BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171030T200000
DTEND;TZID=UTC:20171030T200000
DTSTAMP:20171030T104549Z
CREATED:20171021T124116Z
LAST-MODIFIED:20171030T104549Z
UID:10000595-1509393600-1509393600@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókaspjall - Undur Mývatns
DESCRIPTION:Árni Einarsson líffræðingur og Unnur Jökulsdóttir rithöfundur segja frá undraheimum Mývatns og  Mývatnssveitar í orðum og myndum mánudagskvöldið 30. október kl. 20.00 \nÁrni hefur rannsakað lífríki Mývatns hátt í hálfa öld við störf sín í Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn. Lífríki Mývatns er stórkostlega fjölbreytt og mannfólkið hefur um aldir nýtt sér þau hlunnindi sem búseta við vatnið býður upp á. En í seinni tíð hefur samspil manns og náttúru ekki verið lífríkinu í vil – það á undir högg að sækja. \nUnnur les úr bókinni Undur Mývatns sem kom út fyrr á árinu hjá Forlaginu. Í bókinni útskýrir Unnur hvernig stórbrotið landslagið varð til\, tekur þátt í fuglatalningu\, segir frá æsilegu lífhlaupi húsandarinnar\, vitjar um varpið og veiðir gjáarlontur með heimafólki\, rýnir í mýflugnasverma og örsmáar vatnaverur\, minnist kúluskítsins sem áður einkenndi vatnsbotninn og segir frá silungsveiðinni. Árni mun skyggnast um í lífkeðjum vatnsins. \nSúpa og heimabakað brauð á undan fyrir þá sem það vilja í veitingastofunum frá kl.18.30. Borðapantanir í síma 511-1904. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokaspjall-unnur-myvatns/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/10/UnnurJökuls.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171105T140000
DTEND;TZID=UTC:20171105T140000
DTSTAMP:20170926T151122Z
CREATED:20170912T234101Z
LAST-MODIFIED:20170926T151122Z
UID:10000585-1509890400-1509890400@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman
DESCRIPTION:Sigurkarl Stefánsson menntaskólakennari og músíkant stjórnar fjöldasöng í klukkustund. Textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nHúsið er opið frá 11.30 – 17.00\, einnig veitingastofur á 1.hæð.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-21/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/Sigurkarl-Stefánsson-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171105T160000
DTEND;TZID=UTC:20171105T160000
DTSTAMP:20171102T132002Z
CREATED:20171101T140342Z
LAST-MODIFIED:20171102T132002Z
UID:10000599-1509897600-1509897600@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókakaffi til heiðurs Kristjáni Árnasyni
DESCRIPTION:Kristján Árnason hefur flutt mörg merk verk bókmenntasögunnar heim til Íslands með þýðingum sínum og í vor sendi hann frá sér bókina Það sem lifir dauðann af er ástin\, safn af ljóðaþýðingum allt frá grískum og rómverskum fornkvæðum til samtímakvæða. Kristján Árnason hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin árið 2010 fyrir þýðingu sína á Ummyndunum eftir Ovid\, og hann var gerður að heiðursfélaga Bandalags þýðenda og túlka árið 2013\, enda hefur hans sent frá sér margar vandaðar bókmenntaþýðingar í gegnum tíðina auk annarra menningarstarfa. \nSunnudaginn 5. nóvember nk. verður efnt til kaffiboðs í Hannesarholti kl. 16-18 til að fagna bókinni og heiðra Kristján fyrir ómetanlegt framlag hans til íslenskrar menningar. Góðir gestir taka þátt í dagskránni\, m.a. ætlar Sölvi Björn Sigurðsson rithöfundur að segja nokkur orð um Kristján og Árni Matthíasson blaðamaður að tala um þýðingar hans á söngtextum Theodorakis\, en gestir fá einnig að hlýða á nokkur lög. Leikararnir Alda Arnardóttir og Pétur Eggerz lesa upp ljóð úr bókinni. \nBandalag þýðenda og túlka stendur að dagskránni í samvinnu við Hannesarholt og býður gestum upp á kaffi og kleinur\, en einnig verður hægt að kaupa aðrar veitingar. Reykjavíkurborg styrkti viðburðinn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokakaffi-til-heidurs-kristjani-arnasyni/
LOCATION:Hannesarholt veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:Bókakaffi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/11/TadSemLifirDaudannErAstin-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR