BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170112T200000
DTEND;TZID=UTC:20170112T200000
DTSTAMP:20170110T221223Z
CREATED:20170104T094805Z
LAST-MODIFIED:20170110T221223Z
UID:10000192-1484251200-1484251200@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntaspjall - Elsku Drauma mín og Ósjálfrátt
DESCRIPTION:Elsku Drauma mín er ævisaga\, skrifuð af skáldkonu\, en Ósjálfrátt er skáldsaga\, byggð á ævi skáldkonu. Báðar spretta þessar bækur þó úr sama jarðveginum\, nánast úr sama kviðnum ef það er satt að barn sé upphaflega eggið úr ömmu sinni. Í báðum sögunum bregður Draumu leynt og ljóst fyrir en með ólíkum hætti. \nHver er munurinn á því að skrifa ævisögu og skáldsögu? Þær Vigdís Grímsdóttir og Auður Jónsdóttir ræða reynslu sína af því að fanga sömu bráðina í net ólíkra forma\, þann 12. janúar í Hannesarholti. Ef þau eru þá svo ólík\, eftir allt saman. Þriðja skáldkonan\, Kristín Ómarsdóttir\, ætlar að leiða umræðurnar og yfirheyra þær eftir bestu getu – vonandi með dyggri aðstoð áhorfenda. \nVeitingastofur opna kl. 18.30 fyrir þá sem vilja gera sér dagamun og taka kvöldið snemma. Í boði er ljúffengt fiskmeti úr eldhúsi Hannesarholts.  Athugið að nauðsynlegt er að panta fyrir hádegi samdægurs á hannesarholt@hannesarholt.is eða í síma 511 1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntaspjall-elsku-drauma-min-og-osjalfratt/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/01/Auður-J-Kristín-Ó-Vigdís-G-V2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170115T160000
DTEND;TZID=UTC:20170115T160000
DTSTAMP:20170110T221321Z
CREATED:20161228T001500Z
LAST-MODIFIED:20170110T221321Z
UID:10000191-1484496000-1484496000@hannesarholt.is
SUMMARY:Davíðsljóð í Hannesarholti   
DESCRIPTION:„Að baki tímans tjalda“  – Leiklistin í lífi Davíðs Stefánssonar \nValgerður H. Bjarnadóttir \nÞótt Davíð Stefánsson sé best þekktur sem ljóðskáld\, var leiklistin honum einnig mjög hugleikin og hann sendi frá sér fjögur leikrit\, auk ljóðabókanna 10 og skáldsögunnar Sólon Íslandus. Þekktasta og vinsælasta leikritið er Gullna hliðið\, sem var frumsýnt 1941 og samið upp úr þjóðsögunni um sálina hans Jóns míns.  Prologus Gullna hliðsins hefst á þessum orðum: \n„Hulið er margt að baki tímans tjalda\,  \nsem trú og siðir vorir mega gjalda.  \nÍ bæjartóttum bleikra eyðidala \nbirtist þeim margt\, sem heyra steininn tala.  \nOg gull má oft í rústum finna.  \nÁ gamla elda kaldar hlóðir minna.“ \nÍ öllum fjórum leikritunum tekur skáldið gull úr gömlum rústum\, sem hann nýtir til að endurspegla samtíma sinn um leið og hann rifjar upp söguna. Fyrsta leikverk Davíðs var Munkarnir á Möðruvöllum sem sýnt var fyrst 1926. Vopn guðanna er frumsýnt 1944 og Landið gleymda 1953.  Síðari verkin fengu almennt góða dóma\, en hlutu fremur lélega aðsókn\, þóttu of þung og hafa lítið verið sýnd. Þau hafa þó á ýmsan hátt elst vel\, eru full af boðskap og hugsjónum sem eiga ekki síður erindi við okkur í dag\, en þá. \nÍ þessu spjalli mun Valgerður H. Bjarnadóttir fjalla um leikritin\, tengja þau ljóðunum og velta fyrir sér hvað skáldinu lá á hjarta og hvernig leikritin endurspegla hugmyndir hans og líf. \nValgerður H. Bjarnadóttir ólst upp með ljóðum og öðrum verkum Davíðs\, eins og þúsundir annarra Íslendinga. Hún las þau\, lærði og tengdist sumum þeirra sterkum böndum.  S.l. sumur hefur hún gegnt hlutverki húsfreyju í Davíðshúsi og sökkt sér á ný inn í þennan heim ástar\, sögu\, trúar\, ævintýra og þjáningar\, sem fáir hafa náð að mála eins sterkum litum og Davíð. Þar hefur hún vikulega verið með dagskrá um ljóðin og líf Davíðs út frá ólíkum sjónarhornum og Hannesarholt býður upp á  sýnishorn úr þeirri dagskrá sunnan heiða.  Valgerður er félagsráðgjafi með MA í trúarheimspeki og menningarsögu.   \nDagskráin fer fram í veitingastofu Hannesarholts kl. 16 til 17.  Gott er að mæta ekki seinna en kl. 15:30 til að fá borð og geta fengið sér veitingar áður en dagskráin hefst. \nMiðaverð kr. 1.500.-  og miðasala á www.midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/davidsljod-i-hannesarholti-2/
CATEGORIES:Davíðsljóð
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/dsitalia.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR