BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160306T160000
DTEND;TZID=UTC:20160306T160000
DTSTAMP:20160215T165233Z
CREATED:20160215T115242Z
LAST-MODIFIED:20160215T165233Z
UID:10000463-1457280000-1457280000@hannesarholt.is
SUMMARY:Í návígi - Domenico Codispoti
DESCRIPTION:Á tónleikum sínum í Hannesarholti leikur Domenico Codispoti úrval af stuttum verkum eftir vel þekkt tónskáld\, sem hann hefur í gegnum tíðina leikið oft sem aukalög. Þetta er aðgengileg og falleg efnisskrá og uppskrift að notalegu síðdegi\, sem allir ættu að geta notið. \nDomenico Codispoti\, píanóleikari er fæddur árið 1975 í Catanzaro á Suður-Ítalíu. Hann stundaði nám við Tónlistarháskólann Pescara og útskrifaðist  með láði. Þá hélt hann til Bandaríkjanna og stundaði nám hjá Joaquin Achucarro í Southern Methodist University í Dallas. Eftir glæsilegan námsferil gerði hann víðreist og hefur haldið fjölda einleikstónleika og leikið með virtum sinfóníuhljómsveitum í Evrópu\, Bandaríkjunum og Asíu. \nCodispoti hefur hvarvetna hlotið lof áheyrenda og gagnrýnenda fyrir leik sinn og unnið til fjölda verðlauna. Hann hefur verið fenginn til að dæmi í alþjóðlegum píanókeppnum og hin síðari ár hefur hann fengist í auknum mæli við að leiðbeina á meistaranámskeiðum víða um heim. Codispoti hefur leikið inn á geisladiska fyrir alþjóðleg útgáfufyrirtæki sem innihalda píanóverk eftir Chopin\, Schumann\, Liszt\, Granados\, Rachmaninov og Cesar Franck og einnig geisladisk með kammerverkum eftir ítalska tónskáldið Cilea. \nFrá árinu 2000 hefur Codispoti reglulega sótt Ísland heim og haldið fjölda einleikstónleika\, verið einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og leiðbeint ungum og efnilegum píanóleikurum á meistaranámskeiðum. Codispoti býr í Róm en auk starfa hans sem konsertpíanisti þá sinnir hann kennslustörfum í Tónlistarskólanum Lorenzo Perosi í Campobasso á Ítalíu. Domenico Codispoti er í ár tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum flytjandi ársins ásamt Nicola Lolli fyrir tónleika þeirra á Listahátíð í Reykjavík á síðasta ári. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/domenico-codispoti-einleikstonleikar/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/02/IMG_0470.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170212T160000
DTEND;TZID=UTC:20170212T160000
DTSTAMP:20170130T161553Z
CREATED:20170110T005901Z
LAST-MODIFIED:20170130T161553Z
UID:10000535-1486915200-1486915200@hannesarholt.is
SUMMARY:Dúó tónleikar fyrir selló og píanó
DESCRIPTION:Sellóleikarinn Gunnar Kvaran og píanóleikarinn Domenico Codispoti leika saman á dúó-tónleikum fyrir selló og píanó í Hannesarholti laugardaginn 12.febrúar kl.16. Þeir leika verk eftir Brahms\, Schumann\, Rachmaninoff og Shostakovich. Codispoti sem er ítalskur hefur oft komið til Íslands og haldið hér tónleika við mikla hrifningu áhorfenda. Gunnar Kvaran sellóleikari er vel þekktur tónlistarmaður á Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir tónlistarmenn leika saman opinberlega.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-4/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/01/KvaranogCodispoti-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR