BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180908
DTEND;VALUE=DATE:20181004
DTSTAMP:20210119T151039Z
CREATED:20210119T151039Z
LAST-MODIFIED:20210119T151039Z
UID:10000483-1536364800-1538611199@hannesarholt.is
SUMMARY:"JÖKLASÝN"
DESCRIPTION:Guðrún Benedikta Elíasdóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og hefur búið og starfað við myndlist og myndlistarkennslu á Íslandi\, í Frakklandi og Lúxemborg. Í dag vinnur hún vinnur að list sinni auk þess að kenna myndlist og leirmótun í Menntaskólanum við Sund. \nGuðrún hefur tekið þátt í fjölmörgum einka-og samsýningum í sýningarsölum bæði hérlendis og víðs vegar um Evrópu og í Bandaríkjunum. Má þar helst nefna CAL\, Cercle Artistique de Luxembourg\, artmetz í Metz í Frakklandi\, EVBK í Prüm í Þýskalandi og einkasýningar í Konchthaus Beim Engel í Lúxemborg\, Svavarssafni\, Slunkaríki\, Populus Tremula og Menningarmiðstöð í Spönginni (Artótek). Hún hefur dvalið á gestavinnustofum í Frakklandi og á Akureyri. Guðrún var ein af stofnendum Gallerí Skruggusteins og rak það þar til hún flutti til Suður-Frakklands og var í tengslum við það kjörin bæjarlistamaður Kópavogs 1996. \n“Ég vinn með náttúruna í víðri merkingu. Ég bý til mína eigin liti eða temperu sem kallast „patine au vin“. Innihaldið er í m.a. hvítvín\, egg og sitthvað fleira. Uppskriftin er ævagömul og ég fann hana í litaduftsverksmiðju í Roussillon í Frakklandi þar sem unninn er litur úr fjöllunum. Hef verið að þróa hana áfram síðan árið 2006 þegar ég var á gestavinnustofu í suður Frakklandi. \nEn til að auka sjálfbærni og virðingu við náttúruna þá hef ég minnkað notkun á innfluttu litadufti og sæki mína liti sjálf í Íslenska náttúru. Myl grjót sem ég finn víðs vegar um landið á ferðum mínum og nota í málverkið. Auk þess að nýta eldfjallaösku þar sem það á við. Ég er mest að vinna með jöklana núna m.a. áhrif hlýnunnar á þá\, en jöklar eru einlægt áhugamál þar sem ég ólst upp á Hornafirði í nálægð við Vatnajökul og tókst meira að segja að detta í jökulsprungu á unglings aldri\, svo að ég hef skoðað þá í meira návígi en margur. \nÞar sem bráðnun jöklanna eykst hraðar en nokkru sinni finnst mér ástæða til að halda áfram að minna á þessa stórfenglegu risa sem hafa svo mikil áhrif á umhverfi sitt og ekki síður áhrifin sem umhverfið hefur á þá. Mér finnst líka mjög viðeigandi að koma þessu til skila á strigann með efnum úr íslenskri náttúru. Einnig átökum elds og íss\, öskufallið sem myndar fíngerðar línuteikningar á fannhvítar breiðurnar.” \nFrekari upplýsingar um nám og sýningarferil má finna á heimasíðunni www.rbenedikta.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/joklasyn/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/joklasyn-1-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180920T200000
DTEND;TZID=UTC:20180920T213000
DTSTAMP:20210113T151328Z
CREATED:20210113T151328Z
LAST-MODIFIED:20210113T151328Z
UID:10000679-1537473600-1537479000@hannesarholt.is
SUMMARY:KVÖLDSTUND MEÐ SIBYL
DESCRIPTION:Frásagnir með myndum og tóndæmum. \nSibyl segir frá sjö stórum áhrifavöldum á lífsferli sínum. \nAuk Sibylar koma fram Kristín E. Mäntylä\, söngkona\, Hólmfríður Sigurðardóttir\, píanóleikari og Auður Hildur Hákonardóttir\, myndlistamaður og höfundur. \nSibyl Urbancic er fædd í Graz\, Austurríki\, uppalin og skólagengin í Reykjavík\, stúdent frá MR 1957\, hóf norrænunám við Háskóla Íslands\, en lagði stund á kirkjutónlist og orgel sem einleikshljóðfæri við Tónlistarháskóla Vínarborgar\, sem hún varð síðar kennari við. Hún var blaðamaður við Tímann á yngri árum\, fréttaritari Morgunblaðsins frá Vín og þýðandi úr ýmsum málum á íslensku\, úr íslensku á þýsku. \nTónlistin hefur átt hug hennar\, hún hefur stundað tónleikahald og upptökur sem einleikari á orgel\, meðleikari á sembal\, síðar aðallega sem kórstjóri víða um heim. Einnig víðtækt námskeiðahald og störf í dómnefndum auk þess sem hún stofnaði söngflokkana La Cappella og VOCES\, WIEN. Sibyl lærði til kennsluréttinda í Feldenkrais\, sem er aðalatvinna hennar í dag. Hún stofnaði barnakórskólann NANO og stjórnaði honum í 10 ár\, eftir að háskólakennslu lauk. \nSibyl hefur haldið tengslum við heimaland sitt Ísland og haldið hér tónleika og unnið með kórum. Síðan Margrét Pálmadóttir bauð henni að taka að sér verkefni með Vox Feminae stuttu eftir stofnun hefur hún haldið tónlistar- og Feldenkrais-námskeið reglulega\, minnst tvisvar árlega (og kennt við Söngskólann í Reykjavík)\, nokkrum sinnum í Hveragerði\, Hafnarfirði\, Kópavogi\, Garðabæ\, á Akureyri\, Selfossi\, Hvanneyri og Skálholti.   Sibyl býr í Vín. \nMiðaframboð er takmarkað\, miðasala á tix.is \nVeitingastofurnar í Hannesarholti eru opnar fram á kvöld og býðst að snæða kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is Matseðil dagsins má skoða á heimasíðu Hannesarholts www.hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-sibyl/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/sibyl.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180923T140000
DTEND;TZID=UTC:20180923T150000
DTSTAMP:20210113T151831Z
CREATED:20210113T151831Z
LAST-MODIFIED:20210113T151831Z
UID:10000680-1537711200-1537714800@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN MEÐ JÓHANNI OG GUNNARI
DESCRIPTION:Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt hefur hlúð að þessarri afleifð frá upphafi og býður reglulega uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, Íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks. \nBræðrasynirnir Jóhann Vilhjálmsson og Gunnar Kr. Sigurjónsson hafa áður stýrt söngstundinni af alkunnri snilld\, og taka boltann sunnudaginn 23. september kl.14. Jóhann hefur verið í kórum allt frá blautu barnsbeini og Gunnar hefur spilað á hljómborð við ýmis tækifæri í gegnum tíðina\, jafnframt því að sinna útgáfustarfsemi og sýna töfrabrögð ýmiskonar. Börn fá frítt í fylgd með fullorðnum sem greiða kr.1000. Veitingahúsið á hæðinni fyrir ofan er opið frá 11.30 -17 fyrir helgardögurð (brunch)\, kaffi\, kökur og meðlæti. \nHér er upptaka söngstundum þeirra frænda í Hljóðbergi fyrir ári síðan:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-johanni-og-gunnari/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/syngjumsamanjohann.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR