BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180605T200000
DTEND;TZID=UTC:20180605T210000
DTSTAMP:20210114T110251Z
CREATED:20210113T131024Z
LAST-MODIFIED:20210114T110251Z
UID:10000664-1528228800-1528232400@hannesarholt.is
SUMMARY:GÍTARSVEIT DO RE MI TÓNSKÓLANS Á FARALDSFÆTI
DESCRIPTION:Gítarsveit Tónskólans Do Re Mi heldur tónleika í Hannesarholti\, Grundarstíg 10 vegna námsferðar til Barcelona. Sveitin er samsett af átta 15-16 ára gömlum gítarnemum tónskólans Do Re Mi en þau hafa flest stundað nám við skólann frá 8 ára aldri og hafa ýmist lokið 4. stigsprófi eða miðprófi. Á tónleikunum leikur sveitin verk sem hún hefur æft m.a. fyrir þematónleika skólans síðustu ár\, verk allt frá 16. öld til nánast dagsins í dag. Leiknir verða gamlir miðaldardansar\, kínversk\, frönsk og suður-amerísk tónlist\, tónlist úr James Bond myndum\, tónlist efir Bítlana og tónlist sem samin var sérstaklega fyrir sumarólympíuleikana í Barcelona 1992 en til Barcelona fer sveitin í námsferð síðar í júnímánuði ásamt gítarkennara sínum\, Rúnari Þórissyni og foreldrum. Nemendur munu þar fara á einstaklings- og hópnámskeið\, auk þess að koma fram\, fara á tónleika og líta við í verslun sem sérhæfir sig í því að selja klassíska gítar. \nHljómsveitina skipa Björk Rósinkrans Bing\, Dýrleif Sjöfn Andradóttir\, Finnur Breki Bjarnason\, Helgi Níels Marteinsson\, Jökull Freysteinsson\, Margrét Edda Lian Bjarnadóttir\, Stirnir Kjartansson og Vigfús Þór Eiríksson. Tónleikarnir eru hugsaðir sem fjáröflunartónleikar vegna Barcelonaferðarinnar og er aðgangsdeyrir kr. 2.000. Auk þess styrkir Tónskólinn Do Re Mi ferð þessa.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gitarsveit-do-re-mi-tonskolans-a-faraldsfaeti/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Nemendatónleikar,Tónleikar (Concerts)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180607T180000
DTEND;TZID=UTC:20180607T183000
DTSTAMP:20210113T131330Z
CREATED:20210113T131330Z
LAST-MODIFIED:20210113T131330Z
UID:10000665-1528394400-1528396200@hannesarholt.is
SUMMARY:Leiðsögn u msýningu Ingibjargar Dalberg - Flækingar og fastagestir\, takk fyrir komuna
DESCRIPTION:Ingibjörg Hallgrímsdóttir Dalberg Segir frá myndlistarsýningu sinni Flækingar og fastagestir\, takk fyrir komuna. Myndefnið sækir Ingibjörg í íslenska farfugla og börn. Ingibjörg bjó erlendis um langt árabil þarsem hún nam og lagði stund á myndlist\, listasögu og sótti margvísleg námskeið þekktra listasafna t.d. Tate Modern í London. \nMyndlistarnám hefur Inga sótt í Englandi (1989 National Diploma Found. Higher Ed. Art and Design. London og 1988 Hull College of Further Ed. A Level Art. England) og síðar í Frakklandi (1993 École Nationale Supérieure des Beaux-Arts –París) auk fjölmargra námskeiða á Íslandi t.d. við Myndlistaskóla Reykjavíkur\, Myndlistaskóla Kópavogs og Listabraut FB. \nInga lauk BA prófi í sagnfræði með listfræði sem aukafag frá Háskóla Íslands og var viðfangsefni lokaritgerðar hennar \,\,Brot úr sögu smámynda á Íslandi. Upphaf og endalok 1770-1840” tengt órannsökuðum anga í sögu myndlistar hér á landi. \nMeð hléum hefur Inga starfað við listmálun og vinnur hún ýmist við stór óhlutbundin verk til jafns við fígúratívar myndir. \nEinkum eru það andlitsmyndir/portret með áherslu á raunsæi sem hafa verið megin viðfangsefni undnfarin ár. \nInga býr og starfar í Reykjavík og er gestum velkomið að líta við á vinnustofu hennar vestur í bæ eða skoða fb síðu. Síminn er 698 4765. Netfangið er idalberg@simnet.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leidsogn-u-msyningu-ingibjargar-dalberg-flaekingar-og-fastagestir-takk-fyrir-komuna/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Leiðsögn um myndlistarsýningu
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ingibjorg-1.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180609T160000
DTEND;TZID=UTC:20180609T180000
DTSTAMP:20210113T131526Z
CREATED:20210113T131526Z
LAST-MODIFIED:20210113T131526Z
UID:10000666-1528560000-1528567200@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Svavar Knútur
DESCRIPTION:Söngvaskáldið Svavar Knútur heldur tónleika í Hannesarholti þann 9. júní næstkomandi kl. 16.00. Svavar Knútur hefur getið sér gott orð\, ekki einungis fyrir sín eigin lög\, heldur einnig fyrir meðferð sína á sígildum söngperlum Íslands. \nÞann 10. mars hélt hann tónleika í Hannesarholti þar sem hann rifjaði upp kynni sín af þessum gömlu góðu sönglögum og flutti rúmlega klukkustundarlanga dagskrá\, sneisafulla af lögum eftir höfunda eins og Sigfús Halldórsson\, Jón Nordal\, Pál Ísólfsson\, Sigvalda Kaldalóns og fleiri við ljóð eftir Tómas Guðmundsson\, Davíð Stefánsson\, Halldór Laxness og Jónas Hallgrímsson ásamt fleiri ljóðsnillingum Íslandssögunnar. Nú endurtekur hann efnisskrána með einungis gítarinn og Ukuleleið í för. Tónleikarnir verða í senn einfaldir og hlýir. Þeir sem þekkja til flutnings Svavars Knúts á hinum sígildu íslensku sönglögum vita vel hvaða fjársjóðskistu hér er verið að opna og mega hugsa sér gott til glóðarinnar. Miðaverð er kr. 3.000 en 2.000 fyrir lífeyrisþega og námsmenn. Frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-svavar-knutur-2/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/svavar.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR