BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241119T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241119T170000
DTSTAMP:20241119T124612Z
CREATED:20241119T124612Z
LAST-MODIFIED:20241119T124612Z
UID:10001049-1732003200-1732035600@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókvit í Hannesarholti
DESCRIPTION:Bókvit í Hannesarholti 23.nóvember\nHannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur\, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu. Nú býður Hannesarholt rithöfundum að lesa uppúr bókum sínum á laugardögum kl.11.30-12.30 á eftirfarandi dagsetningum: 2.nóvember\, 16.nóvember\, 23.nóvember\, 7.desember og 14.desember.\nGuðný Anna Annasdóttir – Lindís í Samalandi\, Ljóni fer í skíðaskólaLaufey Arnardóttir – Kóngsi geimfariKristín Ómarsdóttir – Móðurást DraumþingÁsdís Óladóttir – RifsberjadalurinnGuðrún Hannesardóttir – KallfæriGerður Kristný – JarðljósSigurbjörg Þrastardóttir – Flaumgosar
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokvit-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókakynning,Bókaspjall,Bókmenntaspjall,Rithöfundar lesa,Upplestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/11/bokvit23face.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241117T110000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241117T120000
DTSTAMP:20250206T121218Z
CREATED:20240823T101727Z
LAST-MODIFIED:20250206T121218Z
UID:10001007-1731841200-1731844800@hannesarholt.is
SUMMARY:Cauda Collective: Strengjafjölskyldan
DESCRIPTION:Strengjafjölskyldan\nHannesarholti\, 17. nóvember 2024 kl. 11:00\nÁ þessum fjölskyldutónleikum fá ungir tónleikagestir að kynnast hljóðfærum strengjafjölskyldunnar í gegnum skemmtilegar sögur og tónlist frá ýmsum tímabilum. Í lok tónleikanna er hægt að skoða hljóðfærin í návígi\, spyrja spurninga og prófa að spila! Hentar börnum á leikskólaaldri. \n3.900 kr Miðar á tix.is \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/cauda-collective-strengjafjolskyldan/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/Strengjafjolskyldan.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241116T113000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241116T130000
DTSTAMP:20241031T121531Z
CREATED:20241031T114827Z
LAST-MODIFIED:20241031T121531Z
UID:10001042-1731756600-1731762000@hannesarholt.is
SUMMARY:BÓKVIT
DESCRIPTION:Bókvit í Hannesarholti 16.nóvember\nHannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur\, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu. Nú býður Hannesarholt rithöfundum að lesa uppúr bókum sínum á laugardögum kl.11.30-12.30 á eftirfarandi dagsetningum: 2.nóvember\, 16.nóvember\, 23.nóvember\, 7.desember og 14.desember.\nBjarki Bjarnason – Gröf minningannaGuðmundur Andri – Synir himnasmiðsLilja Magnúsdóttir – FriðarsafniðRúnar Helgi Vignisson – Þú ringlaði karlmaðurEiríkur Stepensen – Boðun GuðmundarNajlaa Attaallah – Úr dagbókum frá Gaza
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokvit-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókakaffi,Bókakynning,Bókaspjall,Upplestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/Firefly-A-heap-of-books-on-white-background-85045.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241114T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241114T220000
DTSTAMP:20250206T121605Z
CREATED:20241004T102646Z
LAST-MODIFIED:20250206T121605Z
UID:10001036-1731614400-1731621600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvintett Jóels Pálssonar
DESCRIPTION:Kvintett Jóels Pálssonar í Hannesarholti 14. nóvember kl 20 \nSaxófónleikarinn Jóel Pálsson mætir í Hannesarholt með kvintett sinn sem skipaður er einvalaliði tónlistarmanna en á spennandi efniskrá tónleikana verða frumsamin verk Jóels í forgrunni. Jóel Pálsson hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi á undanförnum árum og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum á ólíkum sviðum tónlistar. Jóel hefur gefið út sjö plötur með frumsaminni tónlist auk fjölda platna sem sem hann hefur unnið í samstarfi við aðra. Hann hefur komið fram í Evrópu\, Bandaríkjunum\, Kanada og Kína á tónleikum og tónlistarhátíðum. Kvintett Jóels skipa Magnús Jóhann Ragnarsson á píanó\, Hilmar Jensson á gítar\, bassaleikarinn Birgir Steinn Theodórsson og Magnús Trygvason Elíassen á trommur. \nGengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. Tónleikarnir hefjast kl 20\, húsið opnar 19.30 og miðaverð er 4.900kr. Miðar á tix.is \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvintett-joels-palssonar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/76640F45-A20D-4AF3-BDD5-1BCD5EFD9762457185630_923300933170828_3188997942927492430_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241102T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241102T170000
DTSTAMP:20250206T122125Z
CREATED:20241029T135909Z
LAST-MODIFIED:20250206T122125Z
UID:10001040-1730559600-1730566800@hannesarholt.is
SUMMARY:Opnun myndlistarsýningar "Marimo"
DESCRIPTION:Laugardaginn 2. nóvember klukkan 15:00 opnar sýningin Marimo í Hannesarholti. Listamennirnir Ágústa Björnsdóttir og Hekla Björt Helgadóttir standa að sýningunni og hafa að undanförnu rannsakað kúluskít í lífríki sínu. Kúluskít er aðeins að finna á Mývatni á Íslandi og í Akanvatni í Japan. Á japönsku heitir kúluskítur Marimo og dregur sýningin nafn sitt þaðan. Fyrirbærið telst til grænþörunga og er náttúruundur vegna sjaldgæfni sinnar.  \nNálgun listamannanna túlkast í gegnum eigin skynjun og dulúð.   \nMarimo eru litlir syfjaðir andar í grænu dýpi. Loðnir og kúlulaga hnoðrar á botni\, sem breiða úr sér eins og mjúkt teppi. Þeir grípa ljósið og varpa því frá sér eins og speglar undir vatni. Mjúkir bylgjandi speglar\, mjúkir líðandi andar og sálir í slímugum hjúpum. \nÁgústa Björnsdóttir (1993) býr og starfar sem myndlistarkona í Reykjavík. \nHún hóf myndlistarnám sitt í  Myndlistarskóla Reykjavíkur árið 2014 þar \nsem hún lagði stund á sjónlist. Hún útskrifaðist  þaðan með diplómagráðu \nárið 2015. Seinna sama ár tók myndlistardeild Listaháskóla Íslands við. \nÁrið 2017 lagði hún leið sína til Tallinn þar sem hún sat eina önn í \nskúlptúr og  innsetningardeild Listaháskólans í Eistlandi. \nÁgústa útskrifaðist úr LHÍ árið 2018. \nÍ myndlist sinni vinnur hún oftast í teikningu\, málverki og skúlptúrum\, \nen hikar ekki við að leita út fyrir rammann. Ágústa hefur miki dálæti af \nhinu undarlega og óþekkta og sækir innblástur í þjóðsögur\, trúarbrögð\, \nnáttúru og hið yfirnáttúrulega. Með sköpun sinni reynir hún að átta sig á \nbilinu milli raunveruleikans og óraunveruleikans og hvernig þessir \nheimar tengjast og sameinast. \nÍ verkum Ágústu leikur hún sér með hið myrka og mystíska\, hið drungalega \nog hið harmræna\, en þó er alltaf stutt í húmorinn og ljósið. \nHárfína línan á milli illskunar og kímnigáfunnar er rauði þráðurinn í \nverkum Ágústu. \nHekla Björt Helgadóttir (1985) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur jöfnum höndum sem myndlistarmaður og skáld. Verk hennar eru einlæg\, hnyttin og draumkennd og oft undir sterkum áhrifum frá leikhúsi og gjörningalist. Hekla hefur sett upp þónokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og gjörningaviðburðum. Einnig er hún ein af stofnendum listahópsins Kaktuss á Akureyri\, þar sem hún gegnir stöðu formanns og sýningarstýru. Hekla stundar nú nám við Listaháskóla íslands. 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/opnun-myndlistarsyningar-marimo/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/marimo-mynd-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241102T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241102T150000
DTSTAMP:20250206T122624Z
CREATED:20240930T131030Z
LAST-MODIFIED:20250206T122624Z
UID:10001033-1730556000-1730559600@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum Saman með Matthildi og Pétri
DESCRIPTION:Matthildur söngkona og Pétur gítarleikari leiða Syngjum saman í Hannesarholti þann 2. nóvember kl.14.\nMatthildur hefur samið og gefið út lög frá árinu 2018 og var tilnefnd til Björtustu Vonarinnar árið 2019 á Íslensku tónlistarverðlaununum. Hún kom að uppfærslu sýningarinnar Ásta sem var í Þjóðleikhúsinu og fékk tilnefningu til Grímuverðlauna bæði fyrir flutning og tónlist.Pétur Jónsson er tónskáld og gítarleikari sem hefur með hljómsveit sinni Hugar flutt tónlist sína á tónleikaferðalögum um allan heim.Textar á tjaldi og allir syngja með. Enginn aðgangseyrir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-matthildi-og-petri/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/461604633_1074618961337771_7177667330796932988_n-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241102T113000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241102T130000
DTSTAMP:20241031T121445Z
CREATED:20241031T113859Z
LAST-MODIFIED:20241031T121445Z
UID:10001041-1730547000-1730552400@hannesarholt.is
SUMMARY:BÓKVIT
DESCRIPTION:BÓKVIT í Hannesarholti laugardaginn 2.nóvember\nHannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur\, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu. Nú býður Hannesarholt rithöfundum að lesa uppúr bókum sínum á laugardögum kl.11.30-12.30 á eftirfarandi dagsetningum: 2.nóvember\, 16.nóvember\, 23.nóvember\, 7.desember og 14.desember.\nBókabeitan –Yrsa Þöll Gylfadóttir og Iðunn Arna- Hendi! (Bekkurinn minn #8)Embla Bachmann – KærókeppninHjalti Halldórsson – Hinn eini sanni jólasveinn og Bannað að vekja GrýluÞorvaldur Davíð Kristjánsson (og Bergrún Íris) – SokkalabbarnirÁsrún Magnúsdóttir – Draugagangur og Derby
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokvit/
CATEGORIES:Bókakaffi,Bókakynning,Bókaspjall,Literature,Upplestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/Firefly-A-heap-of-books-on-white-background-85045.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241031T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241031T183000
DTSTAMP:20250206T123000Z
CREATED:20241001T150553Z
LAST-MODIFIED:20250206T123000Z
UID:10001035-1730395800-1730399400@hannesarholt.is
SUMMARY:AFLÝST Dúó fyrir selló og gítar.
DESCRIPTION:Tónlist fyrir gítar og selló flutt af Svani Vilbergssyni og Þórdísi Gerði Jónsdóttur.\nSamstarf Svans Vilbergssonar\, gítarleikara\, og Þórdísar Gerðar Jónsdóttur\, sellóleikara\, hófst vegna sameiginlegs dálætis þeirra á tónverkinu Tristia fyrir selló og gítar\, eftir tónskáldið og sellóleikarann Hafliða Hallgrímsson. Verkið samdi Hafliði fyrir gítarleikarann Pétur Jónasson og sjálfan sig\, í tilefni Listahátíðar 1984. Tristia er svíta í sjö stuttum þáttum og er innblásið af minningum úr barnæsku Hafliða á Íslandi\, en hann hefur um árabil verið búsettur í Bretlandi. Í verkinu eru hljóðfærin algjörir jafningjar og notar tónskáldið ýmsa ólíka en áferðarfagra hljóðfæratækni til að búa til fjölbreyttan og draumkenndan hljóðheim. Útkoman er einstök blöndun tveggja hljóðfæra\, þar sem laglínur og landslag renna saman í eitt. Verk Hafliða varð svo innblástur fyrir hljóðfæraleikarana að halda áfram samspili og munu einnig verða flutt verk eftir braselíska tónskáldið Radames Gnattali auk hinna sívinsælu spænsku sönglaga í útsetningu Manuel de Falla.\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-fyrir-sello-og-gitar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/celloggitar8x6.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241030T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241030T190000
DTSTAMP:20250206T123531Z
CREATED:20240919T114202Z
LAST-MODIFIED:20250206T123531Z
UID:10001026-1730309400-1730314800@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Gagnkvæm aðlögun\, inngilding flóttafjölskyldna að íslensku samfélagi
DESCRIPTION:Fjölskyldur á flótta undan stríði\, hungursneyð og öðrum hörmungum koma til Íslands í leit að betra lífi fyrir börnin sín og sig. En hvernig gengur þeim að verða fullgildir meðlimir í íslensku samfélagi? Hvernig bregst samfélagið og kerfi samfélagsins við aukinni fjölbreytni\, breyttum þörfum og nýjum áskorunum? \nSamkvæmt nýrri úttekt OECD um inngildingu innflytjenda hefur það mistekist að skapa inngildandi samfélag. Það eru margar augljósar hindranir\, til að mynda tungumálið\, en einnig aðrar sem innfæddir gera sér ekki grein fyrir.  Við ætlum að ræða þessi mikilvægu mál og líta blákalt í spegilinn. \n\n\nSérfræðingar þessa fundar eru:\n\n\nJasmina Vajzović Crnac – sérfræðingur í málefnum fólks af erlendum upprunaNajlaa Attaallah – Arkítekt\, rithöfundur og skáldMagnea Marinósdóttir –  alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur í jafnréttismálum \nGuðrún Hálfdánardóttir\, fréttamaður mun stýra umræðunni
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-gagnkvaem-adlogun-inngilding-flottafjolskyldna-ad-islensku-samfelagi/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/Flottafolk.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241025T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241025T220000
DTSTAMP:20250206T124028Z
CREATED:20240909T093258Z
LAST-MODIFIED:20250206T124028Z
UID:10001022-1729886400-1729893600@hannesarholt.is
SUMMARY:RAVEN í Hannesarholti
DESCRIPTION:RAVEN í Hannesarholti 25. október kl 20 \nTónlistarkonan og lagahöfundurinn Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir\, eða RAVEN\, kemur fram í Hannesarholti þann 25. október næstkomandi. Hún mun flytja frumsamin lög\, nýtt efni í bland við gamalt og einnig vel valdar ábreiður sem hún heldur upp mikið upp á. Lýsa má tónlist RAVEN sem rólegu\, lagrænu poppi og búast má við góðri og persónulegri stemningu á þessum tónleikum. Komið og njótið ljúfra tóna RAVEN í Hannesarholti 25. október. \nMiðaverð er 4.900 kr og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/raven-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/RAVEN16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241023T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241023T190000
DTSTAMP:20250206T124622Z
CREATED:20240918T153845Z
LAST-MODIFIED:20250206T124622Z
UID:10001025-1729704600-1729710000@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Jafnastar í heimi? Staða kynjajöfnuðar á Íslandi
DESCRIPTION:Íslensk stjórnvöld telja að fimmta Heimsmarkmiðinu\, jafnrétti kynjanna\, sé náð. Við ætlum að skoða þetta aðeins nánar\, líta yfir farinn veg og gera okkur grein fyrir því hvort úrbóta er þörf. \nSérfræðingarnir sem mæta til okkar eru: \nTatiana Latinovic – formaður Kvenréttindafélags Íslands \nBrynja Elísabeth Halldórsdóttir – dósent við HÍ \nSigríður Dúna Kristmundsdóttir – fyrrverandi þingmaður Kvennalistans og prófessor emeritus \nGuðrún Sóley Gestsdóttir – fjölmiðlamaður mun stýra fundinum \nÞessi opni vettvangur verður haldinn í Hljóðbergi í Hannesarholti og er gestum gjaldfrjáls. Gengið er inn frá Skálholtsstíg. Einnig verður hægt að fylgjast með í beinu streymi af facebooksíðu Hannesarholts.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-jafnastar-i-heimi-stada-kynjajofnudar-a-islandi/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bein útsending,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/jafnrettikynjana.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241019T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241019T180000
DTSTAMP:20250206T125255Z
CREATED:20241001T150248Z
LAST-MODIFIED:20250206T125255Z
UID:10001034-1729357200-1729360800@hannesarholt.is
SUMMARY:Rachmaninoff fyrir selló og píanó.
DESCRIPTION:Kitty Kovács píanóleikari og Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari spila sónötu í g-moll op.19 eftir Sergei Rachmaninoff (1873-1943). Verkinu hefur verið lýst sem sinfóníu fyrir selló og píanó\, bæði vegna þess aðþað er samið í sinfónísku formi en líka þar sem efniviðurinn er þykkur og stórbrotinn fyrir bæði hljóðfærin. Sónatan er óvenjuleg að því leyti að það er gjarnan píanóið sem kynnir ný stef og nýja kafla verksins og síðan tekur sellóið við með ýmist stærri eða skrautlegri útgáfu stefjanna. Verkið var frumflutt af sellóleikaranum Anatoliy Brandukov og Rachmaninoff sjálfum þann 2. desember árið 1901. Að auki leika Kitty og Þórdís hina frægu Vocalísu Rachmaninoffs. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/rachmaninoff-fyrir-sello-og-piano/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/celloogpiano16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241019T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241019T150000
DTSTAMP:20250206T125942Z
CREATED:20240930T130811Z
LAST-MODIFIED:20250206T125942Z
UID:10001032-1729346400-1729350000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum Saman með Björgu Birgisdóttur og Jóni Elíssyni
DESCRIPTION:Björg Birgisdóttir söngkona og Jón Elísson píanóleikari leiða Syngjum saman í Hannesarholti þann 19. október kl.14. Á efnisskránni eru Evrópsk nostalgíulög.Textar á tjaldi svo allir geti tekið undir\, ungir og aldnir.\nBjörg hefur komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri\, bæði hérlendis og víðar í Evrópu. Jón hefur spilað með fjölda hljómsveita og tónlistarmanna víða um heim. Þau starfa nú saman í Sönghúsi Domus Vox hjá Margréti Pálmadóttur og njóta þess að miðla til upprennandi tónlistarfólks.\nEnginn aðgangseyrir.Veitingahúsið í Hannesarholti er opið frá kl.11.30-16.00
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-bjorgu-birgisdottur-og-joni-elissyni/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/461507968_1076037854529215_88271408787868613_n-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241016T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241016T190000
DTSTAMP:20250206T130215Z
CREATED:20240830T123157Z
LAST-MODIFIED:20250206T130215Z
UID:10001019-1729099800-1729105200@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Geðheilsa
DESCRIPTION:Hvernig styðjum við hvert annað? Hvernig hafa náin sambönd og samskipti áhrif á geðheilsu okkar? Mörgum finnst samskiptin í samfélaginu hafa breyst og orðið harðari\, hvaða áhrif hefur það á okkur? Hvers vegna hugsum við ekki um forvarnir við geðsjúkdómum eins og við hugum að annarri líkamlegri heilsu?\n\nÁ þessum fundi Heimilis Heimsmarkmiðanna snúum við okkur að félagslegum markmiðum Heimsmarkmiðanna\, og ræðum um geðheilsu.\n\nSérfræðingateymið kemur úr ólíkum áttum og mun deila vitneskju og reynslu sinni.\n\n\nÓlafur Þór Ævarsson – geðlæknir og stofnandi Streituskólans.\n\nTómas Kristjánsson – sálfræðingur og lektor við HÍ.\n\nFulltrúi frá Geðhjálp\n\nElísabet Kristín Jökulsdóttir – rithöfundur og skáld mun stýra fundinum og leiða umræðuna.\n\nÞessi opni vettvangur verður haldinn í Hljóðbergi í Hannesarholti og er gestum gjaldfrjáls. Gengið er inn frá Skálholtsstíg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-gedheilsa/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/gedheilsamynd16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241015T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241015T220000
DTSTAMP:20240923T162259Z
CREATED:20240923T162259Z
LAST-MODIFIED:20240923T162259Z
UID:10001027-1729022400-1729029600@hannesarholt.is
SUMMARY:Benjamín Gísli við flygilinn í Hannesarholti
DESCRIPTION:Þriðjudagskvöldið 15. október mun píanóleikarinn Benjamín Gísli Einarsson leika einleik á flygilinn í Hannesarholti. Á efnisskránni verða frumsamin verk eftir Benjamín ásamt klassískum íslenskum perlum. \nBenjamín\, sem er búsettur í Noregi\, nýtur mikillar velgengni í tónlistarsenunni þar og kemur reglulega fram á stærstu jazzhátíðum og jazzklúbbum landsins. Í fyrra gaf hann út plötuna Line Of Thought með tríói sínu\, sem hefur fengið frábæra dóma víða um heim. \n“Benjamín Gísli understands the use of silence as a sound” – George W. Harris\, Jazz Weekly (US) \n„Line Of Thought is a good debut and there’s purity and melancholic beauty in the stillness of the music.” – Kevin Ward\, Ukvibe (UK) \nhttps://orcd.co/bbsuite\nhttps://orcd.co/line_of_thought\nwww.benjamingisli.com \nTónleikarnir hefjast kl 20\, húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. Miðar fást á tix.is og miðaverð er 4.900 kr. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/benjamin-gisli-vid-flygilinn-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241012T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241012T160000
DTSTAMP:20250206T132343Z
CREATED:20240930T130109Z
LAST-MODIFIED:20250206T132343Z
UID:10001031-1728741600-1728748800@hannesarholt.is
SUMMARY:Gunnhildur Þórðardóttir opnar málverkasýningu sína MAGN
DESCRIPTION:Gunnhildur Þórðardóttir opnar málverkasýningu sína MAGN laugardaginn 12.október kl.14-16. Sýningin er sölusýning og stendur til 29.október.\nÁ sýningunni eru glæný verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur bæði tví – og þrívíð sem fjalla um liti lífsins\, neyslu mannsins og magn þ.e. stærð\, fjölda eða jafnvel mátt eða afl.\nListin er alþjóðlegt hreyfiafl og þannig vill listamaðurinn túlka heiminn í gegnum verk sem vonandi hreyfa við áhorfendum. Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr endurunnum listaverkum á striga\, endurnotuðum rafmagnsvírum\, brotum eða afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri\, plasti og málmum.\nGunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður\, skáld og kennari. Hún lauk tvíhliða BA námi í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama háskóla árið 2006 og lauk viðbótardiploma í listkennslu við LHÍ á haustönn 2019. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar meðal annars í Listasafni Reykjanesbæjar\, Kirsuberjatrénu\, í Suðsuðvestur\, Flóru á Akureyri\, í SÍM salnum\, Slunkaríki\, sal Íslenskrar grafíkur auk þess að taka þátt í samsýningum í Listasafni Íslands\, Hafnarborg\, Listasafni Reykjanesbæjar\, Svavarssafni\, Norræna húsinu\, 002 gallerí og Tate Britain. Hún er stofnandi listahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún fékk ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur tekið þátt í fjölda upplestra.\nSýningin er opin á opnunartíma Hannesarholts\, frá 11.30-16 alla daga nema sunnudaga og mánudaaga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gunnhildur-thordardottir-opnar-malverkasyningu-sina-magn/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/461713677_1076788371120830_6213439843682700617_n-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241009T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241009T190000
DTSTAMP:20250206T132850Z
CREATED:20240912T154239Z
LAST-MODIFIED:20250206T132850Z
UID:10001023-1728495000-1728500400@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna : Hvernig er jöfnuður?
DESCRIPTION:Íslenskt samfélag er talið opið og umburðarlynt\, en hver er upplifun fatlaðs fólks á jöfnuði\, aðgengi og inngildingu í íslensku samfélagi. \nVið fáum til okkar Steinunni Ásu (Stása) úr „Með okkar augum“\, Hauk Guðmundsson – formann Átaks\, Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur – leikkonu og félagsfræðing\, og Heiðu Vigdísi Sigfúsdóttur – framkvæmdastjóra Átaks. Þau munu deila með okkur reynslu sinni og þekkingu og skapa líflegt samtal við áheyrendur um þetta mikilvæga mál. \nFundarstjórn verður í traustum höndum Guðrúnar Sóleyjar Gestsdóttur. \nFundurinn verður í beinu streymi og aðgengilegur á facebooksíðu Hannesarholts. \nÞetta er gjaldfrjáls viðburður í boði Hollvinafélags Hannesarholts og öll eru velkomin.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-hvernig-er-jofnudur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/adgengifatladra.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241005T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241005T150000
DTSTAMP:20250206T133302Z
CREATED:20240930T125724Z
LAST-MODIFIED:20250206T133302Z
UID:10001030-1728136800-1728140400@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum Saman með Jóhanni Vilhjálmssyni og Gunnari Kr. Sigurjónssyni
DESCRIPTION:Syngjum saman í Hannesarholti\, laugardaginn 5. október 2024 kl. 14\, með frændunum Jóhanni Vilhjálmssyni og Gunnari Kr. Sigurjónssyni. Þeir eru gestum Hannesarholts að góðu kunnir\, enda hafa þeir stjórnað söngstundinni margoft áður af mikilli snilld. Þeir bræðrasynir ólust upp við tóna systkinanna Ellyjar og Vilhjálms\, enda var Vilhjálmur faðir Jóhanns og Elly föðursystir þeirra beggja. Jóhann hefur verið í kórum allt frá blautu barnsbeini og Gunnar hefur spilað á hljómborð við ýmis tækifæri í gegnum tíðina\, jafnframt því að sinna útgáfustarfsemi og sýna töfrabrögð ýmiskonar.Allir velkomnir. Enginn aðgangseyrir. Textar birtast á tjaldi svo allir geti sungið með.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-johanni-vilhjalmssyni-og-gunnari-kr-sigurjonssyni/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/461393195_1074608698005464_4531293043423212450_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241005T123000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241005T140000
DTSTAMP:20250206T133446Z
CREATED:20241004T103451Z
LAST-MODIFIED:20250206T133446Z
UID:10001037-1728131400-1728136800@hannesarholt.is
SUMMARY:Kaffipásu leiðsögn
DESCRIPTION:Sigtryggur Berg verður á staðnum til að segja okkur frá nýju sýningunni „Kaffipása“ sem er til sýnis í Hannesarholti. Nú fer hver að verða síðastur að bera þessi verk augum\, því sýningin verður tekin niður í byrjun næstu viku.\nKomið í laugardagskaffipásu í Hannesarholti og spjallið við Sigtrygg Berg um kaffipásur.\nFrá kl. 12:30-14:00
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kaffipasu-leidsogn/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leiðsögn um myndlistarsýningu,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/10/sigtryggur16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241003T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241003T220000
DTSTAMP:20250206T134129Z
CREATED:20240925T155553Z
LAST-MODIFIED:20250206T134129Z
UID:10001028-1727985600-1727992800@hannesarholt.is
SUMMARY:Stása Þorvaldsdóttir býður til hausttónleika í Hannesarholti
DESCRIPTION:Stása Þorvaldsdóttir býður til hausttónleika í Hannesarholti ásamt vinum sínum\, Védísi\, Guðmundi og Kristjáni fimmtudaginn 3.október kl.20. Ræktum saman vináttuna og hlýjuna í hjörtum okkar þótt úti blási og vetur nálgist. Það er svo dýrmætt að eiga stundina saman.\nMiðasala á tix.is \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/stasa-thorvaldsdottir-bydur-til-hausttonleika-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/stasa16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241002T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241002T190000
DTSTAMP:20250206T134403Z
CREATED:20240828T143129Z
LAST-MODIFIED:20250206T134403Z
UID:10001016-1727890200-1727895600@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Hvers virði er náttúran?
DESCRIPTION:Náttúran á Íslandi verður ekki metin til fjár\, eða hvað? Er nóg að vera með 2-4 fossa\, 5 góðar laxveiðiár og 12 firði? en 6 ár og 3 fossa? Verðum við að fórna náttúru fyrir hagvöxt – eða er það tvígreining á röngum forsendum? Á þessum opna vettvangi Heimilis Heimsmarkmiðanna reynum við að „verðleggja“ íslenska náttúru. \nÁ opnum vettvangi Heimilis Heimsmarkmiðanna fáum við til okkar sérfræðinga úr ýmsum áttum og hvetjum til virkrar þáttöku áheyrenda í umræðunum. Að þessi sinni eru sérfræðingarnir: \nDaði Már Kristófersson – hagfræðingur og prófessor \nSigríður Þorgeirsdóttir – heimspekingur og prófessor \nOddur Sigurðsson – jarðfræðingur og ljósmyndari \nKatrín Oddsdóttir – lögmaður mun leiða áheyrendur og sérfræðinga saman í líflegar umræður. \nÞessi opni vettvangur verður haldinn í Hljóðbergi í Hannesarholti og er gestum gjaldfrjáls. Gengið er inn frá Skálholtsstíg
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-hvers-virdi-er-natturan/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/Firefly-kirkjufell-in-monetary-style-monochrome-blue-like-on-paper-currency-with-watermark-and-bor1-scaled-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240926T201500
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240926T220000
DTSTAMP:20250206T134725Z
CREATED:20240822T184647Z
LAST-MODIFIED:20250206T134725Z
UID:10001006-1727381700-1727388000@hannesarholt.is
SUMMARY:Cauda Collective: Spegill\, spegill
DESCRIPTION:Spegill\, spegill \nHannesarholti\, 27. september 2024 kl. 20:15\nCauda Collective hefur tónleikaröð sína í Hannesarholti\, Eldblik\, með verkum eftir þær Eygló Höskuldsdóttur Viborg (f. 1989) og Jesse Montgomery (f. 1981). Leiknir verða strengjakvartettar og dúettar fyrir sópran og selló eftir bæði tónskáldin\, sem eiga það sameiginlegt að hafa stundað nám í New York. Verk Eyglóar Silfra og Kona lítur við einkennast af áferðarfögrum strófum þar sem flaututónar strengjahljóðfæra eru notaðir á frumlegan hátt. Verk Jesse\, Loisaida\, My Love og Break Away\, einkennast af leikglöðum en kraftmiklum laglínum sem oft eru unnar upp úr spuna. \n5.900 kr \nGengið inn frá Skálholtsstíg \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/eldblik-tonleikarod-cauda-collective/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/spegillspegill-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240925T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240925T190000
DTSTAMP:20250206T135036Z
CREATED:20240828T123440Z
LAST-MODIFIED:20250206T135036Z
UID:10001015-1727285400-1727290800@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Matarsóun
DESCRIPTION:Ár hvert eru 5.800 tonnum af mat og drykk hent af Reykvískum heimilum. Samkvæmt mælingum á sautján heimilum hendir hver einstaklingur um 48 kg á ári sem jafngildir um 150 þúsund krónur fyrir fjögurra manna fjölskyldu. \n\n\n\n\n\n\nÁ þessum þriðja fundi Heimilis Heimsmarkmiðanna rýnum við í matarvenjur okkar og hvar möguleikar eru til að innleiða sjálfbærni-hugsjón þegar kemur að innkaupum\, eldamennsku og nýtingu. Við fáum til okkur sérfræðinga úr fremstu röð.\n\n\n\nMargrét Sigfúsdóttir – fyrrverandi skólastjóri Hússtjórnarskólans.\n\nSólveig Ólafsdóttir – sagnfræðingur og matgæðingur.\n\nSigurjón Bragi Geirsson – matreiðslumeistari\, yfirkokkur\, Kokkur ársins 2019.\n\nRakel Garðarsdóttir\, umhverfisbaráttumaður\, framkvæmdastjóri Vesturports og framkvæmdastjóri Veranda mun leiða umræðuna.\n\nÞessi opni vettvangur verður haldinn í Hljóðbergi í Hannesarholti og er gestum gjaldfrjáls. Gengið er inn frá Skálholtsstíg.\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nHlekkur virðiskeðju\nMatarsóun á mann 2022 (kg)\nMatarsóun 2022 (tonn)\n\n\n\n\nFrumframleiðsla\n77\,2\n29.060\n\n\nVinnsla og framleiðsla\n4\,2\n1.590\n\n\nDreifing og smásala\n5\,1\n1.930\n\n\nVeitingahús og matarþjónusta\n10\,3\n3.860\n\n\nHeimili\n63\,2\n23.780\n\n\nSamtals\n160\n60.220\n\n\n\n \n\nUpplýsingar fengnar frá samangegnsoun.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-matarsoun/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/Untitled-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240921T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240921T220000
DTSTAMP:20250206T135332Z
CREATED:20240829T141837Z
LAST-MODIFIED:20250206T135332Z
UID:10001018-1726948800-1726956000@hannesarholt.is
SUMMARY:Hipsumhaps í Hannesarholti
DESCRIPTION:Laugardaginn 21. september ætla Hipsumhaps að halda tónleika í Hannesarholti. Við ætlum að hafa það næs saman og láta hversdagsskáldið Fannar Inga Friðþjófsson leiða gesti í gegnum tóna og tal líkt og enginn sé morgundagurinn. Þetta hefur staðið til lengi og við hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Miðaverð er 4.900 kr og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hipsumhaps-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/hipsumhaps.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240921T113000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240921T130000
DTSTAMP:20250206T140008Z
CREATED:20240826T131925Z
LAST-MODIFIED:20250206T140008Z
UID:10001011-1726918200-1726923600@hannesarholt.is
SUMMARY:Fyrir foreldra\, ömmur og afa og áhugasama fullorðna - Komið og lærið um Kurrkvarðann
DESCRIPTION:Dr Janet Kaufman er kennari\, sáttasemjari og umræðustjóri. Hún varði megninu af starfsævi sinni við háskóla\, en starfar nú sem ráðgjafi fyrir skóla\, samfélagssamtök\, fyrirtæki og fjölskyldur. Starf hennar byggir á alþjóðlegum viðmiðum Nonviolent Communication (Rosemberg)  og húmanískrar sálfræði sem hjálpar fólki að dýpka samskiptafærni sína\, bætir samvinnu og leiðir til lausna. Meðal þess sem hún hefur gert á leið sinni er að taka þátt í að þróa The Grump Meter\, (Kurrkvarðann) sem er tæki fyrir allan aldur sem styrkir kærleiksrík samskipti og tilfinningalega sjálfsstjórn. Janet er móðir tveggja ungmenna\, býr með eiginmanni sínum í Boise\, Idaho og er mikil útivistarkona. Hún gekk Laugaveginn fyrir nokkrum árum\, er bókmenntaunnandi og nýfarin að læra á mandólín. \n(Nonviolent Communication er leið til betri samskipta\, skilnings og tengsla sem byggja á grunni “nonviolence” og húmanistic sálfræði.  Það er ekki leið til að enda ósætti\, heldur leið sem byggir á að auka samkennd og skilning til að bæta lífsgæði almennt.) \nFyrir foreldra\, ömmur og afa og áhugasama fullorðna – \nKomið og lærið um Kurrkvarðann \nKemur það fyrir að einhver í fjölskyldunni ykkar verður ergilegur\, pirraður eða reiður? Ef þú kannast við það bjóðum við þér að koma og læra um Kurrkvarðann og átakalaus samskipti. Á þessari vinnustofu lærir þú einfalt litatungumál til sjálfsþekkingar og samskipta bæði fyrir þig og börnin. Þetta er tæki sem nýtist börnum og fullorðnum til að leysa vandamál og hvetur til friðsamlegrar tjáningar. \nVið höfum öll þörf fyrir ást\, skilning\, virðingu\, góðmennsku að tilheyra og að tekið sé tillit til okkar. Þegar okkur gengur illa að mæta þessum grunnþörfum eykst mæðan og mælirinn fyllist. Þegar við hins vegar þekkjum tilfinningar okkar\, stöldrum við og metum hvort þarfir okkar séu uppfylltar\, getum við gengið að rót vandans. Kurrkvarðinn einfaldar ferlið og er gagnlegt tæki til að tjá tilfinningar og þarfir á friðsælan hátt. \nKomdu í hópinn og búðu til Kurrkvarða og taktu hann með þér heim til að nýta með fjölskyldunni. \n2000 kr. \nKAUPA MIÐA 21.09KAUPA MIÐA 17.09
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fyrir-foreldra-ommur-og-afa-og-ahugasama-fullordna-komid-og-laerid-um-kurrkvardann/2024-09-21/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks),Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/kurrkvardinn-grumpmeter.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240920T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240920T220000
DTSTAMP:20240826T164857Z
CREATED:20240826T162211Z
LAST-MODIFIED:20240826T164857Z
UID:10001014-1726862400-1726869600@hannesarholt.is
SUMMARY:Lífið er lotterí í Hannesarholti
DESCRIPTION:Loksins mætir Kómedíuleikhúsið í borgina með hina vinsælu sýningu Lífið er lotterí\nSýnt verður í Hannesarholti Grundarstíg 10 Reykjavík. \nLífið er lotterí er söngdagskrá tileinkuð textasmiðnum og leikskáldinu Jónasi Árnasyni. Hver kannast ekki við slagara á borð við Langi Mangi\, Við heimtum aukavinnu\, Hæ hoppsasí\, Riggarobb\, Einu sinni á ágústkvöldi\, Augun þín blá og þannig mætti lengi telja. Sýningunni hefur verið frábærlega vel tekið og sýnd margsinnis í Kómedíuleikhúsinu fyrir vestan við dillandi og dirrindí fjöldasöng gesta. \nSegja má um Jónas með hans eigin orðum úr einu af hans vinsælu söngtextum\, sem kóngur ríkti hann\, og bæta við yfir leiksviði og fjöldasamkomum í áratugi og gjörir enn. Þegar landsmenn koma saman þá er oftar en ekki sungið eitthvað úr smiðju Jónasar Árnasonar. \nÞetta verður syngjandi hér og syngjandi þar skemmtilegt kveld þar sem þrjú á sviði munu flytja perlur Jónasar og allir syngja með. \nSýningardagar: 19. september kl. 20.00 og 20. september kl. 20.00. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lifid-er-lotteri-i-hannesarholti/2024-09-20/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leiklestur,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/komediuleikhusid.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240919T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240919T220000
DTSTAMP:20240826T164857Z
CREATED:20240826T162211Z
LAST-MODIFIED:20240826T164857Z
UID:10001013-1726776000-1726783200@hannesarholt.is
SUMMARY:Lífið er lotterí í Hannesarholti
DESCRIPTION:Loksins mætir Kómedíuleikhúsið í borgina með hina vinsælu sýningu Lífið er lotterí\nSýnt verður í Hannesarholti Grundarstíg 10 Reykjavík. \nLífið er lotterí er söngdagskrá tileinkuð textasmiðnum og leikskáldinu Jónasi Árnasyni. Hver kannast ekki við slagara á borð við Langi Mangi\, Við heimtum aukavinnu\, Hæ hoppsasí\, Riggarobb\, Einu sinni á ágústkvöldi\, Augun þín blá og þannig mætti lengi telja. Sýningunni hefur verið frábærlega vel tekið og sýnd margsinnis í Kómedíuleikhúsinu fyrir vestan við dillandi og dirrindí fjöldasöng gesta. \nSegja má um Jónas með hans eigin orðum úr einu af hans vinsælu söngtextum\, sem kóngur ríkti hann\, og bæta við yfir leiksviði og fjöldasamkomum í áratugi og gjörir enn. Þegar landsmenn koma saman þá er oftar en ekki sungið eitthvað úr smiðju Jónasar Árnasonar. \nÞetta verður syngjandi hér og syngjandi þar skemmtilegt kveld þar sem þrjú á sviði munu flytja perlur Jónasar og allir syngja með. \nSýningardagar: 19. september kl. 20.00 og 20. september kl. 20.00. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lifid-er-lotteri-i-hannesarholti/2024-09-19/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leiklestur,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/komediuleikhusid.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240919T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240919T170000
DTSTAMP:20250206T140818Z
CREATED:20240904T171747Z
LAST-MODIFIED:20250206T140818Z
UID:10001020-1726758000-1726765200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kaffipása - myndlistarsýning Sigtryggs Bergs Sigmarssonar
DESCRIPTION:Sigtryggur Berg opnar myndlistarsýninguna „Kaffipása“ í Hannesarholti\, þann 19. september kl. 15:00. Sýningin er sölusýning og mun standa yfir til 08. október og verður til sýnis alla daga nema sunnudaga og mánudaga frá kl. 11:30-16:00 \nUm sýninguna hefur Sigtryggur þetta að segja: „þegar mér var boðið að sýna í hannesarholti datt mér strax í hug seríu af teikningum sem ég gerði í ghent\, belgíu árið 2012 sem hét „kaffi og kökur“ og voru abstrakt teikningar þar sem ég bætti við formum sem maður sá kannski sem kaffibolla og/eða kökur. svo ég fór þá að leita af þessari seríu í öllum kössunum hérna hjá mér þar sem ég geymi eldri verk og eftir langa leit gafst ég upp. en nokkrum tímum seinna ákvað ég að tjékka betur á þessu og fór að hringja í vini og kunningja heima á íslandi að spyrja hvort þetta væri kannski í geymslu hjá þeim eitthvað. því mig langaði svo að sýna þessa seríu í hannesarholti sagði ég. en eftir ennþá lengri leit fattaði ég loksins að ég hafði selt seríuna til konu sem leit við í heimsókn á vinnustofuna hjá mér í ghent\, belgíu og hafði ég útskýrt fyrir henni verkið og að því loknu keypti hún alla seríuna. nema hvað að ég hafði bara gleymt því að þetta hafði átt sig stað. enda smá síðan að þetta átti sér stað og maður orðinn gleyminn en þó ekki staðnaður. langt í frá. en ljósmyndir á ég af þessari seríu til hjá mér á hörðum disk og eftir að hafa skoðað þær ljósmyndir og stúderað vandlega datt mér í hug að ég gæti endurgert teikningarnar að hluta til. auðvitað ekkert alveg eins og upprunalega serían. en allavega látið reyna á það. svona reyna gera eitthvað í svipuðum dúr. en það var bara ekki sjens. af þessum ljósmyndum að sjá var það einsog þetta væri teiknað af einhverjum öðrum. semsagt ekki mér. svo ég gat engan veginn teiknað í þessum stíl akkúrat núna. allavega ekki í dag. en sýninguna í hannesarhotli ætlaði ég einmitt að kalla eftir þessari seríu. þar að segja „kaffi og kökur“ – og hefði það sjálfsagt dekkað konseptið. heildarhugmyndina fyrir sýninguna. að mér fannst allavega. titlar koma nefnilega oft upp um verkin. en það má þó staldra aðeins lengur við eitt og eitt málverk. skoða lengur og ítarlega. þá kemur oft margt annað í ljós. eitthvað sem áhorfandinn tengir kannski við sig pérsónulega. sitt líf. sínar upplifanir. sína drauma. en í þýskalandi hef ég fengið að kynnast því að það sé mikilvægt að taka sér pásur af og til yfir daginn og fá sér kaffi. þessar pásur kallar fólk hér „kaffeepause“. eða á góðri íslensku „kaffipása“. sit ég hér við skrif einmitt með kaffi. svo ég ákvað að kalla sýninguna „kaffipása“. málverkin fyrir sýninguna voru unnin með þetta allt saman í huga. og þar með býð ég fólki að koma\, njóta verkana\, fá sér kaffi og með því.“  – Sigtryggur Berg\, 3.9.24 \nSigtryggur Berg Sigmarsson (f. 1977) er mynd-\, hljóð- og gjörningalistamaður sem býr í Þýskalandi. Hann stundaði myndlistarnám í Hannover hjá prófessor Ulrich Eller og lauk meistaragráðu frá Fachhochschule Hannover Bildende Kunst árið 2003. Áður hafði hann stundað nám við Konunglega konservatoríið í Haag á árunum 1997 – 1998.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kaffipasa-myndlistarsyning-sigtryggs-bergs-sigmarssonar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/sigtryggur-berg-_-kaffipasa.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240918T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240918T190000
DTSTAMP:20250206T141059Z
CREATED:20240823T113136Z
LAST-MODIFIED:20250206T141059Z
UID:10001008-1726680600-1726686000@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Að klæða sig sjálfbært?
DESCRIPTION:Evrópubúar henda 2 milljónum tonna af vefnaðarvöru á hverju ári. Á hverri sekúndu er sem samsvarar einum ruslabíl með vefnaðarvöru urðað eða brennt. \nMörg okkar gefa óæskileg föt til góðgerðarverslana og fatasöfnunarbanka – en vitum við virkilega hvað verður um þau? \nÁ þessum öðrum fundi Heimili Heimsmarkmiðanna förum við í saumana á fatnaði okkar\, og veltum því fyrir okkur hvernig við getum verið smart og verið með hreina samvisku. \n“There’s no such thing as away. When we throw things away they must go somewhere.“ – Annie Leonard \nSérfræðingar fundarins eru: \nSigríður Ágústa fatahönnuður \nRagna Bjarna fatahönnuður og fagstjóri fatahönnunarbrautar LHÍ \nFreyr Eyjólfsson Verkefnisstjóri Hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu \nFundarstjórn verður í traustum höndum Sirrýar Arnardóttur\, rithöfundar og fjölmiðlamanns \nMiðvikudagur 18. september. Ókeypis aðgangur\, gengið inn frá Skálholtsstíg
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-ad-klaeda-sig-sjalfbaert/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/AdobeStock_778680206.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240917T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240917T213000
DTSTAMP:20250206T140008Z
CREATED:20240826T131925Z
LAST-MODIFIED:20250206T140008Z
UID:10001021-1726603200-1726608600@hannesarholt.is
SUMMARY:Fyrir foreldra\, ömmur og afa og áhugasama fullorðna - Komið og lærið um Kurrkvarðann
DESCRIPTION:Dr Janet Kaufman er kennari\, sáttasemjari og umræðustjóri. Hún varði megninu af starfsævi sinni við háskóla\, en starfar nú sem ráðgjafi fyrir skóla\, samfélagssamtök\, fyrirtæki og fjölskyldur. Starf hennar byggir á alþjóðlegum viðmiðum Nonviolent Communication (Rosemberg)  og húmanískrar sálfræði sem hjálpar fólki að dýpka samskiptafærni sína\, bætir samvinnu og leiðir til lausna. Meðal þess sem hún hefur gert á leið sinni er að taka þátt í að þróa The Grump Meter\, (Kurrkvarðann) sem er tæki fyrir allan aldur sem styrkir kærleiksrík samskipti og tilfinningalega sjálfsstjórn. Janet er móðir tveggja ungmenna\, býr með eiginmanni sínum í Boise\, Idaho og er mikil útivistarkona. Hún gekk Laugaveginn fyrir nokkrum árum\, er bókmenntaunnandi og nýfarin að læra á mandólín. \n(Nonviolent Communication er leið til betri samskipta\, skilnings og tengsla sem byggja á grunni “nonviolence” og húmanistic sálfræði.  Það er ekki leið til að enda ósætti\, heldur leið sem byggir á að auka samkennd og skilning til að bæta lífsgæði almennt.) \nFyrir foreldra\, ömmur og afa og áhugasama fullorðna – \nKomið og lærið um Kurrkvarðann \nKemur það fyrir að einhver í fjölskyldunni ykkar verður ergilegur\, pirraður eða reiður? Ef þú kannast við það bjóðum við þér að koma og læra um Kurrkvarðann og átakalaus samskipti. Á þessari vinnustofu lærir þú einfalt litatungumál til sjálfsþekkingar og samskipta bæði fyrir þig og börnin. Þetta er tæki sem nýtist börnum og fullorðnum til að leysa vandamál og hvetur til friðsamlegrar tjáningar. \nVið höfum öll þörf fyrir ást\, skilning\, virðingu\, góðmennsku að tilheyra og að tekið sé tillit til okkar. Þegar okkur gengur illa að mæta þessum grunnþörfum eykst mæðan og mælirinn fyllist. Þegar við hins vegar þekkjum tilfinningar okkar\, stöldrum við og metum hvort þarfir okkar séu uppfylltar\, getum við gengið að rót vandans. Kurrkvarðinn einfaldar ferlið og er gagnlegt tæki til að tjá tilfinningar og þarfir á friðsælan hátt. \nKomdu í hópinn og búðu til Kurrkvarða og taktu hann með þér heim til að nýta með fjölskyldunni. \n2000 kr. \nKAUPA MIÐA 21.09KAUPA MIÐA 17.09
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fyrir-foreldra-ommur-og-afa-og-ahugasama-fullordna-komid-og-laerid-um-kurrkvardann/2024-09-17/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks),Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/kurrkvardinn-grumpmeter.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR