BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180614T193000
DTEND;TZID=UTC:20180614T194500
DTSTAMP:20210113T132052Z
CREATED:20210113T132052Z
LAST-MODIFIED:20210113T132052Z
UID:10000667-1529004600-1529005500@hannesarholt.is
SUMMARY:Þjóðlagasveitin Þula á leið til Kína
DESCRIPTION:Þjóðlagasveitin Þula er skipuð 8 ungmennum á aldrinum 16-18 ára á efri stigum náms við Tónlistarskóla Kópavogs. Þula er eina þjóðlagasveitin sinnar tegundar þar sem ungmenni iðka flutning á íslenskri þjóðlagatónlist með söng\, hljóðfæraleik og dansi sér og öðrum til gleði. Þjóðlagasveitin hefur þegar komið víða við\, þar á meðal tók Þula þátt í alþjóðlegu þjóðlagahátíðinni Moonlight á Spáni sumarið 2017\, Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði 2016\, í Nótunni í Eldborg Hörpu 2016\, í Hofi á Akureyri\, Barnamenningarhátíð í Reykjavík og Kópavogi\, Ormadögum í Kópavogi og víðar. Hópurinn hefur einnig leitt vinnustofu í þjóðlagatónlist á norrænu þjóðdansa- og þjóðlagamóti í Mosfellsbæ og tekið á móti þjóðlagahópi barna frá Kólumbíu. \nÞula hefur verið valin til þátttöku í alþjóðlegri listahátíð ungmenna í borginni Tianjin í Kína 26.-31. júlí. Það er mikill heiður að vera valin til þátttöku í hátíðinni\, en þetta er í annað sinn sem Kínversk-íslenska menningarfélagið hefur milligöngu um að senda íslenska fulltrúa á hátíðina. Listahátíðin í Tianjin er hátíð sem haldin er sameiginlega af Kínverska þjóðarráðinu er vinnur að vináttusamböndum við erlend ríki\, Kínverska menningarráðinu og borgarstjórn Tianjin borgar\, en þema hátíðarinnar er friður\, vinátta og framtíð. Hátíðin er gríðar stór og gert ráð fyrir þátttakendum frá allt að 100 löndum. \nÞulu skipa: \nAnna Margrét Jónudóttir – fiðla\, söngur\, dans \nHekla Martinsdóttir Kollmar – fiðla\, söngur \nSóley Lúsía Jónsdóttir – fiðla\, söngur\, dans \nGuðrún Vala Matthíasdóttir – flauta\, söngur\, dans \nKristjana Ólöf Árnadóttir – flauta\, söngur\, dans \nJónína Matthíasdóttir – flauta\, söngur\, dans \nElvar Bjarnason – selló\, söngur\, dans \nDagur Bjarnason – kontrabassi\, söngur\, dans \nstjórnandi: Eydís Franzdóttir og \naðstoðarstjórnandi: Pamela De Sensi \nHægt er að kynnast Þulu betur á Facebook Þjóðlagasveitarinnar Þulu eða á myndbandi frá tónleikum sveitarinnar :
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thjodlagasveitin-thula-a-leid-til-kina/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/thulan-.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR