BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170103T000000
DTEND;TZID=UTC:20170103T000000
DTSTAMP:20170105T132702Z
CREATED:20161201T131731Z
LAST-MODIFIED:20170105T132702Z
UID:10000530-1483401600-1483401600@hannesarholt.is
SUMMARY:Olivier Manoury - Litir vatns og jarðar- myndlistarsýning
DESCRIPTION:Litir vatns og jarðar – vatnslitamyndir eftir Olivier Manoury. Sýningin prýðir veggi Hannesarholts til 20. janúar. \n„Ég er þeirrar skoðunar að efnistök og stíll eigi rætur sínar að rekja til eilífðartogstreitu hæfileika og takmarkana. Mín eigin myndverk eru einfaldlega tilraun til að reyna að fanga síbeytilegt ljós og andrými náttúrunnar sem og manngerðs umhverfis.“ \n– Olivier Manoury\nOlivier Manoury (f. 1953 í Tulle í Frakklandi) ólst að mestu upp í París. Hann var alla tíð listhneigður og hóf myndlistarnám sem barn að aldri. Síðar las hann ensku og bókmenntir við Sorbonne háskóla og lauk þaðan meistaraprófi í nútímabókmenntum árið 1975. Samhliða háskólanámi var hann í listaháskóla Parísarborgar (Ecole National des Beaux Arts) þar sem hann lagði stund á málaralist hjá Gustave Singier og Jacgues Yankel\, auk þess að læra höggmyndalist hjá Etienne Martin. \nDrýgstan hluta ævi sinnar hefur Olivier þó starfað sem tónlistarmaður\, enda er hann er vel þekktur sem bandóneonleikari í Frakklandi og víðar um heim. Hann hefur samið tónlist fyrir kvikmyndir\, leikhús og danssýningar\, spilað inn á fjölda geisladiska\, auk þess að leika á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu og Suður-Ameríku. Olivier leikur bæði tangó og jass en meðal þeirra hljómsveita sem hann hefur stofnað eru Tangoneon\, Tempo Di Tango og Le Grand Tango. Síðasnefnda hljómsveitin er Íslendingum að góðu kunn\, en hún er skipuð þekktum hljóðfæraleikurum úr íslensku tónlistarlífi. \nMyndlistarmaðurinn Olivier Monoury talar um verkin sín:\n„Margir málarar af klassíska skólanum notuðu vatnslitamyndir með sama hætti og við notum myndavélar; til þess að fanga augnablikið\, muna útlínur\, kompósisjón og liti. Vatnslitaskissan var síðan notuð til þess að fullvinna olíumálverk á vinnustofunni. \nÉg á vitaskuld myndavél og því er vatnslitaskissan ekki áfangi á lengri leið fyrir mig\, heldur markmið í sjálfu sér. Steinar á hraunbreiðu eru ekki teiknaðir og einungis örfáir skuggar og blettir verða að duga til að vekja í hugskoti áhorfandans einskonar minningu um hraun eða vegaspotta. Það hefur vakið athygli mína að í Frakklandi „þekkir“ fólk ekki hraunbreiðu eða svarta sanda þar sem það hefur aldrei borið slíkt augum. Vissulega gerir það sér grein fyrir andrými og náttúrufegurð í slíkri mynd\, en fremur á afstæðan hátt. Sterkari tilfinningar byggjast á því að þekka hina raunverulegu fyrirmynd rétt eins og maður kann betur að meta góða portrettmynd ef maður þekkir viðkomandi fyrirmynd. Tilfinningarnar sem málverk vekja upp byggjast því ekki einugis á skynrænni reynslu heldur einnig vitsmunalegri.“
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/olivier-manoury-andrymi-natturunnar-myndlistarsyning/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/12/útsog.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170103T170000
DTEND;TZID=UTC:20170103T170000
DTSTAMP:20170101T163853Z
CREATED:20161222T120930Z
LAST-MODIFIED:20170101T163853Z
UID:10000188-1483462800-1483462800@hannesarholt.is
SUMMARY:Vetrarljóð - Píanó og fiðla
DESCRIPTION:Jane Ade Sutarjo píanó- og fiðluleikari og Hulda Jónsdóttir fiðluleikari\, ungar og sérlega hæfileikaríkar tónlistarkonur\, halda fyrstu tónleika Hannearholts árið 2017.\nHulda og Jane munu leika litrík verk fyrir fiðlu og píanó eftir B. Bartók\, E. Ysaÿe\,J. Brahms.\nJane Ade Sutarjo fæddist í Jakarta í Indónesíu árið 1989. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og siðar á fiðlu. Hún flutti til Íslands haustið 2008 og hóf nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði á fiðlu hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttur og seinna hjá Peter Máté\, og er fyrst til að ljúka einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá LHÍ. \nJane er virkur þáttakandi í íslensku tónlistarlifi og hefur spilað  kammermúsík og komið fram sem einleikari. Árið 20111  lék hún einleik með Sinfóniuhljómsveit Íslands og 2014 hélt hún debut tónleikana sína í Salnum í Kópavogi. Jane hlaut minningarverðlaun Halldórs Hansen árið 2012. Einnig hefur hún tekið þátt í píanókeppnum  á Íslandi og erlendis. Hún vann 1. sæti í 5. EPTA píanó keppninni á Íslandi árið 2012. \nEftir útskrift  frá LHÍ hefur hún kennt á píanó við Tónlistarskóla Árnesinga og Tónlistarskólann í Grafarvogi\, og auk þess að starfa sem meðleikari. Jane stundar nú nám við Norges Musikkhogskole undir leiðsögn Jens Harald Bratlie og Kathryn Stott og  sækir tíma á fortepíanó hjá Liv Glaser. \nHulda Jónsdóttir\, fædd árið 1991\, hóf fiðlunám fjögurra ára gömul við Suzukideild Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Sigríði Helgu Þorsteinsdóttur.  Í Tónlistarskóla Reykjavíkur voru kennarar hennar Lilja Hjaltadóttir og síðar Guðný Guðmundsdóttir. Hulda lauk diplómaprófi frá Listaháskóla Íslands 2009.  Frá hausti 2009 nam hún við The Juilliard School í New York þar sem kennarar hennar voru Robert Mann\, stofnandi Juilliard strengjakvartettsins\, David Chan\, konsertmeistari Metropolitan óperuhljómsveitarinnar\, Laurie Smukler og Nicholas Mann. Hulda lauk B.Mus gráðu frá skólanum vorið 2013\, og M.Mus gráðu vorið 2015. \nSíðan námi lauk hefur Hulda búið í Þýskalandi og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum í Evrópu. Hún hefur m.a. leikið með Philharmoniker Hamburg\, komið reglulega fram með kammersveitinni Ensemble Resonanz\, leitt hljómsveit Íslensku Óperunnar sem gestakonsertmeistari og lék um nokkurra mánuða skeið haustið 2016 sem 2. konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og varð þar með yngsti einstaklingurinn sem leitt hefur hljómsveitina á tónleikum frá stofnun hennar. \nHulda lék fyrst einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands 15 ára gömul og lék fiðlukonsert Johannesar Brahms með hljómsveitinni árið 2009 í kjölfar þess að hafa sigrað einleikarakeppni SÍ og LHÍ. Auk þess hefur hún leikið einleik með kammerhljómsveitum í Sviss og Mexíkó. Hún hefur komið fram í beinni útsendingu á WFMT og BR Klassik útvarpsstöðvunum auk í sjónvarpi og útvarpi RÚV. Hulda hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar\, þ.m. Minningarverðlaun Halldórs Hansen (2009)\,  American Scandinavian Society Cultural Grant (2012) og Minnigarverðlaun Jean Pierre Jacquillat (2013.) \nFrá hausti 2006 hefur Hulda verið þess heiðurs aðnjótandi að leika á fiðlu smíðaða af Vincenzo Sannino í kringum 1920 og boga smíðuðum af Victor Fetique. Hvoru tveggja hefur hún að láni frá Rachel Elizabeth Barton Foundation í Chicago og þaðan sem hún hlaut afreksstyrk  árið 2008. \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/piano-og-fidla-jane-sutarion-og-hulda-jonsdottir/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/12/Tónleikar-3-jan-shv.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170107T150000
DTEND;TZID=UTC:20170107T150000
DTSTAMP:20170105T141108Z
CREATED:20170105T131746Z
LAST-MODIFIED:20170105T141108Z
UID:10000194-1483801200-1483801200@hannesarholt.is
SUMMARY:Olivier Manoury - bandóneon og vatnslitamyndir
DESCRIPTION:Olivier Manoury tónlistar- og myndlistarmaður sem nú sýnir vatnslitamyndir í Hannesarholt verður í húsinu mill kl. 15 og 17 með bandóneon harmónikkuna sína\, áður en hann hverfur af landi brott. \nLitir vatns og jarðar – vatnslitamyndir eftir Olivier Manoury. Sýningin prýðir veggi Hannesarholts til 20. janúar. \n„Ég er þeirrar skoðunar að efnistök og stíll eigi rætur sínar að rekja til eilífðartogstreitu hæfileika og takmarkana. Mín eigin myndverk eru einfaldlega tilraun til að reyna að fanga síbeytilegt ljós og andrými náttúrunnar sem og manngerðs umhverfis.“\nOlivier Manoury (f. 1953 í Tulle í Frakklandi) ólst að mestu upp í París. Hann var alla tíð listhneigður og hóf myndlistarnám sem barn að aldri. Síðar las hann ensku og bókmenntir við Sorbonne háskóla og lauk þaðan meistaraprófi í nútímabókmenntum árið 1975. Samhliða háskólanámi var hann í listaháskóla Parísarborgar (Ecole National des Beaux Arts) þar sem hann lagði stund á málaralist hjá Gustave Singier og Jacgues Yankel\, auk þess að læra höggmyndalist hjá Etienne Martin. \nDrýgstan hluta ævi sinnar hefur Olivier þó starfað sem tónlistarmaður\, enda er hann er vel þekktur sem bandóneonleikari í Frakklandi og víðar um heim. Hann hefur samið tónlist fyrir kvikmyndir\, leikhús og danssýningar\, spilað inn á fjölda geisladiska\, auk þess að leika á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu og Suður-Ameríku. Olivier leikur bæði tangó og jass en meðal þeirra hljómsveita sem hann hefur stofnað eru Tangoneon\, Tempo Di Tango og Le Grand Tango. Síðasnefnda hljómsveitin er Íslendingum að góðu kunn\, en hún er skipuð þekktum hljóðfæraleikurum úr íslensku tónlistarlífi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/olivier-manoury-bandoneon-og-vatnslitamyndir/
LOCATION:Hannesarholt veitingastofur 1.hæð
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/01/Olivier-fesan.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR