BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170825T200000
DTEND;TZID=UTC:20170825T200000
DTSTAMP:20170816T123300Z
CREATED:20170815T104510Z
LAST-MODIFIED:20170816T123300Z
UID:10000576-1503691200-1503691200@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Olivier Manoury og Tómas R.Einarsson
DESCRIPTION:Föstudagskvöldið 25. ágúst halda franski bandoneónspilarinn Olivier Manoury og kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson tónleika í Hannesarholti\, Grundarstíg 10. Á efnisskránni eru tangó\, bóleró\, swing og latínsveifla svo eitthvað sé nefnt. Lögin eru flest eftir þá félaga en aðrir tónhöfundar eins og Thelonius Monk koma líka við sögu. Olivier er þekktastur sem tangóspilari\, en hann hefur leikið á hljóðfæri sitt\, bandoneón\, um víða veröld\, en Tómas er þekktastur fyrir latínsveiflu sína og djass. Olivier og Tómas komu fyrst fram saman fyrir tæpum þrjátíu árum og hafa oft tekið saman lagið gegnum tíðina. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-5/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/08/tomolivier.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170826T170000
DTEND;TZID=UTC:20170826T170000
DTSTAMP:20170814T155944Z
CREATED:20170719T133514Z
LAST-MODIFIED:20170814T155944Z
UID:10000232-1503766800-1503766800@hannesarholt.is
SUMMARY:Anna og Sölvi fara hringinn
DESCRIPTION:Frændsystkinin og dúóið Anna Gréta Sigurðardóttir og Sölvi Kolbeinsson leika frumsamda tónlist og útsetningar sem þau hafa unnið að síðustu mánuði. Tónlistin gæti flokkast sem melódískur djass undir þjóðlagaáhrifum þar sem spuninn er í fyrirrúmi. Anna og Sölvi hafa bæði hlotið titilinn „bjartasta vonin“ á íslensku tónlistarverðlaunum\, Anna árið 2015 og Sölvi 2016. Prógrammið samanstendur af eigin tónsmíðum sem þau hafa unnið að bæði saman og í sitthvoru lagi. Anna og Sölvi voru valin fyrir hönd Íslands til að taka þátt í Young Nordic jazz Comets sem fór fram í Umeå\, Svíþjóð þetta árið og fengu frábærar móttökur á meðal áhorfenda og fjölmiðla. Í sænska dagblaðinu \,\,Folkbladet” var tónleikum þeirra lýst svona: \,\,Fallegri tónlist er erfitt að finna. Tónlistin er undir þjóðlagaáhrifum\, eins og má heyra á saxófónleik Sölva Kolbeinssonar. Hann er sem Paul Desmond við rætur Heklu. Anna Gréta Sigurðardóttir spilar á píanó svo tilfinningaþrungið og leitandi að helst minnir á Esbjörn Svensson. Hrein píanólýrík.” (Folkbladet\, Umeå\, 27/10 2016) \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/7742/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/07/AnnaGrétaogSölvi.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR