BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260912T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260912T180000
DTSTAMP:20260530T181725
CREATED:20260528T125101Z
LAST-MODIFIED:20260528T125101Z
UID:10001305-1789232400-1789236000@hannesarholt.is
SUMMARY:Perlur klarinettubókmenntanna
DESCRIPTION:Birkir Örn Hafsteinsson\, klarinettuleikari og Jane Ade Sutarjo\, píanisti\, leiða saman hesta sína á þessum dúó tónleikum og flytja nokkrar af helstu perlum klarinettubókmenntanna\, á efnisskrá eru verk eftir J. Brahms\, C. M. von Weber\, R. Schumann og Jón Nordal. \nBirkir Örn Hafsteinsson\, fæddur í Reykjavík árið 1997\, hóf klarínettunám ungur að aldri hjá Skólahljómsveit Austurbæjar hjá Kristjáni Þ. Stephensen og Grími Helgasyni. Þaðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann lauk framhalds- og burtfararprófi undir handleiðslu Freyju Gunnlaugsdóttur. Árið 2022 brautskráðist Birkir með bakkalárgráðu í klarínettuleik frá Hochschule für Musik Dresden\, þar sem Henry Philipp var aðalkennari hans. Hann hefur einnig sótt tíma í bassaklarínettuleik hjá Christian Dolfuß. \nBirkir hefur m.a. spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Orkester Norden\, hljómsveit Óperudaga og kammersveitinni Elju. Hann er einn sigurvegara keppninnar Ungir einleikarar 2022 og flutti einleik með hljómsveitinni það ár. Hann hefur tekið þátt í meistaranámskeiðum hjá Barnaby Robson\, Luigi Magistrelli\, Jörg Widmann og Manuel Siles. Birkir hefur verið virkur þátttakandi í flutningi á samtímatónlist í Dresden en þar hefur hann frumflutt fjölda verka eftir samnemendur sína og tekið þátt í samspilsverkefnum undir leiðsögn tónskáldanna Helmut Lachenmann og Söru Nemtsov. Birkir starfar sem klarínettukennari hjá Menntaskóla í Tónlist og Skólahljómsveit Austurbæjar\, þar sem hann er einnig skólahljómsveitarstjórnandi. \nJane Ade Sutarjo fæddist í Jakarta í Indónesíu. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni\, Marthalenu Sugito en hlaut siðan kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið \n2008. Hún hóf nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði á fiðlu hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttur og seinna hjá Peter Máté\, en Jane er sú fyrsta sem hefði lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla íslands. \nSíðan Jane kom til Íslands hefur hún verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi. Hún hefur komið fram sem einleikari\, meðleikari og í ýmsum kammertónlistarhópum. Hún spilaði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2011 og hélt debut tónleikana sína í Salnum í febrúar 2014. Hún hefur einnig tekið þátt í píanókeppnum bæði hér á Íslandi og erlendis. Hún hlaut 1. sæti í fimmtu EPTA píanókeppninni á Íslandi árið 2012. \nEftir að hún útskrifaðist frá LHÍ árið 2012 hefur hún kennt á píanó auk þess að starfa sem meðleikari. Sumarið 2017 lauk hún meistaragráðu frá Tónlistarháskóla Noregs (Norges Musikkhøgskole)\, þar sem hún lærði hjá Jens Harald Bratlie og Kathryn Stott. Einnig lærði hún á fortepíanó hjá Liv Glaser. \nNú starfar hún sem meðleikari við Menntaskóla í Tónlist og Listaháskóla Íslands \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/perlur-klarinettubokmenntanna/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/birkirogjane1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260918T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260918T213000
DTSTAMP:20260530T181725
CREATED:20260427T144144Z
LAST-MODIFIED:20260427T144144Z
UID:10001293-1789761600-1789767000@hannesarholt.is
SUMMARY:Les métèques: Frönsk flökkulög
DESCRIPTION:Tónlist á sér engin landamæri\, dægurlög ferðast milli landa\, tungumála og menningarheima og öðlast sífellt nýtt líf. Sum þeirra verða jafnvel vinsælli í nýjum búningi en í sinni upprunalegu mynd.\nLes Métèques flytja sínar eigin útgáfur af þekktum frönskum perlum frá síðustu öld. Hér hljóma m.a. kunnugleg lög í nýju ljósi; lög sem margir þekkja betur í enskum útgáfum\, eins og Les feuilles mortes (Autumn Leaves)\, Je t’appartiens (Let It Be Me) og Comme d’habitude (My Way).\nLes Métèques skipa: Ásta Ingibjartsdóttir (söngur)\, Eyjólfur Már Sigurðsson (söngur og gítar)\, Olivier Moschetta (söngur og bassi) og Ragnar Skúlason (fiðla). Kynnir og sögumaður er Gérard Lemarquis\, sem leiðir áheyrendur í gegnum sögur laganna og listamannanna sem gerðu þau ódauðleg. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/les-meteques-fronsk-flokkulog/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/lesmeteques1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260927T130000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260927T140000
DTSTAMP:20260530T181725
CREATED:20260504T155514Z
LAST-MODIFIED:20260507T125710Z
UID:10001296-1790514000-1790517600@hannesarholt.is
SUMMARY:Bríet\, blómin og Hannes
DESCRIPTION:Dagskráin „Bríet\, blómin og Hannes“ var flutt í Hannesarholti – Hljóðbergi 27. september\, 2025 til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur\, kvenréttindakonu\, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á afmælisdegi hennar\, og verður nú endurtekið í september 2026.. Fjallað verður um samstarf Hannesar Hafstein\, fyrsta ráðherra Íslands og Bríetar\, ólíka æsku þeirra og kjör og hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman\, meðan bæði lifðu. Samstarf þeirra hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda hér á landi. Sá sögulegi sannleikur má ekki gleymast.En hvaða blóm eru þetta ? – Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt þann 27. september.\nSýningin er samvinnuverkefni Leikhúslistakvenna 50 + og Hannesarholts.Dagskráin er um eina klst.\nÞáttakendurÁsdís Skúladóttir leikstjóri\, skrifaði handritið ásamt hópnumEdda Þórarinsdóttir leikkonaHelga E. Jónsdóttir leikkonaÞórey Sigþórsdóttir leikkonaLaufey Sigurðardóttir fiðluleikari\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/briet-blomin-og-hannes/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/09/BrietBlominHannes.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260930T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260930T210000
DTSTAMP:20260530T181725
CREATED:20260528T145554Z
LAST-MODIFIED:20260528T145554Z
UID:10001309-1790798400-1790802000@hannesarholt.is
SUMMARY:Dúó tónleikar\, fiðla og píanó\, Bjargey og Ólína
DESCRIPTION:Bjargey Birgisdóttir fiðluleikari og Ólína Ákadóttir píanóleikari eru ungar listakonur sem þegar hafa getið sér gott orð fyrir hljóðfæraleik sinn. Þær leiða hér saman hesta sína í Hannesarholti og flytja saman þrjú verk eftir Beethoven\, Grieg\, Jórunni Viðar. \nBjargey Birgisdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Helgu Steinunni Torfadóttur í Allegro Suzukitónlistarskólanum og útskrifaðist frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar þar sem kennari hennar var Auður Hafsteinsdóttir. Hún lauk bakkalárgráðu frá Hochschule für Musik Basel undir handleiðslu Barböru Doll árið 2023 og útskrifaðist nýverið með meistaragráðu frá Hochschule für Musik Freiburg undir handleiðslu Simone Zgraggen. Bjargey hefur hlotið margvísleg verðlaun og styrki fyrir fiðluleik sinn\, leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið konsertmeistari Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún var í starfsnámi hjá Philharmonisches Orchester Freiburg árið 2024 og er meðlimur hinnar virtu Gustav Mahler Jugendorchester. \nÓlína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún lauk bakkalárnámi við Tónlistarháskóla Noregs með eins árs skiptinámi í Tbilisi í Georgíu. Nú stundar hún meistaranám við Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Ólína hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og fleirum. Hún hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum eins og Seiglu\, Óperudögum\, Asker Kammerkonserter\, Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar\, Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Einnig stendur Ólína fyrir ýmsum sjálfstæðum verkefnum\, þ.á.m. hefur hún sett saman söngleik við verk Jórunnar Viðar\, einleikstónleikana Ferðasögur frá Georgíu\, barnasýningar\, tónlistarsmiðjur og stofutónleikaröð. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-tonleikar-fidla-og-piano-bjargey-og-olina-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/bjargey.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261002T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261002T220000
DTSTAMP:20260530T181725
CREATED:20260527T103846Z
LAST-MODIFIED:20260527T105329Z
UID:10001303-1790971200-1790978400@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-3/2026-10-02/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261003T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261003T220000
DTSTAMP:20260530T181725
CREATED:20260527T103846Z
LAST-MODIFIED:20260527T105329Z
UID:10001304-1791057600-1791064800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-3/2026-10-03/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261014T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261014T213000
DTSTAMP:20260530T181725
CREATED:20260526T162633Z
LAST-MODIFIED:20260526T162633Z
UID:10001300-1792008000-1792013400@hannesarholt.is
SUMMARY:Raddir að austan
DESCRIPTION:Einstök tónlistarupplifun í Hannesarholti þar sem áheyrendum er boðið í ferðalag um menningarheima austur-Evrópu og Anatólíu. Þrjú ólík en áhrifamikil verk munu hljóma en á efnisskránni eru sellósónata eftir Dmitri Shostakovich\, sellósónata eftir Nikolai Myaskovsky og verkið Four Cities eftir Fazıl Say. \nÍ sellósónötu Shostakovich skiptast á angurværð og kaldhæðni\, dramatískar tilfinningar sem eru einkennandi fyrir tónskáldið. Myaskovsky leikur sér að hlýjum og rómantískumi tónum\, þar sem sellóið fær að njóta sín í ríkum og ljóðrænum línum. Four Cities eftir Fazıl Say er hins vegar litrík og nútímaleg tónsmíð sem sækir innblástur í ólíkar borgir og menningarheima\, með rytmískum og kraftmiklum þáttum. Þetta verður kvöld þar sem fortíð og nútíð mætast\, með tónum sem snerta hjartað og kveikja í ímyndunaraflinu. \nAnna Þórhildur Gunnarsdóttir lauk B.Mus gráðu í píanóeinleik frá Listaháskóla Íslands\, undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur og MA-gráðu í píanóeinleik við Conservatorium Maastricht hjá prof. Katia Veekmans. Anna hefur hlotið margvíslega styrki\, þ.á.m. úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar og Henrïette Hustinx-hvatningarverðlaunini. Í dag starfar Anna sem píanókennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar\, ásamt kennslunni leggur hún stund á Suzuki píanókennaranám sem og Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Þórdís Gerður Jónsdóttir er sellóleikari sem hefur þá sérstöðu að leika jöfnum höndum sígilda tónlist og jazz. Sígildan sellóleik nam hún við Listaháskóla Íslands á árunum 2014-2017 og í konunglega danska konservatoríinu í Árósum\, en þaðan lauk hún meistaragráðu sumarið 2021. Þórdís lauk burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2015 en í náminu lagði hún áherslu á spuna og tónsmíðar. Hún er stofnmeðlimur kammerhópsins Cauda Collective\, sem hefur vakið eftirtekt fyrir frumlegt verkefnaval og útvíkkun á hlutverki hins klassíska flytjenda. Þórdís er hjúkrunarfræðingur\, með viðbótardiplómu í lýðheilsuvísindum og meistaragráðu í bráðahjúkrun. Hún starfar í hlutastarfi við skólahjúkrun á vegum Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðins við Menntaskólann við Hamrahlíð. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/raddir-ad-austan/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/raddiradausta1920x1080.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR