BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161228T170000
DTEND;TZID=UTC:20161228T170000
DTSTAMP:20161227T002821Z
CREATED:20161117T002959Z
LAST-MODIFIED:20161227T002821Z
UID:10000521-1482944400-1482944400@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar - Rannveig Marta Sarc
DESCRIPTION:Rannveig Marta Sarc flytur eftirlætisverk á klukkustundarlöngum tónleikum í Hljóðbergi . Bjarni Frímann leikur með á píanó. \nJ.S. Bach- Sónata nr. 3 í E dúr BWV 1016\nBela Bartok- Rhapsodia nr. 1\nMaurice Ravel- Sónata nr. 2 í G dúr\nFritz Kreisler- Viennese Rhapsodic Fantasietta \nRannveig Marta Sarc\, fædd 1995 í Slóveníu\, hóf fiðlunám 4 ára gömul. Árið 2006 flutti hún til Íslands og gerðist nemandi Lilju Hjaltadóttur við Allegro Suzuki tónlistarskólann. Rannveig lauk framhaldsprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2014\, undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur en þar sótti hún einnig lágfiðlutíma hjá Þórunni Ósk Marinósdóttur. Rannveig hefur sigrað margar keppnir\, má þar helst nefna TEMSIG- Slóvensk tónlistarkeppni fyrir ungmenni\, Nótan og Ungir einleikarar. Rannveig hefur komið fram sem einleikari með Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík\, Slóvensku filharmonijunni\, tvívegis með Sinfóníuhljómsveit Íslands og næsta vor mun hún leika Brahms fiðlukonsertinn með Ungfóníunni. Rannveig hefur gríðarlegan áhuga á kammertónlist\, hún hefur komið fram með Cammerarctica á tónleikaröð þeirra Mozart við kertaljós og í haust var strengjakvartett hennar valinn sem heiðurskvartett í skólanum. Rannveig hefur sótt ýmis alþjóðleg námskeið\, þar á meðal the Kneisel Hall Chamber Music Festival\, NAC- Young Artists Program\, Heifetz Institute\, Sarasota Music Festival\, Tónlistarhátíð unga fólksins og Aljóðlegu tónlistarakademíuna í Hörpu. Kennarar hennar voru meðal annars Pinchas Zukerman\, Ronald Copes\, Elmar Oliveira\, Sibbi Bernharðsson\, Ari Þór Vilhjálmsson\, Ilya Kaler og Grigory Kalinovsky. Rannveig er á þriðja ári í bakkalárnámi við The Juilliard School í New York\, þar sem hún er nemandi Laurie Smukler. Rannveig spilar fjölbreytta tónlist\, hún sækir einnig tíma á barrokk fiðlu og kemur oft fram nútímahljómsveitinni New Juilliard Ensemble. \nTónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg. \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-rannveig-marta-sarc/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Farfuglatónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/Rannveig-Marta.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161228T200000
DTEND;TZID=UTC:20161228T200000
DTSTAMP:20161227T002353Z
CREATED:20161117T004218Z
LAST-MODIFIED:20161227T002353Z
UID:10000523-1482955200-1482955200@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar - Magnús Hallur Jónsson
DESCRIPTION:Magnús Hallur Jónsson óperusöngvari og  flytur þýskar óperettur og Kino lög. Bjarni Frímann Bjarnason leikur með á flygilinn. \nMagnús Hallur hefur dvalið við söngnám í Berlín og lærði í Hochschule für Musik „Hans Eisler\,“ en er nú í einkanámi hjá Nenu Brzakovic og Evu Zwedberg.  Í Berlín hefur hann komið fram sem sólóisti í Staatsoper Berlin\, Konzerthaus Berlin\, á vegum Deutsche Oper Berlin og í Neuköllner Oper. Hann syngur reglulega með Solistenensemble Phønix16\, hópi sem flytur nútímatónlist fyrir söngvara.  Magnús vinnur líka reglulega með OperaLab Berlin\, og Musiktheaterkollektiv Hauen und Stechen.  Á Íslandi lærði hann hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Bergþóri Pálssyni í Söngskólanum í Reykjavík.  Hann hefur sótt masterclass hjá Kiri Te Kanawa og leikstjóranum Christoph Marthaler. \nEfnisskrá:\n\nJohannes Brahms\nBotschaft\nMinnelied\nMeine Liebe ist grün\n\nJean Sibelius\nFlickan kom ifrån sin älsklings möte\nDiamanten på marsnön\nSvarta Rosor\n\nOperetten lieder\nDein ist mein ganzes Herz\, Franz Lehár\nEs muss was wunderbares sein\, Ralph Benatzky\nDu bist die Welt für mich\, Richard Tauber\n\nKino lieder\nEin Lied geht um die Welt\, Hans May\nHeute nacht oder nie\, Mischa Spoliansky\nOb blond ob braun\, ich liebe alle Frau’n\, Robert Stolz\nTónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-magnus-hallur-jonsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Farfuglatónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/magnus_jonsson_antjetaiga4_s.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161229T170000
DTEND;TZID=UTC:20161229T170000
DTSTAMP:20161227T002742Z
CREATED:20161117T010313Z
LAST-MODIFIED:20161227T002742Z
UID:10000522-1483030800-1483030800@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar - Björg Brjánsdóttir og Bryndís Þórsdóttir
DESCRIPTION:Bryndís Þórsdóttir nemur fagottleik við Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Kennarar hennar þar eru Audun Halvorsen og Sebastian Stevensson\, báðir sólófagottleikarar Dönsku útvarpshljómsveitarinnar. Bryndís hefur verið aukamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá hausti 2013 og var á sex vikna samningi hjá þeim haustið 2016. Hún er einnig aukamaður hjá Dönsku útvarpshljómsveitinni og Sinfóníuhljómsveit Sjálands. \nBjörg Brjánsdóttir nemur þverflautuleik við Tónlistarháskóla Noregs í Osló. Kennarar hennar þar eru Per Flemström\, sólóflautuleikari í Oslóarfílharmóníunni\, og Andrew Cunningham\, fyrrum piccololeikari sömu hljómsveitar. Hún stundaði einnig nám við Tónlistarháskólann í München í eitt ár þar sem kennarar hennar voru Stephanie Hamburger og Natalie Schwaabe. Björg hefur spilað einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt því að vera aukamaður þar síðan vorið 2016. Hún hefur einnig spilað með Íslensku Óperunni\, Caput\, Neue Philharmonie München\, Forsvarets Stabsmusikkkorps í Osló og fleiri hljómsveitum. \nBjörg og Bryndís leika ljúfa en fjölbreytta tónlist\, allt frá jólalegri barokksónötu til brasilískrar svítu. Þær hafa spilað saman síðan árið 2008\, aðallega í smáum kammerhópum\, svo sem tríóum og kvintettum\, en einnig í hljómsveitum svo sem Ungsveit SÍ\, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á árunum 2010 – 2012 stunduðu þær nám saman við Tónlistarskólann í Reykjavík og hafa einnig heimsótt tónlistarháskóla hvor annarrar í Osló og Kaupmannahöfn til að sækja spilatíma og til að spila saman. \nEfnisskrá tónleikanna sem standa yfir í u.þ.b. klukkustund. \nG. F. Händel: Sónata í F-dúr \nSkolnik: Serenaða fyrir flautu og fagott \nC. P. E. Bach: Sónata í a moll fyrir einleiksflautu \nVilla-Lobos: Bachianas Brasileras nr. 6 fyrir flautu og fagott \nÝmsir: Hátíðarsvíta (útsetning Björg Brjánsdóttir) \nTónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-bjorg-brjansdottir-og-bryndis-thorsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Farfuglatónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/BjörgogBryndís.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161229T200000
DTEND;TZID=UTC:20161229T200000
DTSTAMP:20161227T003357Z
CREATED:20161117T011505Z
LAST-MODIFIED:20161227T003357Z
UID:10000524-1483041600-1483041600@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar - Rakel Björt Helgadóttir
DESCRIPTION:Rakel Björt Helgadóttir nemur hornleik í Berlín. Hún hóf hornnám 9 ára gömul við Tónlistarskólann á Seltjarnarnesi þar sem kennari hennar var lengstum Anna Sigurbjörnsdóttir. Árið 2007 hóf hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík þaðan sem hún lauk Burtfararprófi undir handleiðslu Josephs Ognibene vorið 2012. Þaðan lá leið hennar til Þýskalands þar sem hún hóf nám við Folkwang Universität der Künste í Essen. Frá vormánuðum 2014 hefur Rakel stundað nám við Universität der Künste Berlin en þar hefur hún notið handleiðslu kennara á borð við Ozan Çakar\, Přemysl Vojta\, Prof. Ch-Fr. Dallmann og Sebastian Posch. Rakel hefur auk þess sótt fjölda Masterklassa hjá kennurum á borð við Frøydis Ree Wekre\, Radovan Vlatkovic\, Prof. Thomas Hauschild o.f.l. Hún hefur verið aukamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan vorið 2012. Auk þess hefur hún leikið sem aukamaður með hljómsveitum á borð við Deutsche Sinfonieorchester Berlin\, Kammerphilharmonie Wernigerode og Berliner Sinfonietta. Rakel er meðlimur í c/o chamber orchestra. \nEfnisskrá: \nLudwig van Beethoven: Horn Sonata í F-dúr op. 17\nKlement Slavický: Capricci per corno e pianoforte                                                                                                                             Robert Schumann: Fantasiestücke\, Op. 73 \nMeðleikari hennar á þessum klukkustundarlöngu tónleikum er Anna Guðný Guðmundsdóttir. \n  \nTónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-rakel-bjort-helgadottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Farfuglatónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/RAkel-Björt-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161230T170000
DTEND;TZID=UTC:20161230T170000
DTSTAMP:20161227T003753Z
CREATED:20161117T014125Z
LAST-MODIFIED:20161227T003753Z
UID:10000525-1483117200-1483117200@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar - Sólveig Steinþórsdóttir
DESCRIPTION:Sólveig Steinþórsdóttir stundar fiðlunám við listaháskólann í Berlín. Hún hóf fiðlunám þriggja ára gömul hjá Lilju Hjaltadóttur við Allegro Suzukitónlistarskólann. Á árunum 2008-2013 var hún nemandi Guðnýjar Guðmundsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Frá haustinu 2014 hefur hún stundað nám við Listaháskólann í Berlín\, Universität der Künste Berlin\, undir handleiðslu Eriku Geldsetzer. Sólveig hefur sótt fjölda meistaranámskeiða hér heima og erlendis\, m.a. í Þýskalandi\, Sviss\, Bandaríkjunum\, Hollandi og á Ítalíu. Hún hefur spilað fyrir marga virta fiðluleikara\, þar á meðal Christian Tetzlaff\, Ulf Hoelscher\, Roland Vamos og Philippe Graffin. Sólveig hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands á jólatónleikum árin 2009 og 2011 og á tónleikunum Ungir einleikarar árið 2013. Ennfremur hefur hún komið fram sem einleikari með hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík árið 2010\, á hátíðartónleikum á Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar í Hörpu árið 2013\, á lokatónleikum á Internationale Sommerakademie Cervo á Ítalíu árið 2015 og 2016 og með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins árið 2015. Í mars 2016 sótti Sólveig námskeið í Neustadt an der Weinstraße hjá Sebastian Schmidt og tók þar þátt í fiðlukeppni á vegum námskeiðsins og fékk þar 2. verðlaun. Í ágúst 2016 kom Sólveig fram á opnunartónleikum Tónlistarhátíðar unga fólksins þar sem leikin voru verk fyrir fiðlu og selló\, í kjölfar tónleikakeppni hátíðarinnar. \nAnna Guðný Guðmundsdóttir spilar með á flygilinn. Tónleikarnir standa yfir í u.þ.b. klukkustund. \nEfnisskrá: \nL. van Beethoven: Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 8 í G-dúr\, op. 30 \nE. Ysaye: Sónata fyrir einleiksfiðlu op. 27 nr. 6 S. \nProkofiev: Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 2 í D-dúr\, op. 94a \nTónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-solveig-steinthorsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Farfuglatónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/SólveigSteingríms-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR