BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180727
DTEND;VALUE=DATE:20180905
DTSTAMP:20210119T151217Z
CREATED:20210119T151217Z
LAST-MODIFIED:20210119T151217Z
UID:10000485-1532649600-1536105599@hannesarholt.is
SUMMARY:"HÚN" FRÁ AFRÍKU TIL ÍSLANDS
DESCRIPTION:Patrytsia Tokav-Sedkh er listakona af Afrísku bergi brotin\, fædd í Ukraínu og búandi á Íslandi. Í þessarri sýningu veltir hún fyrir sér sögum af Afrísku og Íslensku landslagi. Umhyggjan og mýktin undir móðurlegum himni í skapandi rými. Myndirnar segja sögu afrísks og íslensks landslags á einni og sömu sýningunni. Litir landslagsins endurspeglast í myndunum\, uppruni lífsins er í bláu vatni\, rauður og gulur eru litir afríska eldmóðsins og eldsins í iðrum jarðar undir íslenskri foldu\, sem er svört og brún. Sýningin stendur út ágúst og allar myndirnar á sýningunni eru til sölu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hun-fra-afriku-til-islands/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/patrytsia-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180905T193000
DTEND;TZID=UTC:20180905T210000
DTSTAMP:20210113T141045Z
CREATED:20210113T141045Z
LAST-MODIFIED:20210113T141045Z
UID:10000334-1536175800-1536181200@hannesarholt.is
SUMMARY:JAZZHÁTÍÐ - AGNAR MÁR OG LAGE LUND
DESCRIPTION:Hannesarholt hýsir tónleika Jazzhátíðar með píanóleikaranum Agnari Má Magnússyni og gítarleikaranum Lage Lund miðvikudaginn 5.september kl.19.30 og 21:30 \nEftir nokkurn aðdraganda komist loks á samstarf milli píanistans Agnars Más Magnússonar og gítaristans Lage Lund nú í mars síðastliðnum. Þá fóru þeir saman í hljóver í Brooklyn og tóku upp nýja tónlist eftir Agnar. Það má segja að samleikurinn hafi smollið betur en vonir stóðu til. Báðir hafa þeir unnið með mörgum tónlistarmönnum í suðupotti New York borgar\, en hafa þó þessar norrænu rætur sem getur verið erfitt að hrista af sér\, enda engin ástæða til. Lage Lund er norskur en hefur verið í framvarðarsveit New York jazz senunnar um árabil. \nNú hefur tónlistinni verið komið á fast form og eru þetta útgáfutónleikar geisladisksins “Hending”. Titillinn vísar til þess að svona samstarf verður stundum að veruleika í gegnum tilviljanakennda atburðarrás. Einnig er hending tónlistarhugtak og á við um laglínubrot\, eða spunahugmynd. Ennfremur þýðir orðið hending á norksu framvinda atburða. Það er þessi framvinda í tónlistinni sem enginn veit hvert getur borið mann sem er kjarninn í jazz performans. Það verður forvitnilegt að heyra hvert hún ber þá félaga í Hannesarholti.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jazzhatid-agnar-mar-og-lage-lund/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/agnarmarmynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180906T193000
DTEND;TZID=UTC:20180906T223000
DTSTAMP:20210113T150527Z
CREATED:20210113T150527Z
LAST-MODIFIED:20210113T150527Z
UID:10000676-1536262200-1536273000@hannesarholt.is
SUMMARY:JAZZHÁTÍÐ - SIGURÐUR FLOSASON OG LARS JANSSON
DESCRIPTION:Hannearholt hýsir tónleika Jazzhátíðar í Reykjavík fimmtudaginn 6.september með Sigurði Flosasyni altsaxófónleikara og sænska píanóleikaranum Lars Jansson\, sem hafa þekkst í nokkur ár og spilað talsvert saman. Á síðasta ári hljóðritaði Sigurður plötuna „Green Moss Black Sand“ með trío Lars í Gautaborg. Sú plata hefur fengið frábæra dóma og gríðarlega góðar viðtökur á Spotify þar sem um 200.000 manns hafa streymt lögum af plötunni. \nNú leggja Lars og Sigurður upp með dúo tónleika þar sem áhersla verður á tónsmíðar þeirra beggja en ekki óhugsandi að vel valdir sígildir og sígrænir ópusar fylgi með. Hinn frábæri Steinway flygill\, nánd og hljómburður Hannesarholts munu ramma inn eftirminnilega fund þessara tveggja listamanna.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jazzhatid-sigurdur-flosason-og-lars-jansson/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/siggiflosaoglars.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180908
DTEND;VALUE=DATE:20181004
DTSTAMP:20210119T151039Z
CREATED:20210119T151039Z
LAST-MODIFIED:20210119T151039Z
UID:10000483-1536364800-1538611199@hannesarholt.is
SUMMARY:"JÖKLASÝN"
DESCRIPTION:Guðrún Benedikta Elíasdóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og hefur búið og starfað við myndlist og myndlistarkennslu á Íslandi\, í Frakklandi og Lúxemborg. Í dag vinnur hún vinnur að list sinni auk þess að kenna myndlist og leirmótun í Menntaskólanum við Sund. \nGuðrún hefur tekið þátt í fjölmörgum einka-og samsýningum í sýningarsölum bæði hérlendis og víðs vegar um Evrópu og í Bandaríkjunum. Má þar helst nefna CAL\, Cercle Artistique de Luxembourg\, artmetz í Metz í Frakklandi\, EVBK í Prüm í Þýskalandi og einkasýningar í Konchthaus Beim Engel í Lúxemborg\, Svavarssafni\, Slunkaríki\, Populus Tremula og Menningarmiðstöð í Spönginni (Artótek). Hún hefur dvalið á gestavinnustofum í Frakklandi og á Akureyri. Guðrún var ein af stofnendum Gallerí Skruggusteins og rak það þar til hún flutti til Suður-Frakklands og var í tengslum við það kjörin bæjarlistamaður Kópavogs 1996. \n“Ég vinn með náttúruna í víðri merkingu. Ég bý til mína eigin liti eða temperu sem kallast „patine au vin“. Innihaldið er í m.a. hvítvín\, egg og sitthvað fleira. Uppskriftin er ævagömul og ég fann hana í litaduftsverksmiðju í Roussillon í Frakklandi þar sem unninn er litur úr fjöllunum. Hef verið að þróa hana áfram síðan árið 2006 þegar ég var á gestavinnustofu í suður Frakklandi. \nEn til að auka sjálfbærni og virðingu við náttúruna þá hef ég minnkað notkun á innfluttu litadufti og sæki mína liti sjálf í Íslenska náttúru. Myl grjót sem ég finn víðs vegar um landið á ferðum mínum og nota í málverkið. Auk þess að nýta eldfjallaösku þar sem það á við. Ég er mest að vinna með jöklana núna m.a. áhrif hlýnunnar á þá\, en jöklar eru einlægt áhugamál þar sem ég ólst upp á Hornafirði í nálægð við Vatnajökul og tókst meira að segja að detta í jökulsprungu á unglings aldri\, svo að ég hef skoðað þá í meira návígi en margur. \nÞar sem bráðnun jöklanna eykst hraðar en nokkru sinni finnst mér ástæða til að halda áfram að minna á þessa stórfenglegu risa sem hafa svo mikil áhrif á umhverfi sitt og ekki síður áhrifin sem umhverfið hefur á þá. Mér finnst líka mjög viðeigandi að koma þessu til skila á strigann með efnum úr íslenskri náttúru. Einnig átökum elds og íss\, öskufallið sem myndar fíngerðar línuteikningar á fannhvítar breiðurnar.” \nFrekari upplýsingar um nám og sýningarferil má finna á heimasíðunni www.rbenedikta.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/joklasyn/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/joklasyn-1-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180909T140000
DTEND;TZID=UTC:20180909T150000
DTSTAMP:20210113T150731Z
CREATED:20210113T150731Z
LAST-MODIFIED:20210113T150731Z
UID:10000677-1536501600-1536505200@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ HÖRPU ÞORVALDSDÓTTUR
DESCRIPTION:Hannesarholt hefur frá upphafi hlúð að sönghefð íslendinga og býður upp á klukkustundar fjöldasöng á tveggja vikna fresti í vetur\, þar sem textar birtast á tjaldi\, tónlistarmaður leikur með og stjórnar fjöldasöng. Allir taka undir með sínu nefi og börn frá frítt inní fylgd með fullorðnum. Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og tónmenntakennari heldur utanum söngstundirnar í vetur og hefur leikinn. Hún er kórstjóri í Laugarnesskóla í Reykjavík og sér meðal annars um morgunsöng þar á hverjum morgni auk vikulegrar samsöngsstundar á Hrafnistu í Reykjavík. Söngurinn er henni mikið hjartans mál\, sem sameinar kynslóðir\, varðveitir tungumálið og hressir bætir og kætir. \nOpið í veitingastofum Hannesarholts frá 11.30-17.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-horpu-thorvaldsdottur/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180909T200000
DTEND;TZID=UTC:20180909T213000
DTSTAMP:20201016T161958Z
CREATED:20201016T161958Z
LAST-MODIFIED:20201016T161958Z
UID:10000312-1536523200-1536528600@hannesarholt.is
SUMMARY:FÁIR\, FÁTÆKIR\, SMÁIR - VONARSTRÆTISLEIKHÚSIÐ
DESCRIPTION:Leiklestur í Hannesarholti á nýju íslensku verki sem nefnist Fáir\, fátækir\, smáir. \nHöfundur: Sveinn Einarsson \nFáir\, fátækir\, smáir fjallar um uppþot sem á sér stað í íslensku samfélagi. Ráðherra hverfur sporlaust\, erlend þjóð vill kaupa stóran hluta af landinu og stjórn\, skipulag\, tungumál og þjóðarímynd okkar lítur út fyrir að ætla að velta á hliðina. Hvað er þá til bragðs að taka? \nLeikarar: Þór Tulinius\, Brynhildur Guðjónsdóttir\, Salóme Gunnarsdóttir\, Jakob Þór Einarsson\, Alexander Dantes Erlendsson\, Lára Jóhanna Jónsdóttir\, Benedikt Karl Gröndal\, Orri Huginn Ágústsson og Þórunn Magnea Magnúsdóttir \nLeikstjóri: Árni Kristjánsson \nTónlist: Guðni Franzson \nÚtlit: Helga Björnsson \nHúsið opnar kl.18.30. Möguleiki á að fá einfaldan kvöldverð á undan leiklestrinum: grænmetisböku með salati. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fair-fataekir-smair-vonarstraetisleikhusid/
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/10/plakat.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR