BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171224T034500
DTEND;TZID=UTC:20171229T170000
DTSTAMP:20171224T035156Z
CREATED:20171224T035156Z
LAST-MODIFIED:20171224T035156Z
UID:10000616-1514087100-1514566800@hannesarholt.is
SUMMARY:Gleðilega hátíð - Happy hollidays!
DESCRIPTION:Hannesarholt óskar öllum vinum og velunnurum friðsælla hátíða og gleðiríkra stunda í faðmi fjölskyldu og vina. Starfsfólk Hannesarholts kemur aftur til starfa 3.janúar\, að einum degi undanskildum\, en laugardaginn 30.desember verður helgaður tónleikum „farfugla.“ Tónlistarnemar í útlöndum í jólafríi heima á Íslandi halda fimm tónleika þennan dag\, frá kl.12-21. Nánari útlistanir á tónlistarmönnum og efnisskrá hér að neðan. Allir velkomnir. Miðasala á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gledilega-hatid-happy-hollidays/
CATEGORIES:Jólafrí
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/jólalaufabrauðAra-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171230T120000
DTEND;TZID=UTC:20171230T120000
DTSTAMP:20171223T183517Z
CREATED:20171205T150148Z
LAST-MODIFIED:20171223T183517Z
UID:10000602-1514635200-1514635200@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar farfugla
DESCRIPTION:Laugardaginn 30. desember verða Farfuglatónleikar Hannesarholts haldnir\, annað árið í röð. Tónleikarnir eru tileinkaðir tónlistarnemendum sem stunda nám við skóla erlendis\, og spila sjaldnan fyrir íslenska áheyrendur. \nMiðar á tónleikana kostar 2500\,- og er miðasala á midi.is\, sjá neðar: \n  \nFarfuglarnir 2017 eru: \n  \nIngi Bjarni Skúlason píanó og Þórdís Gerður Jónsdóttir selló: frumsamið og spuni: Kl. 12.00 Miðasala \nJiji Kim og Gulli Björnsson klassískur gítar – ný “ambient” tónlist Kl. 14.00 Miðasala \nSteiney Sigurðardóttir selló og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó – Brahms\, Schumann og Bach : Kl. 16.00 Miðasala \nJóna G.Kolbrúnardóttir söngur og Bjarni Frímann píanó – Schumann\, Sibelius\, Liszt o.fl.  Kl. 18.00 Miðasala \nGeirþrúður Anna Guðmundsdóttir selló og Jane Ade píanó –   Bach og Chopin: Kl. 20.00 Miðasala \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-hannesarholts/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Farfuglatónleikar,Tónleikar (Concerts)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171230T120000
DTEND;TZID=UTC:20171230T120000
DTSTAMP:20171223T165528Z
CREATED:20171223T165200Z
LAST-MODIFIED:20171223T165528Z
UID:10000611-1514635200-1514635200@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar: kl. 12:00 - Ingi Bjarni Skúlason
DESCRIPTION:Farfuglatónleikar Hannesarholts\n30. desember kl. 12.00 – 22.00\nFyrstu tónleikar dagsins eru tónleikar Inga Bjarna Skúlasonar: \nIngi Bjarni lagði stund á jazz-píanó nám í Tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist þaðan árið 2011. Vorið 2016 lauk hann bachelor prófi við Konunglega Tónlistarháskólanum (Koninklijk Conservatorium) í Den Haag\, Hollandi. Þar hafa kennarar hans á meðal annara Jasper Soffers\, Juraj Stanik og Eric Gieben. Hann hefur einnig sótt tíma til bandaríska píanóleikarans Aaron Parks.  Allt frá því að hann byrjaði að læra í Tónlistarskóla FÍH hefur hann verið virkur tónlistarflytjandi. Í stuttu máli mætti segja að Ingi Bjarni hefur leikið eigin tónsmíðar með fjölda fólks á Íslandi og í Evrópu. Ásamt því að vera virkur tónlistarflytjandi hefur Ingi Bjarni fengist við kennslu og undirleik. Sumarið 2015 gaf Ingi Bjarni út sinn fyrsta geisladisk sem kallast „Skarkali“. Diskurinn inniheldur níu lög fyrir tríó sem sum hver endurspegla það að vera Íslendingur í skarkala erlendrar stórborgar. Diskurinn fékk ágætis dóma frá erlendum jazztímaritum. Nýr tríó diskur Inga Bjarna var tekinn upp 14. október síðastliðinn og stefnt er á útgáfu á næsta ári. Meðspilarar hans þar eru þeir Magnús Trygvason Eliassen á trommum og hinn færeyski Bárður Reinert Poulsen á bassa.\n\nSem stendur er Ingi Bjarni á lokaári sínu í mastersnámi sem kallast Nordic Master: The Composing Musician. Þar stundar hann nám í píanóleik og tónsmíðum. Námið fer fram í Osló\, Kaupmannahöfn og Gautaborg\, ein önn á hvorum stað.\n\nÍ mars 2014 var Ingi Bjarni tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna í flokkinum Bjartasta vonin í sígildri- og samtímatónlist og jazzi.\n\nIngi Bjarni hefur þó nokkrum sinnum komið fram á Jazzhátíð Reykjavíkur. Einnig hefur hann spilað á alþjóðlegum jazzhátíðum líkt og Copenhagen Jazz Festival\, Vilnius Jazz Festival í Litháen\, Lillehammer Jazz Festival í Noregi og Jazz in Duketown í Hollandi. Þar að auki hefur hann komið fram á ýmsum minni tónleikum á Íslandi\, Svíþjóð\, Eistlandi\, Lettlandi\, Færeyjum\, Belgíu og Hollandi.\n\nMeð honum leikur Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-kl-1200-ingi-bjarni-skulason/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/ingibjarni.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171230T140000
DTEND;TZID=UTC:20171230T140000
DTSTAMP:20171223T172320Z
CREATED:20171223T170933Z
LAST-MODIFIED:20171223T172320Z
UID:10000612-1514642400-1514642400@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar: Kl. 14:00 - Gulli Björnsson og Jiji Kim
DESCRIPTION:Farfuglatónleikar Hannesarholts\n30. desember kl. 12.00 – 22.00\n  \nAðrir tónleikar dagsins eru tónleikar gítarleikaranna Gulla Björnssonar og Jiji Kim \n\n\n\nLeiðir gítarleikaranna og tónlistarmannanna Gulla Björnssonar og Jiyeon Kim lágu saman í Yale School of Music þar sem þau útskrifuðust með mastersgráðu í tónlist síðastliðið vor en kennari þeirra þar var Benjamin Verdery. Bæði hafa þau komið víða við í listsköpun sinni\, í kvikmyndagerð\, myndlist og leikhúsi auk þess sem þau fást bæði við tónsmíðar. Fjölþættur bakgrunnur og víðfeðmt áhugasvið þeirra endurspeglast í viðfangsefnum dúettsins LINÜ þar sem saman renna klassísk tónlist og spuni og glænýjar tónsmíðar fyrir bæði klassíska gítara og rafmagnsgítara auk þess sem þau hafa starfað með listamönnum úr öðrum geirum\, má þar nefna nýlegt samstarfsverkefni með myndlistarmanninum og arkitektinum Drew Busmire þar sem LINÜ frumflutti tónverk fyrir sýndarveruleikagleraugu. \nÁ meðal tónleikastaða sem þau hafa komið fram í eru Carnegie Hall\, National Sawdust\, Miller Theater\, Mass MOCA\, Subculture NYC\, LIstasafnið í Fíladelfíu (Philadelphia Museum of Art)\, Princeton Sound Kitchen\, Breska-listasafnið við Yale\, Harpa\, Merkin Hall og Metropolitan-listasafnið í New York. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-kl-1400-gulli-bjornsson-og-jiji-kim/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/gullibjornssonogjiji.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171230T160000
DTEND;TZID=UTC:20171230T160000
DTSTAMP:20171223T172509Z
CREATED:20171223T172509Z
LAST-MODIFIED:20171223T172509Z
UID:10000613-1514649600-1514649600@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar Hannesarholts: kl. 16.00 - Steiney Sigurðardóttir
DESCRIPTION:Farfuglatónleikar Hannesarholts\n30. desember kl. 12.00 – 22.00\nÞriðju tónleikar dagsins eru tónleikar sellóleikarans Steineyjar Sigurðardóttur. Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 \nSteiney Sigurðardóttir er fædd árið 1996. Hún hóf sellónám 5 ára gömul hjá Örnólfi Kristjánssyni og var nemandi hans í átta ár við Suzuki tónlistarskólann í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins. Hún lauk framhaldsprófi með 9\,6 í einkunn vorið 2012 undir handleiðslu Gunnars Kvaran\, aðeins 16 ára gömul. Við nám sitt í Tónlistarskóla Sigursveins fékk Steiney sérstök verðlaun fyrir hæstu einkunn á miðstigi og 6.stigi. Frá áramótum 2013 til ársins 2015 var hún nemandi Sigurgeirs Agnarssonar við Listaháskóla Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hún útskrifaðist með burtfararpróf. Steiney hlaut styrktarverðlaun Halldórs Hansen fyrir framúrskarandi námsárangur í Listaháskólanum og fyrir burtfararpróf sitt úr Tónlistarskóla Reykjavíkur árið 2015. \n  \nHaustið 2015 flutti Steiney til Berlínar og nam einkatíma hjá prófessorum í helstu háskólum Þýskalands. Eftir að hafa staðist inntökupróf í Berlin og Trossingen vandaðist valið og endaði hún á að fara til Trossingen þar sem hún lærir nú undir handleiðslu Prof. Francis Gouton. \n  \nSteiney hefur sótt fljölda námskeiða og má þar helst nefna Tónlistarakademíuna í Hörpu\, Meadowmount School of Music\, Green Mountain Chamber Music Festival\, Astona International\, International Music Academie Cervo og Cello Akademie Rutesheim. Steiney hefur spilað í opnum tímum hjá Erling Blöndal Bengtson\, Clive Greensmith\, Bryndísi Höllu Gylfadóttur\, Marko Ylönen\, Troels Svane og Wenn Sin Yang. \n  \nSteiney hefur oft komið fram með hljómsveitum. Árið 2014 spilaði hún einleikskonsert Saint Saens á Hátíðartónleikum Tónlistarskólans í Reykjavík til Steiney-Sellóleikari Umsókn um tónlistarstyrk Rótarý minningar Ragnars í Smára eftir að hafa unnið HTR-keppni skólans. Árið 2015 spilaði hún sellókonsert Elgars með Sinfóníuhljómsveit Íslands á árlegu tónleikunum Ungir einleikarar eftir að hafa sigrað einleikarakeppni SÍ og Listaháskóla Íslands. Einnig tók hún tvisvar sinnum þátt fyrir hönd Tónlistarskóla Sigursveins í Nótunni í einleiksflokki á framhaldsstigi. Sumarið 2016 spilaði Steiney ástamt vinkonu sinni Sólveigu Steinþórsdóttur fiðluleikara opnunartónleika Tónlistarhátíðar unga fólksins eftir að hafa unnið tónleikakeppni TUF. \n  \nSteiney hefur verið virk í hljómsveitarstarfi hérlendis og erlendis og hefur til að mynda tekið þátt í Orkester Norden og leitt sellódeild Ungfóníunar og Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Frá árinu 2015 hefur hún verið lausráðin hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og einnig spilað með Württembergische Philharmonie Reutlingen. Steiney útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af náttúrufræðibraut vorið 2014 samhliða tónlistarnámi sínu. Hún tók saman níunda og tíunda bekk í grunnskóla og kláraði MH á þremur árum til þess að geta einbeitt sér að sellónáminu. Í gegnum árin hefur Steiney verið iðin við að halda styrktartónleika og spila hér og þar til að safna sér þess sem það tekur til að vera í tónlistarnámi erlendis.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-hannesarholts-kl-16-00-steiney-sigurdardottir/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/steiney.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171230T180000
DTEND;TZID=UTC:20171230T180000
DTSTAMP:20171223T174726Z
CREATED:20171223T174458Z
LAST-MODIFIED:20171223T174726Z
UID:10000614-1514656800-1514656800@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar Hannesarholts: kl. 18.00 - Jóna G. Kolbrúnardóttir
DESCRIPTION:Farfuglatónleikar Hannesarholts\n30. desember kl. 12.00 – 22.00\nFjórðu tónleikar dagsins eru tónleikar söngkonunnar Jónu G. Kolbrúnardóttur. \nJóna G. Kolbrúnardóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún var ung að árum þegar hún hóf að syngja og hefur sungið í ýmsum kórum bæði sem meðlimur og einsöngvari. Hún lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2014 undir leiðsögn Hörpu Harðardóttur. Haustið 2014 hélt hún í framhaldsnám til Vínarborgar þar sem hún stundar söngnám við Tónlistarháskólann undir leiðsögn Univ. Prof. Gabriele Lechner. Jóna hefur tekið þátt í ýmsum meistaranámskeiðum m.a. hjá Anne Sofie von Otter og Christine Schäfer. Haustið 2016 tók hún þátt í uppsetningu á óperunni Die Kluge eftir Carl Orff þar sem hún söng titilhlutverkið. Jóna kom fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikunum Ungir einleikarar í janúar síðast liðinn. Hún hefur síðustu tvö sumur komið fram á tónleikum í tónleikaröðinni Pearls of Icelandic Songs í Hörpu. Hún söng bakraddir inn á Biophilia plötu Bjarkar Guðmundsdóttur og tók svo þátt í þriggja ára tónleikareisu sem fylgdi á eftir plötunni. \nMeð henni leikur Bjarni Frímann á píanó.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-hannesarholts-kl-18-00-jona-g-kolbrunardottir/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Farfuglatónleikar,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/jonag.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171230T200000
DTEND;TZID=UTC:20171230T200000
DTSTAMP:20171223T180234Z
CREATED:20171223T180022Z
LAST-MODIFIED:20171223T180234Z
UID:10000615-1514664000-1514664000@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar Hannesarholts: kl. 20.00 - Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir
DESCRIPTION:Farfuglatónleikar Hannesarholts\n30. desember kl. 12.00 – 22.00\nFimmtu og síðustu tónleikar Farfugla þetta árið eru tónleikar sellóleikarans Geirþrúðar Önnu Guðmundsdóttur. Með henni á tónleikunum leikur og Jane Ade á píanó. Tónleikarnir hefjast kl. 18.00. \nGeirþrúður hefur nýlokið bakkalárnámi við Northwestern University í Chicago. Á tónleikunum verða leikin tónverk  fyrir selló og píanó og einleiksselló en með Geirþrúði kemur fram píanóleikarinn Jane Ade. Á efnisskránni eru m.a. Bach: Einleikssvíta nr. 3 í C dúr;  Chopin: Sónata fyrir selló og píanó í g moll\, Op. 65þ.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-hannesarholts-kl-20-00-geirthrudur-anna-gudmundsdottir/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Farfuglatónleikar,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/geirþrúður.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR