVelunnarar velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/arsafmaeli-hannesarholts/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Hannesarholt-e1391776206842.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140212T080000
DTEND;TZID=UTC:20140212T170000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140212T140520Z
LAST-MODIFIED:20140212T140901Z
UID:10000120-1392192000-1392224400@hannesarholt.is
SUMMARY:Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða: „Öll þessi ár kona góð\, öll þessi ár.“
DESCRIPTION:Í kvöld 12. febrúar kl. 20:00 í Hljóðbergi í Hannesarholti\, Grundarstíg 10 gengið inn frá Skálholtsstíg.\nÁ fyrsta rannsóknarkvöldi FÍF að vori mun Guðbjörn Sigurmundsson MA í íslenskum bókmenntum og íslenskukennari við Menntaskólann í Kópavogi flytja fyrirlesturinn: „Öll þessi ár kona góð\, öll þessi ár.“ \nErindið fjallar um skáldskap Sigfúsar Daðasonar á árunum 1945-1959 sem kalla má æskuskeið hans\, það fyrsta af þremur. Litið verður til erlendra áhrifavalda á ljóð Sigfúsar og hvernig þessi áhrif birtast í fyrstu tveimur ljóðabókum skáldsins. Þá verður einnig fjallað um atómskáldin og stöðu Sigfúsar innan hópsins þar sem hann tók að sér forystuhlutverk vegna afburða þekkingar á ljóðlist samtímans. Erindið byggir á MA-ritgerð Guðbjörns í íslenskum bókmenntum frá því í september 2013: Sigfús Daðason og umheimurinn. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/rannsoknarkvold-felags-islenskra-fraeda-oll-thessi-ar-kona-god-oll-thessi-ar/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140223T160000
DTEND;TZID=UTC:20140223T170000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140210T213658Z
LAST-MODIFIED:20140219T170707Z
UID:10000113-1393171200-1393174800@hannesarholt.is
SUMMARY:Dagskrá um íslensk kventónskáld
DESCRIPTION:Una Margrét Jónsdóttir\, dagskrárgerðarmaður á Rás eitt\, flytur erindi um íslensk kventónskáld\, sem byggt er á vinsælum útvarpsþáttum hennar um efnið. Meðal tónskálda sem fjallað verður um eru Kirstín Pétursdóttir Guðjohnsen (1850-1940)\, Valgerður L. Briem (1885-1924)\, Elísabet Jónsdóttir (1869-1945)\, Elín Laxdal (1883-1918) og Guðmunda Nielsen (1885-1936). Flutt verða tóndæmi með fyrirlestrinum. \nBorðstofan er opin fyrir og eftir viðburðinn og þar verður á boðstólum eins og vant er bæði sætt og ósætt ljúfmeti.  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/dagskra-um-islensk-kventonskald/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Una-Margrét-080923-0181-e1392648105558.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140301T150000
DTEND;TZID=UTC:20140301T170000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140217T114646Z
LAST-MODIFIED:20140226T141501Z
UID:10000122-1393686000-1393693200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kammertónleikar: Á stefnumótum
DESCRIPTION:Þóra Kristín Gunnarsdóttir\, píanó\, Stephanie Sutterlüty\, óbó\, og Barbara Hess\, víóla\, flytja verk eftir Claude Debussy\, Francis Poulenc\, Rebecca Clarke og August Klughardt. Yfirskrift tónleikanna vísar m.a. í hina fjölbreyttu efnisskrá þeirra\, þar sem verk frá ólíkum stefnum\, straumum og löndum er að finna.  Hér mætast ástríður og dramatík rómantíkurinnar\,  dularfullur og seiðandi impressionismi og hinn tæri og heillandi stíll óbósónötu Poulenc\, sem er tileinkuð minningu rússneska tónskáldsins Sergei Prokofiev. \nÁrið 1872 skrifaði August Klughard tríó við ljóð Nikolaus von Lenau\, Schilflieder. Þessi ljóð fjalla um þá örvæntingu og þær ljúfsáru tilfinningar sem fylgja óendurgoldinni ást. Klughardt skrifaði einn kafla fyrir hvert ljóð og skrifaði textann inn í nóturnar\, svo að verkið er eins konar ljóðasöngur fyrir óbó\, víólu og píanó í stað söngvara og píanós.\nÁ titilsíðu víólusónötu hinnar bresku Rebeccu Clarke frá árinu 1919 er að finna tilvitnun í ljóðið La Nuit de Mai (Maínótt) eftir Alfred de Musset. Rebecca Clarke er lítt þekkt í heimi klassískrar tónlistar þrátt fyrir einstakan persónulegan stíl sem sameinar þýsk\, frönsk og bresk áhrif – síðrómantík\, impressionisma og þjóðlagastemmningu.\nClaude Debussy er talinn hafa verið meðal fyrirmynda Rebeccu Clarke – m.a. notar hún hina ýmsu skala\, svosem pentatóník og heiltónaskala\, sem einnig má heyra í verkum Debussy sem verða leikin á þessum tónleikum. Hún leikur sér einnig á svipaðan hátt og Debussy með fínleg blæbrigði og „liti“ í tónlistinni.\nFrancis Poulenc markaði sig aftur á móti skýrt af frá þessum fyrirrennurum sínum sem einn hinna frönsku „Les Six“\, sem boðuðu breytta tíma í frönskum tónsmíðum. Hann er einna þekktastur fyrir heillandi laglínur og húmor í tónlist sinni. Óbósónatan hans er þó á alvarlegri nótunum\, þar sem hún er tileinkuð  minningu rússneska tónskáldsins Sergei Prokofiev og skrifuð í kjölfar andláts hans. \nFyrsta stefnumót þeirra Þóru\, Barböru og Stephanie var í Tónlistarháskólanum í Luzern þar sem þær stunda allar nám. Þóra og Barbara stefna á að ljúka BA-námi í vor\, en Stephanie stundar MA-nám í óbóleik. Þær hafa spilað saman öll námsárin en þó aldrei áður sem tríó. Þessir tónleikar eru liður í námi Þóru\, en í stað þess að skrifa BA-verkefni geta nemendur skipulagt og haldið tónleika\, eins og Þóra kaus að gera. \nÞóra hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskólann á Akureyri undir leiðsögn Dýrleifar Bjarnadóttur. Síðar nam hún við Tónlistarskóla Reykjavíkur hjá Peter Máté og árið 2011 lá leiðin til Luzern í háskólanám í píanóleik hjá hinni svissnesku Yvonne Lang. Auk námsins í Luzern sækir Þóra reglubundið námskeið\, t.d. hjá Katia Veekmans og dr. Maria Asteriadou og einnig námskeið í samleik og kammertónlist bæði í Sviss og á Grikklandi. \nHin svissneska Barbara Hess lék lengi á fiðlu áður en áhugi hennar tók að beinast að víólunni. Barbara er nemandi Isabel Charisius\, sem var meðlimur í hinum virta Alban Berg kvartett. Hún hefur sótt námskeið hjá m.a. Thomas Riebl\, Sebastian Hamann\, Danusha Waskiewicz og Veronika Hagen. Hún spilar með 21st Century Orchestra og leiddi lengi víóludeild svissnesku ungmennahljómsveitarinnar\, Schweizerische Jugendsinfonieorchester. Barbara starfar einnig sem leiðbeinandi við sumarnámskeið í tónlist fyrir börn og unglinga í Luzern. \nStephanie Sutterlüty er austurrísk að uppruna og hlaut tólf ára gömul sína fyrstu kennslustund í óbóleik. Tveimur árum síðar hóf hún nám við Vorarlberger Landeskonservatorium hjá Manouchehr Sahba. Síðan þá hefur hún spilað með hinum ýmsu hljómsveitum m.a. í Sviss\, Austurríki\, Frakklandi og á Spáni\, með stjórnendum á borð við Heinz Holliger\, Israel Yinon og Dimitry Sitkovetsky. Kennarar hennar við Tónlistarháskólann í Luzern eru Kurt Meier og Christian Hommel og hún hefur m.a. spilað á masterclass-námskeiði hjá hinum þekkta óbóleikara Maurice Bourgue.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kammertonleikar-a-stefnumotum/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Þóra-Gunn.-lítil.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140304T200000
DTEND;TZID=UTC:20140304T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140219T171053Z
LAST-MODIFIED:20140227T122448Z
UID:10000126-1393963200-1393970400@hannesarholt.is
SUMMARY:HVERNIG HEILSAST ÞJÓÐINNI?                                            Inflúensa: hin dularfulla og ógnvænlega farsótt
DESCRIPTION:Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum. \nÁrlega berast tilkynningar um að inflúensufaraldur sé hafinn og í kjölfarið fréttir af yfirfullum sjúkrahúsgöngum.  Heilsufarskvíði sækir sennilega á suma\, ekki síst þau ár þegar inflúensan þykir óvenjuskæð og eins þegar spurnir af banvænni og dularfullri “fuglaflensu” bárust okkur til eyrna. En hvað er inflúensa?  Af hverju ganga skæðir faraldrar yfir heimsbyggðina með vissu millibili\, eins og Rússaflensan 1889\, “Mexíkóflensan” 2009\, að maður tali nú ekki um hina illræmdu spænsku veiki sem árið 1918 drap miklu fleiri en hin mannskæða fyrri heimstyrjöld gerði.  Hversu hættuleg er inflúensa okkur og hvaða gildi hefur það að bólusetja sig gegn henni? \nÍ þessum fróðlega fyrirlestri mun Magnús Gottfreðsson\, prófessor í smitsjúkdómum og yfirlæknir á Landspítalanum\, fjalla um þennan dularfulla og ógnvænlega smitsjúkdóm frá ýmsum sjónarhornum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/magnus-gottfredsson-influensa/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Magnús-Gottfreðssonminni-e1393591006562.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140305T200000
DTEND;TZID=UTC:20140305T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140227T125625Z
LAST-MODIFIED:20140303T130834Z
UID:10000131-1394049600-1394056800@hannesarholt.is
SUMMARY:Félag íslenskra fræða - Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur ræðir Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum
DESCRIPTION:Séra Ólafur Jónsson á Söndum í Dýrafirði (um 1560-1627) var eitt mesta skáld sinnar tíðar og kvæðabók hans er varðveitt í fjölmörgum uppskriftum frá 17. og 18. öld. Við tæplega 50 kvæði hans eru einnig varðveitt lög sem lítið hafa verið rannsökuð fram til þessa. Í erindinu mun Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur rekja sögu nokkurra laga úr kvæðabókinni auk þess sem hann fjallar um tengsl tónlistar og texta í ólíkum uppskriftum kvæðabókarinnar. \nÁrni Heimir Ingólfsson hefur um árabil rannsakað íslenska tónlistarsögu fyrr og nú. Hann hefur ritað fjölda greina í íslensk og erlend tímarit\, til dæmis Andvara\, Griplu\, Skírni og Sögu. Bók hans\, Jón Leifs – Líf í tónum\, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2009 í flokki fræðirita. Með Kammerkórnum Carmina hefur hann gefið út tvo hljómdiska með tónlist úr íslenskum handritum sem báðir unnu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem diskur ársins í sígildri tónlist. Árni Heimir hefur gegnt stöðum dósents við Listaháskóla Íslands og tónlistarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands en starfar nú sjálfstætt að fræðistörfum. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/felag-islenskra-fraeda-arni-heimir-ingolfsson-tonlistarfraedingur-raedir-kvaedabok-sera-olafs-jonssonar-a-sondum/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Gaumgæfið-kristnir-e1393505624919.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140309T170000
DTEND;TZID=UTC:20140309T190000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140303T171746Z
LAST-MODIFIED:20140309T191115Z
UID:10000136-1394384400-1394391600@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozart á sunnudegi
DESCRIPTION:Kammertónleikar í Hannesarholti. Flutt verða tvö verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart \nStrengjakvintett nr. 4 í g-moll\, K. 516\nPíanókvartett nr. 1 í g-moll\, K. 478 \nFlytjendur:\nGuðrún Dalía Salómonsdóttir píanó\nGunnhildur Daðadóttir fiðla\nJónína Auður Hilmarsdóttir víóla\nMargrét Árnadóttir selló\nUna Sveinbjarnardóttir fiðla\nÞórarinn M. Baldursson víóla \nAfsláttarverð fyrir námsmenn og eldri borgara 1.500 kr.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozart-a-sunnudegi/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/mozart-III.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140311T200000
DTEND;TZID=UTC:20140311T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140306T123052Z
LAST-MODIFIED:20140306T232829Z
UID:10000138-1394568000-1394575200@hannesarholt.is
SUMMARY:Vandi íslensks lýðræðis: Starfsvenjur\, kosningaloforð og þjóðar - atkvæðagreiðslur
DESCRIPTION:Enn á ný hafa vaknað spurningar um vandamál og styrkleika beins lýðræðis í íslensku samfélagi. Ber stjórnmálamönnum að hlusta á vilja kjósenda? Hvaða máli skipta loforð gefin í aðdraganda kosninga eftir að ríkisstjórn hefur verið mynduð? \nRannís hefur undanfarið ár styrkt þverfaglegt rannsóknarverkefni á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands sem nefnist Hvað einkennir íslenskt lýðræði? Starfsvenjur\, gildi og skilningur. Í ljósi nýlegra atburða og umræðna liðinna vikna hefur rannsóknarhópurinn ákveðið að halda opinn umræðufund um lýðræðislega innviði samfélagsins. Á fundinum verður meðal annars reynt að varpa ljósi á hvaða skilning á lýðræði má greina að baki starfsvenjum í íslenskum\nstjórnmálum og stjórnsýslu. \nStuttar framsögur flytja: \nVilhjálmur Árnason\, prófessor í heimspeki\nGunnar Helgi Kristinsson\, prófessor í stjórnmálafræði\nSalvör Nordal\, forstöðumaður Siðfræðistofnunar\nÞorbjörn Broddason\, prófessor emeritus í fjölmiðlafræði
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vandi-islensks-lydraedis-starfsvenjur-kosningaloford-og-thjodaratkvaedagreidslur-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/vilhjalmur2-e1394108967624.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140316T140000
DTEND;TZID=UTC:20140316T160000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140228T174414Z
LAST-MODIFIED:20140228T174434Z
UID:10000133-1394978400-1394985600@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Richard Andersson\, Óskar Guðjónsson og Matthías Hemstock
DESCRIPTION:Danski bassaleikarinn Richard Andersson flutti til Íslands síðastliðið haust. Hann hefur tekið drjúgan þátt í starfsemi djassins á Íslandi og starfað með fjölmörgum íslenskum jassleikurum. Í september síðastliðnum kom hann á fót vikulegum jasskvöldum á Hressó á sunnudagskvöldum þar sem rjóminn af íslenskum djassleikurum hefur spilað. Má þar nefna Eyþór Gunnarson\, Scott McLemore\, Snorra Sigurðsson\, Óskar Guðjónssson\, Hilmar Jensson\, Matthías Hemstock\, Einar Scheving\, Agnar Má Magnússon\, Jón Pál og Jóel Pálsson. Richard hefur tekið upp tónlist og spilað með þekktum alþjóðlegum tónlistarmönnum\, meðal annars: Jef (Tain) Wats\, George Garzone\, Tony Malaby\, Bill McHentry\, Bob Moses\, Jerry Bergonzi\, Kasper Tranberg\, Anders Mogensen\, Dave Liebman og Phil Markowitz. \nNú hefur Richard  stofnað sitt eigið tríó með valinn mann í hverju rúmi.\nÓskar Guðjónsson saxófnleikari hefur starfað talsvert með bassaleikaranum Skúla Sverrissyni\, og er einnig þekktur fyrir þátttöku sína í hljómsveitinni ADHD sem nýlega lauk upptökum á fimmtu breiðskífu sinni. Hann hefur tekið þátt í yfir 300 alþjóðlegum tónleikum í 40 löndum í 5 heimsálfum\, með hljómsveitum á borð við Jim Black\, ADHD\, Mezzoforte\, Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson duo og Sören Dahl Jeppesen quartet.\nMatthías Hemstock trommuleikari hefur á síðustu tuttugu og fimm árum spilað og hljóðritað tónlist með fjölda íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita. Hann nam tónlistarleik í hinum virta háskóla Berkley college of Music í tvö ár\, og gekk til liðs við jass- og rokkbraut Tónlistarskóla FÍH þegar hann kom heim árið 1991. Þar hefur hann smitað margan ungan tónlistarmanninn af djassbakteríunni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-richard-andersson-oskar-gudjonsson-og-matthias-hemstock/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/RICHARD_ANDERSSON_PRESSE_FOTO-e1393606983407.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140319T200000
DTEND;TZID=UTC:20140319T220000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140219T172547Z
LAST-MODIFIED:20140313T135952Z
UID:10000129-1395259200-1395266400@hannesarholt.is
SUMMARY:Guðný og Gunnar - VOR Í NÁND
DESCRIPTION:Gunnar  Kvaran sellóleikari og Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari  einleikur og samspil. \nEfnisskrá:   J.S.Bach: Svíta nr. 1 í G-dur BWV 1007 fyrir einleiksselló (1685-1750) GK J.Haydn: Dúett fyrir fiðlu og selló í D-dúr (1732-1809) Grażyna Bacewicz Kaprísa Polski fyrir einleiksfiðlu (1909-1969) Atli Heimir Sveinsson; Intermezzo úr ballettinum Dimmalimm (1938-) Þýskt þjóðlag: Blátt lítið blóm eitt er Herbert H.Ágústsson: Fimm íslensk þjóðlög. (1926-1989) Sof þú\, mín Sigrún\, Sofðu unga ástin mín\, Sof þú\, blíðust barnkind mín\, Góð börn og vond\, Tilbrigði um þjóðlagið Fuglinn í fjörunni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gunnar-kvaran-og-gudny-gudmundsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Guðný-og-Gunnar.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140323T110000
DTEND;TZID=UTC:20140323T130000
DTSTAMP:20260530T194026
CREATED:20140310T161055Z
LAST-MODIFIED:20140321T215412Z
UID:10000011-1395572400-1395579600@hannesarholt.is
SUMMARY:Gönguferð um Þingholtin með Guðjóni Friðrikssyni
DESCRIPTION:Næstkomandi sunnudag 23. mars verður farið í fyrstu gönguferðina af fjórum sem fyrirhugaðar eru á vegum Hannesarholts með Guðjóni Friðrikssyni\, sagnfræðingi. Í þessari fyrstu ferð verður farið um Þingholt og nágrenni. Ferðirnar byrja í Hannesarholti á Grundarstíg 10 kl. 11:00 og enda í Hljóðbergi við Skálholtsstíg\, þar sem sýnd verður stutt heimildamynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar.  Auk þess  er boðið upp á skoðunarferð um húsið .  Gönguferðin tekur u.þ.b klukkustund. Kaffi á könnunni að gönguferð lokinni. Auk þess er veitingasala opin í Borðstofunni á 1.hæð hússins. Fáir eru betur að sér en Guðjón um húsin og fólkið í gömlu Reykjavík og víst er að menn fara fróðari af hans fundi. Hann skrifaði m.a ævisögu Hannesar Hafstein Ég elska þig stormur sem út kom árið 2005. \nSunnudagurinn 23.mars kl.11:  Þingholtin \nSunnudagurinn 27.apríl kl.11:   Skólavörðustígur og Skólavörðuholt. \nSunnudagurinn 18.maí  kl.11:   Laufásvegur og nágrenni \nSunnudagurinn 15.júní  kl.11:   Umhverfis Tjörnina \n  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gonguferd-um-thingholtin-med-gudjoni-fridrikssyni/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Gönguferðir (Guided walking tours)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/Guðjón-á-Spítalastíg-e1409913984828.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR