BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180908
DTEND;VALUE=DATE:20181004
DTSTAMP:20210119T151039Z
CREATED:20210119T151039Z
LAST-MODIFIED:20210119T151039Z
UID:10000483-1536364800-1538611199@hannesarholt.is
SUMMARY:"JÖKLASÝN"
DESCRIPTION:Guðrún Benedikta Elíasdóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og hefur búið og starfað við myndlist og myndlistarkennslu á Íslandi\, í Frakklandi og Lúxemborg. Í dag vinnur hún vinnur að list sinni auk þess að kenna myndlist og leirmótun í Menntaskólanum við Sund. \nGuðrún hefur tekið þátt í fjölmörgum einka-og samsýningum í sýningarsölum bæði hérlendis og víðs vegar um Evrópu og í Bandaríkjunum. Má þar helst nefna CAL\, Cercle Artistique de Luxembourg\, artmetz í Metz í Frakklandi\, EVBK í Prüm í Þýskalandi og einkasýningar í Konchthaus Beim Engel í Lúxemborg\, Svavarssafni\, Slunkaríki\, Populus Tremula og Menningarmiðstöð í Spönginni (Artótek). Hún hefur dvalið á gestavinnustofum í Frakklandi og á Akureyri. Guðrún var ein af stofnendum Gallerí Skruggusteins og rak það þar til hún flutti til Suður-Frakklands og var í tengslum við það kjörin bæjarlistamaður Kópavogs 1996. \n“Ég vinn með náttúruna í víðri merkingu. Ég bý til mína eigin liti eða temperu sem kallast „patine au vin“. Innihaldið er í m.a. hvítvín\, egg og sitthvað fleira. Uppskriftin er ævagömul og ég fann hana í litaduftsverksmiðju í Roussillon í Frakklandi þar sem unninn er litur úr fjöllunum. Hef verið að þróa hana áfram síðan árið 2006 þegar ég var á gestavinnustofu í suður Frakklandi. \nEn til að auka sjálfbærni og virðingu við náttúruna þá hef ég minnkað notkun á innfluttu litadufti og sæki mína liti sjálf í Íslenska náttúru. Myl grjót sem ég finn víðs vegar um landið á ferðum mínum og nota í málverkið. Auk þess að nýta eldfjallaösku þar sem það á við. Ég er mest að vinna með jöklana núna m.a. áhrif hlýnunnar á þá\, en jöklar eru einlægt áhugamál þar sem ég ólst upp á Hornafirði í nálægð við Vatnajökul og tókst meira að segja að detta í jökulsprungu á unglings aldri\, svo að ég hef skoðað þá í meira návígi en margur. \nÞar sem bráðnun jöklanna eykst hraðar en nokkru sinni finnst mér ástæða til að halda áfram að minna á þessa stórfenglegu risa sem hafa svo mikil áhrif á umhverfi sitt og ekki síður áhrifin sem umhverfið hefur á þá. Mér finnst líka mjög viðeigandi að koma þessu til skila á strigann með efnum úr íslenskri náttúru. Einnig átökum elds og íss\, öskufallið sem myndar fíngerðar línuteikningar á fannhvítar breiðurnar.” \nFrekari upplýsingar um nám og sýningarferil má finna á heimasíðunni www.rbenedikta.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/joklasyn/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/joklasyn-1-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181002T200000
DTEND;TZID=UTC:20181002T220000
DTSTAMP:20210113T152650Z
CREATED:20210113T152446Z
LAST-MODIFIED:20210113T152650Z
UID:10000682-1538510400-1538517600@hannesarholt.is
SUMMARY:AUÐUR ÍSLANDS - \,\,TÍMINN OG JÖKLARNIR"
DESCRIPTION:Auður Íslands er nýr dagskrárliður í Hannesarholti sem lítur til lands\, þjóðar og tungu útfrá sjónarhornum náttúruvísinda\, félagsvísinda og lista. Andri Snær Magnason ríður á vaðið með þremur kvöldum á haustönninni undir þessum hatti. Kvöld Andra Snæs eru nokkurs konar þríleikur sem gengur undir heildarheitinu „Tíminn og vatnið“. Fyrsta kvöld þríleiksins er á dagskrá þriðjudaginn 2.október kl.20 og nefnist „Tíminn og jöklarnir“. Með Andra Snæ þetta kvöld verða Helgi Björnsson jöklafræðingur og Snorri Helgason tónlistarmaður. Pálmasjóður styrkir þessa viðburðadagskrá og eru færðar þakkir fyrir. \nAndri Snær Magnason hefur síðustu ár unnið að verkefni sem fjallar um \,\,tímann og vatnið“. Á þessari öld spá vísindamenn grundvallarbreytingum á eðli vatnisins á jörðinni. Jöklar bráðna hraðar en áður hefur sést og yfirborð sjávar mun rísa hraðar en dæmi eru um. Sýrustig sjávar mun taka grundvallarbreytingum og loftslag mun hlýna með tilheyrandi breytingum á veðri\, vindum og lífskilyrðum milljóna jarðarbúa. Andri Snær efnir í þrjú kvöld í Hannesarholti í haust og gefur okkur innsýn í verk í vinnslu þar sem þessi mál verða krufin til mergjar. Hann fær til liðs við síg þrjá vísindamenn og þrjá tónlistarmenn. Í verki sínu blandar Andri Snær saman vísindum\, minningum\, goðafræði og viðtölum til að reyna að skilja þessi mikilvægustu mál samtímans. Segja má að bókin sé einskonar framhald af Draumalandi en samhengið er víðara\, stærra en líklega alvarlegra og flóknara. \n2.október: Tíminn og ísinn – ásamt Helga Björnssyni jöklafræðingi og Árna Heiðari Karlssyni. Helgi Björnsson hefur verið prófessor í jarðvísindum við Háskóla Íslands og höfundur bókarinnar um Jökla á Íslandi. Snorri Helgason tekur með sér gítarinn og leysir Árna Heiðar Karlsson af sem liggur í veikindum. \nPálmasjóður styrkir þessa viðburðadagskrá og eru færðar þakkir fyrir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/audur-islands-timinn-og-joklarnir/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Auður Íslands
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/screen-shot-2018-10-02-at-15.48.04.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181003T200000
DTEND;TZID=UTC:20181003T210000
DTSTAMP:20210113T152926Z
CREATED:20210113T152926Z
LAST-MODIFIED:20210113T152926Z
UID:10000683-1538596800-1538600400@hannesarholt.is
SUMMARY:STYRKTARTÓNLEIKAR - GUNNAR KVARAN OG HAUKUR GUÐLAUGSSON
DESCRIPTION:Gunnar Kvaran sellóleikari og Haukur Guðlaugsson orgelleikari\, hollvinir Hannesarholts\, halda styrktartónleika í Hljóðbergi Hannesarholts miðvikudaginn 3.október kl.20. Þeir félagar gefa vinnu sína og afrakstur miðasölu rennur alfarið til starfsemi Hannesarholts sjálfseignarstofnunar. Báðir eru þeir margverðlaunaðir tónlistarmenn sem hafa helgað líf sitt listagyðjunni. Hannesarholt kann þeim alúðarþakkir fyrir stuðninginn. \nEfnisskrá: J. S. Bach : Svíta nr. 2 í í d- moll BWV 1008 Prélude Allemande Courante Sarabande Menuet I Menuet II Gigue \nBach – Gounod: Ave María \nF. Chopin: Largo úr sónötu Op. 65 fyrir selló og piano \nJ. S.Bach: Svíta nr. 1 í G-dúr BWV 1007 Prélude Allemande Courante Sarabande Menuet I Menuet II Gigue \nF. Schubert: Litanei \nC. Saint-Saëns: Svanurinn \nGunnar Kvaran er fæddur í Reykjavík árið 1944. Hann hóf tónlistarnám í Barnamúsíkskólanum þar sem kennari hans var Dr. Heinz Edelstein. Síðar stundaði hann nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Einari Vigfússyni og við Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn þar sem kennari hans var prófessor Erling Blöndal­ Bengtsson. Framhaldsnám stundaði hann hjá prófessor Reine Flachot í Basel. Gunnar Kvaran kenndi við Tónlistarskólann í Reykjavík í þrjátíu og fimm ár. Hann var ráðinn prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands haustið 2005 og lét af því starfi árið 2012. \nHann hefur stundað\, auk fastra starfa\, umfangsmikið tónleikahald bæði heima og erlendis. Hann hefur haldið einleiks og kammertónleika í mörgum Evrópulöndum\, auk Bandaríkjanna og Kanada og m.a. komið fram í Wigmore Hall í London\, Carnegie Hall í New York\, í Beethoven Haus í Bonn og Mendelsohn Haus í Leipzig. Hann er meðlimur í kammerhópnum Tríó Reykjavíkur. \nGunnar hefur margsinnis leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, komið fram í útvarpi og sjónvarpi og allmargar hljómplötur og hljómdiskar hafa verið gefnir út með leik hans. Hann hlaut verðlaun úr sjóði Dr.Gunnars Thoroddsens árið 1990 fyrir tónlistarstörf og var valinn bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 1996. Mörg undanfarin sumur hefur hann verið gestur á hinum ýmsu tónlistarhátíðum í Bandaríkjunum. Sumurin 1999 og 2000 var honum einnig boðið að kenna og leika á tónlistarhátíð í Grikklandi. Í desember 2001 var honum boðið að koma fram ásamt Hauki Guðlaugssyni organista á sérstökum hátíðartónleikun í Vendrell á Spáni\, fæðingarbæ Pablo Casals. Þann dag voru 125 ár liðin frá fæðingu meistarans. Gunnar var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu í júní 2006. \nHaukur Guðlaugsson er fæddur á Eyrarbakka 5.apríl 1931. Hann hóf píanónám 13 ára og lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1951 undir handleiðslu Árna Kristjánssonar. Hann stundaði orgelnám við Staatliche Hochschule für Musik í Hamborg 1955-60 og var aðalkennari hans þar prófessor Martin Günther Förstermann. Framhaldsnám í organleik stundaði hann við Accademia di Santa Cecilia í Róm hjá Maestro Fernando Germani 1966\, 1968 og 1972. Haukur var tónlistarkennari og kórstjóri Karlakórsins Vísis á Siglufirði 1951-55 og skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi 1960-74. Þá var hann einnig organisti og kórstjóri Akraneskirkju 1960-82 og kórstjóri Karlakórsins Svana. Hann var Söngmálastjóri íslensku þjóðkirkjunnar 1974-2001. Þá stóð hann fyrir organista-og kóranámskeiðum á hinu forna biskupssetri í Skálholti í 27 ár. Á starfsferli sínum stóð hann m.a. fyrir útgáfu um 70 bóka og hefta fyrir kóra og organista. Hann hefur haldið orgeltónleika víða á Íslandi\, í Evrópu og Bandaríkjunum og leikið einleik á orgel með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Einnig hafa kórar undir hans stjórn haldið tónleika á Íslandi og víða í Evrópu og í Ísrael og gert upptökur fyrir útvarp\, sjónvarp og geisladiska. \nÞá hefur hann leikið á píanó í samleik á tónleikum\, bæði með sellói\, fiðlu og ýmsum blásturshljóðfærum og einnig með söngvurum\, á Íslandi og í Evrópu. Haukur og Gunnar Kvaran hafa spilað mikið saman\, m.a. á eftirminnilegum minningartónleikum á 125 ára fæðingarafmæli Pablo Casals árið 2001\, í fæðingarbæ hans Vendrell í Katalóníu. Grímhildur Bragadóttir\, eiginkona Hauks\, hefur einmitt þýtt ævisögu Casals á íslensku. \nHaukur hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. Hann er heiðursfélagi bæði í Félagi íslenskra organleikara og í Félagi íslenskra tónlistarmanna. Árið 1983 var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og árið 2008 hlaut hann Liljuna\, sérstök tónlistarverðlaun íslensku kirkjunnar. \nVeitingastofur Hannesarholts eru opnar frá kl.18.30 og er kvöldverðarseðill í boði. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/styrktartonleikar-gunnar-kvaran-og-haukur-gudlaugsson/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/gunnar-og-haukur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181004T200000
DTEND;TZID=UTC:20181004T220000
DTSTAMP:20210119T133832Z
CREATED:20210114T111901Z
LAST-MODIFIED:20210119T133832Z
UID:10000689-1538683200-1538690400@hannesarholt.is
SUMMARY:SIGVALDI KALDALÓNS Í HANNESARHOLTI
DESCRIPTION:Saga Sigvalda Kaldalóns í Hannesarholti. \nTónskáldið og doktorinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta læknishéraði landsins fyrir vestan. Víst var lífið þar ekki eins og í einföldum söngleik. Þrátt fyrir það samdi Sigvaldi margar af sínum helstu sönglagaperlum á Kaldalónsárunum. Rakin verður þessi litríka saga tónskáldsins fyrir vestan og fluttar helstu perlur hans. \nLeikurinn var frumsýndur árið 2013 og naut mikilla vinsælda og snýr nú aftur á senuna. Búast má við að margir fagni endurfundum og nýjum fundum við okkar ástkæra tónskáld Sigvalda Kaldalóns í þessari umtöluðu sýningu. Síðasta sýning í Hannesarholti sunnudaginn 4.nóvember kl.16. Eftir það fer sýningin á heimaslóðir til vestfjarða. \nHöfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson \nHljóðfæraleikari: Sunna Karen Einarsdóttir \nLeikmynd/Búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir \nLeikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson \nMiðaverð: 4000 kr\, miðasala á tix.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sigvaldi-kaldalons-i-hannesarholti/2018-10-04/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/sigvaldi-elfar-1-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181005T200000
DTEND;TZID=UTC:20181005T210000
DTSTAMP:20210113T153147Z
CREATED:20210113T153147Z
LAST-MODIFIED:20210113T153147Z
UID:10000684-1538769600-1538773200@hannesarholt.is
SUMMARY:KALOS Á ÍSLANDI
DESCRIPTION:Kalos kvartettinn leikur skandinavísk og amerísk þjóðlög í Hannesarholti\, ásamt nýjum verkum eftir Gísla Jóhann Grétarsson við texta eftir Önnu K. Larson\, ásamt verkum eftir Mariu Finkelmeier\, föstudaginn 5.október kl.20. \nÁrið 2014 varð Kalos kvartettinn til\, en í honum eru: Maria Finkelmeier (slagverk)\, Angela Shankar (klarient)\, Anna K. Larson (söngur) og Sanna Andersson (selló). Saga þeirra er þó mun lengri en svo. Helmingur hópsins ólst upp saman í litlum bæ í Svíþjóð en hinn helmingurinn í norðurfylkjum Bandaríkjanna. Tvær þeirra hittust í fyrsta skipti við Norðurheimskautsbauginn og þrjár skemmtu áhorfendum með tónleikum í París.\nMarkmið kvartettsins er að gefa hefðbundnum þjóðlögum nýjan búning. Einnig að semja nýja tónlist og panta ný verk sem eru samin fyrir þessa einstöku samsetningu hljóðfæra.\n—–\nKalos in Iceland \nNordic and American folk songs • New Works by composer Gísli Jóhann Grétarsson / lyricist Anna K. Larson and Maria Finkelmeier. \nKALOS In 2014 Kalos officially came into fruition\,(Maria Finkelmeier-percussion\, Angela Shankar-Clarinet\, Anna K. Larson-voice\, Sanna Andersson- cello) but their history is deeper than meets the eye. Two members grew up together in a small town in Sweden\, and two grew up in the Midwest\, two met near the Arctic Circle and three serenaded a crowd at a house concert in Paris. \nThe quartet aims to bring a fresh voice to traditional folk songs\, while self-composing and commissioning new works that highlight the innovative nature of this unique combination.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kalos-a-islandi/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/gunnar-og-haukur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181006
DTEND;VALUE=DATE:20181102
DTSTAMP:20210119T150828Z
CREATED:20210119T150828Z
LAST-MODIFIED:20210119T150828Z
UID:10000832-1538784000-1541116799@hannesarholt.is
SUMMARY:ÞRÁNDUR ÞÓRARINSSON BORGARMYNDIR
DESCRIPTION:Í tilefni af fertugsafmæli sínu efnir Þrándur Þórarinsson listmálari til sýningar og hátíðarhalda í Hannesarholti\, laugardaginn 6. október. Verða þar spánný verk uppi um alla veggi og rjáfur. Dýrirndi sem listamaðurinn hefur dregið upp úr hugskotum og sálarfylgsnum sínum með ærinni fyrirhöfn og dedúað við af leikni og natni. Borgarlandslagið er sem fyrr í fyrirrúmi á þessari sýningu\, í bland við mannlífslýsingar\, kyrralífsmyndir og portrett af vinum listamannsins. \nAfhjúpuð verður mynd af stórbóndanum og rokkstjörnuni Prins Póló\, en þeir Þrándur unnu náið saman í áraraðir\, og verður prinsinn sérlegur heiðursgestur á sýningunni. Þrándur fæddist það herrans ár 1978. Hann útskrifaðist af myndlistarbraut Menntaskólans á Akureyri um tveimur áratugum síðar. Hann hvarf frá námi við Listaháskóla Íslands og gerðist lærlingur norska kitch-málarans Odd Nerdrum í ein þrjú ár. Þá hefur hann lokið Mesitaranámi í heimspeki. Þrándur hefur unnið einvörðungu við það að lita og föndra myndir svo árum skiptir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thrandur-thorarinsson-borgarmyndir/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/43053200_2140896949254017_2537345289816113152_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181007T160000
DTEND;TZID=UTC:20181007T170000
DTSTAMP:20210119T133832Z
CREATED:20210114T111901Z
LAST-MODIFIED:20210119T133832Z
UID:10000690-1538928000-1538931600@hannesarholt.is
SUMMARY:SIGVALDI KALDALÓNS Í HANNESARHOLTI
DESCRIPTION:Saga Sigvalda Kaldalóns í Hannesarholti. \nTónskáldið og doktorinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta læknishéraði landsins fyrir vestan. Víst var lífið þar ekki eins og í einföldum söngleik. Þrátt fyrir það samdi Sigvaldi margar af sínum helstu sönglagaperlum á Kaldalónsárunum. Rakin verður þessi litríka saga tónskáldsins fyrir vestan og fluttar helstu perlur hans. \nLeikurinn var frumsýndur árið 2013 og naut mikilla vinsælda og snýr nú aftur á senuna. Búast má við að margir fagni endurfundum og nýjum fundum við okkar ástkæra tónskáld Sigvalda Kaldalóns í þessari umtöluðu sýningu. Síðasta sýning í Hannesarholti sunnudaginn 4.nóvember kl.16. Eftir það fer sýningin á heimaslóðir til vestfjarða. \nHöfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson \nHljóðfæraleikari: Sunna Karen Einarsdóttir \nLeikmynd/Búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir \nLeikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson \nMiðaverð: 4000 kr\, miðasala á tix.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sigvaldi-kaldalons-i-hannesarholti/2018-10-07/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/sigvaldi-elfar-1-.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR