BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.5//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160531T200000
DTEND;TZID=UTC:20160531T200000
DTSTAMP:20160530T140147Z
CREATED:20160528T120005Z
LAST-MODIFIED:20160530T140147Z
UID:10000150-1464724800-1464724800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Agnar Már Magnússon
DESCRIPTION:Píanóleikarinn Agnar Már Magnússon ásamt Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni bassaleikara og Scott Maclemore trommuleikara. \nDagskrá tónleikanna verður tvískipt: \nFyrir hlé verða frumflutt 16 píanóverk eftir Agnar Má\, sem nefnast Þræðir (nr.1-16). Þau voru gefin út á bók síðastliðið haust. \nEftir hlé koma Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassaleikari og Scott Maclemore trommuleikari og leika nýtt efni með Agnari af væntanlegum geisladiski\, sem  kemur út í sumar hjá Dimmu. Tríóið mun taka efnið upp í næstu viku.  \nAgnar Már Magnússon er meðal fremsku djasstónlistarmanna landsins. Eftir að hafa lokið burtfararprófi frá tónlistarskóla FÍH lauk Agnar námi frá Conservatorium van Amsterdam og einkanámi hjá Larry Goldings í New York. \nÍ New York komst Agnar í kynni við fleiri þekkta tónlistarmenn á sviði djassins en þau kynni leiddu m.a. til útgáfu fyrstageisladisks hans sem ber nafnið 01. Frá þeim tíma hefur Agnar ásamt öðrum tónlistarmönnum gefið út fjölda geisladiska til viðbótar. Agnar hefur margoft verið tilnefndur og tvisvar hlotið íslensku tónlistarverðlaunin. \nAgnar skrifaði heila dagskrá fyrir stórsveit Reykjavíkur 2010 og var hún flutt á tónleikum það ár. Tvö verkanna voru tekin upp og gefin út 2011 á disknum HAK. Sá diskur hlaut íslensku tónlistarverðlaunin sem djassdiskur ársins. \nAgnar hefur verið kennari við tónlistarskóla FÍH frá 2001. Hann hefur útskrifað fjölda nemenda og sá um að skrifa ritmíska píanóhlutann í aðalnámskrá tónlistarskólanna fyrir Menntamálaráðuneytið. \nAuk þessa hefur Agnar á tónlistarferli sínum unnið til verðlauna\, svo sem „Outstanding Musicianship Award“ frá Berklee tónlistarháskólanum í Boston og komist í undanúrslit í Alþjóðlegu djass píanókeppninni Martial Solal í París haustið 2002. Hann hefur útsett lög fyrir geislaplötur og söngleiki\, starfað með Stórstveit Reykjavíkur árum saman\, leikið á tónleikum hérlendis sem erlendis\, verið píanóleikari og annast tónlistarstjórn í leikhúsi. Agnar sá meðal annars u m tónlistina í Söngvaseið\, Mary Poppins og Billy Elliot fyrir Borgarleikhúsið. Agnar starfar nú sem djasspíanisti en kennir jafnframt píanóleik við djassdeild Tónlistarskóla FÍH. \nAgnar var útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar 2010. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-agnar-mar-magnusson/
LOCATION:1.hæð og Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/05/Agnar-Már-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR