BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131210T200000
DTEND;TZID=UTC:20131210T220000
DTSTAMP:20131125T134534Z
CREATED:20131122T112640Z
LAST-MODIFIED:20131125T134534Z
UID:10000107-1386705600-1386712800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar "Rósirnar hennar Elsu"
DESCRIPTION:  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-rosirnar-hennar-elsu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/jólarósir-elsu-waage-mynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131212T200000
DTEND;TZID=UTC:20131212T220000
DTSTAMP:20131212T001415Z
CREATED:20131203T003927Z
LAST-MODIFIED:20131212T001415Z
UID:10000003-1386878400-1386885600@hannesarholt.is
SUMMARY:Andri Snær\, Vigdís Gríms\, Gissur Páll og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar
DESCRIPTION:Verðlaunarithöfundarnir Andri Snær Magnason\, Vigdís Grímsdóttir\, tenórinn Gissur Páll Gissurarson og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar munu leiða saman hesta sína í fjölbreyttu menningarkvöldi í Hannesarholti fimmtudaginn 12. desember. \nÞessi fjölbreytti hópur listamanna mun koma fram\, lesa\, syngja\, spila og skarast svo á ýmsan hátt. Árni Heiðar hefur nýverið sent frá sér geisladiskinn Mold ásamt tríói sínu en fyrir þessa kvöldvöku hefur hann samið stef við texta Andra Snæs sem tríóið hans mun frumflytja. Þau munu lesa úr Tímakistunni og Dísusögu sem báðar eru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna\, hvor í sínum flokki. Auk þessa mun söngvarinn Gissur Páll syngja jólastemninguna inn í hjörtu gesta eins og honum er einum lagið við undirleik Árna Heiðars\, en Gissur er löngu orðinn einn af okkar ástsælustu söngvurum. Til að kóróna jólastemninguna verður gestum boðið upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Hér er hægt að kaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/andri-snaer-vigdis-grims-gissur-pall-og-djasstrio-arna-heidars-karlssonar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/fimmtudagur-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131214T120000
DTEND;TZID=UTC:20131214T180000
DTSTAMP:20131211T111632Z
CREATED:20131211T111632Z
LAST-MODIFIED:20131211T111632Z
UID:10000006-1387022400-1387044000@hannesarholt.is
SUMMARY:Gefum og gleðjumst!
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gefum-og-gledjumst-2/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/gefum-og-gleðjumst.a3.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131216T200000
DTEND;TZID=UTC:20131216T220000
DTSTAMP:20131216T125739Z
CREATED:20131112T004905Z
LAST-MODIFIED:20131216T125739Z
UID:10000066-1387224000-1387231200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Myndir af fortíðinni" - bókmenntakvöld: Einar Már Jónsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir
DESCRIPTION:  \nKvölddagskrá með Einari Má Jónssyni\, sem hann nefnir „Myndir af fortíðinni\,“ og fjallar um söguritun og stöðu hennar\, og hinar ýmsu leiðir til að lýsa fortíðinni. Kvöldið hefst á fyrirlestri Einars\, og eftir hlé les hann upp úr óútkominni bók sinni sem er framhald af  Örlagaborginni sem hann gaf  út á síðasta ári. Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari leikur Les barricades mysterieuses eftir Francois Couperin\, sem tengist beint efni fyrirlestursins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntakvold-einar-mar-jonsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Kvöldstund með listamanni,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/04/EMJ.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131217T200000
DTEND;TZID=UTC:20131217T213000
DTSTAMP:20131217T143328Z
CREATED:20131210T215913Z
LAST-MODIFIED:20131217T143328Z
UID:10000005-1387310400-1387315800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar Íslenska sönglistahópsins
DESCRIPTION:Jólasöngvar í holti óma. \n\nÞriðjudagskvöldið 17. desember heldur Íslenski sönglistahópurinn jólatónleika í Hljóðbergi\, hinum rómaða tónleikasal Hannesarholts að Grundarstíg 10. \nTónleikarnir eru skemmtun og hátíðleiki í bland. Efnisskráin samanstendur af kórtónlist tuttugustu aldar meistara\, m.a. Britten\, Brahms\, Taverner og Kodály\, ásamt jólalögum sem allir þekkja. Verkin verða ýmist flutt í einsöng\, tríó\, kvartettum eða í stærri hópum. \nFram koma:\nElma Atladóttir\, Eygló Rúnarsdóttir\, Halldór Unnar Ómarsson\, Pétur Pétursson\, Ragnheiður Sara Grímsdóttir\, Sigþrúður Erla Arnardóttir\, Sigurjón Jóhannesson\, Sæberg Sigurðsson\, Tinna Sigurðardóttir\,\nÚlfur Sveinbjarnarson og Valgerður Guðrún Halldórsdóttir. \nPíanóleik annast Renata Ivan. Stjórnandi er Egill Gunnarsson \nMiðasala við inngang og á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/3754/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/mynd_isl_songlist.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131222T180000
DTEND;TZID=UTC:20131222T184500
DTSTAMP:20131222T131836Z
CREATED:20131202T105521Z
LAST-MODIFIED:20131222T131836Z
UID:10000004-1387735200-1387737900@hannesarholt.is
SUMMARY:Söngperlur Sefarda\, Baska og Lorca. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Dúó Roncesvalles
DESCRIPTION:Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópransöngkona\, sem búsett er í Madrid\, og Dúó Roncesvalles munu leiða áheyrendur inn í hinn heillandi spænska tónheim sefardískra gyðinga frá miðöldum\, basneskra þjóðlaga og söngva frá Andalúsíu\, í útsetningum rithöfundarins og skáldsins Federico Garcia Lorca. \nDúo Roncesvalles: \nElena Jáuregui\, fiðla    www.elenajauregui.com \nFrancisco Javier Jáuregui\, gítar    javierjauregui.com \n  \nGuðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópran     www.gudrunolafsdottir.com \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/songperlur-sefarda-baska-og-lorca-gudrun-johanna-olafsdottir-og-duo-roncesvalles/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Guðrún-Jóhanna-photo.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131222T220000
DTEND;TZID=UTC:20131231T230000
DTSTAMP:20131219T231134Z
CREATED:20131219T230257Z
LAST-MODIFIED:20131219T231134Z
UID:10000007-1387749600-1388530800@hannesarholt.is
SUMMARY:
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gefum-og-gledjumst-til-aramota/
LOCATION:Hanesarholt.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131223T200000
DTEND;TZID=UTC:20140106T230000
DTSTAMP:20131229T001151Z
CREATED:20131223T182341Z
LAST-MODIFIED:20131229T001151Z
UID:10000009-1387828800-1389049200@hannesarholt.is
SUMMARY:Gefum og gleðjumst öll jólin
DESCRIPTION:Á meðan Hannesarholt og Borðstofan loka vegna jólaleyfis\, geta gestir hannesarholts.is notið þess að hlýða á jólahugvekjur og tónlist\, sem flutt var á góðgerðardegi í Hannesarholti á aðventunni\, 14.desember. Sjá nánar hér við hliðina.\nSöfnun fyrir Fjölskyldumiðstöð Rauða krossins í Reykjavík var sett af stað þennan dag og stendur fram á þrettándann.\nSímanúmer: 902 – 5100 gefur 1000 kr framlag til Fjölskyldumiðstöðvar Rauða krossins í Reykjavík\nSímanúmer: 902 – 5150 gefur  500 kr framlag til Fjölskyldumiðstöðvar Rauða krossins í Reykjavík
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gefum-og-gledjumst-oll-jolin/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/IMG_23761-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140126T160000
DTEND;TZID=UTC:20140126T170000
DTSTAMP:20140208T001154Z
CREATED:20140123T134606Z
LAST-MODIFIED:20140208T001154Z
UID:10000010-1390752000-1390755600@hannesarholt.is
SUMMARY:Heiðrum Dick Ringler áttræðan - Jónasarlögin á íslensku og ensku
DESCRIPTION:Dick Ringler\, fyrrum prófessor í enskum miðaldabókmenntum og norrænum fræðum við Wisconsinháskóla í Madison er áttræður um þessar mundir\, og verður af því tilefni lesið úr ljóðum hans í heimahögunum. Hann hefur gefið íslenskri þjóð stærstu gjöf sem einn maður getur gefið með því að endurskapa á erlendu tungumáli höfundarverk eins af þjóðskáldunum\, Jónasar Hallgrímssonar. Afraksturinn er slíkur\, að öll Jónasarlögin sem við syngjum gjarnan á góðum stundum má með hægðarleik syngja á ensku jafnvel og á íslensku. Ringler þýddi Jónas vegna þess að honum fannst hann eiga erindi við heiminn\, að hans mati engu síðra skáld en William Wordsworth. Nú viljum við heiðra Dick áttræðan\, með því að syngja úrval Jónasarljóða á íslensku og ensku í Hljóðbergi Hannesarholts\, sunnudaginn 26.janúar kl.16. Textar munu birtast á tjaldi\, til að allir geti sungið með. Margrét Pálmadóttir mun hjálpa til með forsöng og Ástvaldur Traustason mun spila með á flygilinn. Viðar Víkingsson mun kvikmynda söngstundina\, og brot úr henni mun birtast á vef Hannesarholts\, þar sem Dick Ringler mun geta notið hennar á heimili sínu í Madison\, þegar honum hentar. \nÞýðingar Ringlers á höfundarverki Jónasar birtust í bókinni Bard of Iceland\, eða Sagnaskáld Íslands\, sem gefin var út hjá University of Wiscsonin Press 2002 og endurútgefin hjá Forlaginu 2010. Einnig var sett upp í Wisconsinháskóla vegleg heimasíða á vegum Ringlers um Jónas Hallgrímsson. http://www.library.wisc.edu/etext/jonas/ \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heidrum-dick-ringler-attraedan-jonasarlogin-a-islensku-og-ensku/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/01/Bard_of_Iceland_175-copy.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140208T160000
DTEND;TZID=UTC:20140208T170000
DTSTAMP:20140207T123046Z
CREATED:20131221T155319Z
LAST-MODIFIED:20140207T123046Z
UID:10000008-1391875200-1391878800@hannesarholt.is
SUMMARY:Eins árs afmæli Hannesarholts
DESCRIPTION:Laugardaginn 8.febrúar verður eitt ár liðið frá því að Hannesarholt var formlega opnað. Af því tilefni verður efnt til afmælishátíðar í Hljóðbergi kl.16-17.\nDagskrá:\n1. Ávarp: Ragnheiður Jóna Jónsdóttir stofnandi og forstöðumaður býður gesti velkomna.\n2. Ljóðaflutningur: Systurnar Ragnheiður Elín og Þórunn Erna Clausen flytja ljóð Hannesar Hafstein langafa síns til Ragnheiðar Hafstein.\n3. Bronsmynd af Ragnheiði Hafstein boðin velkomin aftur í húsið.\n4. Tónlistarflutningur: Schola Cantorum syngur nokkur lög í tilefni dagsins.\n5. Pistill um Hannes Hafstein: Guðmundur Andri Thorsson flytur. \nLéttar veitingar. \nVelunnarar velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/arsafmaeli-hannesarholts/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Hannesarholt-e1391776206842.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140212T080000
DTEND;TZID=UTC:20140212T170000
DTSTAMP:20140212T140901Z
CREATED:20140212T140520Z
LAST-MODIFIED:20140212T140901Z
UID:10000120-1392192000-1392224400@hannesarholt.is
SUMMARY:Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða: „Öll þessi ár kona góð\, öll þessi ár.“
DESCRIPTION:Í kvöld 12. febrúar kl. 20:00 í Hljóðbergi í Hannesarholti\, Grundarstíg 10 gengið inn frá Skálholtsstíg.\nÁ fyrsta rannsóknarkvöldi FÍF að vori mun Guðbjörn Sigurmundsson MA í íslenskum bókmenntum og íslenskukennari við Menntaskólann í Kópavogi flytja fyrirlesturinn: „Öll þessi ár kona góð\, öll þessi ár.“ \nErindið fjallar um skáldskap Sigfúsar Daðasonar á árunum 1945-1959 sem kalla má æskuskeið hans\, það fyrsta af þremur. Litið verður til erlendra áhrifavalda á ljóð Sigfúsar og hvernig þessi áhrif birtast í fyrstu tveimur ljóðabókum skáldsins. Þá verður einnig fjallað um atómskáldin og stöðu Sigfúsar innan hópsins þar sem hann tók að sér forystuhlutverk vegna afburða þekkingar á ljóðlist samtímans. Erindið byggir á MA-ritgerð Guðbjörns í íslenskum bókmenntum frá því í september 2013: Sigfús Daðason og umheimurinn. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/rannsoknarkvold-felags-islenskra-fraeda-oll-thessi-ar-kona-god-oll-thessi-ar/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140223T160000
DTEND;TZID=UTC:20140223T170000
DTSTAMP:20140219T170707Z
CREATED:20140210T213658Z
LAST-MODIFIED:20140219T170707Z
UID:10000113-1393171200-1393174800@hannesarholt.is
SUMMARY:Dagskrá um íslensk kventónskáld
DESCRIPTION:Una Margrét Jónsdóttir\, dagskrárgerðarmaður á Rás eitt\, flytur erindi um íslensk kventónskáld\, sem byggt er á vinsælum útvarpsþáttum hennar um efnið. Meðal tónskálda sem fjallað verður um eru Kirstín Pétursdóttir Guðjohnsen (1850-1940)\, Valgerður L. Briem (1885-1924)\, Elísabet Jónsdóttir (1869-1945)\, Elín Laxdal (1883-1918) og Guðmunda Nielsen (1885-1936). Flutt verða tóndæmi með fyrirlestrinum. \nBorðstofan er opin fyrir og eftir viðburðinn og þar verður á boðstólum eins og vant er bæði sætt og ósætt ljúfmeti.  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/dagskra-um-islensk-kventonskald/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Una-Margrét-080923-0181-e1392648105558.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140301T150000
DTEND;TZID=UTC:20140301T170000
DTSTAMP:20140226T141501Z
CREATED:20140217T114646Z
LAST-MODIFIED:20140226T141501Z
UID:10000122-1393686000-1393693200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kammertónleikar: Á stefnumótum
DESCRIPTION:Þóra Kristín Gunnarsdóttir\, píanó\, Stephanie Sutterlüty\, óbó\, og Barbara Hess\, víóla\, flytja verk eftir Claude Debussy\, Francis Poulenc\, Rebecca Clarke og August Klughardt. Yfirskrift tónleikanna vísar m.a. í hina fjölbreyttu efnisskrá þeirra\, þar sem verk frá ólíkum stefnum\, straumum og löndum er að finna.  Hér mætast ástríður og dramatík rómantíkurinnar\,  dularfullur og seiðandi impressionismi og hinn tæri og heillandi stíll óbósónötu Poulenc\, sem er tileinkuð minningu rússneska tónskáldsins Sergei Prokofiev. \nÁrið 1872 skrifaði August Klughard tríó við ljóð Nikolaus von Lenau\, Schilflieder. Þessi ljóð fjalla um þá örvæntingu og þær ljúfsáru tilfinningar sem fylgja óendurgoldinni ást. Klughardt skrifaði einn kafla fyrir hvert ljóð og skrifaði textann inn í nóturnar\, svo að verkið er eins konar ljóðasöngur fyrir óbó\, víólu og píanó í stað söngvara og píanós.\nÁ titilsíðu víólusónötu hinnar bresku Rebeccu Clarke frá árinu 1919 er að finna tilvitnun í ljóðið La Nuit de Mai (Maínótt) eftir Alfred de Musset. Rebecca Clarke er lítt þekkt í heimi klassískrar tónlistar þrátt fyrir einstakan persónulegan stíl sem sameinar þýsk\, frönsk og bresk áhrif – síðrómantík\, impressionisma og þjóðlagastemmningu.\nClaude Debussy er talinn hafa verið meðal fyrirmynda Rebeccu Clarke – m.a. notar hún hina ýmsu skala\, svosem pentatóník og heiltónaskala\, sem einnig má heyra í verkum Debussy sem verða leikin á þessum tónleikum. Hún leikur sér einnig á svipaðan hátt og Debussy með fínleg blæbrigði og „liti“ í tónlistinni.\nFrancis Poulenc markaði sig aftur á móti skýrt af frá þessum fyrirrennurum sínum sem einn hinna frönsku „Les Six“\, sem boðuðu breytta tíma í frönskum tónsmíðum. Hann er einna þekktastur fyrir heillandi laglínur og húmor í tónlist sinni. Óbósónatan hans er þó á alvarlegri nótunum\, þar sem hún er tileinkuð  minningu rússneska tónskáldsins Sergei Prokofiev og skrifuð í kjölfar andláts hans. \nFyrsta stefnumót þeirra Þóru\, Barböru og Stephanie var í Tónlistarháskólanum í Luzern þar sem þær stunda allar nám. Þóra og Barbara stefna á að ljúka BA-námi í vor\, en Stephanie stundar MA-nám í óbóleik. Þær hafa spilað saman öll námsárin en þó aldrei áður sem tríó. Þessir tónleikar eru liður í námi Þóru\, en í stað þess að skrifa BA-verkefni geta nemendur skipulagt og haldið tónleika\, eins og Þóra kaus að gera. \nÞóra hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskólann á Akureyri undir leiðsögn Dýrleifar Bjarnadóttur. Síðar nam hún við Tónlistarskóla Reykjavíkur hjá Peter Máté og árið 2011 lá leiðin til Luzern í háskólanám í píanóleik hjá hinni svissnesku Yvonne Lang. Auk námsins í Luzern sækir Þóra reglubundið námskeið\, t.d. hjá Katia Veekmans og dr. Maria Asteriadou og einnig námskeið í samleik og kammertónlist bæði í Sviss og á Grikklandi. \nHin svissneska Barbara Hess lék lengi á fiðlu áður en áhugi hennar tók að beinast að víólunni. Barbara er nemandi Isabel Charisius\, sem var meðlimur í hinum virta Alban Berg kvartett. Hún hefur sótt námskeið hjá m.a. Thomas Riebl\, Sebastian Hamann\, Danusha Waskiewicz og Veronika Hagen. Hún spilar með 21st Century Orchestra og leiddi lengi víóludeild svissnesku ungmennahljómsveitarinnar\, Schweizerische Jugendsinfonieorchester. Barbara starfar einnig sem leiðbeinandi við sumarnámskeið í tónlist fyrir börn og unglinga í Luzern. \nStephanie Sutterlüty er austurrísk að uppruna og hlaut tólf ára gömul sína fyrstu kennslustund í óbóleik. Tveimur árum síðar hóf hún nám við Vorarlberger Landeskonservatorium hjá Manouchehr Sahba. Síðan þá hefur hún spilað með hinum ýmsu hljómsveitum m.a. í Sviss\, Austurríki\, Frakklandi og á Spáni\, með stjórnendum á borð við Heinz Holliger\, Israel Yinon og Dimitry Sitkovetsky. Kennarar hennar við Tónlistarháskólann í Luzern eru Kurt Meier og Christian Hommel og hún hefur m.a. spilað á masterclass-námskeiði hjá hinum þekkta óbóleikara Maurice Bourgue.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kammertonleikar-a-stefnumotum/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Þóra-Gunn.-lítil.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140304T200000
DTEND;TZID=UTC:20140304T220000
DTSTAMP:20140227T122448Z
CREATED:20140219T171053Z
LAST-MODIFIED:20140227T122448Z
UID:10000126-1393963200-1393970400@hannesarholt.is
SUMMARY:HVERNIG HEILSAST ÞJÓÐINNI?                                            Inflúensa: hin dularfulla og ógnvænlega farsótt
DESCRIPTION:Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum. \nÁrlega berast tilkynningar um að inflúensufaraldur sé hafinn og í kjölfarið fréttir af yfirfullum sjúkrahúsgöngum.  Heilsufarskvíði sækir sennilega á suma\, ekki síst þau ár þegar inflúensan þykir óvenjuskæð og eins þegar spurnir af banvænni og dularfullri “fuglaflensu” bárust okkur til eyrna. En hvað er inflúensa?  Af hverju ganga skæðir faraldrar yfir heimsbyggðina með vissu millibili\, eins og Rússaflensan 1889\, “Mexíkóflensan” 2009\, að maður tali nú ekki um hina illræmdu spænsku veiki sem árið 1918 drap miklu fleiri en hin mannskæða fyrri heimstyrjöld gerði.  Hversu hættuleg er inflúensa okkur og hvaða gildi hefur það að bólusetja sig gegn henni? \nÍ þessum fróðlega fyrirlestri mun Magnús Gottfreðsson\, prófessor í smitsjúkdómum og yfirlæknir á Landspítalanum\, fjalla um þennan dularfulla og ógnvænlega smitsjúkdóm frá ýmsum sjónarhornum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/magnus-gottfredsson-influensa/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Magnús-Gottfreðssonminni-e1393591006562.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140305T200000
DTEND;TZID=UTC:20140305T220000
DTSTAMP:20140303T130834Z
CREATED:20140227T125625Z
LAST-MODIFIED:20140303T130834Z
UID:10000131-1394049600-1394056800@hannesarholt.is
SUMMARY:Félag íslenskra fræða - Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur ræðir Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum
DESCRIPTION:Séra Ólafur Jónsson á Söndum í Dýrafirði (um 1560-1627) var eitt mesta skáld sinnar tíðar og kvæðabók hans er varðveitt í fjölmörgum uppskriftum frá 17. og 18. öld. Við tæplega 50 kvæði hans eru einnig varðveitt lög sem lítið hafa verið rannsökuð fram til þessa. Í erindinu mun Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur rekja sögu nokkurra laga úr kvæðabókinni auk þess sem hann fjallar um tengsl tónlistar og texta í ólíkum uppskriftum kvæðabókarinnar. \nÁrni Heimir Ingólfsson hefur um árabil rannsakað íslenska tónlistarsögu fyrr og nú. Hann hefur ritað fjölda greina í íslensk og erlend tímarit\, til dæmis Andvara\, Griplu\, Skírni og Sögu. Bók hans\, Jón Leifs – Líf í tónum\, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2009 í flokki fræðirita. Með Kammerkórnum Carmina hefur hann gefið út tvo hljómdiska með tónlist úr íslenskum handritum sem báðir unnu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem diskur ársins í sígildri tónlist. Árni Heimir hefur gegnt stöðum dósents við Listaháskóla Íslands og tónlistarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands en starfar nú sjálfstætt að fræðistörfum. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/felag-islenskra-fraeda-arni-heimir-ingolfsson-tonlistarfraedingur-raedir-kvaedabok-sera-olafs-jonssonar-a-sondum/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Gaumgæfið-kristnir-e1393505624919.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140309T170000
DTEND;TZID=UTC:20140309T190000
DTSTAMP:20140309T191115Z
CREATED:20140303T171746Z
LAST-MODIFIED:20140309T191115Z
UID:10000136-1394384400-1394391600@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozart á sunnudegi
DESCRIPTION:Kammertónleikar í Hannesarholti. Flutt verða tvö verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart \nStrengjakvintett nr. 4 í g-moll\, K. 516\nPíanókvartett nr. 1 í g-moll\, K. 478 \nFlytjendur:\nGuðrún Dalía Salómonsdóttir píanó\nGunnhildur Daðadóttir fiðla\nJónína Auður Hilmarsdóttir víóla\nMargrét Árnadóttir selló\nUna Sveinbjarnardóttir fiðla\nÞórarinn M. Baldursson víóla \nAfsláttarverð fyrir námsmenn og eldri borgara 1.500 kr.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozart-a-sunnudegi/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/mozart-III.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140311T200000
DTEND;TZID=UTC:20140311T220000
DTSTAMP:20140306T232829Z
CREATED:20140306T123052Z
LAST-MODIFIED:20140306T232829Z
UID:10000138-1394568000-1394575200@hannesarholt.is
SUMMARY:Vandi íslensks lýðræðis: Starfsvenjur\, kosningaloforð og þjóðar - atkvæðagreiðslur
DESCRIPTION:Enn á ný hafa vaknað spurningar um vandamál og styrkleika beins lýðræðis í íslensku samfélagi. Ber stjórnmálamönnum að hlusta á vilja kjósenda? Hvaða máli skipta loforð gefin í aðdraganda kosninga eftir að ríkisstjórn hefur verið mynduð? \nRannís hefur undanfarið ár styrkt þverfaglegt rannsóknarverkefni á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands sem nefnist Hvað einkennir íslenskt lýðræði? Starfsvenjur\, gildi og skilningur. Í ljósi nýlegra atburða og umræðna liðinna vikna hefur rannsóknarhópurinn ákveðið að halda opinn umræðufund um lýðræðislega innviði samfélagsins. Á fundinum verður meðal annars reynt að varpa ljósi á hvaða skilning á lýðræði má greina að baki starfsvenjum í íslenskum\nstjórnmálum og stjórnsýslu. \nStuttar framsögur flytja: \nVilhjálmur Árnason\, prófessor í heimspeki\nGunnar Helgi Kristinsson\, prófessor í stjórnmálafræði\nSalvör Nordal\, forstöðumaður Siðfræðistofnunar\nÞorbjörn Broddason\, prófessor emeritus í fjölmiðlafræði
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vandi-islensks-lydraedis-starfsvenjur-kosningaloford-og-thjodaratkvaedagreidslur-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/vilhjalmur2-e1394108967624.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140316T140000
DTEND;TZID=UTC:20140316T160000
DTSTAMP:20140228T174434Z
CREATED:20140228T174414Z
LAST-MODIFIED:20140228T174434Z
UID:10000133-1394978400-1394985600@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Richard Andersson\, Óskar Guðjónsson og Matthías Hemstock
DESCRIPTION:Danski bassaleikarinn Richard Andersson flutti til Íslands síðastliðið haust. Hann hefur tekið drjúgan þátt í starfsemi djassins á Íslandi og starfað með fjölmörgum íslenskum jassleikurum. Í september síðastliðnum kom hann á fót vikulegum jasskvöldum á Hressó á sunnudagskvöldum þar sem rjóminn af íslenskum djassleikurum hefur spilað. Má þar nefna Eyþór Gunnarson\, Scott McLemore\, Snorra Sigurðsson\, Óskar Guðjónssson\, Hilmar Jensson\, Matthías Hemstock\, Einar Scheving\, Agnar Má Magnússon\, Jón Pál og Jóel Pálsson. Richard hefur tekið upp tónlist og spilað með þekktum alþjóðlegum tónlistarmönnum\, meðal annars: Jef (Tain) Wats\, George Garzone\, Tony Malaby\, Bill McHentry\, Bob Moses\, Jerry Bergonzi\, Kasper Tranberg\, Anders Mogensen\, Dave Liebman og Phil Markowitz. \nNú hefur Richard  stofnað sitt eigið tríó með valinn mann í hverju rúmi.\nÓskar Guðjónsson saxófnleikari hefur starfað talsvert með bassaleikaranum Skúla Sverrissyni\, og er einnig þekktur fyrir þátttöku sína í hljómsveitinni ADHD sem nýlega lauk upptökum á fimmtu breiðskífu sinni. Hann hefur tekið þátt í yfir 300 alþjóðlegum tónleikum í 40 löndum í 5 heimsálfum\, með hljómsveitum á borð við Jim Black\, ADHD\, Mezzoforte\, Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson duo og Sören Dahl Jeppesen quartet.\nMatthías Hemstock trommuleikari hefur á síðustu tuttugu og fimm árum spilað og hljóðritað tónlist með fjölda íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita. Hann nam tónlistarleik í hinum virta háskóla Berkley college of Music í tvö ár\, og gekk til liðs við jass- og rokkbraut Tónlistarskóla FÍH þegar hann kom heim árið 1991. Þar hefur hann smitað margan ungan tónlistarmanninn af djassbakteríunni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-richard-andersson-oskar-gudjonsson-og-matthias-hemstock/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/RICHARD_ANDERSSON_PRESSE_FOTO-e1393606983407.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140319T200000
DTEND;TZID=UTC:20140319T220000
DTSTAMP:20140313T135952Z
CREATED:20140219T172547Z
LAST-MODIFIED:20140313T135952Z
UID:10000129-1395259200-1395266400@hannesarholt.is
SUMMARY:Guðný og Gunnar - VOR Í NÁND
DESCRIPTION:Gunnar  Kvaran sellóleikari og Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari  einleikur og samspil. \nEfnisskrá:   J.S.Bach: Svíta nr. 1 í G-dur BWV 1007 fyrir einleiksselló (1685-1750) GK J.Haydn: Dúett fyrir fiðlu og selló í D-dúr (1732-1809) Grażyna Bacewicz Kaprísa Polski fyrir einleiksfiðlu (1909-1969) Atli Heimir Sveinsson; Intermezzo úr ballettinum Dimmalimm (1938-) Þýskt þjóðlag: Blátt lítið blóm eitt er Herbert H.Ágústsson: Fimm íslensk þjóðlög. (1926-1989) Sof þú\, mín Sigrún\, Sofðu unga ástin mín\, Sof þú\, blíðust barnkind mín\, Góð börn og vond\, Tilbrigði um þjóðlagið Fuglinn í fjörunni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gunnar-kvaran-og-gudny-gudmundsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Guðný-og-Gunnar.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140323T110000
DTEND;TZID=UTC:20140323T130000
DTSTAMP:20140321T215412Z
CREATED:20140310T161055Z
LAST-MODIFIED:20140321T215412Z
UID:10000011-1395572400-1395579600@hannesarholt.is
SUMMARY:Gönguferð um Þingholtin með Guðjóni Friðrikssyni
DESCRIPTION:Næstkomandi sunnudag 23. mars verður farið í fyrstu gönguferðina af fjórum sem fyrirhugaðar eru á vegum Hannesarholts með Guðjóni Friðrikssyni\, sagnfræðingi. Í þessari fyrstu ferð verður farið um Þingholt og nágrenni. Ferðirnar byrja í Hannesarholti á Grundarstíg 10 kl. 11:00 og enda í Hljóðbergi við Skálholtsstíg\, þar sem sýnd verður stutt heimildamynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar.  Auk þess  er boðið upp á skoðunarferð um húsið .  Gönguferðin tekur u.þ.b klukkustund. Kaffi á könnunni að gönguferð lokinni. Auk þess er veitingasala opin í Borðstofunni á 1.hæð hússins. Fáir eru betur að sér en Guðjón um húsin og fólkið í gömlu Reykjavík og víst er að menn fara fróðari af hans fundi. Hann skrifaði m.a ævisögu Hannesar Hafstein Ég elska þig stormur sem út kom árið 2005. \nSunnudagurinn 23.mars kl.11:  Þingholtin \nSunnudagurinn 27.apríl kl.11:   Skólavörðustígur og Skólavörðuholt. \nSunnudagurinn 18.maí  kl.11:   Laufásvegur og nágrenni \nSunnudagurinn 15.júní  kl.11:   Umhverfis Tjörnina \n  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gonguferd-um-thingholtin-med-gudjoni-fridrikssyni/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Gönguferðir (Guided walking tours)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/Guðjón-á-Spítalastíg-e1409913984828.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140325T200000
DTEND;TZID=UTC:20140325T220000
DTSTAMP:20140324T180506Z
CREATED:20140219T163104Z
LAST-MODIFIED:20140324T180506Z
UID:10000124-1395777600-1395784800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur: Því guð gaf henni málið eins og honum.
DESCRIPTION:Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur fjallar um ævisögu Guðrúnar Ketilsdóttur. Guðrún fæddist árið 1759 og er saga hennar líklega elsta varðveitta sjálfsævisaga íslenskrar alþýðukonu – vinnukonu frá 18. öld.  Í sögunni fjallar Guðrún á opinskáan hátt um líf sitt í Eyjafirði og erfitt hjónaband með ótrúum eiginmanni. Guðný hefur nýlega gefið út bók um Guðrúnu Ketilsdóttur og hlaut fyrir hana hin virtu Fjöruverðlaun 2014.\nTitill fyrirlestursins vísar í orð Guðrúnar sjálfrar\, þegar sýslumaður vildi þagga niður í henni  „En ég sagði hann skyldi hafa bölvaða skömm fyrir það því guð hefði gefið mér málið eins og honum. En aldrei þorði ég að hafa það svo hátt að hann heyrði það.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/saga-gudrunar-ketilsdottur-thvi-gud-gaf-henni-malid-eins-og-honum/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Gunny-minni-e1392930365215.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140328T093000
DTEND;TZID=UTC:20140328T133000
DTSTAMP:20140326T193530Z
CREATED:20140326T141434Z
LAST-MODIFIED:20140326T193530Z
UID:10000015-1395999000-1396013400@hannesarholt.is
SUMMARY:Málþing á Hönnunarmars - Hönnun fyrir lítil samfélög
DESCRIPTION:Alþjóðlegt málþing verður haldið í Hannesarholti þann 28. mars kl. 9.30-13.30 á HönnunarMars 2014 þar sem samfélagshönnum og hönnun fyrir lítil samfélög verður í brennidepli.  \nHvernig er hægt að nota hönnun sem tæki til byggðaþróunar?\nHvernig getur hönnun tengt einstaklinga og samfélög?\nHvernig getur hönnunarferli stuðlað að heilbrigðara samfélagi?\nHvað er samfélagshönnun (e. community design)?\nHvaða niðurstöðum skilar samfélagshönnun? \nLeitast verður við að svara ofangreindum spurningum á málþinginu. Þátttakendur fá í hendur verkfæri til að þróa samfélagshönnun innan sinna vébanda. \nÞrátt fyrir að fyrirlesarar komi frá mismunandi samfélögum eru aðferðir þeirra við hönnun svipaðar. Þeir vinna náið með hagsmunaaðilum\, nota hönnun sem stefnu í byggðaþróun og leita eftir skapandi lausnum á þeim margþættu vandamálum sem lítil samfélög standa oft frammi fyrir.  \nAðferðir sem notaðar eru í samfélagshönnun ýta undir sjálfbærni og árangur sem gagnast fyrirtækjum\, einstaklingum og umhverfi.  \nFyrirlesarar \nDaniel Byström frá Designnation og Nässjöakademíunni\nPete Collard frá Designs from Nowhere og Design Museum\nJason Dilworth og Margaret Urban frá Urban of Designers and Forests og State University í New York\nMaria Sykes frá Epicenter skjálftamiðju\nLára Vilbergsdóttir frá Make by Þorpið  \nFundarstjóri er Garðar Eyjólfsson  \nSkráning á málþingið fer fram á www.samband.is\nVerð er kr. 3200 og innfalinn er hádegisverður\, greiðist á staðnum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malthing-a-honnunarmars-honnun-fyrir-litil-samfelog/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/Hönnunarþing.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140330T163000
DTEND;TZID=UTC:20140330T183000
DTSTAMP:20140322T002013Z
CREATED:20140313T223829Z
LAST-MODIFIED:20140322T002013Z
UID:10000012-1396197000-1396204200@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar “Fram á FLEY-iferð”
DESCRIPTION:Tilefni tónleikanna er margþætt\, m.a. útkoma fræðibókarinnar „Endurnýjanleg raforka” eftir einn meðlima tríósins\, Egil seint á síðasta ári en leiknar verða m.a. útsetningar hans á nokkrum lögum Gylfa Þ. Gíslasonar\, fv. menntamálaráðherra\, prófessors og tónskálds. Gylfi lagði sem kunnugt er\, að öðrum ólöstuðum\, grunninn að öflugu starfi íslenskra tónlistarskóla undafarna áratugi.\n\nTónleikarnir eru einnig baráttutónleikar fyrir samþættingu lista\, vísinda og tækni í akademísku starfi og í akademísku frelsi og sköpun — og einnig fyrir gagnkvæmri virðingu og virðisauka þessara greina innbyrðis og gegn aðskildri og oft skrifræðislegri og skaðlegri hólfun þeirra.\n\nÁ efnisskránni er auk þess verk eftir Dave Brubeck og Oscar Peterson ofl. Jazztríóið FLEY hefur leikið saman á sjó og landi m.a. á skemmtiferðaskipinu „The World”\, en fær nú endurnýjaða og endurnýjanLEGA orku…\n\nJazztríóið FLEY skipa:\n\nEgill Benedikt Hreinsson\, píanó\nGunnar Hrafnsson\, bassi\nKjartan Guðnason\, trommur\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-fram-a-fley-iferd/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/fley-minnkuð-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140405T133000
DTEND;TZID=UTC:20140405T150000
DTSTAMP:20140326T142409Z
CREATED:20140326T132715Z
LAST-MODIFIED:20140326T142409Z
UID:10000014-1396704600-1396710000@hannesarholt.is
SUMMARY:Á slóðir Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í Þingholtunum
DESCRIPTION:Stutt ganga frá minnismerki Bríetar í Bríetarbrekku\nÞingholtsstræti  – skáhalt á móti 8a. \nGöngustjóri: Dr. Auður Styrkársdóttir\,\nforstöðukona Kvennasögusafns Íslands.  \nAð lokinni göngu er síðdegiskaffi í Hannesarholti\n•	Auður Styrkársdóttir  heldur áfram að fræða okkur um Bríeti en nú með áherslu á erlend samskipti hennar\n•	Nanna Hlín Halldórsdóttir\, heimspekingur spyr: „Er jafnrétti útópía?“\n•	Ávarp: Steinunn Stefánsdóttir\, formaður Kvenréttindafélags Íslands\nVerð: 1500 krónur\nVinsamlegast komið með rétta upphæð. Greiða skal áður en lagt er af stað í gönguferðina. Nauðsynlegt er að láta skrá sig í ferðina og boða forföll. \nUpplýsingar og skráning í símum: 666-7810 eða  551-6603\neða í netfang: asdisskula@internet.is\nEinnig er hægt að skrá sig í Félagsmiðstöðinni Hæðargarði 31 í síma 411-2790       \nAllir velkomnir með í för!   U3A
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/a-slodir-brietar-bjarnhedinsdottur-i-thingholtunum/
CATEGORIES:Gönguferðir (Guided walking tours)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/Bríet-Bjarnhéðins.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140416T203000
DTEND;TZID=UTC:20140416T220000
DTSTAMP:20140409T001115Z
CREATED:20140407T171937Z
LAST-MODIFIED:20140409T001115Z
UID:10000016-1397680200-1397685600@hannesarholt.is
SUMMARY:„Talaðu lágt\, því að tíminn er naumur“
DESCRIPTION:Tónleikar með söngkonunni og píanóleikaranum Margréti Júlíönu Sigurðardóttur ásamt hljómsveit sem skipuð er gítarleikurunum Magnúsi R. Einarssyni og Eðvarði Lárussyni\,  bassaleikaranum Pétri Sigurðssyni og trommuleikaranum Karli Pétri Smith verða haldnir í Hannesarholti miðvikudagskvöldið 16 apríl klukkan 20.00.   Sérstakur gestur á tónleikunum er bróðir Margrétar\, Þórhallur Sigurðsson. \n \nÁ tónleikunum í Hannesarholti flytur Margrét eigið efni\, bæði frumsamin lög og eldri sem hér eru færð í nýjan búning\,  hljóðheim sem er í senn ættaður frá Hawai og Hornströndum.  Sungið er um mánafljótið\,  síðasta lag fyrir lokun og daga víns og rósa en í fjarska heyrist  hvíslað „Talaðu lágt\,  því að tíminn er naumur.“  \n \nMiða á tónleikana er hægt að kaupa á midi.is og við innganginn.\nAðgangseyrir 1500 kr  (1000 kr fyrir nemendur\, öryrkja og ellilífeyrisþega). \n\n\n  \n\n \n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/taladu-lagt-thvi-ad-timinn-er-naumur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/Margrét-Sig.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140427T110000
DTEND;TZID=UTC:20140427T123000
DTSTAMP:20140423T122732Z
CREATED:20140325T011028Z
LAST-MODIFIED:20140423T122732Z
UID:10000013-1398596400-1398601800@hannesarholt.is
SUMMARY:Gengið með Guðjóni Friðrikssyni um Þingholtin
DESCRIPTION:Önnur gönguferðin af fjórum sem fyrirhugaðar eru á vegum Hannesarholts með Guðjóni Friðrikssyni\, sagnfræðingi stefnir á Skólavörðustíg og Skólavörðuholt. Ferðirnar byrja í Hannesarholti á Grundarstíg 10 kl. 11:00 og enda í Hljóðbergi við Skálholtsstíg\, þar sem sýnd verður stutt heimildamynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar. Auk þess er boðið upp á skoðunarferð um húsið fyrir þá sem það vilja. Gönguferðin tekur u.þ.b klukkustund. Fáir eru betur að sér en Guðjón um húsin og fólkið í gömlu Reykjavík og víst er að menn fara fróðari af hans fundi. Hann skrifaði m.a ævisögu Hannesar Hafstein Ég elska þig stormur sem út kom árið 2005. Veitingahúsið Borðstofan á 1.hæð hússins verður opin og er þar ýmislegt ljúfmeti í boði\, bæði sætt og ósætt. Við bendum á að kaupa má miða á midi.is en einnig má panta miða með því að hringja í s.. 511 1904. \nNæstu fyrirhuguðu ferðir eru þessar: \nSunnudagurinn 18.maí kl.11: Laufásvegur og nágrenni \nSunnudagurinn 15.júní kl.11: Umhverfis Tjörnina
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gengid-med-gudjoni-fridrikssyni-um-thingholtin/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Gönguferðir (Guided walking tours)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/Guðjón-með-fullfermi.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140504T150000
DTEND;TZID=UTC:20140504T160000
DTSTAMP:20140423T003659Z
CREATED:20140410T152514Z
LAST-MODIFIED:20140423T003659Z
UID:10000017-1399215600-1399219200@hannesarholt.is
SUMMARY:TÓNAGULL heldur tónleika á BARNAMENNINGAR-HÁTÍÐ
DESCRIPTION:Perlutónleikar Tónagulls fyrir 0-3 ára börn í fylgd með fullorðnum \nTónagull heldur Perlutónleika á léttum nótum þar sem sungnar verða þekktar perlur og barnagælur. Tónleikagestum býðst að taka undir söng og taka þátt í flutningi með klappi og smáhljóðfærum. Lóunni verður fagnað\, riðið heim til Hóla og fé rekið úr móunum svo eitthvað sé nefnt. Tónlistarkennarar Tónagulls stýra tónleikunum og fá til liðs við sig Berglindi Maríu Tómasdóttur flautuleikara. Tónleikarnir taka mið af úthaldi mjög ungra barna. Listræn stjórnun: Helga Rut Guðmundsdóttir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonagull-heldur-tonleika-a-barnamenningarhatid/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/Biribiribammbamm-e1397142441613.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140516T200000
DTEND;TZID=UTC:20140516T223000
DTSTAMP:20140509T104413Z
CREATED:20140509T104123Z
LAST-MODIFIED:20140509T104413Z
UID:10000168-1400270400-1400279400@hannesarholt.is
SUMMARY:Útgáfutónleikar My bubba
DESCRIPTION:Hljómplatan Goes Abroader með hljómsveitinni My bubba kemur út hjá Smekkleysu hér á landinu mánudaginn 12. maí. Í tilefni af því mun hljómsveitin halda útgáfutónleika í Hannesarholti föstudagskvöldið 16. maí. Um upphitun sér Snorri Helgason. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.\n\n\nMy bubba er skipuð hinni sænsku My og hinni íslensku Bubbu og var stofnuð fyrir 5 árum í Kaupmannahöfn þegar þær hittust fyrir helbera tilviljun. Síðan þá hafa þær ferðast saman um heiminn\, samið og flutt samtíma þjóðlagatónlist og tekið upp tvær breiðskífur og eina stuttskífu. Þær hafa komið fram á Iceland Airwaves\, Hróarskelduhátíðinni og hitað upp fyrir listamenn á borð við Matthew E. White og Nina Persson.\n\nMiðar eru seldir á www.midi.s\n\n\nhlekkir:\nwww.ohmybubba.com\nwww.hannesarholt.is\nwww.facebook.com/ohmybubba\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/utgafutonleikar-my-bubba/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/bubba-2-e1399631990731.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140517T140000
DTEND;TZID=UTC:20140517T150000
DTSTAMP:20140423T145121Z
CREATED:20140422T123425Z
LAST-MODIFIED:20140423T145121Z
UID:10000018-1400335200-1400338800@hannesarholt.is
SUMMARY:Leshringur - Stúlka með maga
DESCRIPTION:Lengi hefur verið áhugi fyrir því í Hannesarholti að efna til leshrings\, þar sem fólk kemur saman til að ræða bók sem það hefur lesið. Nú stefnir í fyrsta leshringinn\, og varð bókin Stúlka með maga eftir Þórunni Erlu-og Valdimarsdóttur fyrir valinu. Bókin kom út hjá Forlaginu á síðasta ári og hefur fengið verðskuldaða athygli. Höfundurinn\, Þórunn Erlu-og Valdimarsdóttir og ritstjóri verksins\, Guðrún Sigfúsdóttir verða báðar þátttakendur í leshringnum. Allir eru velkomnir – bæði þeir sem þegar hafa lesið bókina og einnig þeir sem eiga það eftir. \nBókin hlaut Fjöruverðlaunin 2014 í flokki fagurbókmennta og hér má sjá rökstuðning dómnefndar: \n Í þessari skáldættarsögu leiðir Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir lesendur aftur í tímann og segir af ættingjum sínum og fólki sem þeim tengist. Hún skrifar í orðastað móður sinnar\, sem sér lengra en nef hennar nær\, bæði fram í tímann og aftur í aldir. Rödd sögukonunnar er sterk og frumleg\, eins og sagan sjálf\, hæðin þegar það á við\, en líka elsku- og huggunarrík. Það er mikill stráksskapur í textanum og stíllinn er fagur og töfrum slunginn. Höfundurinn fjallar um ætt sína af skilningi og ást þess sem veit að hjörtum mannanna svipar saman. Enginn fer í gegnum lífið án þess að upplifa sitthvað fallegt og gott – og\, eins og segir í Stúlku með maga: „Enginn sleppur við angist og sviða“. Þórunn sýnir að þótt hverri manneskju sé ef til vill afmörkuð stund\, þá geta pappírar úr járnskápum afkomendanna reynst afar notadrjúgir okkur hinum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leshringur-stulka-med-maga/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/ÞórunnVald1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140518T110000
DTEND;TZID=UTC:20140518T123000
DTSTAMP:20140429T005334Z
CREATED:20140428T151713Z
LAST-MODIFIED:20140429T005334Z
UID:10000019-1400410800-1400416200@hannesarholt.is
SUMMARY:Gengið með Guðjóni um Þingholtin
DESCRIPTION:Þriðja gönguferðin af fjórum sem fyrirhugaðar eru á vegum Hannesarholts þetta vorið með Guðjóni Friðrikssyni\, sagnfræðingi. Að þessu sinni verður Laufásvegur og nágrenni fyrir valinu. Ferðirnar byrja í Hannesarholti á Grundarstíg 10 kl. 11:00 og enda í Hljóðbergi við Skálholtsstíg\, þar sem sýnd verður stutt heimildamynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar. Auk þess er boðið upp á skoðunarferð um húsið fyrir þá sem það vilja. Gönguferðin tekur um eina og hálfa klukkustund. Fáir eru betur að sér en Guðjón um húsin og fólkið í gömlu Reykjavík og víst er að menn fara fróðari af hans fundi. Hann skrifaði m.a ævisögu Hannesar Hafstein Ég elska þig stormur sem út kom árið 2005. \nVeitingahúsið Borðstofan á 1.hæð hússins verður opin og er þar ýmislegt ljúfmeti í boði\, bæði sætt og ósætt. Við bendum á að kaupa má miða á midi.is en einnig má panta miða með því að hringja í s. 511 1904. Takmarkaður fjöldi. \nNæsta fyrirhugaða ferð verður sunnudagurinn 15.júní á sama tíma og verður þá gengið umhverfis Tjörnina.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gengid-med-gudjoni-um-thingholtin/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Gönguferðir (Guided walking tours)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/Guðjón-með-fullfermi.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR