BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170403T200000
DTEND;TZID=UTC:20170403T200000
DTSTAMP:20170330T230923Z
CREATED:20170305T151239Z
LAST-MODIFIED:20170330T230923Z
UID:10000210-1491249600-1491249600@hannesarholt.is
SUMMARY:Leiklistarspjall - Sveinn Einarsson
DESCRIPTION:Sveinn Einarsson hefur verið í fremstu röð íslenskra leikhúsmanna í hálfa öld\, þó að hann hafi kannski haft hægar um sig hin síðari ár nema í skriftum. Hann er leikstjóri\, leikhúsfræðingur og hefur verið leikhússtjóri beggja stóru leikhúsanna svo og leitt  innlenda dagskrárgerð Sjónvarps\, auk ýmissa annarra starfa. Sveinn hefur gengt margvíslegum trúnaðarstörfum í menningar-og listageiranum jafnt á innlendum vettvangi sem erlendum og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir leikstjórn.\n\nFrá Sveini hafa komið fimmtán bækur\, flestar um leiklistarmál. Í þeirri nýjustu\, Íslensk leiklist III\, sem hann segir frá í Hannesarholti\, er fjallað um íslenska leiklist á árunum 1920-1960\, þar á meðal frá opnun Þjóðleikhússins\, deilum á þriðja áratugnum og glæsilegu tímabili í sögu Leikfélags Reykjavíkur og munu margar þær sýningar sem sagt er frá vera hinum eldri í fersku minni. Þá segir frá blómlegu starfi áhugamanna\, þar sem margt fróðlegt hefur nýlega verið grafið fram\, meðal annars hvílíkur fjöldi leikrita hefur verið saminn á Íslandi og hvílík aðsókn hefur löngum verið að leiksýningum á Íslandi þannig að slíks eru fá dæmi í Evrópu.\nLéttur kvöldverður í veitingastofunum á sanngjörnu verði frá kl.18.30\, borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leiklistarspjall-sveinn-einarsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókaspjall,Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/03/Sveinn_Einarsson-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170405T200000
DTEND;TZID=UTC:20170405T200000
DTSTAMP:20170405T135030Z
CREATED:20170305T151650Z
LAST-MODIFIED:20170405T135030Z
UID:10000211-1491422400-1491422400@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóða-og tokkötukvöld Steinunnar og Þorsteins
DESCRIPTION:Steinunn Sigurðardóttir les úr nýju ljóðabókinni sinni AF LJÓÐI ERTU KOMIN.\n\nTinna Þorsteinsdóttir flytur TVÆR TOKKÖTUR FYRIR PÍANÓ eftir Þorstein Hauksson\, en tokköturnar eru samdar sérstaklega fyrir hana.\n\nArnaldur Arnarson leikur TOKKÖTU FYRIR GÍTAR eftir Þorstein\, en bæði hann og Tinna\nhafa flutt tokkötur Þorsteins víða á síðustu árum.\n\nÞá les Steinunn þýðingar sínar á ljóðum eftir Derek Walcott og Adam Zagajewski.\n\nFerill Steinunnar Sigurðardóttur og Þorsteins Haukssonar hefur verið samofin\nsíðustu þrjá áratugi.  Á þeim tíma hafa tónverk Þorsteins verið samin í forvitin eyrun á\nsambýliskonunni – um leið og Þorsteinn hefur orðið fyrsti og helsti yfirlesari að\nritverkum Steinunnar.  Enda munu þau fjalla um verk hvors annars á kvöldstundinni í Hannesarholti.\n\nSteinunn og Þorsteinn eiga bæði um hálfrar aldar langan feril í sínum greinum\, en fyrsta ljóðabók Steinunnar kom út árið 1969. Þorsteinn lauk einleikaraprófi á píanó og við tók langur námsferill í tónsmíðum\, meðal annars í Stanford háskóla í Bandaríkjunum og í IRCAM tölvutónlistarmiðstöðinni í Pompidou menningarmiðstöðinni í París.  Þá hefur hann verið gestatónskáld meðal annars í Kunitachi College of Music íTókíó\, CCMR í Aþenu\, EMS í Stokkhólmi og IRCAM\, meðfram beiðnum um að semja tónverk\, sem hafa verið flutt víða um heim.\n\nTónverk Þorsteins eru af mjög ólíkum toga\, allt frá einleiksverkum\, kórverkum\, hljómsveitarverkum til hreinna tölvutónverka.  Þau einkennast af mikilli kunnáttu\, frumleika og sterkum litum\, þar sem tónskáldið hikar ekki við að blanda upp á nýtt.  Þorsteinn hefur þrívegis verið tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs\, fyrir hljómsveitarverkið Ad Astra\, Bells of Earth II fyrir hljómsveit og tölvuhljóð\, og cho fyrir flautu og tölvuhljóð\, samið fyrir Kolbein Bjarnason.  Nýjasta tónverk Þorsteins er Sinfónía tvö.\n\nSteinunn hóf ferilinn sem ljóðskáld\, en fyrsta skáldsaga hennar Tímaþjófurinn\, sló í gegn heima og heiman og leikur enn lausum hala\, nú síðast í uppfærslu Þjóðleikhússins\, með Nínu Dögg Filippusdóttur í hlutverki Öldu.  Steinunn fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Hjartastað\, sem var einnig tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðlandaráðs\, líkt og Tímaþjófurinn.  Steinunn heldur áfram að senda frá sér ljóðabækur og skáldsögur jöfnum höndum.  Viðfangsefni hennar eru einkum ástin\, tíminn og dauðinn. Helstu skáldsagnapersónur Steinunnar eru stórbrotnar og óvenjulegar konur líkt og Alda í Tímaþjófnum.  Þá hefur Steinunn skrifað bækur um tvær íslenskar kvenhetjur\, Vigdísi Finnbogadóttur forseta og Heiðu Guðnýju Ásgeirsdóttur fjalldalabónda. Síðari bókin kom út fyrir jól 2016 og hlaut Bóksalaverðlaunin og Fjöruverðlaunin\, bókmenntaverðlaun íslenskra kvenna.  Einnig kom út eftir Steinunni fyrir síðustu jól ljóðabókin Af ljóði ertu komin\, sem tilnefnd var til Menningarverðlauna DV.\n\nSteinunn Sigurðardóttir og Þorsteinn Hauksson hafa lengst af búið í París og Berlín. Þau eru nú búsett í Strassborg\, en reyna jafnframt að verja sem mestum tíma á Íslandi. Nánari upplýsingar á heimasíðum listamannanna:  hauksson.com og\nsteinunn.net\nKjúklingasúpa með heimabökuðu brauði á 2450 frá kl.18.30\, borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljoda-og-tokkotukvold/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/03/Steinnunn-og-Jóhann-klippt.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170408T200000
DTEND;TZID=UTC:20170408T200000
DTSTAMP:20170406T170949Z
CREATED:20170305T150045Z
LAST-MODIFIED:20170406T170949Z
UID:10000209-1491681600-1491681600@hannesarholt.is
SUMMARY:Stína Ágústs og orgeltríó Leo Lindberg
DESCRIPTION:Stína Ágústsdóttir söngur\, \nLeo Lindberg orgel\, \nMax Schultz gítar\, \nChris Montgomery trommur. \nStína Ágústsdóttir söngkona og sænski píanóleikarinn Leo Lindberg flytja nokkur frumsamin lög ásamt blöndu af blúsuðum standördum og fönkfylltu poppi. Meðleikarar þeirra eru ekki af verri endanum en Max Schultz\, sænska gítarhetjan\, og Chris Montgomery\, einn eftirsóttasti jazztrommari Svíþjóðar\, verða með þeim og má því búast við einstaklega skemmtilegum tónleikum.  Stína og Leo fengu auk þess styrk frá sænsk-íslenska samstarfssjóðnum til að halda í tónleikaferðalag til Íslands en þau eru bæði búsett í Stokkhólmi. \nHljómplata Stínu\, Jazz á íslensku\, var tilnefnd til bestu plötu í jazz- og blúsflokki á íslensku tónlistarverðlaununum nú í ár og Leo hefur hlotið fjöldann allan af styrkjum og verðlaunum fyrir hljóðfæraleik. \nMax Schultz hefur leikið með öllum helstu jazzstjörnum Svíþjóðar og þó víðar væri leitað en hann tók m.a upp plötu með Herbie Hancock árið 2001. Það er einstakur heiður fyrir Stínu og Leo að fá slíkan tónlistarmann með sér til landsins og ætti jazz- og blúsáhugafólk alls ekki að láta þessa tónleika framhjá sér fara. \nHér má hlusta á uppkast af einu lagi sem verður flutt á tónleikunum\, Changing Hues (lag Leo Lindberg\, texti Stína Ágústsdóttir) : \nhttps://soundcloud.com/stinaaugust/changing-hues \nOfnbakaður lax með rjómaosti\, hnetum\, karftöflumús\, og fersku salati á 3.290 í veitingastofunum á undan fyrir þá sem vilja\, frá kl.18.30\, borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/stina-agusts-og-leo-tonleikar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/03/StinaOgLeo.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR