BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161101T200000
DTEND;TZID=UTC:20161101T200000
DTSTAMP:20161101T175331Z
CREATED:20160926T221749Z
LAST-MODIFIED:20161101T175331Z
UID:10000513-1478030400-1478030400@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntaspjall - Gunnar Theodór Eggertsson
DESCRIPTION:Gunnar Theodór Eggertsson spjallar um dýrasögur og barnabækur og fantasíur og hvað annað sem kemur upp í hugann í bókmenntaspjalli. Hann varði nýlega doktorsritgerð sína í almennri bókmenntafræði\, sem nefnist Eiginleg dýr: Athuganir á veröldum dýra í tungumáli\, menningu og sagnahefð\, eða Literal Animals: An Exploration of Animal Worlds through Language\, Culture and Narrative\, við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. \nÍ ritgerðinni færir Gunnar Theodór rök fyrir pólitísku og siðfræðilegu mikilvægi dýrasagna og skilgreinir þær sem róttækt form andófsbókmennta þar sem gagnrýnd er stigveldishugsunin í samtíma okkar um manninn sem kórónu sköpunarverksins. Með því að leggja áherslu á hinar svokölluðu „raunsæju“ dýrasögur\, eða það sem höfundurinn kallar „náttúruvísindaskáldskap“\, er dregin sú ályktun að með því að „líkamnast“ inn í dýrslegar aðalpersónur öðlist lesendur innsýn í öðruvísi hugsunarhátt um samband manna og dýra. Dýrabókmenntir eru færðar í heimspekilegt og siðfræðilegt samhengi\, til þess að draga fram alls kyns flækjur tengdar mannmiðjuhugsun og því að ímynda sér huglægt sjónarhorn annarra tegunda\, en sögurnar eru oftar en ekki ritaðar í fyrstu persónu. Þannig vakna fjölmargar spurningar um áhrif dýrasagna\, siðfræðilega og heimspekilega séð\, og hvernig þær geta mótað hugsun okkar um önnur dýr. Svör við þeim spurningum eru hins vegar æði flókin og þótt meginefni ritgerðarinnar sé hin „raunsæja“ dýrasaga sem bókmenntahefð þá eru ýmsar hindranir til staðar sem þarf að tækla áður en hægt er að ávarpa sjálfar dýrasögurnar\, svo sem tungumálið\, menningarmismun\, mannmiðjuhugsun og ekki síst beina og óbeina hagsmuni samfélags sem hlutgerir dýr sem neysluvörur. \nÁ heildina litið snýst ritgerðin um að endurskilgreina dýrasögur sem kraftmikla og mikilvæga bókmenntahefð\, sem býr yfir pólitískri og siðfræðilegri þýðingu í samfélögum þar sem tilvist annarra dýra er talin mannfólkinu óviðkomandi. Af þeim sökum álítur höfundurinn að dýrasagan þurfi að komast aftur í fremstu víglínu umræðunnar. Vonin sem liggur ritgerðinni að baki er sú að hún hjálpi lesendum\, höfundum\, fræðifólki og útgefendum að skynja dýrasögur á nýjan og ögrandi hátt. \nGunnar Theodór Eggertsson er fæddur 9. janúar 1982. Hann lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 2005\, með listfræði sem aukagrein\, og MA-prófi í kvikmyndafræði frá Háskólanum í Amsterdam árið 2006. Auk kennslu- og rannsóknarstarfa hefur Gunnar skrifað nokkrar bækur fyrir börn og ungmenni og hlaut m.a. Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Steindýrin árið 2008 og tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Drauga-Dísu árið 2015.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntaspjall-gunnar-theodor-eggertsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/09/GunnarTheodorEggertsson2_ElsaMagnusdottir2012-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161103T200000
DTEND;TZID=UTC:20161103T200000
DTSTAMP:20161101T103752Z
CREATED:20161031T182205Z
LAST-MODIFIED:20161101T103752Z
UID:10000175-1478203200-1478203200@hannesarholt.is
SUMMARY:Gljúfrasteinn: Þrautsegja\, þunglyndi og bækur
DESCRIPTION:Gljúfrasteinn – hús skáldsins stendur fyrir viðburði í Hannesarholti  \nDavid Baldwin prófessor í geðlæknisfræðum við Háskólann í Southampton\, mun greina frá rannsókn sinni „Self-standing folk: representation of resilience in the novels of Halldór Laxness“. David fékk brennandi áhuga á verkum Halldórs eftir að hafa lesið Sjálfstætt fólk. Í kjölfarið las hann allar skáldsögur Laxness sem komið hafa út á ensku og heillaðist sérstaklega af persónusköpun skáldsins\, þrautseigju og seiglu persónanna sem búa við erfiðar aðstæður. Þessi skáldaði veruleiki og innsæi sem persónur Halldórs Laxness búa yfir er í samræmi við niðurstöður rannsókna á áhættuþáttum varðandi sjálfsvíg og á því hvernig manneskjan bregst á einstaklingsbundinn hátt við mótlæti. Í rannsóknum sínum hefur David skoðað leiðir til að bæta líðan sjúklinga sem þjást af þunglyndi og kvíða. Niðurstöður eigindlegra rannsókna á áhættuþáttum sjálfsvíga á sviði þjóðfræði\, það er í ólíkum samfélögum\, urðu til þess að hann ákvað að kanna hvort auka mætti þekkingu á þessum áhættuþáttum með því að greina hvernig viðkvæmni og þrautseigja andspænis erfiðum aðstæðum birtist í skáldsögum Laxness\, bæði á einstaklings- og samfélagssviðinu. \nÓttar Guðmundsson geðlæknir og Steinunn Inga Óttarsdóttir bókmenntafræðingur munu bregðast við hugleiðingum Davids\, auk þess sem gestum verður gefinn kostur á að spyrja spurninga og taka þátt í samtalinu.  Jórunn Sigurðardóttir stjórnar umræðum. \nViðburðurinn fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis. \n  \n  \n  \nhttp://www.gljufrasteinn.is/is/frettir/rautseigja_unglyndi_og_baekur/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gljufrasteinn-thrautsegja-thunglyndi-og-baekur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks),Sögustund
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/10/David-S.-Baldwin.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161104T120000
DTEND;TZID=UTC:20161104T120000
DTSTAMP:20161028T142109Z
CREATED:20161028T140141Z
LAST-MODIFIED:20161028T142109Z
UID:10000172-1478260800-1478260800@hannesarholt.is
SUMMARY:Airwaves - Off-Venue dagskrá
DESCRIPTION:KÍTÓN blæs til Off venue Iceland Airwaves tónlistarveislu í Hannesarholti. Fram koma tónlistarkonur úr öllum áttum og mun dagskráin endurspegla fjölbreytileika tónlistarkvenna á Íslandi. \nFram koma:\n12.00 – 12.40 Sigga Eyrún\n12.40 – 13.20 Védís Hervör\n13.20 – 14.00 Hinemoa\n14.00 – 14.40 Elín Halldórsdóttir\n14.40 – 15.20 Rebekka Sif\n15.20 – 16.00 Myrra Rós\n16.00 – 16.40 Una Stef\n16.40 – 17.20 Ragga Gröndal\n17.20 – 18.00 Elíza Newman\n18.00 – 18.40 Jana María\n18.40 – 19.20 Ingunn Huld\n19.20 – 20.00 Alda Dís
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/airwaves-off-venue-dagskra/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/10/Kíton-off-venue-airwaves.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161105T080000
DTEND;TZID=UTC:20161105T170000
DTSTAMP:20161107T201544Z
CREATED:20161105T214752Z
LAST-MODIFIED:20161107T201544Z
UID:10000516-1478332800-1478365200@hannesarholt.is
SUMMARY:Sagnakvöld
DESCRIPTION:Sagnameistarinn Einar Kárason deilir með gestum sögum í gamni og alvöru\, af fólki sem hann hefur kynnst\, ferðum sem hann hefur farið\, meðal annars um sálarháska hans og föður hans vegna tóbaksleysis í verkfalli. \nVeitingahúsið opið frá 18.30 fyrir þá sem vilja gæða sér á léttum kvöldverði á undan. Borðapantanir í 511-1904. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sagnakvold/
CATEGORIES:Sagnakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/EinarKarson_72.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161105T140000
DTEND;TZID=UTC:20161105T140000
DTSTAMP:20161026T144622Z
CREATED:20161004T001252Z
LAST-MODIFIED:20161026T144622Z
UID:10000169-1478354400-1478354400@hannesarholt.is
SUMMARY:Shostakovich - Beethoven nútímans
DESCRIPTION:Í tilefni 110 ára afmælis rússneska tónskáldsins Shostakovich. Um Shostakovich lét hinn heimsfrægi sellóleikari Rostrapovich þau orð falla að hann væri Beethoven nútimans. \nÁ tónleikanum koma fram eftirfarandi flytjendur: Nína Margrét Grímsdóttir – píanóleikari\, Sigurður Halldórsson – sellóleikari\, Hildigunnur Halldórsdóttir – fiðluleikari og Alexandra Chernyshova – sópran söngkona. \nFlutt verður í fullri lengd eitt af frægustu verkum Dimitry Shostakovich – Rómönsusvíta / Romanzen Suite\, Op.127 fyrir sópran\, fiðlu\, selló og píanó\, ljóð eftir Alexander Blo k (1880 – 1921). Þetta tónlistarverk sem er sannarlega eitt af áhrifamestu verkum Dmitry Shostakovich  er samið 1967. Aleksandr Blok skrifaði ljóðið um aðalkarakter verksins spáfuglinn “Ptiza Gamajun” þegar hann var bara tvítugur að aldri. Alexanders hafði staðfasta trú á ljóðsköpun sem frelsi harmoníunnar og lifsins. Verkið verður flutt á upprunalegu tungumáli verksins\, rússnesku. \nN.1. Lied der Ophelia ( sópran og selló )\nN.2. Gamajun\, der Prophetenvogel ( sópran og píanó )\nN.3. Wir waren zusammen ( sópran og fiðla )\nN.4. Die Stadt schlaft ( sópran\, píanó og selló )\nN.5. Sturm ( sópran\, píanó og fiðla )\nN.6. Geheimnisvolle Zeichen ( sópran\, fiðla og selló )\nN.7. Musik ( sópran\, fiðla\, selló og píanó ) \nÁ tónleikanum verður einnig flutt önnur perla Shostakovich – Sónata fyrir selló og píanó\, Moderato\, Op. 40 sem hann samdi árið 1934. \nGuðrún Ásmundsdóttir kynnir. \nMiðaverð er 2.900 kr og fyrir eldri borgara\, öryrkja og skólanema 2.000 kr. \nVeitingastofa Hannesarholts er opin á laugardaginn frá kl.11:00 til 17:00\, tilvalið að fá sér brunch eða kaffi áður eða eftir tónleikana. Nánari upplysingar í síma 5111904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/shostakovich-beethoven-nutimans-110-ara/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/10/Skorið-_Sostakovich-plakat.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161105T163000
DTEND;TZID=UTC:20161105T163000
DTSTAMP:20161028T142216Z
CREATED:20161028T141941Z
LAST-MODIFIED:20161028T142216Z
UID:10000173-1478363400-1478363400@hannesarholt.is
SUMMARY:Airwaves - Off Venue dagskrá
DESCRIPTION:Frábær og fjölbreytt tónlistardagskrá Off-venue Iceland Airwaves í Hannesarholti. Söngleikjatónlist\, klassík\, þjóðlagatónlist\, popp… aðgangur ókeypis!\n16:30 Lára og Hjalti\nHjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir hafa spilað og sungið saman í rúm tíu ár. Tónlistarbakgrunnur þeirra er ólíkur\, Hjalti söng t.d. með þungarokkssveit en á og að baki klassískt söngnám. Lára er með einleikarapróf á fiðlu og samsláttur ólíkra heima er tilfinnanlegur í flutningi þeirra. Tónlistin er í grunninn melódísk\, angurvær þjóðlagatónlist með klassískum blæ.\nhttps://www.youtube.com/watch?v=baVp1vzkyCE \n17:10 Björt Venue\nBjört Venue samanstendur af Jónínu Björt Gunnarsdóttur sem syngur\, Ásbjörg Jónsdóttir á píanó og Þór Adam Rúnarsson á trommur/kassa. Að þessu sinni flytja þau sönleikjatónlist sem spannar vítt svið tónlistarstefna\, allt frá klassík upp í rokk. \n18:00 Rökkva\nRökkva er hljómsveit frá Selfossi og hefur verið að gera góða hluti undanfarið með upptökum\, spilamennsku og kvikmyndagerð í samstarfi við ýmsa góða aðila. Rökkva var einnig að koma úr tónleikaferð frá Írlandi þar sem hljómsveitin fékk gríðarlega góðar viðtökur á listahátíðinni Five Glens Arts Festival.\nRökkva spilar létta og kósý tónlist með píanóspili\, fiðlum og röddum.\nwww.rokkva.com \n18:40 Blindur – frá Ítalíu\nwww.facebook.com/blindur\nwww.youtube.com/blindurofficial \n19:30 Umbra\nUmbra var stofnuð haustið 2014 og er skipaður fmm atvinnutónlistarkonum; Alexöndru Kjeld\, sem leikur á kontrabassa og syngur\, Arngerði Maríu Árnadóttur sem leikur á orgel\, keltneska hörpu og syngur\, Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur sem spilar á fðlu og syngur\, Kristínu Þóru Haraldsdóttur sem leikur á lágfðlu og syngur og Lilju Dögg Gunnarsdóttur sem er aðalsöngkona hópsins. Hópurinn hefur frá upphaf unnið að því að skapa öðruvísi stemningu á tónleikum\, ná til nýrra áhorfenda\, kanna ný rými og vinna markvisst með þann hljóðheim sem hlýst af\nhttps://soundcloud.com/umbraiceland
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/airwaves-off-venue-dagskra-2/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/10/Ariwaves-facebook-3-skorið.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR