BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160314T200000
DTEND;TZID=UTC:20160314T200000
DTSTAMP:20160311T194659Z
CREATED:20160214T232928Z
LAST-MODIFIED:20160311T194659Z
UID:10000460-1457985600-1457985600@hannesarholt.is
SUMMARY:Heilsuspjall - sársauki
DESCRIPTION:Heilsuspjall í Hannesarholti:  \nRæðum um sársauka – eða er það fyrirfram dauðadæmt? \nÞað þykir ekki beint skemmtilegt að ræða um verki og sársauka. Verkjasjúklingnum finnst umræðuefnið niðurdrepandi og fyrir nærstadda kveikir það gjarnan í óþægilegri tilfinningu úrræðaleysis.  Á íslenskum samfélagsmiðlum er vissulega fjallað um margt áhugavert en næstum aldrei er rætt um verki. Þessi þögn er þó ekki ný af nálinni því William Shakespeare og önnur höfuðskáld bókmenntanna\, sem gátu á aðdáunarverðan hátt lýst tilfinningum gleði\, hamingju\, reiði\, haturs og ótta\, skautuðu iðulega framhjá þessari algengu upplifun\, „verkur“. \nÍ heilsuspjalli sínu í Hannesarholti mun gigtlæknirinn Arnór Víkingsson fá í heimsókn til sín verkjasálfræðinginn Eggert Birgisson og saman munu þeir spjalla við áheyrendur um verki og sársauka í víðu samhengi. \nVeitingastofur eru opnar frá kl. 18.30 og gestum gefst kostur á að gæða sér á léttum kvöldverði í formi menningarplatta á undan heilsuspjallinu. Bóka þarf borð í síðasta lagi kl. 16.00 daginn áður. Einnig verður á boðstólum súpa með heimabökuðu brauði.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heilsuspjall-sarsauki/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Heilsuspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/02/IMG_1151-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160316T200000
DTEND;TZID=UTC:20160316T200000
DTSTAMP:20160315T012649Z
CREATED:20160203T230159Z
LAST-MODIFIED:20160315T012649Z
UID:10000137-1458158400-1458158400@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall
DESCRIPTION:Nýdoktorar í heimspeki Jón Ásgeir Kalmansson og Guðbjörg R. Jóhannesdóttir\nræða við gesti um rannsóknir sínar og fundna fjársjóði. \nYfirskriftin á erindi Guðbjargar er: Landslag og fagurfræði: fyrirbærafræðilegt sjónarhorn en Jón Ásgeir mun ræða við gesti um Siðvitið og leyndardómurinn. \nUmsjónarmaður: Henry Alexander Henrysson. \nAðgangur er ókeypis og viðburðurinn er öllum opinn. \nVeitingastofur á 1. hæð eru opnar frá kl. 18.30 fyrir þá gesti sem vilja gæða sér á léttum kvöldverði í formi menningarplatta. Bóka þarf borð í síðasta lagi kl. 16.00 daginn áður. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimspekispjall-7/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Heimspekispjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/02/JonAsgeirKalmannsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160318T180000
DTEND;TZID=UTC:20160318T180000
DTSTAMP:20160314T163932Z
CREATED:20160130T004024Z
LAST-MODIFIED:20160314T163932Z
UID:10000128-1458324000-1458324000@hannesarholt.is
SUMMARY:Jazzveisla Kristjönu Stefáns
DESCRIPTION:Jazz – veisla fyrir öll vit \nFöstudagsköldið 18.mars tekur Jazztríó Kristjönu Stefánsdóttur á móti gestum í Hannesarholti. \nBoðið verður uppá þriggja rétta matseðil og mun tríóið leika valda jazz standarda og spjalla um matinn og tónlistina á persónulegum nótum. Jazzaðri málsverð er ekki hægt að hugsa sér: \nFordrykkur: Manhattan hanastél ásamt munnbitum úr eldhúsinu \nAðalréttur: New Orleans Gumbo Sjávarréttarsúpa \nEftirréttur: Pekanhnetubaka með ís \nTríó Kristjönu Stefáns skipa: Kristjana Stefáns söngur\, Kjartan Valdemarsson píanó\, Gunnar Hrafnsson kontrabassi. \nGestafjöldi er takmarkaður og miðar eru einungis seldir í forsölu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jazzveisla-kristjonu-stefans/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Matur og menning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/12772876_10153417782686711_1880674339_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160320T160000
DTEND;TZID=UTC:20160320T160000
DTSTAMP:20160315T152212Z
CREATED:20160315T152046Z
LAST-MODIFIED:20160315T152212Z
UID:10000474-1458489600-1458489600@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókakaffi - að yrkja hamingjuna
DESCRIPTION:Að yrkja hamingju \nÍ tilefni af alþjóðlegum degi hamingjunnar 20. mars \nHamingjuljóð og hollráð um líf og hamingju munu hljóma á kaffihúsinu í Hannesarholti á alþjóðlegum degi hamingjunnar 20. mars. Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Embætti landlæknis hafa tekið höndum saman um að fagna deginum með ljóðum\, tónlist og hugvekjum um mikilvægi hamingjunnar í daglegu lífi okkar.\nLjóðskáldin Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Bhikshuni Weisbrot flytja ljóð um hamingjuna. Gunnar Hersveinn\, rithöfundur\, og Sigrún Daníelsdóttir\, sálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis\, flytja erindi um hamingjuna í samtímanum og tríóið Reykjavik Centre Music Group leikur tónlist. \nAðalsteinn Ásberg Sigurðsson\, skáld\, þýðandi\, tónlistarmaður og útgefandi er landsþekktur og eftir hann liggja ljóðabækur og önnur skáldrit fyrir börn og fullorðna svo og ljóðaþýðingar. Nýjasta ljóðabók hans með eigin ljóðum er Sjálfsmyndir frá árinu 2012. \nBhikshuni Weisbrot er skáld\, ritstjóri og formaður rithöfundasambands Sameinuðu þjóðanna (United Nations SRC Society of Writers). Hún er sérlegur gestur okkar á þessum hátíðardegi. Weisbrot\, ásamt Elizabeth Lara og Darrel Alejandro Holnes\, ritstýrði safni samtímaljóða undir heitinu Happiness: The Delight-Tree sem gefið var út á alþjóðadegi hamingjunnar árið 2015 og mun hún lesa ljóð úr bókinni ásamt eigin ljóðum. \nGunnars Hersveinn\, rithöfundur og heimspekingur\, er þekktur fyrir gefandi nálgun sína á málefni líðandi stundar og hefur hann m.a. fjallað um hvernig við ræktum okkar innri mann. Hann nefnir erindi sitt\, „Listin\, frelsið og hamingjan“. \nSigrún Daníelsdóttir nefnir sitt erindi „Skiptir hamingja máli fyrir heilbrigði þjóða?“ Sigrún er kunn fyrir bók sína Líkamsvirðing fyrir börn\, hún hefur kennt sálfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og starfar nú sem verkefnastjóri við geðrækt hjá Embætti landlæknis. \nReykjavik Centre Music Group er tónlistarhópur sem hefur sérhæft sig í tónlist Sri Chinmoy. Hópurinn hefur haldið fjölda tónleika og spilað undir m.a. í hugleiðslustundum og á viðburðum á vegum Sri Chinmoy miðstöðvarinnar hér á landi. \nHamingjustundin í Hannesarholti er öllum opin og ekkert kostar inn. Hún fer fram á kaffihúsinu og stendur í um klukkustund. Viðburðurinn verður á íslensku og ensku.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokakaffi-ad-yrkja-hamingjuna/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:Bókakaffi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/03/Ad-yrkja-hamingjuna_1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR