BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20140101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151108T160000
DTEND;TZID=UTC:20151108T160000
DTSTAMP:20151103T131725Z
CREATED:20151018T173549Z
LAST-MODIFIED:20151103T131725Z
UID:10000114-1446998400-1446998400@hannesarholt.is
SUMMARY:Davíðsljóð í Hannesarholti
DESCRIPTION:„Ég nefni nafnið þitt“  ástarljóð Davíðs Stefánssonar\n\nÍ þessari viðburðaröð leiðir Valgerður H. Bjarnadóttir \ngesti í ferð um ljóð og líf Davíðs. \nDavíð er skáld ástarinnar. Hann elskar heitt og einlæglega\, \noft blítt og barnslega\, en stundum er ástin full dulúðar\, djúp\, \ntryllt og jafnvel tortímandi. \nÍ óbirtri grein sem hann skrifaði eftir dvöl sína í Assísí\, þar \nsem hann átti eitt af dásamlegustu ævintýrum ástarinnar\, \nsegir hann: „Það getur haft meiri og dýpri áhrif á suma að \nheyra nafn ástvinar síns nefnt\, en að hlýða á heimsfræga \nhljómsveit leika sónötu eftir Beethoven.“ \nOg í þeim anda yrkir hann: \nÉg nefni nafnið þitt\, \nog næturmyrkrið flýr\, \nþví ljóma á loftið slær \nhið liðna ævintýr. \nÉg nefni nafnið þitt \nog nýja heima sé; \nþar grær hið villta vín \nþar vagga pálmatré. \nÉg nefni nafnið þitt\, \nog nóttin verður hlý. \nÉg heyri klukknaklið \nfrá kirkju í Assisí. \nÞú kemur móti mér \ní minninganna dýrð. \nÍ sólskini og söng \ner sál mín endurskírð. \n\n\n\n\n\n\n\n\nÁ einn hátt eru allar konur og allar þær jarðnesku\, himnesku og huldu verur sem Davíð yrkir \nástarljóð sín til\, ein og hin sama\, um leið og hver og ein á sinn sérstaka stað í hjarta hans. \nVið hefjum Davíðsljóð vetrarins með ástarljóðunum\, rifjum þau upp og rýnum örlítið í þau og \nsögurnar sem tengjast þeim\, en umfram allt leyfum við þeim að hljóma og enduróma í okkar \neigin hjörtum. Dagskráin verður haldin í veitingastofunum á 1.hæð og er tilvalið að fá sér kaffi á \nundan. \nVerið velkomin! \nValgerður H. Bjarnadóttir ólst upp með ljóðum og öðrum verkum Davíðs\, eins og þúsundir annarra \nÍslendinga. Hún las þau\, lærði og tengdist sumum þeirra sterkum böndum.  S.l. sumar gegndi hún \nhlutverki húsfreyju í Davíðshúsi og sökkti sér þá á ný inn í þennan heim ástar\, sögu\, trúar\,ævintýra \nog þjáningar\, sem fáir hafa náð að mála eins sterkum litum og Davíð. Vikulega var hún þar með \ndagskrá um ljóðin og líf Davíðs út frá ólíkum sjónarhornum og nú býður Hannesarholt upp á þá \ndagskrá sunnan heiða. Valgerður er félagsráðgjafi með MA í trúarheimspeki og menningarsögu. \n\n\n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/davidsljod-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/10/Daviðshús.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR