BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171018T080000
DTEND;TZID=UTC:20171018T170000
DTSTAMP:20171018T165440Z
CREATED:20171018T164629Z
LAST-MODIFIED:20171018T165440Z
UID:10000593-1508313600-1508346000@hannesarholt.is
SUMMARY:Heilsuspjall - Sambýli lífvera á jörðinni
DESCRIPTION:„Frá lús og mús til mannanna húss og trúss.“ \nMichael Clausen og Einar Kárason \nÁætlað hefur verið að jörðina byggi um 8\,7 milljónir dýrategunda; ein þeirra kallast homo sapiens. Yfirleitt er sambýli mannsins við hinar 8.699.999 lífverurnar friðsælt en þó koma stundum fyrir árekstrar og aðrar stympingar vegna ólíkra hagsmuna dýrategundanna. En sem Guðs útvalda þjóð hafa mennirnir iðulega\, og raunar í vaxandi mæli hin síðari ár\, gert kröfu til þess að hagsmunir homo sapiens séu ætíð settir ofar hagsmunum allra hinna lífveranna á jörðinni. Ein birtingarmynd þessa eru híbýli manna sem hafa á árþúsundum þróast frá því að veita skjól fyrir veðri\, vindum og stærri rándýrum yfir í að nánast hindra það nokkrar lífverur fái þrifist innan veggja heimilisins\, aðra en maðurinn sjálfur – og kannski hundurinn. Þetta á ekki síst við um hryðjuverkadýr eins og köngulær\, geitunga og …. myglu. \nÍ heilsuspjalli Hannesarholts fimmtudaginn 19. október munu ofnæmislæknirinn Michael Clausen og rithöfundurinn Einar Kárason fá frjálsar hendur til að spjalla um sambúð manna og annarra lífvera á íslenskum heimilum í blíðu og stríðu\, í vísindum\, sögnum og bókmenntum. \n— \nOpið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir og eftir viðburð. Fiskisúpa og léttir grænmetisréttir frá kl.18.30 og Happy hour með vínveitingum á tilboðsverðum milli kl. 17:00 – 19:00
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heilsuspjall-sambyli-lifvera-a-jordinni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Heilsuspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/10/EinarKáraogMichael.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171021T150000
DTEND;TZID=UTC:20171021T150000
DTSTAMP:20171012T105942Z
CREATED:20170905T165153Z
LAST-MODIFIED:20171012T105942Z
UID:10000580-1508598000-1508598000@hannesarholt.is
SUMMARY:Minningardagskrá um Ingibjörgu Haralds
DESCRIPTION:Höfuð konunnar er… \nMinningardagskrá um Ingibjörgu Haralds\nKl. 15:00 og fram eftir degi.\nMiðasala á midi.is\nVerð: 1500\,- \n— \nNokkrar skáldkonur bjóða til samverustundar með upplestri og frásögnum í tilefni 75 ára afmælis Ingibjargar Haraldsdóttur\, skálds og þýðanda\, sem lést í nóvember s.l.  Tvær Ingibjargir hafa bæst í hópinn\, tónlistarkonurnar Ingibjörg Fríða Helgadóttir söngkona og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir píanóleikari og tónskáld munu flytja tónlist við ljóð Ingibjargar Haralds. \nIngibjörg var engu skáldi lík og afkastamikil skáldkona. Hún vann sem blaðamaður og kvikmyndagagnrýnandi á Þjóðviljanum um árabil. Frá 1981 var hún ljóðskáld og þýðandi að aðalstarfi\, en fyrsta ljóðabók hennar\, Þangað vil ég fljúga\, kom út árið 1974. Ingibjörg gaf út sex ljóðabækur\, þar af eina safnbók\, og hafa ljóð hennar verið þýdd á ungversku\, þýsku\, lettnesku\, litháísku\, búlgörsku\, rússnesku\, ensku og Norðurlandamál. Hún hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir ritstörf sín\, meðal annars Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar\, Íslensku bókmenntaverðlaunin\, Menningarverðlaun DV fyrir þýðingu sína á Fávitanum eftir Dostojevskí og Íslensku þýðingarverðlaunin 2004 fyrir Fjárhættuspilarann eftir sama höfund. \nIngibjörg var einnig afkastamikill þýðandi\, aðallega úr spænsku og rússnesku. Hún þýdddi meðal annars skáldsögur eftir Dostojevskí og Búlgakov\, fjölda leikrita eftir ýmsa höfunda og þýðingar hennar á ljóðum og smásögum spænsku- og rússneskumælandi höfunda hafa birst í tímaritum og verið fluttar í útvarpi. \n— \nÞað eru kollegar hennar Auður Jónsdóttir\, Kristín Ómarsdóttir\, Kristín Steinsdóttir\, Olga Guðrún Árnadóttir\, Sigurbjörg Þrastardóttir og Vigdís Grímsdóttir sem standa fyrir viðburðinum og lesa úr verkum Ingibjargar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hofud-konunnar-er/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Samverustund
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/Ingjbjörg-Haraldsdóttir-2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171022T140000
DTEND;TZID=UTC:20171022T140000
DTSTAMP:20170926T234639Z
CREATED:20170911T122322Z
LAST-MODIFIED:20170926T234639Z
UID:10000584-1508680800-1508680800@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman
DESCRIPTION:Söngstund fyrir almenning þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Forsöngvarar að þessu sinni er vinkonuhópur sem kallar sig Skotfjelagið\, ásamt mökum þeirra. Vinkonurnar kynntust fyrst í kórstarfi hjá Margréti Pálmadóttur fyrir meira en 20 árum og nokkrar þeirra syngja enn með kvennakórnum Vox Feminae. Makar þeirra eru einnig mjög söngelskir og þegar vinahópurinn hittist er ávallt mikið sungið. Skotfélagið og maka skipa þau Björg Helen Andrésdóttir\, Guðný Jónsdóttir og Kári Ragnarsson\, Hallveig Andrésdóttir og Einar Sigurmundsson\, Helga Jóna Óðinsdóttir og Gylfi Ívar Magnússon\, Hulda Stefánsdóttir og Sverrir Ólafsson\, Sigríður Anna Ellerup og Geir Gunnlaugsson.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-20/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/Skotfjelagid-og-makar.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR