BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171009T150000
DTEND;TZID=UTC:20171009T150000
DTSTAMP:20171009T103104Z
CREATED:20171009T091146Z
LAST-MODIFIED:20171009T103104Z
UID:10000588-1507561200-1507561200@hannesarholt.is
SUMMARY:Síðasti sýningardagur - Þóra Jónsdóttir
DESCRIPTION:Málverkasýning Þóru Jónsdóttur ljóðskálds og myndlistarkonu lýkur í lok dagsins í dag. Fjarskinn er blár nefnist sýningin\, og Þóra getur sannarlega talað um fjarska í tíma og rúmi\, í hópi elstu starfandi myndlistarmanna\, fædd 1924. Það hefur verið unun að fylgjast með Þóru undanfarnar vikur\, sannarlega fyrirmynd sem við yngra fólkið lítum til. Í tilefni dagsins verður Þóra viðstödd á sýningunni frá kl.15-17 í dag\, mánudaginn 9.nóvember.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sidasti-syningardagur-thora-jonsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/Þóra-2005.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171010T200000
DTEND;TZID=UTC:20171010T200000
DTSTAMP:20170927T102512Z
CREATED:20170918T135801Z
LAST-MODIFIED:20170927T102512Z
UID:10000236-1507665600-1507665600@hannesarholt.is
SUMMARY:"Við djúpið blátt" - með Ólínu Þorvarðardóttur
DESCRIPTION:Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir fv. alþingismaður hefur helgað sig þjóðfræðirannsóknum og ritstörfum\, haldið fyrirlestra\, skrifað fræðigreinar og bækur mörg undanfarin ár. Viðfangsefnin hafa ekki síst verið menningararfur\, þjóðtrú og sagnageymd. Hún verður gestur Hannesarholts þriðjudaginn 10. október kl. 20 og mun þar kynna nýjustu bók sína „Við Djúpið blátt“ sem fjallar um töfra Ísafjarðardjúps\, náttúru\, sögu og mannlíf. \nLéttur kvöldverður verður borinn fram i veitingastofunum á undan spjallinu\, þannig að þeir sem áhuga hafa geta gætt sér á fiskisúpu eða þvíumlíku frá kl.18.30 fyrir . Borðapantanir í síma 511-1904. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-olinu-thorvardardottir-vid-djupid-blatt/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/OllyMai2017.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171014T140000
DTEND;TZID=UTC:20171014T140000
DTSTAMP:20171011T131353Z
CREATED:20170927T123122Z
LAST-MODIFIED:20171011T131353Z
UID:10000243-1507989600-1507989600@hannesarholt.is
SUMMARY:Vangaveltur - Málverkasýning Erlu Axels
DESCRIPTION:Erla Axels opnar sýningu á nýjum verkum unnin í blandaða tækni\, laugardaginn 14. október kl. 14\, í Hannesarholti. \nUm sýninguna segir Erla „í fjarlægð sé ég ofursmá hús í birtu borgarmarkanna og þegar ég lít mér nær sé ég mosann\, grágrýtissprungur og breytileg jarðlög í klettum.“ \nHún kýs að nefna sýninguna Vangaveltur\, sem vísan í minningarbrot frá bernsku. \nErla stundaði nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík og síðar í Skidmore\, Saratoga Springs\, N.Y. Hún hefur dvalið í Kjarvalsstofu í París og sýnt verk sín bæði hér heima og erlendis. \nErla stofnaði Art-Hún vinnustofur og sýningarsal ásamt fjórum öðrum listakonum sem var rekið í tólf ár. \nHún fæst við olíuverk á striga og verk unnin með blandaðri tækni á „gesso“ borinn pappír. Við vinnslu verkanna leyfir hún  sér þá að fara út fyrir þægindarammann\, ímyndunaraflið ræður för þar til verkið hefur öðlast sjálfstætt líf. \nVinnustofa/sýningarsalur  Erlu er í Listaseli við Selvatn en þar hefur hún að mestu leyti sýnt sín verk síðastliðin tíu ár\, en er nú komin í  heimsókn í Hannesarholt. Kór frá Margréti Pálmadóttur tekur nokkur lög við opnunina \nSýningin er opin alla daga vikunnar frá kl 11:30 – 17:00 og til kl 22:00 á fimmtudögum og stendur í fjórar vikur.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vangaveltur-malverkasyning-erlu-axels/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/ErlaAxels-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR