BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161004T200000
DTEND;TZID=UTC:20161004T200000
DTSTAMP:20160919T165133Z
CREATED:20160916T163353Z
LAST-MODIFIED:20160919T165133Z
UID:10000511-1475611200-1475611200@hannesarholt.is
SUMMARY:Þórunn hyrna og Auður djúpúðga - einleikur og spjall
DESCRIPTION:Valgerður H. Bjarnadóttir fer hér í hlutverk Þórunnar hyrnu\, landnámskonu í Eyjafirði\, sem segir sögu sína og systur sinnar. \nSagan geymir nokkur minni um Auði\, líf hennar\, uppruna og dauða\, en við vitum minna um systur hennar Þórunni. Þeir Íslendingar sem eiga rætur í þessu landi geta þó flestir ef ekki allir rakið ættir sínar til þeirra systra og víst er að þær hafa haft veruleg áhrif á mótun síns samfélags við landnám. Þetta voru sigldar konur\, sem höfðu kynnst ólíkum trúarbrögðum og menningarsamfélögum og báru án efa mikilvæg gildi hingað til lands\, gildi sem ekki er úr vegi að rifja upp. \nÍ þessari sögu nýtir Valgerður það sem skráð er um þær systur og þeirra samtíma í okkar fornu ritum\, en einnig það sem varðveist hefur um konur og þeirra menningu í öðrum samfélögum og sem hugsanlega má yfirfæra á sögu þeirra systra. \nValgerður er félagsráðgjafi\, með MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu. Hún hefur haft brennandi áhuga á Auði frá barnsaldri\, en Þórunn kom ekki af alvöru inn í líf hennar fyrr en hún tók að sér að vinna leikþátt um hana í Laxdalshúsi 2010. Þá vaknaði löngun til að kynnast henni betur og þau kynni eflast og dýpka með árunum. \nHér er Þórunn sett í forgrunn og fær það hlutverk að segja eigin sögu og flétta þar inn í sögu samferðafólks síns\, þó sérstaklega Auðar. Leikþátturinn er rúmur hálftími\, sem fylgt er eftir með umræðum. \nVeitingastofur Hannesarholts bjóða upp á kvöldverð á sanngjörnu frá kl. 18:30.  Athugið að bóka þarf fyrirfram í síma 511 1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/audur-djupudga-og-thorunn-hyrna/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Sagnakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/09/Valgerðurásteini-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161008T200000
DTEND;TZID=UTC:20161008T200000
DTSTAMP:20161008T131557Z
CREATED:20161007T102716Z
LAST-MODIFIED:20161008T131557Z
UID:10000170-1475956800-1475956800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sónötur Brahms fyrir píanó og fiðlu
DESCRIPTION:Bjarni Frímann Bjarnason og Pétur Björnsson  leika sónötur eftir Brahms í Hannesarholti laugardaginn 8.október. Á efnisskránni eru: \nSónata fyrir píanó og fiðlu nr 1 eftir Johannes Brahms op. 78 \nSónata fyrir píanó og fiðlu nr. 2 eftir Johannes Brahms op. 100 \nSónata fyrir píanó og fiðlu nr. 3 eftir Johannes Brahms op. 108 \n  \nPétur Björnsson er fæddur árið 1994. Hann útskrifaðist með framhaldspróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík haustið 2015 en kennarar hans þar voru Guðný Guðmundsdóttir og Ari Þór Vilhjálmsson. Síðan hefur hann stundað nám við Tónlistarháskólann í Leipzig undir handleiðslu Elfu Rúnar Kristinsdóttur. \nPétur hefur verið varamaður með hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2012 og er  í strengjasveitinni Skark frá árinu 2013. Þá hefur hann leikið með ensembleKONTRASTE hljómsveitinni í Nürnberg og Caput kammersveitinni í Reykjavík. Í nemendahljómsveitum Tónlistarskóla Reykjavíkur\, Ungsveit sinfóníunnar og háskólahljómsveitinni í Leipzig hefur Pétur gegnt starfi konsertmeistara. Sem sólisti hefur hann komið fram með Hljómsveit Tónlistarkólans í Reykjavík haustið 2014 er hann lék fiðlukonsert Antonin Dvorák og með Stradivari ensemble í Vancouver í febrúar 2016 er hann lék Rondo Cappricioso eftir Camille Saint-Saens. Að auki hefur Pétur sótt ýmis námskeið á Íslandi og erlendis og sótt masterclassa hjá tónlistarmönnum í fremstu röð. Þar má nefna Christian Tetzlaff\, Ilya Gringolts\, Carolin Widmann\, Jorja Fleezanis\, Philippe Graffin\, Sergei Ostrovsky\, Robert Rozek og Mariana Sirbu. \nBjarni Frímann Bjarnason fæddist í Reykjavík 1989. Hann lauk Bachelorprófi í fiðlu- og lágfiðluleik frá Listaháskóla Íslands árið 2009  þar sem kennarar hans voru Guðný Guðmundsdóttir og Halldór Haraldsson. Í kjölfarið nam hann vélaverkfræði við Háskóla Íslands og hljómsveitarstjórn við Hochschule für Musik „Hanns Eisler“ í Berlín undir handleiðslu Fred Buttkewitz. \nBjarni Frímann hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands\, CAPUT\, Kammersveit Reykjavíkur\, Sinfóníulhjómsveit Unga Fólksins\, Philharmonisches Orchester Frankfurt a.d. Oder og ýmsum smærri hópum. Hann hefur komið fram sem fiðlu- og lágfiðluleikari á fjölmörgum tónlistarhátíðum bæði innan lands sem utan. Þá hefur hann á seinni árum haslað sér völl sem undirleikari og hefur komið fram sem slíkur m.a. með Angeliku Kirchschlager í Konzerthaus í Vín\, leikið fjórhent með Helmut Deutsch í Fílharmóníunni í Berlín og í Vínarborg. \nBjarni Frímann stýrði í haust sem leið flutningi á UR_\, óperu Önnu Þorvaldsdóttur\, við Óperuna í Osló\, leikhúsin í Chur og Basel og mun á Listahátíð Í Reykjavík stýra óperunni í Hörpu.\nÞá hefur hann á undanförnum misserum fengist við að skrifa tónlist í kvikmyndir og leikhús og er nýlokinn við tónlistarstjórnum í uppsetningu Þorleifs Arnar Þorleifssonar á Villiönd og Þjóðníðingi Ibsens fyrir Þjóleikhús Norðmanna í Osló. \nBjarni Frímann var útnefndur Bjartasta Vonin í flokki sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2015. \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-bjarna-frimanns-og-peturs/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/10/Bjarni-og-Petur.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR