BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20130101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140821T160000
DTEND;TZID=UTC:20140821T180000
DTSTAMP:20140818T152036Z
CREATED:20140818T152036Z
LAST-MODIFIED:20140818T152036Z
UID:10000186-1408636800-1408644000@hannesarholt.is
SUMMARY:Landslag sálarinnar - íslenskar veðurfréttir
DESCRIPTION:Xárene Eskandar er hönnuður sem hefur rannsakað ný viðhorf gagnvart sjálfinu og  leitast við að breyta skynjun okkar á bæði tíma og rúmi í gegnum ljósmyndir og video-verk sín. Hún er handhafi MFA gráðu frá Kaliforníuháskóla í Los Angeles\,. Hún heldur fyrirlestra og hefur sýnt verk sín við alþjóðlegar stofnanir og við ólík tækifæri. Sem dæmi má nefna;   Mutek\, Montréal; SIGGRAPH; International Symposium of Electronic Arts\, Singapúr; Istanbul Design Biennial; Iceland Academy of Arts; Fabrica\, Treviso; Bâtiment d’art contemporain\, Genève; Centre of Contemporary Art\, Torun; Kiasma Museum of Contemporary Art\, Helsinki; og Los Angeles Contemporary Exhibits. \nLANDSLAG SÁLARINNAR – ÍSLENSKAR VEÐURFRÉTTIR \nMat á skynjun okkar gagnvart rúmtíma – lýst með veðurfregnum. \n“Vinna að verkinu hófst sem vikulegur óður til borgarinnar sem ég elska en flestir elska að hata: Los Angeles. Titillinn „Veðurfregnir“ er andsvar við staðarímynd  veðurfars Los Angeles – 20 gráður og sólríkt („70 and sunny“). Textarnir  varpa þá ljósi á margbreytileika veðurfars og þeirra áhrifa sem það hefur á sjálfið\, hvort sem það er augljóst\, eða í undirvitund okkar. \nBæði á Íslandi og í Los Angeles er veðurfar vinsælt umræðuefni\, en þær umræður eru þó kannski býsna ólíkar því hér skipast veður skjótt í lofti. Textinn\, ljósmyndirnar og myndböndin sem hér eru sýnd eru þ.a.l. kannski persónulegri þar sem íslensk náttúra og veðurfar hefur mögulega djúpstæðari áhrif á sjálfið\, samanborið við einlitt veður Los Angeles.”
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/landslag-salarinnar-islenskar-vedurfrettir/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/TheIsland-for-website.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140823T140000
DTEND;TZID=UTC:20140823T150000
DTSTAMP:20140801T135936Z
CREATED:20140721T122918Z
LAST-MODIFIED:20140801T135936Z
UID:10000178-1408802400-1408806000@hannesarholt.is
SUMMARY:Semball í Hannesarholti
DESCRIPTION:Á menningarnótt\, 23. ágúst\, leikur Árni Heimir Ingólfsson á sembal í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, kl. 14. Á tónleikunum verður flutt áheyrileg barokktónlist eftir höfunda frá ýmsum löndum – Ítalíu\, Englandi\, Frakklandi og Þýskalandi – m.a. eftir Girolamo Frescobaldi\, William Byrd\, Antoine Forqueray og J.S. Bach. Árni Heimir mun segja frá tónlistinni og hljóðfærinu\, en hann leikur á hljóðfæri smíðað af Marc Ducornet í París (2011). Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. \nÁrni Heimir Ingólfsson stundaði píanónám við Tónlistarskólann í Reykjavík\, nam síðar píanóleik og tónlistarfræði í Bandaríkjunum og lauk doktorsprófi frá Harvard-háskóla 2003. Hann hefur komið fram á fjölda tónleika víða um heim sem píanóleikari og kórstjóri\, m.a. á Listahátíð í Reykjavík og tónlistarhátíðum í Bretlandi\, Frakklandi\, Svíþjóð og Þýskalandi. Þá hefur hann stýrt tónlistarflutningi á þremur hljómdiskum sem allir innihalda lög úr fornum íslenskum handritum. Árni Heimir er afkastamikill fræðimaður á sviði íslenskrar tónlistar. Hann hefur haldið fyrirlestra víða um heim og gegnt rannsóknarstöðum við háskólana í Oxford og Boston. Bók hans\, Jón Leifs – Líf í tónum\, kom út árið 2009 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár. Árni Heimir var dósent í tónlistarfræðum við Listaháskóla Íslands 2005–2007 og tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2007–2011.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/semball-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/07/IMG_1206-e1405945546398.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140823T140000
DTEND;TZID=UTC:20140823T160000
DTSTAMP:20140822T110437Z
CREATED:20140822T104930Z
LAST-MODIFIED:20140822T110437Z
UID:10000189-1408802400-1408809600@hannesarholt.is
SUMMARY:Hvaða máli skiptir fegurð?
DESCRIPTION:Á  Menningarnótt gefst fólki tækifæri til að setjast niður í erli dagsins og ræða hinar stóru spurningar lífsins í svokölluðu Heimspekikaffi. Það verður starfrækt frá kl. 14-16 í Borðstofunni. Það eina sem þarf að taka með er forvitni og meðfædd skynsemi. Þar gilda fjórar einfaldar reglur – allt annað er leyfilegt: 1. Einn talar í einu\, hinir hlusta. 2. Rökstyðja. 3. Halda sig við efnið. 4. Ekki vitna í fræga höfunda. \nFegurð var allt frá fornöld talin meðal æðstu gæða ásamt sannleika\, réttlæti og hinu góða. Þegar Jónas Hallgrímsson og félagar ýttu af stað tímaritinu Fjölni lýstu þeir því yfir að þeir ætluðu að hafa þrennt að leiðarljósi: hið nytsamlega\, hið sanna og hið fagra. Á síðari tímum er þó eins og fegurð hafi misst þann virðingarsess sem hún hafði. Við viljum rannsaka hvort fegurð sé sjálfstæð meðal verðmæta óháð notagildi og hvaða hlutverk hún hefur í lífi nútímafólks og menningu 21. aldar. \nAllir eru velkomnir!
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hvada-mali-skiptir-fegurd/
LOCATION:Borðstofan
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/heimspekikaffi-á-menningarnótt-e1408704518186.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140823T160000
DTEND;TZID=UTC:20140823T180000
DTSTAMP:20140803T012644Z
CREATED:20140801T115045Z
LAST-MODIFIED:20140803T012644Z
UID:10000179-1408809600-1408816800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ný íslensk dægurlagatónlist á Menningarnótt í Hannesarholti
DESCRIPTION:Arna Margrét Jónsdóttir\, Birgir Steinn Theodorsson og Marteinn Sindri Jónsson flytja ný\, frumsamin dægurlög við texta íslenskra ljóðskálda.\nÖll hafa þau stundað nám við tónlistarskóla FÍH\, Arna Margrét er útskrifuð úr jazzsöng\, Birgir Steinn lærir þar á bassa og Marteinn Sindri er útskrifaður á píanó.\nTónsmíðarnar eru allar eftir Örnu og Martein en ljóðin koma víða að. Hannes Hafstein á þó nokkur ljóðanna\, auk Huldu\, Snorra Hjartarssonar\, Davíðs Stefánssonar svo einhverjir séu nefndir.\n\nAllir hjartanlega velkomnir!
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ny-islensk-daegurlagatonlist-a-menningarnott-i-hannesarholti/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/hannes-e1406893545523.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140824T140000
DTEND;TZID=UTC:20140824T170000
DTSTAMP:20140823T180843Z
CREATED:20140823T180746Z
LAST-MODIFIED:20140823T180843Z
UID:10000195-1408888800-1408899600@hannesarholt.is
SUMMARY:Landslag sálarinnar - ljósmyndir og vídeóverk
DESCRIPTION:Xárene Eskandar er hönnuður sem hefur rannsakað ný viðhorf gagnvart sjálfinu og  leitast við að breyta skynjun okkar á bæði tíma og rúmi í gegnum ljósmyndir og video-verk sín. Hún er handhafi MFA gráðu frá Kaliforníuháskóla í Los Angeles\,. Hún heldur fyrirlestra og hefur sýnt verk sín við alþjóðlegar stofnanir og við ólík tækifæri. Sem dæmi má nefna;   Mutek\, Montréal; SIGGRAPH; International Symposium of Electronic Arts\, Singapúr; Istanbul Design Biennial; Iceland Academy of Arts; Fabrica\, Treviso; Bâtiment d’art contemporain\, Genève; Centre of Contemporary Art\, Torun; Kiasma Museum of Contemporary Art\, Helsinki; og Los Angeles Contemporary Exhibits. \nLANDSLAG SÁLARINNAR – ÍSLENSKAR VEÐURFRÉTTIR \nMat á skynjun okkar gagnvart rúmtíma – lýst með veðurfregnum. \n“Vinna að verkinu hófst sem vikulegur óður til borgarinnar sem ég elska en flestir elska að hata: Los Angeles. Titillinn „Veðurfregnir“ er andsvar við staðarímynd  veðurfars Los Angeles – 20 gráður og sólríkt („70 and sunny“). Textarnir  varpa þá ljósi á margbreytileika veðurfars og þeirra áhrifa sem það hefur á sjálfið\, hvort sem það er augljóst\, eða í undirvitund okkar. \nBæði á Íslandi og í Los Angeles er veðurfar vinsælt umræðuefni\, en þær umræður eru þó kannski býsna ólíkar því hér skipast veður skjótt í lofti. Textinn\, ljósmyndirnar og myndböndin sem hér eru sýnd eru þ.a.l. kannski persónulegri þar sem íslensk náttúra og veðurfar hefur mögulega djúpstæðari áhrif á sjálfið\, samanborið við einlitt veður Los Angeles.”
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/landslag-salarinnar-ljosmyndir-og-videoverk/
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/TheIsland-for-website.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR