BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160224T200000
DTEND;TZID=UTC:20160224T200000
DTSTAMP:20160210T143248Z
CREATED:20160129T142957Z
LAST-MODIFIED:20160210T143248Z
UID:10000440-1456344000-1456344000@hannesarholt.is
SUMMARY:Félag íslenskra fræða - Endurfædd orð og önnur dauð
DESCRIPTION:Sölvi Sveinsson: Endurfædd orð og önnur dauð\n\nÍ erindinu verður fjallað um orðaforða fornmálsins í tengslum við bókina Endur­fædd orð og önnur dauð. Hvað ræður því að sum ágæt orð deyja\, orð sem prýði­lega mundu sóma sér í nútímamáli. Sum orð hafa endurfæðst í nýrri merk­ingu. Hvað ræður því? Segir það eitthvað að um mörg orð eru örfá dæmi í Ordbog over det norröne prosa­sprog og um mörg orð aðeins eitt dæmi? Eitt­hvað fleira hangir á spýtunni.\n\nSölvi er cand. mag. í sagnfræði og hefur lengst af starfað við kennslu og skólastjórnun\, ásamt ritstörfum.\nFyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. \nGestum gefst kostur á að snæða léttan kvöldverð í veitingastofum Hannesarholts á fyrstu hæð hússin. Kvöldverðurinn er í formi smáréttarplatta sem þarf að panta fyrirfram með borðapöntun í síma 511 1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is í síðasta lagi kl 16.00 daginn fyrir. Nánari upplýsingar hér. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/felag-islenskra-fraeda-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks),Rannsóknarkvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/sölvisveins.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160228T160000
DTEND;TZID=UTC:20160228T160000
DTSTAMP:20160209T110449Z
CREATED:20160129T143317Z
LAST-MODIFIED:20160209T110449Z
UID:10000442-1456675200-1456675200@hannesarholt.is
SUMMARY:Davíðsljóð - Ítalíuför Davíðs
DESCRIPTION:Davíðsljóð í Hannesarholti  \nViðburðaröð þar sem Valgerður H. Bjarnadóttir leiðir gesti í ferð um ljóð og líf Davíðs  \n„Skenktu á skál mína á ný“ – Ítalíuför Davíðs \nÍtalíuljóðin eru með þekktustu og vinsælustu ljóðum Davíðs. Hver þekkir ekki Katarínu og hefur þar með heyrt af Capri\, Bláa hellinum og dansinum tarantellu? Tína Rondóni hefur líka heillað okkur mörg. Davíð segist í ljóðinu elska bæði hana og hennar umbríska vín. \n„Ég elska þig\, Tína Rondóní. \n Ég elska þitt umbríska vín. \nSkenktu á skál mína á ný. \nSkálin er þín.“ \nEn Davíð kynntist fleiri hliðum lífsins en ástinni\, dansinum og drykknum á Ítalíu. Ljóð eins og Portkona og Betlarinn\, Konurnar þrjár og Einmana bróðir fjalla um myrkari hliðar mannlífsins og snerta djúpt. \nFerð hans til Ítalíu\, veturinn 1920 til 21\, hafði mikil og varanleg áhrif á skáldið. Ferðin lifir í ljóðunum\, en einnig í frásögnum úr ferðinni\, ekki síst endurminningum Ríkarðs Jónssonar\, myndhöggvara. Hann var í för með Davíð og skrifaði ferðasöguna í bókina Skáldið frá Fagraskógi – Endurminningar samferðamanna\, sem kom út árið 1965. \nÍ þessari dagskrá rifjar Valgerður upp nokkur sögubrot frá Ítalíu\, deilir hugleiðingum um hvaða áhrif ferðin hafði á Davíð og les ljóðin. \nValgerður H. Bjarnadóttir ólst upp með ljóðum og öðrum verkum Davíðs\, eins og þúsundir annarra Íslendinga. Hún las þau\, lærði og tengdist sumum þeirra sterkum böndum. S.l. sumar gegndi hún hlutverki húsfreyju í Davíðshúsi og sökkti sér þá á ný inn í þennan heim ástar\, sögu\, trúar\, ævintýra og þjáningar\, sem fáir hafa náð að mála eins sterkum litum og Davíð. Vikulega var hún þar með dagskrá um ljóðin og líf Davíðs út frá ólíkum sjónarhornum og nú býður Hannesarholt upp á dagskrá sunnan heiða. Valgerður er félagsráðgjafi með MA í trúarheimspeki og menningarsögu.   \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/davidsljod-2/
LOCATION:Hannesarholt veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/VHB3-Hr-Ha.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR