BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160920T200000
DTEND;TZID=UTC:20160920T200000
DTSTAMP:20160919T164654Z
CREATED:20160905T131445Z
LAST-MODIFIED:20160919T164654Z
UID:10000161-1474401600-1474401600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Gunnari Kvaran
DESCRIPTION:Gunnar Kvaran tónlistarmaður og lífskúnstner tekur á móti gestum og eys af andlegri auðlegð sinni í spili og spjalli. Gunnar leikur 6 saraböndur eftir Bach með jafnmörgum hugleiðingum sem hann les á milli verka. \nÍ framhaldi lýsir hann bernskunni í Þingholtunum og les frumsamda skemmtisögu úr tónlistarheiminum. Loks tekur Gunnar fyrirspurnir úr sal um hvaðeina sem fólki dettur í hug að spyrja um. \nVeitingastofur Hannesarholts bjóða upp á kvöldverð á sanngjörnu frá kl. 18:30.  Athugið að bóka þarf fyrirfram í síma 511 1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-gunnari-kvaran/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/09/Gunnar-við-skógarfoss-sumar-2010-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160921T200000
DTEND;TZID=UTC:20160921T200000
DTSTAMP:20160919T164812Z
CREATED:20160902T113407Z
LAST-MODIFIED:20160919T164812Z
UID:10000159-1474488000-1474488000@hannesarholt.is
SUMMARY:Svipmyndir - tónleikar
DESCRIPTION:Sigurður Helgi Oddsson\, tónskáld og píanóleikari\, frumflytur einsöngslög sín ásamt sópransöngkonunni Unni Helgu Möller. Lögin eru samin við ljóð Hannesar Péturssonar\, Erlu skáldkonu og fleiri íslenskra ljóðskálda. \nSigurður Helgi Oddsson lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri vorið 2004 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri tveimur árum síðar. Frá 2008 til 2011 stundaði hann tónlistarnám í Berklee College of Music í Boston\, Bandaríkjunum\, og lauk þaðan B.Mus. gráðu í píanóleik\, hljómsveitarstjórn og kvikmyndatónsmíðum. Hann hefur siðan þá starfað sem undirleikari\, stjórnandi og kennari á hinum ýmsu sviðum tónlistargeirans. \nUnnur Helga Möller er fædd og uppalin fyrir norðan. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 2005 og burtfararprófi í söng frá Tónlistarskólanum á Akureyri ári síðar. Frá 2007 til 2011 stundaði hún nám í óperusöng og sviðslistum við Universität Mozarteum í Salzburg\, Austurríki\, og Hochschule für Musik und Theater í Leipzig\, Þýskalandi. Að námi loknu sneri hún aftur heim til Íslands og hefur síðan þá m.a. sungið í kór Íslensku óperunnar og með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands\, ásamt því að koma fram sem einsöngvari við hin ýmsu tækifæri. \nÍ Hannesarholti miðvikudaginn 21. september kl. 20:00. \nVerð kr. 2000 \nAllir hjartanlega velkomnir. \nVeitingastofurnar eru opnar frá kl.18.30 og tilvalið að gera sér glaðan dag og fá sér fisk dagsins á undan tónleikunum. Borðapantanir til kl. 16 í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is \nMiðar á tónleikana eru seldir á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/svipmyndir-tonleikar/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/09/Sigurður-Helgi-og-Unnur-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160925T160000
DTEND;TZID=UTC:20160925T170000
DTSTAMP:20160916T115312Z
CREATED:20160915T130040Z
LAST-MODIFIED:20160916T115312Z
UID:10000508-1474819200-1474822800@hannesarholt.is
SUMMARY:Davíðsljóð - "á vondra manna jörð"
DESCRIPTION:Valgerður H.Bjarnadóttir fjallar um hugsjónina í verkum Davíðs Stefánssonar í dagskrá sem hú nefnir „á vondra manna jörð.“ Davíð Stefánsson var hugsjónamaður. Hann var frá unga aldri gagnrýninn á nær allar stofnanir samfélagsins og á mannanna verk\, jafnt sín eigin sem annarra. Hann aðhylltist sósíalisma um tíma\, var náinn vinur Einars Olgeirssonar\, Þóru Vigfúsdóttur og fleiri í hópi ungra sósíalista\, en svo fór hann til Sovét á alheimsþing og kom heim fremur afhuga þeirri stofnun. \n  \nEn ljóðin hans og önnur verk bera þess glögg merki að hann hataði hræsnina og valdið\, hvort sem var trúarlegt\, pólitískt\, efnahagslegt eða persónulegt\, og hann berst gegn því alla ævi. Hann gerði sér ljósa grein fyrir að ekki dugir að horfa bara á aðra\, hann barðist líka gegn þeim þáttum í sjálfum sér. \nBrot úr ljóðinu BARNIÐ Í ÞORPINU: \nHann veiktist snemma af kulda og kröm\, \nþví kjör hans voru hörð.  \nOg oft er minna um mildi og líkn \nen messur og bænagjörð. \nHann er og verður vitskert barn \ná vondra manna jörð.  \n  \nÍ þessari dagskrá mun Valgerður flytja nokkur af hugsjónaljóðunum\, lesa kafla úr leikritum og úr bréfum Davíðs til vina sinna og leyfa huganum að reika um það sem kann að vera í kringum ritverk hans og á bak við þau. \n\nValgerður H. Bjarnadóttir ólst upp með ljóðum og öðrum verkum Davíðs\, eins og þúsundir annarra Íslendinga. Hún las þau\, lærði og tengdist sumum þeirra sterkum böndum. S.l. sumur hefur hún gegnt hlutverki húsfreyju í Davíðshúsi og sökkt sér á ný inn í þennan heim ástar\, sögu\, trúar\, ævintýra og þjáningar\, sem fáir hafa náð að mála eins sterkum litum og Davíð. Þar hefur hún vikulega verið með dagskrá um ljóðin og líf Davíðs út frá ólíkum sjónarhornum og Hannesarholt býður upp á sýnishorn úr þeirri dagskrá sunnan heiða. Valgerður er félagsráðgjafi með MA í trúarheimspeki og menningarsögu.   \n  \nDagskráin fer fram í veitingastofu Hannesarholts kl. 16 til 17. Gott er að mæta ekki seinna en kl. 15:30 til að fá borð og geta fengið sér veitingar áður en dagskráin hefst. \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/davidsljod-a-vondra-manna-jord/
LOCATION:Hannesarholt veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:Davíðsljóð
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/09/LiticamHHvalgdavid-10-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR