BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171024T200000
DTEND;TZID=UTC:20171024T200000
DTSTAMP:20171022T224453Z
CREATED:20171009T094043Z
LAST-MODIFIED:20171022T224453Z
UID:10000589-1508875200-1508875200@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall: "Landamæri málfrelsisins: Popúlismi og pólarísering"
DESCRIPTION:„Landamæri málfrelsisins: Popúlismi og pólarísering“ \nÞetta fyrsta heimspekispjall vetrarins í Hannesarholti er haldið í samstarfi við Félag áhugamanna um heimspeki. \nFrummælandi verður Róbert H. Haraldsson og nefnist erindi hans „Málfrelsisskerðing og gerræðisvandinn.“ Mun hann ræða nýjar áskoranir sem steðja að málfrelsi. Að erindi Róberts loknu mun panell sérfræðinga ræða hvernig umræða um flóttamenn og hælisleitendur\, stöðu aldraðra\, öryrkja og fátækra hefur hvort tveggja í senn fengið aukið rými í almennri umræðu og einkennst af nálgunum sem vekja óhug hjá sumum. \nÞáttakendur í pallborði auk Róberts Haraldssonar\, heimspekings\, eru:\nEyrún Eyþórsdóttir\, lögreglufulltrúi hatursglæpa og mannfræðingur\,\nJóhann Björnsson\, heimspekingur.\nUnnur Dís Skaptadóttir\, mannfræðingur \nMeðal áhrifa árásinnar á Charlie Hebdo og Múhameðsteikninganna dönsku var að málfrelsisumræðunni var stillt upp þannig að áhersla var lögð á hvort og hvernig verja megi málfrelsið frá utanaðkomandi ógn. Þegar önnur samfélög með aðra sýn á hlutverk opinberrar umræðu og aðrar hugmyndir um stöðu einstaklingsins í samfélaginu hafa komið fram og gert atlögu að hugmyndum okkar um málfrelsi þá virðist meginlínan í umræðunni hafa verið sú að þéttast um þetta grundvallaratriði vestrænnar menningar og spyrna við fótum. Fyrir vikið hefur umræðan tekið á sig myndina „við-gegn-þeim“. En hvað með þegar ógnin kemur að innan? Undanfarin misseri hefur umræða um flóttamenn og hælisleitendur\, stöðu aldraðra\, öryrkja og fátækra hvort tveggja í senn fengið aukið rými í almennri umræðu og einkennst af nálgunum sem vekja óhug hjá sumum. Pólaríseringu umræðunnar\, uppstillingar afarkosta\, orðfæri sem ýtir undir ótta á því óþekkta og nú síðast\, uppgangi fasisma í Bandaríkjunum og Evrópu hafa verið fyrirferðamikil í umræðunni. Hvernig eigum við að stilla af hugmyndir okkar um málfrelsi af með þetta síðastnefnda í huga\, kannski sérstaklega í ljósi þess að sú þjóð sem hvað verst varð úti í slíkri pólaríseringu á 20. öld\, Þjóðverjar\, brá einmitt á það ráð að takmarka málfrelsið þegar kom að táknum og orðfæri fasismans. \nÞað eru gamlar fréttir og nýjar að þjóðfélagshópum hætti til að afmarka sig. Þeir lesa fyrst og fremst ákveðna miðla eða hlusta á ákveðnar útvarpsstöðvar. Popúlískir stjórnmálaleiðtogar afla sér fylgis meðal annars með því að nota orðfæri þessara hópa og þeirra miðla þar sem þeir birtast. \nMá hugmynd okkar um málfrelsi sín mikils þegar sama málfrelsi fær aðeins að blómstra í afmörkuðum afkimum internetsins þar sem algóritmar Google og Facebook stýra því hvað við sjáum? Er ástæða til þess að takmarka málfrelsi þegar það virðist ýta undir pólaríseringu? Er popúlismi ógn við lýðræðisleg samfélög eða eðlilegur hluti þeirra? Vinnur málfrelsið gegn fasisma þegar umræðan er pólaríseruð? Eða er málfrelsinu beitt til þess einmitt að auka á pólaríseringu og styðja þannig við uppgang fasisma? \nAðgangur er ókeypis. Léttur kvöldverður á sanngjörnu verði verður framreiddur í veitingastofunum frá kl.18.30 fyrir þá sem það kjósa. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimspekispjall-landamaeri-malfrelsins-populismi-og-polarisering/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Heimspekispjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/10/KRI_robert_haralds_170424-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171027T200000
DTEND;TZID=UTC:20171027T200000
DTSTAMP:20171027T120129Z
CREATED:20171009T114656Z
LAST-MODIFIED:20171027T120129Z
UID:10000591-1509134400-1509134400@hannesarholt.is
SUMMARY:Chet Baker and me - Kvartett Halla Guðmunds
DESCRIPTION:´Chet Baker and Me´\nHljóðberg Hannesarholt 21.Oktober kl 20:00 \nTrompetleikarinn og söngvarinn Chet Baker var amerískur tónlistarmaður\, fæddur í Oklahoma í desember 1929. Hann þótti ungur mjög lagrænn í sólóum sínum og var valinn af Charlie´Bird´Parker til þess að spila á trompet í röð tónleika hans um vesturströnd bandaríkjanna árið 1952. Baker spilaði í þekktum kvartett saxófónleikarans Gerry Mulligan um nokkurt skeið en það var ekki fyrr en Baker lék og söng inn á plötuna ´Chet Baker Sings´ sem hann náði heimsfrægð og virðing hans reis sem hæst. Chet Baker var þekktastur fyrir rómantískar og rólegar útgáfur laga sinna og einkennandi þýðan söng. \nHaraldur Ægir Guðmundsson (1977) kontrabassaleikari og tón/textaskáld gaf út fyrstu tvær jazzplötur sínar árið 2012\, ´Stories´ með Sound Post og ´Count that in´ með BaadRoots en hefur einnig samið lög og texta fyrir aðra flytjendur\, ´Green´ með Clazz 2015\, og ´Embrace´ með Hörpu Thorvaldsdóttur. Haraldur gaf sjálfur út funkplötuna ´PARTY´ með alþjóðlega funk tríói sínu Freaks Of Funk nú í ár. \nHaraldur hefur sett saman efnisskrá eigin laga\, útsett í anda Bakers\, ásamt lögum frá fyrri hluta ferils trompetleikarans\, en þar má helst nefna lög eins og My funny Valentine\, Look for the silverlinging\, But not for me og fleiri. \nKvartett Halla Guðmunds\nHaraldur Ægir Guðmundsson Kontrabassi\,+tón og textahöfundur\nSnorri Sigurðarson trompet/flugel horn\nAgnar Már Magnússon piano\nBöðvar Reynisson söngur \nMiðaverð:\nmidi.is 2500\,-\nvið dyrnar 3000\,-
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/chet-baker-and-me-kvartett-halla-gudmunds-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/10/21316093_1614568558617695_4151053230030181316_o.jpg
ORGANIZER;CN="Haraldur Gu%C3%B0mundsson":MAILTO:baadroots@gmail.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171028T110000
DTEND;TZID=UTC:20171028T110000
DTSTAMP:20171026T111952Z
CREATED:20171026T111945Z
LAST-MODIFIED:20171026T111952Z
UID:10000597-1509188400-1509188400@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókahillan á baðstofuloftinu - Sigrún Eldjárn
DESCRIPTION:28. október verður það engin önnur en barnabókahöfundurinn Sigrún Eldjárn sem mun lesa úr bókum sínum um Sigurfljóð. \nHlökkum til að sjá ykkur á Baðstofuloftinu kl. 11:00 laugardaginn 28. október.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokahillan-a-badstofuloftinu-sigrun-eldjarn/
LOCATION:Baðstofuloftið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/10/SigrúnEldjárn.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171028T200000
DTEND;TZID=UTC:20171028T200000
DTSTAMP:20170926T145256Z
CREATED:20170923T023001Z
LAST-MODIFIED:20170926T145256Z
UID:10000241-1509220800-1509220800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Hrafnar
DESCRIPTION:Hljómsveitin Hrafnar hefur starfað allnokkur ár við góðan orðstír og vinsældir. Árið 2012 gáfu þeir úr plötuna Krunk og náðu lög af henni verulegum vinsældum í útvarpsspilun og vinsældarlistum á Rás II . \nNú eru strákarnir tilbúnir með nýja plötu og er vinna við útgáfu hennar á fullu þessa dagana. \nÁ tónleikum hafa Hrafnar hafa getið sér orð fyrir að vera miklir sögumenn og grínarar og er hægt að lofa góðri skemmtan þar sem þeir eru annars vegar. Á Goslokahátíð í Eyjum í sumar héldu Hrafnar rómaða tónleika í Eldheimum þar sem færri komust að en vildu. Tónleikar strákana í Hannesarholti 7 og 28  október og  verða með svipuðu sniði\, sögur og grín í bland við ný lög  og kjörið tækifæri fyrir þá er ekki komust að í sumar. \nÞess má geta að Hrafnar áttu Goslokalagið í ár „Heim til Eyja“ sem hlaut frábærar viðtökur Eyjamanna. \nHljómsveitina skipa Hlöðver Guðnason\, bræðurnir Georg og Vignir Ólafssynir og bræðurnir Helgi og Hermann Ingi Hermannssynir. Allt gamalreyndir tónlistarmenn með langan feril að baki í hinum ýmsu hljómsveitum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-hrafnar-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/Eldheimar-01.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171029T160000
DTEND;TZID=UTC:20171029T160000
DTSTAMP:20171009T113304Z
CREATED:20171009T113252Z
LAST-MODIFIED:20171009T113304Z
UID:10000590-1509292800-1509292800@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókakaffi - Steinunn G.Helgadóttir
DESCRIPTION:Bókakaffi er óformlegur ókeypis viðburður í veitingastofum Hannesarholts\, þar sem rithöfundur gefur stutta grein fyrir verkum sínum og gestum gefst tækifæri til að ræða við höfundinn. Gestum býðst að kaupa sér kaffi og meðlæti og neyta þess á meðan á bókaspjallinu stendur. \nSteinunn segir frá bókinni RADDIR ÚR HÚSI LOFSKEYTAMANNSINS\, en fyrir bókina hlaut hún Fjöruverðalaunin í upphafi þessa árs. \nÍ bókinni segir hún sögur loftskeytamannsins og fangar jafnframt íslenskan veruleika í fortíð\, nútíð og framtíð. \nRaddir úr húsi loftskeytamannsins \n„Mig fór að gruna að kannski væru sögurnar mínar þeirrar náttúru að þögnin gæti ekki falið þær.“ \nUngur maður ætlar að leita uppi ellefu hálfsystkin sem öll eru fædd á sama árinu\, ástfælinn bóksali gengur aftur og fylgist með nýjum lesendum\, ólíkar systur reka saman sjoppu í Þingholtunum á meðan óreglumenn krunka sig saman á nýju tilvistarsviði. \nEinmana loftskeytamaður er í sambandi á öldum ljósvakans en skrifar skáldverk þess á milli. Hann fyllist tortryggni þegar aðrir rithöfundar eru á yfirskilvitlegan hátt á undan honum að koma út bókum hans. Með aðstoð vísindanna tekst honum að snúa vörn í sókn. \nSteinunn G. Helgadóttir myndlistarkona hefur getið sér gott orð fyrir ljóðabækur sínar og var valin ein af Ten New Voices of Europe 2017. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokakaffi-steinunn-g-helgadottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:Bókakaffi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/10/SteinunnGHelgadottir.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR