BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171121T200000
DTEND;TZID=UTC:20171121T220000
DTSTAMP:20171120T182846Z
CREATED:20171102T105151Z
LAST-MODIFIED:20171120T182846Z
UID:10000248-1511294400-1511301600@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall: Um lífsiðfræði CRISPR-erfðatækninnar
DESCRIPTION:Grunnrannsóknir þar sem CRISPR-erfðabreytingatæknin kemur við sögu hafa vakið mikla athygli á liðnum árum. Það eru möguleikar tækninnar sjálfrar sem vakið hafa mest umtal og hafa fjölmargir kallað eftir samtali milli vísindamanna\, siðfræðinga og samfélagsins í heild sinni um þessi mál. Á þessu öðru heimspekispjalli vetrarins í Hannesarholti munu Guðrún Valdimarsdóttir\, lektor við læknadeild Háskóla Íslands\, og Henry Alexander Henrysson\, aðjunkt við Sagnfræði- og heimspekideild og sérfræðingur við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands eiga samræðu um CRISPR og svara spurningum úr sal. \nÓkeypis er á viðburðinn. \nOpið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir viðburðinn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimspekispjall-um-lifsidfraedi-crispr-erfdataekninnar/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/11/crispr-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171122T200000
DTEND;TZID=UTC:20171122T200000
DTSTAMP:20171120T194034Z
CREATED:20171021T235329Z
LAST-MODIFIED:20171120T194034Z
UID:10000596-1511380800-1511380800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Peter Máté og Eugen Prochác
DESCRIPTION:Sjaldheyrður klassíker J.N.Hummel fyrir selló og píanó. \nEugen Prochác sellóleikari frá Bratislava og Peter Máté flytja öll þau verk fyrir selló og píanó sem austurríska tónskáldið Johann Nepomuk Hummel hefur samið. \nHummel (1778-1837) var nemandi Mozarts og vinur Beethovens og Schuberts og starfaði í Vínarborg\, Stuttgart og Weimar. Hann var einn frægasti píanóleikari og tónskáld síns tíma en eftir komu nýrra strauma rómantíkurinnar hurfu verkin hans úr tónlistarsölum Evrópu. Síðustu áratugi hafa margir tónlistarmenn heimsins unnið við verðskuldaðri endurreisn tónverka þessa síðklassíska tónskálds. \nVerkin þrjú á dagskrá eru Variazioni Monferrina\, tilbrigði um ítalskan dans sem var mjög vinsæll á 19. öld\, Potpourri sem er tónlistarsyrpa með frægum aríum eftir Mozart og Rossini og Sónata fyrir selló og píanó. Sónatan er ljúf snemmrómantískt tónverk með fallegum melodíum og skemmtilegum tækniþrautum fyrir flytjendur. \nEugen Prochác er einn þekktasti sellóleikari Slóvakíu og dósent við Tónlistarháskólann í Bratislava. Hann hefur komið fram í nær 40 löndum fjögurra heimsálfa\, sem einleikari\, stjórnandi og sellóleikari í ýmsum kammertónlistarhópum. Eugen hefur hljóðritað fyrir Naxos og haldið masterklassa víða um veröld. Hann hefur verið listrænn stjórnandi tónlistarhátíða í Slóvakíu\, Tyrklandi\, Sameinuðu arabísku furstdæmunum og hefur starfað saman við þekkta tónlistarmenn eins og Sofia Gubaidulina\, Arto Noras\, En Shao\, Giovanni Sollima\, Rick Wakeman\, Steve Hackett\, Miroslav Vitouš\, Ken Hensley\, Václav Hudeček. \nPeter Máté er einnig fæddur í Slóvakíu en hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990. Hann hefur haldið marga einleikstónleika og tekið þátt í kammertónleikum víða á Íslandi sem erlendis. Peter er prófessor Listaháskóla Íslands og kennari við Menntaskólann í tónlist.  Hann hefur kennt masterklassa við fjölda erlendra háskóla og einnig tekið að sér dómarastarf við píanókeppnir. \nPeter og Eugen stunduðu báðir nám á sama tíma við Tónlistarakademíuna í Prag og eru nú að hittast í fyrsta skipti eftir 30 ár til þess að spila saman á tónleikunum. \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-peter-mate-og-eugen-prochac/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/10/PeterMateetal.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171123T183000
DTEND;TZID=UTC:20171123T183000
DTSTAMP:20171120T195748Z
CREATED:20171120T182227Z
LAST-MODIFIED:20171120T195748Z
UID:10000257-1511461800-1511461800@hannesarholt.is
SUMMARY:Fiskur af himni - Hallgrímur Helgason - upplestur
DESCRIPTION:Hallgrímur Helgason les upp úr nýrri ljóðabók sinni Fiskur af himni á baðstofulofti Hannesarholts. Þetta er önnur ljóðabók Hallgríms og er efniviðurinn býsna persónulegur. Þegar á reynir í lífsins ólgusjó er skáldskapurinn „í senn áskorun og líflína\,“ eins og segir á bókarkápu. Hallgrímur er fjölhæfur í listsköpun sinni\, málar\, yrkir\, þýðir og skrifar skáldsögur.\n\nÁ sónarskjá læknisins\nsnjóbylurinn í iðrum hennar\n\nÍ veðrinu miðju\nglittir í dauft blikkandi ljós\n\nTrilla í sjávarháska
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fiskur-af-himni-hallgrimur-helgason-upplestur/
CATEGORIES:Upplestrarkvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/11/HallgrímurHelgason-480x480.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171123T200000
DTEND;TZID=UTC:20171123T200000
DTSTAMP:20171120T182459Z
CREATED:20170914T150941Z
LAST-MODIFIED:20171120T182459Z
UID:10000234-1511467200-1511467200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Pálma Gunnarssyni
DESCRIPTION:Pálmi Gunnarsson söngvari og bassaleikari mætir til okkar í Hannesarholt fimmtudagskvöldið 23. nóvember ásamt Þóri Úlfarssyni píanóleikara og upptökustjóra en þeir félagar hafa unnið ófá verkefnin saman á liðnum áratugum. Veitingastofurnar eru opnar og það er tilvalið að fá sér kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-palma-gunnarssyni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/PG-Miklatún-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171125T150000
DTEND;TZID=UTC:20171125T170000
DTSTAMP:20171120T182943Z
CREATED:20171109T123734Z
LAST-MODIFIED:20171120T182943Z
UID:10000255-1511622000-1511629200@hannesarholt.is
SUMMARY:Sextán söngvar fyrir sópran og tenór
DESCRIPTION:Sextán söngvar fyrir sópran og tenór eru nýr sönglagaflokkur eftir Þorvald Gylfason prófessor við kvæði eftir Kristján Hreinsson skáld og heimspeking. Lögin eru samin fyrir sópran\, tenór og píanó. Ljóðin og lögin fjalla um söknuð\, sorg og gleði\, viljann og vonina\, ástina\, lífið og listina. \nHallveig Rúnarsdóttir sópran\, Elmar Gibertsson tenór og Snorri Sigfús Birgisson píanó munu frumflytja ljóðaflokkinn í Hannesarholti í Reykjavík 25. nóvember 2017. Skáldið mun flytja stuttar skýringar á undan hverju lagi og ljóði sem verður varpað á vegg á bak við sviðið. \nÍtarlegri upplýsingar um sönglögin\, flytjendur og höfunda má lesa á :https://notendur.hi.is/gylfason/Sextán%20söngvar%20fyrir%20sópran%20og%20tenór.html \n— \nTónleikarnir fara fram í Hljóðbergi\, tónleikasal Hannesarholts\, og hefjast tónleikarnir stundvíslega kl. 15:00 og 17:00. Húsið opnar hálftíma fyrir tónleika.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sextan-songvar-fyrir-sopran-og-tenor/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/11/20746325_1586464784761406_6486843202469240810_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171125T200000
DTEND;TZID=UTC:20171125T200000
DTSTAMP:20171101T153144Z
CREATED:20171101T142935Z
LAST-MODIFIED:20171101T153144Z
UID:10000600-1511640000-1511640000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Pálma Gunnarssyni endurtekin
DESCRIPTION:Uppselt var á kvöldstundina fyrr í vikunni með Pálma Gunnarssyni söngvara og bassaleikara og Þóri Úlfarssyni píanóleikara og upptökustjóra en þeir félagar hafa unnið ófá verkefnin saman á liðnum áratugum. Því er leikurinn endurtekinn laugardagskvöldið 25.nóvember. Veitingastofurnar eru opnar og það er tilvalið að fá sér kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-palma-gunnarssyni-2/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/PG-Miklatún-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR