BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20130101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140611T200000
DTEND;TZID=UTC:20140611T220000
DTSTAMP:20140522T151202Z
CREATED:20140519T235112Z
LAST-MODIFIED:20140522T151202Z
UID:10000176-1402516800-1402524000@hannesarholt.is
SUMMARY:Sólin sæla - tónleikar tvíeykisins Funa
DESCRIPTION:FUNI er tvíeykið Bára Grímsdóttir og Chris Foster\, sem hófu samstarf árið 2001.  Síðan hafa þau keppst við að blása lífi í íslenska þjóðlagatónlist sem hefur leynst í gömlum upptökum og lítt þekktum bókum og handritum\, auk þess sem þau hafa bætt við nýjum lögum í þjóðlegum stíl.  Flest laganna voru sungin án nokkurs undirleiks áður fyrr en FUNI bætir hljóðfæraleiknum við og notar langspil\, Íslenska fiðlu\, gítar\, kantele og hammer dulcimer. Þau flytja kvæðalög\, tvísöngslög\, sálma og enskar ballöður\, útsetja allt sjálf og hafa haldið námskeið og komið fram á ýmsum hátíðum og tónleikum\, einnig í útvarpi\, hér heima og víða í Evrópu\, Norður-Ameríku og Kína. \nBára Grímsdóttir\, söng- og kvæðakona\, er einn virtasti flytjandi íslenskra þjóðlaga og nýtur einnig mikillar virðingar sem tónskáld.  Hún ólst upp við söng og kveðskap\, heyrði og lærði\, allt frá barnæsku\, kveðskap foreldra sinna og afa og ömmu í Grímstungu í Vatnsdal. Bára hefur lengi fengist við flutning á kvæðalögum og margs konar íslenskri þjóðlagatónlist\, bæði veraldlegri og trúarlegri.  Hún hefur unnið með ýmsum kvæðamönnum og tónlistarfólki og sem tónskáld og útsetjari hefur Bára iðulega nýtt sér íslensk þjóðlög sem uppsprettu eigin sköpunar. \nChris Foster ólst upp í Somerset á Suðvestur-Englandi\, þar sem hann kynntist fyrst þjóðlögum og hóf tónlistarferil sinn.  Hann er tvímælalaust frábær flytjandi enskrar þjóðlagatónlistar.  Síðastliðin 40 ár hefur Chris haldið ótal tónleika á Bretlandseyjum\, en einnig farið í tónleikaferðir víðsvegar um Evrópu\, Bandaríkin og Kanada.  Hann hefur gefið út sex plötur með eigin söng og gítarundirleik en einnig tekið þátt í mörgum samstarfsverkefnum. Lifandi tónlistarflutningur Chris einkennist af kraftmiklum söng og góðum gítarleik\, sem styrkist enn frekar af fágaðri fyndni hans og eldmóði.  Með þessu tekst honum að draga áheyrendur sína inn í sagnaheiminn sem hann skapar með söngvunum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/solin-saela-tonleikar-tvieykisins-funa/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/CHRIS-AND-BÁRA-MAY-09-high-res-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140614T150000
DTEND;TZID=UTC:20140614T170000
DTSTAMP:20140610T204045Z
CREATED:20140604T173036Z
LAST-MODIFIED:20140610T204045Z
UID:10000177-1402758000-1402765200@hannesarholt.is
SUMMARY:Bartok og Brahms  - Reykjavík Midsummer Music
DESCRIPTION:Á fyrstu tónleikum laugardagsins höldum við í fræða- og menningarsetrið Hannesarholt á Grundarstíg 10\, og hlýðum á tónlist Bartóks og Brahms í flutningi Sayaka Shoji\, Amihai Grosz og Víkings Heiðars Ólafssonar.\nÍ tónlist Bartóks kemur allt saman. Í hljóðheimi hans mætir kraftmikil þjóðlagatónlist fágaðri tónsmíðatækni ný-barokksins\, náttúruhljóð blandast hljómi kirkjutóntegundanna – og þannig má áfram telja.\n\nÍ Sónötu fyrir einleiksfiðlu (1944) kannaði tónskáldið ungverska hversu langt væri hægt að komast með fjóra strengi og boga – og í ljós kemur að möguleikarnir eru endalausir. Fyrsti þáttur er í formi chacconu\, annar er þriggja radda fúga\, í þeim þriðja er eins og fiðlan syngi aríu við undirleik sjálfrar sín og síðasti kaflinn er æsilegt prestó – í heildina er verkið stórbrotið. Það er svo sérstök ánægja að fá að heyra japanska fiðlusnillinginn Sayöku Shoji leika sónötuna á Stradivarius-fiðlu sína\, ‘Recamier’\, frá 1729. \nÁ seinni hluta tónleikanna\, sem fram fara í Hannesarholti\, heyrum við svo fyrsta víóluleikara Berlínar-fílharmóníunnar\, Amihai Grosz\, leika aðra stórbrotna sónötu ásamt Víkingi Heiðari Ólafssyni: Víólusónötu Brahms í f-moll\, sem er meðal síðustu verkanna sem tónskáldið samdi á lífsleiðinni. \nMiðasala er í Hörpu og á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bartok-og-brahms-reykjavik-midsummer-music/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/06/KAROLINA_THORARENSEN_POSTER_BRAHMSBARTOK_IMG_2944.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140615T110000
DTEND;TZID=UTC:20140615T123000
DTSTAMP:20140429T005602Z
CREATED:20140428T152427Z
LAST-MODIFIED:20140429T005602Z
UID:10000020-1402830000-1402835400@hannesarholt.is
SUMMARY:Gengið með Guðjóni um Þingholtin
DESCRIPTION:Guðjón Friðriksson hefur gengið með gesti um Þingholtin á vegum Hannesarholts einu sinni í mánuði undanfarið og er þetta fjórða gönguferðin. Að þessu sinni verður athyglinni beint að svæðinu umhverfis Tjörnina. Ferðirnar byrja í Hannesarholti á Grundarstíg 10 kl. 11:00 og enda í Hljóðbergi við Skálholtsstíg\, þar sem sýnd verður stutt heimildamynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar. Auk þess er boðið upp á skoðunarferð um húsið fyrir þá sem það vilja. Gönguferðin tekur um eina og hálfa klukkustund. Fáir eru betur að sér en Guðjón um húsin og fólkið í gömlu Reykjavík og víst er að menn fara fróðari af hans fundi. Hann skrifaði m.a ævisögu Hannesar Hafstein Ég elska þig stormur sem út kom árið 2005. \nVeitingahúsið Borðstofan á 1.hæð hússins verður opin og er þar ýmislegt ljúfmeti í boði\, bæði sætt og ósætt. Við bendum á að kaupa má miða á midi.is en einnig má panta miða með því að hringja í s. 511 1904. Takmarkaður fjöldi. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gengid-med-gudjoni-um-thingholtin-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Gönguferðir (Guided walking tours)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/IMG_1608.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR