BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20140101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170311T160000
DTEND;TZID=UTC:20170311T160000
DTSTAMP:20260616T075817
CREATED:20170115T162040Z
LAST-MODIFIED:20170311T133746Z
UID:10000538-1489248000-1489248000@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Fimm árstíðir
DESCRIPTION:FIMM ÁRSTÍÐIR \n\n\n\nFimm árstíðir er heitið á nýjum sönglagaflokki eftir Þorvald Gylfason prófessor við kvæði eftir Snorra Hjartarson. Kvæðin eru Haustið er komið\, Ísabrot\, Vor og Sumarkvöld\, einu nafni Fjórar árstíðir\, og loks Í Úlfdölum\, fimmta árstíðin.\nLögin eru samin fyrir sópran\, tenór og píanó.\nHallveig Rúnarsdóttir sópran\, Elmar Gilbertsson tenór og Snorri Sigfús Birgisson píanó munu frumflytja ljóðaflokkinn í Hannesarholti í Reykjavík 11. marz 2017. Höfundur laganna mun  lesa kvæðin fyrir áheyrendur áður en þau eru sungin og leikin.Dagskráin tekur um 30 mínútur og verður tekin upp\, hljóð og mynd. \n\n\n\nFimm árstíðir er heitið á nýjum sönglagaflokki eftir Þorvald Gylfason prófessor við kvæði eftir Snorra Hjartarson. Kvæðin eru Haustið er komið\, Ísabrot\, Vor og Sumarkvöld\, einu nafni Fjórar árstíðir og loks Í Úlfdölum\, fimmta árstíðin. Lögin eru samin fyrir sópran\, tenór og píanó. \nHallveig Rúnarsdóttir sópran\, Elmar Gilbertsson tenór og Snorri Sigfús Birgisson píanó frumflytja ljóðaflokkinn í Hljóðbergi 11.mars 2017. Höfundur les kvæðin fyrir áheyrendur áður en þau eru sungin og leikin. Dagráin tekur um 30 mínútur og verður tekin upp. \nÞorvaldur Gylfason prófessor hefur samið um 90 sönglög\, m.a.Sautján sonnettur um heimspeki hjartans\, Söngva um svífandi fugla\, Sjö sálma og Sextán söngva fyrir sópran og tenór við kvæði Kristjáns Hreinssonar. Sonnettur þeirra félaga voru fluttar í Hörpu2012 og 2013\, fuglasöngvarnir í Salnum í Kópavogi 2014\, sálmarnir í Langholtskirkju 2014 og í Guðríðarkirkju 2015\, og þetta er frumflutningur söngvanna fyrir sópran og tenór.   \nMiðasala á: \nhttps://midi.is/tonleikar/1/9951/Fimm_arstidir \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-fimm-arstidir/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/01/Fimm-árstíðir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151110T200000
DTEND;TZID=UTC:20151110T200000
DTSTAMP:20260616T075817
CREATED:20151029T121429Z
LAST-MODIFIED:20151110T190849Z
UID:10000117-1447185600-1447185600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kveðjusöngur farfuglanna\, dúettar & sönglög
DESCRIPTION:Kveðjusöngur farfuglanna \nDúettar og sönglög eftir Mendelssohn\, Schumann og Brahms \n Hallveig Rúnarsdóttir\, sópran \nGuðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópran \nHrönn Þráinsdóttir\, píanó \nRobert Schumann                                 Mädchenlieder Op. 103 \n(1810-1856)                                              -Mailied \n-Frühlingslied \n-An die Nachtigall \n-An den Abendstern \n  \n  \nJohannes Brahms                                  Vergebliches Ständchen Op. 84 No. 4 \n(1833-1897)                                              Wiegenlied Op. 49 No. 4 \nDort in den Weiden Op. 97 No.4 \nImmer leiser wird mein Schlummer Op. 105 No. 2 \n  \nDie Mainacht Op. 43  No. 2 \nWie Melodien zieht es mir Op. 105 No. 1 \nVon ewiger Liebe Op. 42 No. 1 \n  \nFelix Mendelssohn Bartholdy          Lieder Op. 63 Nr. 1-6 \n(1809-1847)                                              -Ich wollt\, meine Liebe ergösse sich \n-Abschiedslied der Zugvögel \n-Gruβ \n-Herbstlied \n-Volkslied \n-Maiglöckchen und die Blümelein \n  \n  \n  \nUm efnisskrána: \nHallveig Rúnarsdóttir sópran\, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari flytja nokkra af ástsælustu dúettum þýsku ljóðatónbókmenntanna\, eftir Mendelssohn og Schumann\, ásamt einsöngslögum eftir Brahms\, s.s. Von ewiger Liebe og Immer leiser wird mein Schlummer. \n  \n GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR mezzósópran hefur komið fram sem einsöngvari á tónleikum vítt og breitt um Evrópu og í Suður-Ameríku í tónleikasölum svo sem Henry le Boeuf Hall í Bozar í Brussel\, Auditorio Nacional de Música de Madrid\, Teatro Real í Madrid\, Glinka sal Fílharmóníunnar í St. Pétursborg\, Coliseo í Buenos Aires og Royal Festival Hall í London. Hún hefur sungið m. a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Bachsveitinni í Skálholti\, Kammersveitinni Ísafold\, Caput\, Nordic Affect\, Sonor Ensemble\, Sinfóníuhljómsveit Madrídar\, St Petersburg State Symphony Orchestra og Philharmonia Orchestra í London.\nGuðrún hefur frumflutt fjölmörg tónverk eftir íslensk og erlend tónskáld\, sem sum hver hafa verið samin sérstaklega fyrir hana. Hún hefur sungið í óperum á Spáni\, Bretlandi og Íslandi\, hlutverk eins og Öskubusku\, Dorabellu\, Rosinu\, Romeo\, Prins Orlowsky\, Carmen\, Sesto\, Tónskáldið og titilhlutverkið í Stígvélaða kettinum eftir Montsalvatge í Teatro Real í Madríd.\nGuðrún stundaði söngnám hjá Rut Magnússon í Tónlistarskólanum í Reykjavík og hjá Lauru Sarti í Guildhall School of Music and Drama í London\, en þar hlaut hún meistaragráðu í söng og lauk óperudeild skólans. Hún hefur einnig sótt einkatíma í söng hjá Aliciu Nafé í Madríd. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun í alþjóðlegum söngkeppnum\, svo sem Kathleen Ferrier ljóðasöngsverðlaunin í Wigmore Hall í London\, ljóðasöngsverðlaunin í alþjóðlegu söngkeppninni í Zamora og Joaquín Rodrigo verðlaunin í Madríd. Hún hefur hlotið starfslaun listamanna í eitt ár í tvígang.\nGuðrún hefur sungið inn á geisladiskana: Mitt er þitt – íslensk og spænsk sönglög\, Grieg-Schumann\, Apocrypha (Íslensku tónlistarverðlaunin) Iepo Oneipo Heilagur Draumur (Editor´s Choice\, Gramophone Magazine)\, Grannmetislög\, Unto Us\, Sigvaldi Kaldalóns: Ég lít í anda liðna tíð\, English and Scottish Romantic Songs for Voice and Guitar\, Áskell Másson (Naxos) og Secertos quiero descuvrir – Spanish Music for Voice\, Violin and Guitar. Guðrún er listrænn stjórnandi Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri.      www.gudrunolafsdottir.com \n  \nHallveig Rúnarsdóttir – Curriculum Vitae \n  \nHallveig Rúnarsdóttir hóf söngnám hjá Sigurði Demetz árið 1991. Hún lauk 8. stigi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Rutar L. Magnússon árið 1998. Það sama ár hóf hún nám  hjá Theresu E. Goble við Guildhall School of Music and Drama í London og útskrifaðist þaðan með láði sumarið 2001. \n  \nHallveig hefur sungið nokkur óperuhlutverk\, flest hjá Íslensku Óperunni en einnig víðar. Meðal hlutverka hennar eru Michaëla í Carmen eftir Bizet\, Fiordiligi í Cosi fan Tutte eftir Mozart\, Gianetta í Ástardrykknum eftir Donizetti og Echo í Ariadne auf Naxos eftir Richard Strauss. Hún hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim\, hún hefur sungið sópranhlutverkið í mörgum helstu stórverkum tónbókmenntanna og hefur sungið margoft með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk fjölda annarra hljómsveita bæði hér á landi og erlendis. \n  \nHallveig hefur sérstaklega verið virk í flutningi nýrrar tónlistar og hefur frumflutt mörg ný íslensk verk\, t.d. á Listahátíð í Reykjavík og á Sumartónleikum í Skálholti\, auk upptaka fyrir útvarp. Hallveig hefur og haldið fjölda einsöngstónleika á Íslandi undanfarin ár þar sem hún hefur lagt áherslu á ljóðasöng. Hallveig hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í sígildri- og samtímatónlist árið 2013 fyrir hlutverk sitt sem Michaëla í Carmen hjá Íslensku óperunni. Hún var tilnefnd til Grímuverðlauna sem söngvari ársins árið 2014 fyrir sama hlutverk. Hún var í vor tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna annað árið í röð\, fyrir árið 2014. Meðal verkefna Hallveigar framundan eru tónleikar á Þjóðlagahátíð á Siglufirði\, Messías í Færeyjum og á Íslandi og næstkomandi vor mun hún flytja 3. Sinfóníu Gorecki með Sinfóníuhljómsveit Íslands. \nHrönn Þráinsdóttir \npíanóleikari stundaði nám hjá Erlu Stefánsdóttur og síðar hjá Jónasi Ingimundarsyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Í Þýskalandi stundaði hún nám við tónlistarháskólann í Freiburg og lauk þaðan Diploma kennaraprófi með ljóðasöngsmeðleik sem aukafag vorið 2004. Kennarar hennar voru Prof. Dr. Tibor Szasz í píanóleik og Prof. Hans-Peter Müller við ljóðasöngdeild. Að því loknu stundaði hún nám við tónlistarháskólann í Stuttgart undir handleiðslu Prof. Cornelis Witthoefft þar sem hún lauk sumarið 2007 mastersnámi við ljóðasöngdeild skólans. Hrönn hefur komið fram á tónleikum víða\, m.a. í Þýskalandi\, Austurríki\, Noregi\,Ítalíu\,Grænlandi og á Íslandi sem einleikari\, meðleikari og við flutning kammertónlistar. auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska m.a.með kammersveitinni Ísafold. Hún hefur tekið þátt í ýmsum hátíðum eins og Ung Nordisk Musik\, Músíkdagar í Færeyjum\, Við Djúpið á Ísafirði og hátíðarinnar Berjadaga á Ólafsfirði. Hún hefur verið virk í flutningi nýrrar tónlistar m.a. á Myrkum Músíkdögum og með kammersveitinni Ísafold\, en hlaut hún með kammersveitinni íslensku tónlistarverðslaunin sem flytjandi ársins fyrir árið 2007. Hrönn er kennari við Söngskólann í Reykjavík og við Tónlistarskólann í Reykjavík. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvedjusongur-farfuglanna-duettar-songlog/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/10/Guðrún-Hallveig-og-Hrönn.jpg
ORGANIZER;CN="Gu%C3%B0r%C3%BAn J%C3%B3hanna %C3%93lafsd%C3%B3ttir":MAILTO:hannesarhot@hannesarholt.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151011T160000
DTEND;TZID=UTC:20151011T160000
DTSTAMP:20260616T075817
CREATED:20150907T150643Z
LAST-MODIFIED:20151002T114613Z
UID:10000101-1444579200-1444579200@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóðasöngur í Hannesarholti
DESCRIPTION:Tónleikaröð í samstarfi við Gerrit Schuil píanóleikara\, sem fær til liðs við sig einvalalið söngvara. Þetta verða fyrstu tónleikar vetrarins. Hallveig Rúnarsdóttir syngur og Gerrit Schuil spilar með á flygilinn. \nÁ efnisskránni verða verk eftir Debussy og Ravel. \nClaude Debussy: Fetes Galantes 1 \nEn sourdine \nFantoches \nClaire de Lune \nMaurice Ravel: Cinq melodies populaires Grecques \nChanson de la mariée \nLa-bas\, vers l‘église \nQuel galant m‘est comparable \nChanson des cueilleuses de lentisques \nTout gai ! \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljodasongur-i-hannesarholti-7/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/09/Iastsolar_minnkuð.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20150118
DTEND;VALUE=DATE:20150119
DTSTAMP:20260616T075817
CREATED:20140905T014339Z
LAST-MODIFIED:20150114T134042Z
UID:10000206-1421539200-1421625599@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóðasöngur í Hannesarholti á sunnudag kl. 16:00
DESCRIPTION:Hallveig Rúnarsdóttir syngur lög eftir Hugo Wolf\, við texta eftir Eduard Mörike. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð sem Hannesarholt heldur í samvinnu við Gerrit Schuil. Alls verða haldnir sex tónleikar í vetur í þessarri seríu. Þeir eru klukkustundarlangir og munu söngvararnir kynna dagskrána sjálfir.\nMiðasala á midi.is.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljodasongur-i-hannesarholti-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/MG_3514-Hallveig-ný-e1414602073290.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR