BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170313T200000
DTEND;TZID=UTC:20170313T200000
DTSTAMP:20170307T084140Z
CREATED:20170222T104750Z
LAST-MODIFIED:20170307T084140Z
UID:10000203-1489435200-1489435200@hannesarholt.is
SUMMARY:Heilsuspjall - Valdafíkn
DESCRIPTION:„Valdavíma\, valdafíkn\, valdhroki“ \nMaðurinn er samfélagsvera og hefur á tugþúsundum ára þróað með sér flókna samfélagslega hugsun og tengsl.  Samlíðanin birtist m.a. í hjálpræði og samtakamætti sem í dag er ein meginstoð þeirra lífsgæða og frelsis sem við njótum\, mörg hver. En öll þróun hefur sínar dökku hliðar. Mörg eru dæmin um leiðtoga fyrri tíma  sem afvegaleiddust og ollu samfélaginu meiri skaða en gagn. Völd geta nefnilega verið vandmeðfarin. Sú hætta er fyrir hendi að völd verði vímugjafi\, breyti hegðun manna\, og að löng seta á valdastóli leiði til valdafíknar og meðfylgjandi spillingar. \nÍ Heilsuspjalli Hannesarholts mánudaginn 13. mars kl 20 ræðir læknirinn Torfi Magnússon um þetta áhugaverða fyrirbæri\, valdafíkn\, sem eins og önnur fíkn getur átt sér líffræðilegar forsendur.  Með vísun til bókmenntanna mun rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson minna okkur á að umræðuefnið hefur löngum verið hugleikið ýmsum ritsnillingum sögunnar. \nLéttur kvöldverður á sanngjörnu verði í boði frá kl. 18:30. Borðapantanir í s.511 1904 eða hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heilsuspjall-valdafikn/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Heilsuspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/02/Valdafíkn-mynd-3-valin.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170316T200000
DTEND;TZID=UTC:20170316T200000
DTSTAMP:20170308T174708Z
CREATED:20170227T164935Z
LAST-MODIFIED:20170308T174708Z
UID:10000207-1489694400-1489694400@hannesarholt.is
SUMMARY:Heilsuspjall - Heilahreysti
DESCRIPTION:Heilsuspjall – Heilahreysti\, hvernig stuðlum við að heilbrigðu hugarstarfi frameftir langri ævi? \nMannsheilinn er undursamleg smíð. Það er lygasögu líkast að í hverju heilabúi séu um 85 milljarðar taugafruma sem gera okkur kleift að skynja\, finna til\, hugsa\, skapa\, elska og njóta ævina á enda.  Reyndar ekki hjá öllum\, því miður\, stundum raskast taugastarfsemin þegar aldurinn færist yfir\, minninu hrakar og Alzheimerssjúkdómurinn tekur völdin; vágestur sem við viljum gjarnan forðast en er það hægt? Í dag er ýmislegt vitað um þætti sem stuðla að tilurð og þróun Alzheimersjúkdómsins og hafa vísindamenn hvatt til þess að gera forvarnir gegn heilabilun að forgangsverkefni í vestrænum samfélögum. Til mikils er að vinna því að öllu óbreyttu er líklegt að fjöldi Alzheimerssjúklinga muni tvöfaldast á næstu 40 árum. \nÍ tilefni af alþjóðlegu heilavikunni verður á dagskrá í Hannesarholti Heilsuspjallsumræða um „Heilahreysti“ fimmtudaginn 16. mars kl 20. \nMaría K. Jónsdóttir sérfræðingur í klínískri taugasálfræði og dósent við Háskólann í Reykjavík og Brynhildur Jónsdóttir sálfræðingur á minnismóttöku Landspítalans á Landakoti munu ræða um hvernig við getum best stuðlað að eigin heilahreysti ævina á enda og þannig minnkað líkurnar á heilabilun. Að loknum erindunum munu María og Brynhildur ásamt Jóni G. Snædal yfirlækni á heilabilunareiningu Landakots spjalla við áheyrendur. \nFiskisúpa á 2450 fyrir þá sem vilja í veitingastofunum frá kl. 18:30. Borðapantanir í s.511 1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heilsuspjall-heilahreysti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Heilsuspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/02/Heilahreysti-í-Hannesarholti-myndin.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR