BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260528T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260528T213000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260317T093139Z
LAST-MODIFIED:20260317T093139Z
UID:10001280-1779998400-1780003800@hannesarholt.is
SUMMARY:Anna Magga & Sigurhjörtur
DESCRIPTION:Leik- og söngkonan Anna Magga og píanóleikarinn Sigurhjörtur Pálmason halda tónleika í Hannesarholti fimmtudaginn 28. maí kl. 20:30.\n\nÁ efnisskránni verður fjölbreytt úrval laga – íslensk og erlend\, ásamt lögum sem Anna Magga hefur samið sjálf. Flutt verða lög ípersónulegum og hlýlegum útsetningum fyrir rödd og píanó.\n\nTónleikarnir bjóða upp á notalega kvöldstund í fallegu umhverfi Hannesarholts þar sem tónlist og frásögn fléttast saman.\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/anna-magga-sigurhjortur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/03/Anna-Magga-og-Sigurhjortur-banner-tix.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260526T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260526T170000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260526T161849Z
LAST-MODIFIED:20260526T161849Z
UID:10001299-1779782400-1779814800@hannesarholt.is
SUMMARY:Dúó tónleikar\, fiðla og píanó\, Bjargey og Ólína
DESCRIPTION:Bjargey Birgisdóttir fiðluleikari og Ólína Ákadóttir píanóleikari eru ungar listakonur sem þegar hafa getið sér gott orð fyrir hljóðfæraleik sinn. Þær leiða hér saman hesta sína í Hannesarholti og flytja saman þrjú verk eftir Beethoven\, Grieg\, Jórunni Viðar. \nBjargey Birgisdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Helgu Steinunni Torfadóttur í Allegro Suzukitónlistarskólanum og útskrifaðist frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar þar sem kennari hennar var Auður Hafsteinsdóttir. Hún lauk bakkalárgráðu frá Hochschule für Musik Basel undir handleiðslu Barböru Doll árið 2023 og útskrifaðist nýverið með meistaragráðu frá Hochschule für Musik Freiburg undir handleiðslu Simone Zgraggen. Bjargey hefur hlotið margvísleg verðlaun og styrki fyrir fiðluleik sinn\, leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið konsertmeistari Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún var í starfsnámi hjá Philharmonisches Orchester Freiburg árið 2024 og er meðlimur hinnar virtu Gustav Mahler Jugendorchester. \nÓlína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún lauk bakkalárnámi við Tónlistarháskóla Noregs með eins árs skiptinámi í Tbilisi í Georgíu. Nú stundar hún meistaranám við Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Ólína hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og fleirum. Hún hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum eins og Seiglu\, Óperudögum\, Asker Kammerkonserter\, Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar\, Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Einnig stendur Ólína fyrir ýmsum sjálfstæðum verkefnum\, þ.á.m. hefur hún sett saman söngleik við verk Jórunnar Viðar\, einleikstónleikana Ferðasögur frá Georgíu\, barnasýningar\, tónlistarsmiðjur og stofutónleikaröð. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-tonleikar-fidla-og-piano-bjargey-og-olina/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/bjargey.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T213000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260427T111400Z
LAST-MODIFIED:20260427T111400Z
UID:10001292-1778961600-1778967000@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-2/2026-05-16/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T170000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260428T110034Z
LAST-MODIFIED:20260428T110034Z
UID:10001294-1778947200-1778950800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sónötur fyrir fiðlu og píanó. Grieg\, Beach og Faure
DESCRIPTION:Á þessum tónleikum flytja þær Chrissie Telma Guðmundsdóttir\, fiðluleikari og Jane Ade Sutarjo\, píanóleikari\, fjölbreytt prógramm úr kammertónlist rómantíska tímabilsins. Á efnisskránni eru verk eftir Edvard Grieg\, Amy Beach og Gabriel Fauré\, þar sem rík tónlistartjáning\, ljóðrænar laglínur og kraftmikið samspil hljóðfæranna fá að njóta sín. \nJane Ade Sutarjo fæddist í Jakarta í Indónesíu. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni\, Marthalenu Sugito en hlaut siðan kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið\n2008. Hún hóf nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði á fiðlu hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttur og seinna hjá Peter Máté\, en Jane er sú fyrsta sem hefði lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla íslands.\nSíðan Jane kom til Íslands hefur hún verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi. Hún hefur komið fram sem einleikari\, meðleikari og í ýmsum kammertónlistarhópum. Hún spilaði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2011 og hélt debut tónleikana sína í Salnum í febrúar 2014. Hún hefur einnig tekið þátt í píanókeppnum bæði hér á Íslandi og erlendis. Hún hlaut 1. sæti í fimmtu EPTA píanókeppninni á Íslandi árið 2012.\nEftir að hún útskrifaðist frá LHÍ árið 2012 hefur hún kennt á píanó auk þess að starfa sem meðleikari. Sumarið 2017 lauk hún meistaragráðu frá Tónlistarháskóla Noregs (Norges Musikkhøgskole)\, þar sem hún lærði hjá Jens Harald Bratlie og Kathryn Stott. Einnig lærði hún á fortepíanó hjá Liv Glaser.\nNú starfar hún sem meðleikari við Menntaskóla í Tónlist og Listaháskóla Íslands. \nChrissie Telma Guðmundsdóttir lauk B.Mus gráðu í fiðluleik frá Listaháskóli\nÍslands vorið 2014 undir handleiðslu Auður Hafsteinsdóttir og Guðný\nGuðmundsdóttir.\nSama ár hlaut hún styrk frá Fulbright Program og hélt til Bandaríkjanna þar\nsem hún lauk M.M gráðu frá Arizona State University undir handleiðslu\nprófessors Danwen Jiang.\nChrissie er fullgildur Suzuki-fiðlukennari með fimm kennslustig\, lokið undir\nhandleiðslu Lilja Hjaltadóttir.\nHún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og\nSinfóníuhljómsveit Áhugamanna\, og er nú fastráðinn meðlimur\nSinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hún heldur reglulega einleikstónleika víðs\nvegar um landið.\nChrissie starfar sem Suzuki-kennari við Tónlistarskóli Kópavogs og er\njafnframt virk í íslensku tónlistarlífi með reglulegri þátttöku í tónleikum og\nfjölbreyttum tónlistarverkefnum \nSónata fyrir fiðlu og píanó no.3 Op.45 eftir E.Grieg\nI. Allegro molto appassionato\nII. Allegretto espressivo alla Romanza\nIII. Allegro animato \nRómansa fyrir fiðlu og píanó Op.23 eftir A.Beach \nSónata fyrir fiðlu og píanó No.1 Op.13 eftir G.Fauré\nI. Allegro molto\nII. Andante\nIII. Scherzo: Allegro vivo\nIV. Finale: Allegro quasi presto \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sonotur-fyrir-fidlu-og-piano-grieg-beach-og-faure/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/chrissie19201080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T160000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260508T121235Z
LAST-MODIFIED:20260508T153256Z
UID:10001297-1778940000-1778947200@hannesarholt.is
SUMMARY:Opnun - ÖR sýning Harpa Másdóttir
DESCRIPTION:ÖRsýning\nHarpa Másdóttir opnar myndlistasýningu í Hannesarholti undir yfirskriftinni Ör laugardaginn 16.maí kl.14-16. Sýningin Ör er persónuleg ferð þar sem minningar\, umbreyting og seigla fléttast saman í litum\, formum og áferð. Í verkum sínum tekst Harpa á við hið brothætta og sterka í senn; örin sem tíminn\, reynslan og lífið sjálft skilja eftir. Sýningin er áminning um að ör eru ekki aðeins vitnisburður um ofangreint\, heldur líka vitnisburður um það sem hefur gróið.\nSnerting skilur eftir ör.Fjarlægð líka.\nSýningin er sölusýning og stendur út mánuðinn. Hún er opinn á opnunartímum Hannesarholts\, miðvikudaga – laugardaga kl.11.30-16.00.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/opnun-orsyning-harpa-masdottir/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/BLEIKURK-KATKTUS.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T150000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260508T153528Z
LAST-MODIFIED:20260508T153528Z
UID:10001298-1778940000-1778943600@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum Saman í Hannesarholti með Jóhönnu Elísu
DESCRIPTION:Syngjum saman í Hannesarholti með Jóhönnu Elísu laugardaginn 16.maí kl.14.\nJóhanna Elísa er tónlistar- og leiðsögukona með fjölbreytta reynslu á sviði tónlistar\, meðal annars sem píanó- og söngkennari. Hún spilar reglulega fyrir ferðamenn og kynnir íslenska tónlist á skemmtilegan og lifandi hátt. Jóhanna hefur gefið út tvær plötur og er þekkt fyrir tæra og fallega rödd. Hún leggur áherslu á notalega stemningu þar sem áheyrendur taka þátt og njóta saman.\nTextar á tjaldi og allir syngja með. Enginn aðgangseyrir. Sem fyrr eru allar kynslóðir velkomnar.\nKaffihúsið á 1.hæðinni er opið bæði á undan og eftir söngstundinni\, frá kl.11.30-16.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-johonnu-elisu/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/IMG_1611-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260515T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260515T213000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260427T111400Z
LAST-MODIFIED:20260427T111400Z
UID:10001291-1778875200-1778880600@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-2/2026-05-15/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260513T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260513T213000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260421T154422Z
LAST-MODIFIED:20260421T154422Z
UID:10001290-1778702400-1778707800@hannesarholt.is
SUMMARY:Úr smiðju Umbru: Spákonan og skáldið
DESCRIPTION:Tónlistarhópurinn Umbra vinnur nú að tveimur stór verkefnum samhliða. Annars vegar er hópurinn að semja tónlist við Völuspá\, eitt merkasta kvæði íslands þar sem spákona lýsir sköpun heimsins\, falli hans og endurreisn. Hins vegar er unnið að verkefninu Tvær hliðar Hallgríms\, þar sem jöfnum höndum er tónsett úr veraldlegum og trúarlegum kvæðum Hallgríms Péturssonar. Veraldleg ljóð Hallgríms hafa lítið verið tónsett þrátt fyrir að vera magnaður spegill merkilegrar ævi og heimsmyndar sautjándu aldar. Við tónsmíðar sínar sækir Umbra innblástur í lagboða frá miðöldum\, varðveittar stemmur og þjóðlög fyrri alda. \nBæði verkefnin eru enn í sköpun og á þessum tónleikum gefst áhorfendum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í smiðjuna og heyra hluta verkanna í fyrsta sinn\, sem upptakt að stærri heild. \nLögð er rík áhersla á nánd við áhorfendur\, sem fá að kynnast sagnaarfi og kveðskap liðinna alda í gegnum tóna og tal. \nUm Umbru\nUmbra hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir einstakan hljóm og framúrskarandi útsetningar á þjóðlagatónlist. Hljómsveitin var stofnuð árið 2014 af fjórum tónlistarkonum og sameinar íslenska þjóðlagatónlist\, miðaldatónlist og frumsamdar tónsmíðar í tilfinningaríkum\, vandlega útfærðum flutningi. Hópurinn hefur komið fram á fjölmörgum hátíðum í Evrópu og Asíu og gefið út fimm plötur. Platan Solstitium frá 2018 var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ur-smidju-umbru-spakonan-og-skaldid/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/umbra13mai1920.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260507T180000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260510T160000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260502T145010Z
LAST-MODIFIED:20260502T145010Z
UID:10001295-1778176800-1778428800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ekkó í Hannesarholti - Forystufé
DESCRIPTION:Ekkó í Hannesarholti – Forystufé \nForystufé er hópur 9 nemenda á Fata- og textílbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Hópurinn setur upp sýninguna EKKÓ í Hannesarholti á Hönnunarmars 2026. Sýningin endurspeglar framtíðarsýn þeirra tengdri sjálfbærni\, þar sem gömlum textíl og ullarúrgangi er umbreytt í ný og lifandi verk.\nÍslenska ullin er rauði þráðurinn í allri sköpun hópsins\, efniviður sem þau hafa alist upp með og þekkja vel fyrir notagildi sitt í gegnum sögu íslensku þjóðarinnar. Með fjölbreyttum handverksaðferðum á borð við prjón\, þæfingu\, vefnað og saum sýna þau hvernig ullin getur tekið á sig óteljandi myndir í áhugaverðri sköpun.\nSýningin Ekkó flæðir um rými Hannesarholts þar sem verkin skapa áhugaverðar tengingar sín á milli og kallast á við hugmyndafræði Hannesarholts. Verkin kallast á við hvert annað og skapa þannig áhugavert samtal um fortíð\, nútíð og framtíð textíls. \nEnglish\nForystufé is a group of nine students from the Fashion and Textile Department at Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. Together\, they present the exhibition EKKÓ at Hannesarholt during DesignMarch 2026. The exhibition reflects their forward-looking approach to sustainability\, where old textiles and wool waste are transformed into new and vibrant works.\nIcelandic wool forms the guiding thread throughout the group’s creations — a material they have grown up with and know well for its historical and cultural significance within Icelandic life. Through diverse textile techniques such as knitting\, felting\, weaving\, and sewing\, they explore the countless possibilities of wool in contemporary design.\nEKKÓ flows through the spaces of Hannesarholt\, where the works create subtle connections with one another and resonate with the philosophy of the house itself. The pieces engage in a visual dialogue about the past\, present\, and future of textiles\, offering visitors a layered and immersive experience.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ekko-i-hannesarholti-forystufe/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Hönnun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/forystufe_Hannesarholt.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260502T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260502T170000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260416T114622Z
LAST-MODIFIED:20260416T114622Z
UID:10001287-1777737600-1777741200@hannesarholt.is
SUMMARY:Grísk tónlist í Hannesarholti
DESCRIPTION:Dúettinn í Kleftes tú rebetikú (Rebetikó ræningjarnir) fjallar um gríska tónlist í tali og tónum á Hannesarholti. Leikinn verður rebetíka af fingrum fram en það er tónlist sem utangarðsfólk lék í földum knæpum í hafnarborg Aþenu snemma á síðustu öld. Svo taka við lög frægra tónskálda sem sýna áheyrendum hvernig þessi tónlist þróaðist í áranna rás. Farið verður vítt og breytt um hið tónlistarlega stórveldi sem Grikkland er og þó ræningjarnir séu aðeins tveir koma mörg hljóðfæri við sögu þó vissulega sé hið gríska búzúkí í lykilhlutverki. Eins fá þeir til sín gesti sem syngja.\nRæningjarnir eru þeir Ásgeir Ásgeirsson og Jón Sigurður Eyjólfsson eða Jón Prímus. Ásgeir gítarleikari\, sem fólk þekkir meðal annars frá Sóldöggu og af löngum jazzferli\, hefur undanfarin ár starfað með tónlistarmönnum frá Mið Austurlöndum og hefur í seinni tíð getið sér gott orð bæði sem búzúkí- og lútúleikari. Afrekstur þessarar vinnu má meðal annars finna á plötunni Crossing Boarders sem hlaut íslensku tónlistarverðlaunin í ár sem besta jazz plata ársins.  Hún inniheldur lög eftir Ásgeir flutt af íslensku\, írönsku\, jórdönsku og indversku tónlistarfólki.\nJón Prímus hefur mikið fjallað um gríska tónlist einsog í bók sinni Tvíflautan sem Salka gaf út árið 2017 og eins í útvarpsþáttunum Á búzúkíslóðum sem tvívegis hafa verið fluttir í Ríkisútvarpinu. En hann hefur einnig leikið og sungið rebetíkalögin með íslenskum og grískum tónlistarmönnum í gegnum tíðina. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/grisk-tonlist-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/gisk1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260430T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260430T213000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260416T120853Z
LAST-MODIFIED:20260416T120853Z
UID:10001289-1777579200-1777584600@hannesarholt.is
SUMMARY:Juno Paul unplugged
DESCRIPTION:Juno Paul er alter ego/hljómsveit frá Reykjavík sem hefur vakið athygli í grasrótarsenu Íslands undanfarin ár. \nTónlistin er kölluð „Galaxy Exploding Rock Music“ og blandar saman gítarriffum\, trommum og 8-bita tölvuleikjahljóðum. Útkoman eru orkumikil og aðeins chaotic lög með einlægum textum. \nÞað byrjaði sem “one man band” en í fyrsta skipti mun Juno spila unplugged í Hannesarholti. Ekki missa af þessari snilld. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/juno-paul-unplugged/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/junopaul1920x1080rett-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260418T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260418T180000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260227T141921Z
LAST-MODIFIED:20260227T141921Z
UID:10001277-1776531600-1776535200@hannesarholt.is
SUMMARY:Goldberg tilbrigðin
DESCRIPTION:Kitty Kovács leikur Goldberg tilbrigðin eftir J.S. Bach í Hannesarholti. \nKitty Kovács er fædd í Győr í Ungverjalandi. Hún útskrifaðist frá tónlistardeild Széchenyi István háskólans þar í borg með diplómu í píanó- og kammertónlist. Eftir útskriftina starfaði hún sem undirleikari í Győr og lagði síðan stund á undirleikaranám við Ferenc Liszt Akademíuna í Budapest. Á námsárum sínum vann hún í píanókeppnum\, m.a. árið 1997 í Salt Lake City og árið 2000 varð hún í 3. sæti í Chopin keppninni. Kitty kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað sem píanókennari og organisti\, frá árinu 2011 hefur hún verið kirkjuorganisti við Landakirkju í Vestmannaeyjum og kennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Undanfarin 5 ár hefur Kitty stundað orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar og vorið 2017 lauk hún kantorsnámi þaðan. \ní bók sinni “ Um Johann Sebastian Bach: Líf hans\, list og listaverk“ segir Johann Nikulaus Forkel um Goldberg tilbrigðin: \nÞetta dásamlega verk felur í sér þrjátíu tilbrigði\, þeirra á meðal keðjulög í öllum tónbilum og hreyfingum\, frá einund til níundar\, með auðkennilegum og frjálst líðandi röddum: Ennfremur fullgilda fjórraddaða fúgu\, og auk margra annarra glæsilegra tilbrigða fyrir tvö hljómborð svonefndan söngvasóp (Quodlibet) að lokum\, sem myndi hafa nægt til að halda nafni meistara síns á loft\, enda þótt hann sé ekki veigamesti þáttur verksins. \nFrumhugmyndina að þessu verki\, sem öll tilbrigðin áttu að miðast við\, enda þótt þar sé af skiljanlegum ástæðum víða út af brugðið\, eigum vér Kaiserling greifa\, fyrrverandi rússneskum sendiherra hjá kjörfurstanum af Saxlandi\, að þakka; en hann dvaldi oft á tíðum í Leipzig og hafði áðurnefndan Goldberg með sér þangað  til að útvega honum uppfræðslu í tónlist hjá _Bach. Greifinn var oft vanheill og átti erfitt um svefn. Goldberg\, sem bjó hjá honum\, þurfti þá að sitja uppi á nóttunni í hliðarherberginu og stytta greifanum and-_vökustundirnar með hljóðfæraslætti. Einhverju sinni bað greifinn Bach um nokkur klaverlög handa Goldberg\, sem væru svo þýð og þó svo skemmtileg\, að þau gætu orðið honum sjálfum til nokkurs hugarléttis á andvökunóttum. Bach taldi sig bezt geta uppfyllt ósk greifans með því að semja tilbrigði\, en verk af því tagi hafði allt til þessa virzt lítið fýsilegt viðfangs sökum tilbreytingarleysis undirstöðuhljómanna. En þessi tilbrigði urðu í höndum Bachs\, eins og öll önnur tónverk hans\, hvert á sínu sviði\, öðrum til fyrirmyndar\, og eru hið eina verk sinnar tegundar\, sem hann samdi. Greifinn kallaði þau jafnan upp frá því tilbrigðin sín. Hann fékk aldrei nóg af því að hlusta á þau\, og lengi eftir það var viðkvæðið þetta\, þegar svefnleysið sótti að honum: „Góði Goldberg minn\, leiktu nú fyrir mig eitt af tilbrigðunum mínum.“ Bach hefir að líkindum aldrei verið launað neitt verk sem þetta. Greifinn gaf honum gullbikar\, fylltan hundrað Hlöðvispeningum. En listgildi tilbrigðanna er hinsvegar svo mikið\, að ekki hefði verið fulllaunað\, þótt gjöfin hefði verið þúsundföld.“ \n\n\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/goldberg-tilbrigdin/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/02/goldberg19201080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260418T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260502T160000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260416T120608Z
LAST-MODIFIED:20260417T141840Z
UID:10001288-1776520800-1777737600@hannesarholt.is
SUMMARY:LANDIÐ MITT - opnun myndlistarsýningar Áslaugar Saja
DESCRIPTION:Listamaðurinn og textílhönnuðurinn Áslaug Saja sýnir landslags- og abstraktverk innblásin af skynjun þess smáa og víðernum. Náttúruna fangar hún með blandaðri tækni á striga og notar akríl í ýmsum formum ásamt olíu og það sem hönd á festir. Viðkvæm en ríkuleg náttúran færir listamanninum hugarró og kraft. Áslaug Saja hefur unnið með munsturgerð\, þrykk og málun frá útskrift úr textíldeildum MHÍ og UIAH í Finnlandi og er óþreytandi í teikningu og málun með ólík efni. Sýningin er sölusýning og stendur frá 18.apríl til 6.maí. \nTextile designer and artist\, Áslaug Saja’s paintings are inspired by Icelandic nature and her emotions brought about when enjoying the outdoors. The microcosmos and vast scapes blend on canvas in an expressive way. The richness of our fragile nature brings such tranquility and enhancement to life. Áslaug Saja has worked with pattern\, printmaking and painting since her studies of textiles in MHÍ\, Iceland and UIAH in Finland. She enthusiastically experiments with drawing and painting in different media. The exhibit is open from April 18th to May 6th. All the pieces are for sale.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/abstrakt-landslag/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/IMG_5181-1-1-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260418T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260418T150000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260327T134103Z
LAST-MODIFIED:20260327T134103Z
UID:10001284-1776520800-1776524400@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman í Hannesarholti með Hörpu Þorvalds
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-horpu-thorvalds-5/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/Harpa-THorvalds-vinnumynd-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260411T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260411T150000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260403T191402Z
LAST-MODIFIED:20260403T191453Z
UID:10001286-1775916000-1775919600@hannesarholt.is
SUMMARY:Laura Valentino - Leiðsögn um sýninguna BORGARTRÉ
DESCRIPTION:Borgartré\nLaura Valentino veitir leiðsögn um málverkasýningu sína BORGARTRÉ Í Hannesarholti laugardaginn 11.apríl kl.14-15.\nLaura Valentino er myndlistarkona sem fæddist í Bandaríkjunum árið 1955 og hefur verið búsett í Reykjavík síðan 1988. Hún er með meistaragráðu í myndlist frá Kaliforníuháskóla í Berkeley. Laura vinnur með gamla ljósmyndatækni\, listgrafík\, pastelmálun og heitt vax (encaustic). Verk hennar hafa verið sýnd víða\, bæði innanlands og utan. Sjá frekari upplýsingar á slóðinni www.lauraval.comÞessi sería er sjónræn túlkun á þéttbýlisskógrækt í Reykjavík. Viðfangsefni Lauru er að finna í skógum og almenningsgörðum í kringum Reykjavík\, t.d. í Öskjuhlíð\, Heiðmörk\, Elliðaárdal og við Tjörnina. Trén virðast vera gróðursett af handahófi og tilvist þeirra er háð veðri og vindum\, bæði náttúrulegum og pólitískum\, en þau lifa af. Og fegurðin skín í gegn.Laura kýs að mála tré sín með hágæða þurr-pastellitum\, því þeir hafa mestan litarefnisstyrk og hjálpa til við að fanga töfra þessara ómótstæðilegu trjáa. Er ekki kominn tími til að færa heiminum sterkari liti ? segir hún. Sýningin er sölusýning og stendur til 15.apríl.———–Urban Trees\nLaura Valentino offers guidance through her art exhibit URBAN TREES in Hannesarholt Saturday April 11th at 2-3 pm.\nLaura Valentino is a visual artist born in the United States in 1955 and based in Reykjavik since 1988. She has a Master of Arts degree from the University of California\, Berkeley and works with alternative photographic processes\, printmaking\, pastel painting\, and encaustic. Her work has been shown widely\, both locally and abroad.This series is a visual interpretation of urban forestry in Reykjavik. My subjects are found in the forests and parks around Reykjavik\, namely Öskjuhlíð\, Heiðmörk\, Ellíðaárdalur and my favorite\, Tjörnin. Sometimes haphazardly planted\, their existence subject to harsh elements both natural and political\, my trees are survivors. And the beauty shines through.I choose to paint my trees with high-quality soft pastels as they have the highest pigment concentration of any art medium\, perfect to portray the defiant beauty of these irresistible trees.How about bringing a little much-needed color to the world?See more information on her website at lauraval.com All the pieces are for sale. The exhibit is up until April 15th.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/laura-valentino-leidsogn-um-syninguna-borgartre/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/03/Birkitre_vid_Tjornina_web.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260328T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260328T170000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260119T120614Z
LAST-MODIFIED:20260119T120614Z
UID:10001266-1774713600-1774717200@hannesarholt.is
SUMMARY:MAGNIFICAT Franceso Rista og Svanur Vilbergsson
DESCRIPTION:Francesco Rista er ítalskur gítarleikari og tónskáld\, búsettur á Íslandi. Verk hans spanna fjölbreytt litróf hljóma og áferða og einkennast af þróun á hljómheimi „cross over“ tónlistar. Áhugi hans á barokktónlist leiddi til þess að hann útsetti fiðlupartítu nr.2 eftir Johann Sebastian Bach fyrir gítar sem varð innblástur fyrir barokkplötuna MAGNIFICAT. Tónskáld á borð við Finn Karlsson\, Mariönnu Filippi\, Kevin Swierkosz-Lenart\, Nick Martin og Evagoras Solias Apokidis hafa tileinkað verk sín Francesco auk þess sem hann frumflutti gítarkonsert eftir breska tónskáldið Oliver Davis. Á rafgítar hefur hann flutt Electric Counterpoint eftir Steve Reich við fjölmörg tækifæri og tekið upp verkin Dream eftir John Cage og Garcia Counterpoint eftir Bryce Dessner og gefið út hjá útgáfufyrirtæki sínu\, Fresh Ribes. \nÁrið 2025 gaf hann út plötuna STABAT MATER\, sem hlaut mikla og jákvæða umfjöllun í alþjóðlegum tímaritum á borð við Salt Peanuts\, Psychedelic Baby og Fifteen Question. Platan hefur jafnframt verið flutt á RAI Radio 3 og BBC Radio 6. \nFrancesco Rista stundaði nám hjá Oscar Ghiglia við Chigiana-akademíuna á Ítalíu og lauk meistaraprófi og framhaldsnámi við Konunglegu dönsku tónlistarakademíuna. Síðar lauk hann öðru meistaraprófi við Tónlistarakademíuna í Malmö (Lundarháskóla) undir handleiðslu Görans Söllschers og Davids Hansson. Francesco er samstarfsaðili (endorser) strengjaframleiðandans Aquila Corde Armoniche. \nSvanur Vilbergsson hefur haldið einleikstónleika víða um heim\, m.a. í Bandarikjunum\, Hollandi\, Spáni\, Englandi\, Belgíu og Írlandi. \nFjölmörg tónskáld hafa samið tónverk tileinkuð honum og hefur Svanur verið iðinn við að koma á framfæri nýrri íslenskri samtímatónlist. \nÁrið 2011 kom út fyrsti einleiksdiskur Svans sem kallast Four Works og var honum einkar vel tekið. Svanur er meðlimur í Íslenska Gítartríóinu \, sem tilnefnt var til Íslensku Tónlistarverðlaunanna 2022 og Magma gítardúó sem hefur sérhæft sig í flutningi á Íslenskri samtímatónlist. \nÁ árinu 2026 mun koma út nýr einleiksdiskur með gítarleik Svans á vegum útgefandans Sacred Black Records í Bandaríkjunum. \nSvanur kennir meðal annars klassískann gítarleik við Menntaskólann í tónlist og Listaháskóla Íslands. \nMAGNIFICAT \nCarl Friedrich Abel Prelude \nJohann Sebastian Bach Chaconne\, BWV 1004 Sarabande\, BWV 1009 \nJean-Philippe Rameau The Arts and the Hours \nAgustín Barrios Mangoré El Último Trémolo La Catedral \nMarin Marais Prélude en harpègement: Rondement \nDomenico Scarlatti Sonata K. 32 \nJean-Philippe Rameau Le Rappel des oiseaux \nFelix Mendelssohn Canzonetta \nFrancesco Rista Cherry Blossom (Icelandic Premiere) with Svanur Vilbergsson \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/magnificat-franceso-rista-og-svanur-vilbergsson/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/01/francesorista1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260327T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260327T190000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260318T124625Z
LAST-MODIFIED:20260320T103654Z
UID:10001282-1774627200-1774638000@hannesarholt.is
SUMMARY:ATH. NÝ DAGSETNING Hræringur í Hannesarholti
DESCRIPTION:Hollvinir Hannesarholts bjóða ykkur í Hræring (e. mixer) í Hannesarholti föstudaginn 27.03 frá kl. 16–19.\nHræringur er samverustund þar sem fólk kemur saman\, kynnist\, spjallar og eflir tengslin. Engin formleg dagskrá\, bara lifandi og notaleg stemning í fallegu umhverfi Hannesarholts.\nLjúfir tónar í boði Hlyns Helgasonar.\nÁ boðstólum verða ljúffengir drykkir\, bæði áfengir og óáfengir\, í boði Bliss og Steindal Heildverslunar.\nAllir Hollvinir eru velkomnir og fyrir þau sem vilja bætast í hópinn verður hægt að skrá sig í félagið á staðnum.\nTakið endilega vini með og eigum saman góða stund!Stjórn Hollvinafélags Hannesarholts
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hraeringur-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/veisla-gomul-mynd_preview.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260324T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260324T170000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260324T135213Z
LAST-MODIFIED:20260324T135213Z
UID:10001283-1774339200-1774371600@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Sálmurinn um blómið í Hannesarholti \nLeikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \nÚr leikdómum um sýninguna: \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM) \n„ Töfrakarlinn talar“ \n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “ \n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/03/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260321T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260321T170000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260105T131353Z
LAST-MODIFIED:20260105T131353Z
UID:10001256-1774108800-1774112400@hannesarholt.is
SUMMARY:Ómur steppunnar
DESCRIPTION:Ómur steppunnar er tónleikaröð eftir KHAIRKHAN\, mongólskan tónlistarmann búsettan í Reykjavík. Í tónleikunum skapar hann hljóðræna mynd af mongólsku landslagi\, veðurfari og hirðingjalífi með blöndu hefðbundinna mongólskra hljóðfæra og nútímalegra hljóðheima.\nTónleikarnir minna á að mongólsk menning er lifandi menning sem heldur áfram að þróast\, en er ekki skilin eftir í fortíðinni.\nJafnframt er tónleikunum ætlað að sýna fjölbreytileika mongólskrar menningar og brjóta upp staðalímyndir um Mongólíu sem hafa verið ríkjandi í vestrænum samfélögum um langa hríð.\nUm listamanninn:\nKHAIRKHAN er tónlistarmaður frá Innri-Mongólíu\, af Khorchin-ættbálki á austurhluta svæðisins\, og býr nú í Reykjavík. Hann ólst upp á hinu víðfeðma Khorchin-graslendi þar sem rík hefð er fyrir þjóðlagatónlist og sagnamenningu.\nHann flytur hefðbundna mongólska tónlist og leggur áherslu á hljóðfæri á borð við morin khuur\, tsuur og tovshuur\, auk mongólsks barka- og yfirtónasöngs. Hljóðfærin sem hann leikur eiga sér rætur í Khorchin-héraði\, þar sem margar helstu tónlistarstefnur Mongóla áttu upptök sín.\nUm þessar mundir vinnur KHAIRKHAN að þróun nýrrar\, tilraunakenndrar nálgunar á mongólska þjóðlagatónlist. Þar sameinar hann aldagamlar hefðir og nútímalega túlkun og sýnir þannig hvernig mongólsk menning heldur áfram að þróast án þess að rjúfa tengsl við rætur sínar.\nkhaikhan.net\nThe Echo of Steppes is a concert series created by KHAIRKHAN\, a Mongolian musician living in Reykjavík\, Iceland\, designed to improvise the Mongolian landscapes\, weathers and nomadic life through soundwave combining traditional Mongolian instruments and modern elements.\n–\nThe goal of this performance is to let people remember that Mongolian culture is not left behind in time and development.\n–\nMore importantly\, the performance is to show people the different colours of Mongolian culture\, to correct the stereotypes of Mongolian people in the West for a long time.\nAbout the artist:\nKHAIRKHAN is an Inner Mongolian musician from the Khorchin Tribe in the east side of Inner Mongolia and lives in Reykjavík\, Iceland. He grew up in the famous Khorchin grasslands with rich folk music and stories.\nHe focuses on traditional Mongolian instruments such as morin khuur\, tsuur and tovshuur\, also Mongolian throat singing as one of his main performances. The folk music he plays is mainly from Khorchin region\, where a great amount of Mongolian folk music and genres were born.\nCurrently KHAIRKHAN is trying to create a new concept of experimental Mongolian folk music as an example of Mongolian culture development\, there is a meaning of keeping the roots passed down through centuries but in a modern method.\nkhairkhan.net \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/omur-steppunnar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/01/monke1920_1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260321T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260321T160000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260302T150320Z
LAST-MODIFIED:20260302T150458Z
UID:10001278-1774101600-1774108800@hannesarholt.is
SUMMARY:Laura Valentino - opnun málverkasýningar BORGARTRÉ
DESCRIPTION:Borgartré\nLaura Valentino opnar málverkasýningu sína BORGARTRÉ Í Hannesarholti laugardaginn 21.mars kl.14-16.\nLaura Valentino er myndlistarkona sem fæddist í Bandaríkjunum árið 1955 og hefur verið búsett í Reykjavík síðan 1988. Hún er með meistaragráðu í myndlist frá Kaliforníuháskóla í Berkeley. Laura vinnur með gamla ljósmyndatækni\, listgrafík\, pastelmálun og heitt vax (encaustic). Verk hennar hafa verið sýnd víða\, bæði innanlands og utan. Sjá frekari upplýsingar á slóðinni www.lauraval.com\nÞessi sería er sjónræn túlkun á þéttbýlisskógrækt í Reykjavík. Viðfangsefni Lauru er að finna í skógum og almenningsgörðum í kringum Reykjavík\, t.d. í Öskjuhlíð\, Heiðmörk\, Elliðaárdal og við Tjörnina. Trén virðast vera gróðursett af handahófi og tilvist þeirra er háð veðri og vindum\, bæði náttúrulegum og pólitískum\, en þau lifa af. Og fegurðin skín í gegn.\nLaura kýs að mála tré sín með hágæða þurr-pastellitum\, því þeir hafa mestan litarefnisstyrk og hjálpa til við að fanga töfra þessara ómótstæðilegu trjáa. Er ekki kominn tími til að færa heiminum sterkari liti ? segir hún.\n\n———–Urban Trees\nLaura Valentino opens her art exhibit URBAN TREES in Hannesarholt Saturday March 21st at 2 pm- 4 pm.\nLaura Valentino is a visual artist born in the United States in 1955 and based in Reykjavik since 1988. She has a Master of Arts degree from the University of California\, Berkeley and works with alternative photographic processes\, printmaking\, pastel painting\, and encaustic. Her work has been shown widely\, both locally and abroad.\nThis series is a visual interpretation of urban forestry in Reykjavik. My subjects are found in the forests and parks around Reykjavik\, namely Öskjuhlíð\, Heiðmörk\, Ellíðaárdalur and my favorite\, Tjörnin. Sometimes haphazardly planted\, their existence subject to harsh elements both natural and political\, my trees are survivors. And the beauty shines through.\nI choose to paint my trees with high-quality soft pastels as they have the highest pigment concentration of any art medium\, perfect to portray the defiant beauty of these irresistible trees.\nHow about bringing a little much-needed color to the world?\nSee more information on her website at lauraval.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/laura-valentino-opnun-malverkasyningar-borgartre/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/03/Birkitre_vid_Tjornina_web.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260321T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260321T150000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260318T124111Z
LAST-MODIFIED:20260318T124111Z
UID:10001281-1774101600-1774105200@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman með feðgunum Pálmari og Hrafnkeli
DESCRIPTION:Það er píanistinn Pálmar Ólason og Hrafnkell Pálmarsson sem stjórna í Syngjum saman. Pálmar á að baki blómlegan feril með helstu dægurlagasveitum Íslands\, og lék m.a. með Ellý Vilhjálms og Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Pálmar var píanóleikari Lækjarbrekku um áraskeið\, verið fastur gestur við píanóið á Íslenska barnum. Hrafnkell er tónskáld og tónlistarmaður og er meðlimur hljómsveitarinnar Í svörtum fötum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-fedgunum-palmari-og-hrafnkeli/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/03/84d1068a-fa19-4533-8f8c-dafd29b0cd20.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260314T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260314T210000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260115T121539Z
LAST-MODIFIED:20260115T121539Z
UID:10001264-1773518400-1773522000@hannesarholt.is
SUMMARY:Hlynur/Kjalar
DESCRIPTION:Í dúett á milli raddar og rafbassar er hægt að uppgötva og heyra tónlist á glænýjan máta. Bassaleikarinn Hlynur Sævarsson og söngvarinn Kjalar Martinsson Kollmar settust niður saman með einmitt það að markmiði\, að kanna tónlistina í þessum búning. Dúettinn var stofnaður fyrir þremur árum og hefur komið fram við ýmis tilefni síðan. Nú er Kjalar búsettur í Berlín og því gefast færri tækifæri til þess að troða upp. Þess vegna er tvíeykið afar spennt að fá að halda tónleika í Hannesarholti. \nHlynur og Kjalar spila saman mikið af íslenskri tónlist\, bæði dægurlög og djass. Einnig ratar erlend tónlist oft á efnisskránna. Dúettinn leggur áherslu á það að þeim þyki lögin skemmtileg og falleg. Í Hannesarholti verður dagskráin einmitt þannig\, sem dæmi má nefna lög eins og Einhvers staðar einhvern tímann aftur\, Leyndarmál og Isn’t she lovely. \nTónleikagestir mega búast við einlægni og nánd\, skemmtilegum útsetningum og samspili á milli rafbassarins og raddarinnar þar sem hljóðfærin hoppa á milli hlutverka og skapa einstaka upplifun sem hverjum þætti synd að missa af. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hlynur-kjalar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/01/HlynurKjalar-1920x1080-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260314T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260314T150000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260119T134654Z
LAST-MODIFIED:20260119T162120Z
UID:10001268-1773496800-1773500400@hannesarholt.is
SUMMARY:Sibelius og Sveinsson
DESCRIPTION:Ljóðatónleikar með Jean Sibelius og Atla Heimi Sveinssyni. \nHólmfríður og Ástríður Alda hafa komið fram á fjölmörgum tónleikum hér heima og erlendis. Fyrstu tónleikar þeirra saman voru á síðasta ári með Schubert og Brahms. Að þessu sinni fá norrænir tónar að hljóma í Hannesarholti. \nÁ námsárunum í Vínarborg var Hólmfríði boðið að halda tónleika í Espoo í Finnlandi sem hún þáði. Hún átti yndislega viku í landinu ásamt nokkrum norrænum tónlistarflytjendum sem endaði með tónleikum í leikhúsi þar í borg þar sem hún flutti ljóð eftir Sibelius og Kilpinen. Þrátt fyrir að heillast af norrænni tónlist hefur Hólmfríður síðan þá einbeitt sér mest að Þýskri ljóðatónlist ásamt íslenskum sönglögum. \nÁstríður Alda hefur starfað sem einleikari og með helstu söngvurum landsins. Hún hefur meðal annars flutt finnska tangóa. \nTónlist eftir Sibelius og Atla Heimi fá að hljóma í Hannesarholti þennan laugardag og eru ljóðin við lög Atla Heimis eftir Jónas Hallgrímsson. Oft kölluð Jónasarlög. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sibelius-og-sveinsson/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/01/1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260311T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260311T190000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260226T152928Z
LAST-MODIFIED:20260226T152928Z
UID:10001276-1773250200-1773255600@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili heimsmarkmiðanna: Listir\, íþróttir og tómstundir sem forvörn og endurhæfing
DESCRIPTION:Börn og ungmenni sem hafa leitast út á hála braut\, hvort sem það er í átt að fíkniefnum\, öfgahugmyndafræði eða andfélagslegri hegðun\, þurfa oft meira en hefðbundna meðferð.\nRannsóknir og reynsla sýna að list\, íþróttir og tómstundir geta verið lykillinn\, ekki einungis sem forvörn heldur sem öflug endurhæfingarleið. Þegar ungmenni læra að skapa\, hreyfa sig og þroskast í öruggu og uppbyggilegu umhverfi eflast sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðing. Breyting á sér stað\, þegar ungmenni byrja að trúa á eigið gildi\, eigin möguleika og byrja að endurbyggja brotna sjálfsmynd.\nHvernig skapar listin rými til að vinna úr erfiðleikum? Hvernig byggja íþróttirnar upp þrautseigju og lífsfærni? Hvernig geta skipulagðar tómstundir verið sá vettvangur þar sem börn finna sig?\nÁ fundinum ræðum við hvernig við getum saman\, fagfólk\, foreldrar og samfélagið í heild\, stutt börn og ungmenni til að finna styrk sinn og taka þátt í samfélaginu á jákvæðan hátt.\nÍ pallborði sitja Björn Már Sigurbjörnsson Brink frá Vopnabúrinu\, Unnur Óttarsdóttir frá Listmeðferð Unnar\, Jakob Frímann Þorsteinsson lektor við Menntavísindasvið\, og Margrét Kristín Sigurðardóttir listamaður og kennari.\nGuðrún Sóley Gestsdóttir stýrir fundinum.\nÖll velkomin í Hannesarholt. Fundurinn verður einnig í streymi.\nFundurinn er styrktur af Hannesarholti og Reykjavíkurborg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-listir-ithrottir-og-tomstundir-sem-forvorn-og-endurhaefing/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/02/grok-image-dd4c2e70-d202-4ba3-a4ef-bfa1deb109ed.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260307T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260307T170000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260119T121702Z
LAST-MODIFIED:20260119T121702Z
UID:10001267-1772899200-1772902800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónlist úr kvikmyndum Pedro Almodóvar
DESCRIPTION:Á þessum tónleikum verða röddinn\, gítarinn og bassinn notuð til að gera nokkrum lögum úr kvikmyndum eftir Pedro Almodóvar skil. \nMyndheimur spænska leikstjórans Almodóvar er fullur af tónlist\, litum og melódramatískum og oft fyndnum senum. Aðalhlutverkin eru gjarnan sterkar kvenpersónur\, oft jaðarsettar í samfélaginu en saga þeirra er sögð af innsæi og samúð með sterkum áhrifum frá spænskri menningu\, poppmenningu og kitch-fagurfræði. \nTónlistin skipar mjög stóran sess í kvikmyndum Almodóvar og á þessum tónleikum verður farið í ferðalag inn í tónheim mynda hans. \nÁstrún Friðbjörnsdóttir er söngkona og lagahöfundur. Hún hefur sungið fjölbreytta tónlist\, þar á meðal mikið af spænskri tónlist og flamenco en hefur undanfarið verið að gefa út sína eigin tónlist. Hún gaf út smáskífuna Sandkorn vorið 2023 þar sem gítarleikarinn Ívar Símonarson sá um gítarútsetningar og gítarundirleik. Ívar hefur einbeitt sér að flamenco gítarleik og hefur farið á ýmis námskeið því tengdu á Spáni. \nLeifur Gunnarsson er raf- og kontrabassaleikari ásamt því að vera lagahöfundur. Hann hefur komið víða við í tónlistinni og gaf út jólaplötuna Jólaboð hjá tengdó fyrir síðustu jól. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonlist-ur-kvikmyndum-pedro-almodovar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/01/astrun1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260306T193000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260306T210000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260205T142921Z
LAST-MODIFIED:20260209T091345Z
UID:10001273-1772825400-1772830800@hannesarholt.is
SUMMARY:Stórvirki píanótríósins
DESCRIPTION:Stórvirki píanótríósins \nUpplifðu verk eftir Schubert\, Shostakovitsj og Rachmaninoff í Hannesarholti föstudaginn 6. mars kl 19:00. \nPíanótríóið samandstendur af Ólínu Ákadóttur píanóleikara\, Giuly Johannsen fiðluleikara og Dmitry Drobko sellóleikara. \nÞau munu takast á við þrjú stórvirki píanótríósins\, allt frá leikandi tóna Schuberts\, til litríks tilfinningaflæðis Rachmaninoffs og að lokum innri stríðsátaka Shostakovitsjs. \nUm flytjendur: \nÓlína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún kemur reglulega fram á ýmsum tónlistarhátíðum ásamt sjálfstæðum verkefnum inn- og erlendis. Hún hefur komið fram sem einleikari m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins. Ólína hefur stundað nám við Tónlistarháskóla Noregs og Konservatoríið í Tbilisi í Georgíu og er nú meistaranemi við Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. \nDmitri Drobko er lettneskur sellóleikari sem hefur stundað tónlistarnám í Lettlandi\, Þýskalandi\, Íslandi og Rússlandi. Hann hefur komið fram á tónleikasviðum víðs vegar um Evrópu\, Norður-Ameríku og Asíu og hefur starfað með ýmsum hljómsveitum. Dmitri er búsettur á Íslandi þar sem hann starfar sem einleikari og við kammertónlist ásamt því að stunda nám við Listaháskóla Íslands. Auk þess tekur hann þátt í þverfaglegum sviðslistaverkefnum sem sameina tónlist og hreyfingu. \nGiuly Johannsen er fiðluleikari frá Kaupmannahöfn í Danmörku. Hún stundaði bakkalárnám við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn og lýkur meistaranámi frá sama skóla vorið 2026 undir leiðsögn Johannes Søe. Giuly hefur sérstakan áhuga á kammertónlist og hefur meðal annars haldið tónleika í Den Sorte Diamant með Den Danske Strygekvartet og í Eldborg með Elju Kammersveit. Hún hefur einnig starfað sem konsertmeistari á útskriftarsýningu Óperuakademíunnar í Danmörku þar sem þau fluttu óperuna Ariodante í kammertónlistarsal Konunglega óperuhússins. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/storvirki-pianotriosins/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/02/olina1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260227T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260227T220000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260206T174717Z
LAST-MODIFIED:20260206T174717Z
UID:10001274-1772222400-1772229600@hannesarholt.is
SUMMARY:Ásta og Gosi
DESCRIPTION:Ásta og Gosi leiða saman tónelska hesta sína og halda á tónleikaferðalag um landið í febrúar og mars 2026 og koma fram í Hannesarholti. \nÁ tónleikunum flytja þau lög af nýjustu breiðskífum sínum\, Blokkarbarn og Á floti\, ásamt eldra efni. Þetta verður kvöld þar sem tvær ólíkar raddir mætast á sama sviði og lögin fá að njóta sín í nánum og lifandi flutningi. \nÁsta og Gosi búa bæði á Ísafirði og hafa verk þeirra hlotið ýmsar viðurkenningar\, meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin og Kraumsverðlaunin. \nKaupa
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/asta-og-gosi/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/02/AG_facebookevent-copy-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260227T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260227T180000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260219T095632Z
LAST-MODIFIED:20260227T155620Z
UID:10001275-1772208000-1772215200@hannesarholt.is
SUMMARY:Fríða Katrín Bessadóttir - Opnun málverkasýningar Í FAÐMI MARKA
DESCRIPTION:Fríða Katrín Bessadóttir opnar málverkasýningu sína Í FAÐMI MARKA í Hannesarholti föstudaginnn 27.febrúar kl.16-18. Sýningin er sölusýning og stendur til 18.mars.\n\nÍ Faðmi Marka snýst um tíma. Þann tíma sem við verjum í náttúrunni\, í faðmi\, í nándinni. Tímann sem við verjum í hverja einustu stroku\, hvert einasta blóm\, hverja einustu stund. Fríða Katrín fetar nýja braut eftir áreiti hversdagsins og hægir á sér í formi myndverka. Hún blandar impressjónisma og púnktisma í ný verk sem einblína á tungumálið og litríka náttúru þar sem hún tvinnar saman raunveruleikanum við ímyndunaraflið. Hún opnar sig fyrir líkamlega og hugræna ferlinu sem og núvitundinni sem liggur á bakvið hverja einustu stroku. Með olíuverkum fær Fríða Katrín áhorfendur til þess að staldra við á mörkum líkama og umhverfis og dvelja þar um stund.\n\nFríða Katrín Bessadóttir er þverfagleg listakona sem einbeitir sér að gjörningalistinni og tengslum hennar við myndlist. Verk hennar kanna flókið samspil veruleika og skáldskapar\, oft byggt á eigin reynslu og reynslu annarra. Með því að endurhugsa og endurskapa þessar frásagnir skorar hún á skynjun áhorfandans\, stundum blekkir hún áhorfendur eða skilur eftir vísvitandi eyður sem bjóða þeim að klára söguna. Með BA-gráðu í myndlist og MA-gráðu í sviðslistum hefur hún þróað fjölþætta nálgun í gegnum víðtæka sjálfstæða iðkun. Þekking hennar á bæði myndlist og sviðslist er talin gagnleg fyrir fjölbreytt samstarf og verkefni\, svo sem að skapa verk fyrir Listahátíð barna á Reykjanesi\, hanna og smíða listaverk fyrir Reykjavíkurborg (Galop Náttúrunnar)\, sýna verk í samsýningum bæði í Danmörku og Skotlandi\, flytja verk fyrir ýmsa listamenn á Íslandi\, Spáni og Rúmeníu. Auk þess að vera hluti af galleríinu KANNSKI.\n\nEnska:Fríða Katrín Bessadóttir opens her exhibit THE EMBRACE OF BOUNDARIES in Hannesarholt on Friday February 27th at 4-6 pm.The show\, the Embrace of Boundaries is about time. The time we spend in nature\, in someone’s embrace\, during intimacy. The time we spend making every single stroke\, every single flower\, every single moment. Fríða Katrín forges a new path after the stimuli of everyday life and slows down in the form of paintings. She mixes impressionism and pointillism into new works that focus on language and colorful nature as she intertwines reality with imagination. She opens herself to the physical and mental process as well as the awareness that lies behind every single stroke.With her oil paintings\, Fríða Katrín makes viewers pause at the boundary between body and environment and dwell there for a while.\n\nFríða Katrín Bessadóttir focuses on performances and their connections to Visual Arts. Her works deal extensively with the interplay between reality and fiction\, drawing upon both her personal experiences and those of others\, and reimagining them to either deceive the audience or prompt them to fill in the blanks. Having a background in both Fine Arts (BA)  and Performing Arts (MA) \, she has honed her skills through extensive independent work. She usually\, as a performer\, writes scripts\, acts\, directs\, makes costumes and builds stages.\n\nFríða Katrín has participated in various group exhibitions and projects such as creating a work for the Reykjanes Children’s Arts Festival\, designing and constructing an artwork for the City of Reykjavík (the troll Búri)\, showing in group exhibitions in both Denmark and Scotland\, performed for various artists in Iceland\, and Spain. As well as being a part of KANNSKI gallery.\nAll the pieces are for sale. The exhibit is open until March 18th.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/frida-katrin-bessadottir-opnun-malverkasyningar-i-fadmi-marka/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/02/unnamed-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260226T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260226T210000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260126T151605Z
LAST-MODIFIED:20260126T151605Z
UID:10001270-1772136000-1772139600@hannesarholt.is
SUMMARY:Einleikstónleikar Einars Bjarts
DESCRIPTION:Píanóleikarinn Einar Bjartur mun halda einleikstónleika í Hannesarholti þann 26. febrúar. Þar mun hann leika fjölbreytt og falleg píanóverk\, þar með talin verk eftir hann sjálfan og klassísk verk eftir Bach\, Chopin\, Rachmaninoff og fleiri. Verk hans eru draumkennd í eðli sínu og mun hann leiða áhorfendur í gegnum áhugavert tónlistar ferðalag! \nEinar Bjartur Egilsson hefur spilað víða sem píanóleikari og meðleikari og starfað með ýmsum söngvurum og hljóðfæraleikurum gegnum tíðina\, bæði hér heima og í Hollandi þar sem hann tók meistarapróf. Hann lék meðal annars einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2013 og hefur gefið út tvær breiðskífur með eigin verkum – plöturnar Heimkomu 2015 og Kyrrð 2022. Núverið starfar hann sem meðleikari með söngnemendum og tók nýlega þátt í sýningunum Pétri Pan á Óperudögum og Jólin á suðupunkti í Þjóðleikhúsinu. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/einleikstonleikar-einars-bjarts/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/01/einarbjartar1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260221T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260221T150000
DTSTAMP:20260530T175449
CREATED:20260131T103323Z
LAST-MODIFIED:20260131T103344Z
UID:10001272-1771682400-1771686000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman í Hannesarholti með Kristjönu\, Gróu og Gaflarakórnum
DESCRIPTION:Syngjum saman í Hannesarholti er í höndum gesta úr Hafnarfirði laugardaginn 21.febrúar kl.14. Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir leiðir sönginn og Gróa Hreinsdóttir leikur með á flygilinn. Félagar úr Gaflarakórnum\, kórs félags eldri borgara í Hafnarfirði\, verða þeim til fulltingis\, en Kristjana er stjórnandi kórsins.\nAllar kynslóðir velkomnar að mæta og syngja með. Textar á tjaldi og frítt inn. Streymt verður frá söngstundinni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-kristjonu-grou-og-gaflarakornum/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/01/IMG_0156-scaled.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR