BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181006
DTEND;VALUE=DATE:20181102
DTSTAMP:20210119T150828Z
CREATED:20210119T150828Z
LAST-MODIFIED:20210119T150828Z
UID:10000832-1538784000-1541116799@hannesarholt.is
SUMMARY:ÞRÁNDUR ÞÓRARINSSON BORGARMYNDIR
DESCRIPTION:Í tilefni af fertugsafmæli sínu efnir Þrándur Þórarinsson listmálari til sýningar og hátíðarhalda í Hannesarholti\, laugardaginn 6. október. Verða þar spánný verk uppi um alla veggi og rjáfur. Dýrirndi sem listamaðurinn hefur dregið upp úr hugskotum og sálarfylgsnum sínum með ærinni fyrirhöfn og dedúað við af leikni og natni. Borgarlandslagið er sem fyrr í fyrirrúmi á þessari sýningu\, í bland við mannlífslýsingar\, kyrralífsmyndir og portrett af vinum listamannsins. \nAfhjúpuð verður mynd af stórbóndanum og rokkstjörnuni Prins Póló\, en þeir Þrándur unnu náið saman í áraraðir\, og verður prinsinn sérlegur heiðursgestur á sýningunni. Þrándur fæddist það herrans ár 1978. Hann útskrifaðist af myndlistarbraut Menntaskólans á Akureyri um tveimur áratugum síðar. Hann hvarf frá námi við Listaháskóla Íslands og gerðist lærlingur norska kitch-málarans Odd Nerdrum í ein þrjú ár. Þá hefur hann lokið Mesitaranámi í heimspeki. Þrándur hefur unnið einvörðungu við það að lita og föndra myndir svo árum skiptir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thrandur-thorarinsson-borgarmyndir/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/43053200_2140896949254017_2537345289816113152_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181030T200000
DTEND;TZID=UTC:20181030T213000
DTSTAMP:20210119T133832Z
CREATED:20210114T111901Z
LAST-MODIFIED:20210119T133832Z
UID:10000692-1540929600-1540935000@hannesarholt.is
SUMMARY:SIGVALDI KALDALÓNS Í HANNESARHOLTI
DESCRIPTION:Saga Sigvalda Kaldalóns í Hannesarholti. \nTónskáldið og doktorinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta læknishéraði landsins fyrir vestan. Víst var lífið þar ekki eins og í einföldum söngleik. Þrátt fyrir það samdi Sigvaldi margar af sínum helstu sönglagaperlum á Kaldalónsárunum. Rakin verður þessi litríka saga tónskáldsins fyrir vestan og fluttar helstu perlur hans. \nLeikurinn var frumsýndur árið 2013 og naut mikilla vinsælda og snýr nú aftur á senuna. Búast má við að margir fagni endurfundum og nýjum fundum við okkar ástkæra tónskáld Sigvalda Kaldalóns í þessari umtöluðu sýningu. Síðasta sýning í Hannesarholti sunnudaginn 4.nóvember kl.16. Eftir það fer sýningin á heimaslóðir til vestfjarða. \nHöfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson \nHljóðfæraleikari: Sunna Karen Einarsdóttir \nLeikmynd/Búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir \nLeikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson \nMiðaverð: 4000 kr\, miðasala á tix.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sigvaldi-kaldalons-i-hannesarholti/2018-10-30/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/sigvaldi-elfar-1-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181031T200000
DTEND;TZID=UTC:20181031T210000
DTSTAMP:20210113T162248Z
CREATED:20210113T162248Z
LAST-MODIFIED:20210113T162248Z
UID:10000345-1541016000-1541019600@hannesarholt.is
SUMMARY:MAHLER OG MUSSORGSKY
DESCRIPTION:Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir flytja ljóðatónleika í Hannesarholti miðvikudagskvöldið 31.október í samvinnu Óperudaga og Hannesarholts. \nSöngvar og dansar dauðans er ljóðaflokkur saminn af Modest Mussorgsky á áratugnum 1870-80 við ljóð Arseny Golenishchev-Kutuzov. Dauðinn spilar veigamikið hlutverk í öllum lögunum\, þau lýsa á ljóðrænan hátt raunveruleika 20.aldar Rússland: ungbarnadauða\, dauða á yngri árum\, drykkfelld ævintýri og stríði. \nSöngvar farandmannsins er ljóðaflokkur saminn af Gustav Mahler við sinn eigin texta á árunum 1884-5. Mahler samdi flokkinn eftir misheppnaða ást á sópran söngkonunni Jóhanna Richter\, en þau kynntust í Þýskalandi á meðan hann stjórnaði þar. Lögin lýsa eigin tilfinningareynslu tónskáldsins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mahler-og-mussorgsky/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/thrainnoghronn.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181101T120000
DTEND;TZID=UTC:20181101T130000
DTSTAMP:20210114T121030Z
CREATED:20210114T121030Z
LAST-MODIFIED:20210114T121030Z
UID:10000353-1541073600-1541077200@hannesarholt.is
SUMMARY:ARISTÓTELESARKAFFI
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/aristotelesarkaffi/2018-11-01/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Heimspekispjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/aristotelesarkaffi.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181101T200000
DTEND;TZID=UTC:20181101T200000
DTSTAMP:20210113T162541Z
CREATED:20210113T162541Z
LAST-MODIFIED:20210113T162541Z
UID:10000346-1541102400-1541102400@hannesarholt.is
SUMMARY:KVÖLDSTUND MEÐ BRYNDÍSI SCHRAM
DESCRIPTION:Bryndís Schram var gestur í Hannesarholti í febrúarmánuði á þessu ári. Það var fullt hús og frábærar undirtektir. Nú hefur Bryndís fallist á að vera aftur gestur okkar þann 1. nóvember n.k.. \nBryndís mun segja sögur af konum og körlum og börnum og burum af ýmsum breiddargráðum\, eins og henni er einni lagið. \nEftir hlé bætist henni liðsauki. Hún og Jón Baldvin munu skipast á um að segja sögur af ævintýraferð með Síberíuhraðlestinni frá Miðríkinu til Moskvu á liðnu sumri. \nMiðaasala fer fram á tix.is og aðgangseyrir er 2.500 kr. \nHægt er að bóka borð fyrir kvöldmat á undan kvöldstundinni í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is. Matseðill hér á heimasíðunni samdægurs.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-bryndisi-schram-2/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/komin-ti-berlinar-2018.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181103T130000
DTEND;TZID=UTC:20181103T140000
DTSTAMP:20210113T163002Z
CREATED:20210113T163002Z
LAST-MODIFIED:20210113T163002Z
UID:10000348-1541250000-1541253600@hannesarholt.is
SUMMARY:MUSIC IS SILLY! ... BUT I LIKE TO SING
DESCRIPTION:Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja tónlist úr ýmsum áttum\, meðal annars eftir Debussy\, Kurt Weill\, Gershwin og afmælisbarn ársins Leonard Bernstein á tónleikum í Hannesarholti\, sem eru partur af dagskrá Óperudaga í Reykjavík. \nHERDÍS ANNA\nHerdís Anna Jónasdóttir lærði á fiðlu\, píanó og söng frá unga aldri við Tónlistarskólann á Ísafirði. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði lagði hún stund á framhaldsnám við Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Elísabetar Erlingsdóttur. Þaðan útskrifaðist hún með Bachelor gráðu í söng og hélt til Berlínar. Við Hanns-Eisler tónlistarháskólann lærði hún hjá Prof. Brendu Mitchell og Önnu Samuil\, en sótti einnig tíma hjá Juliu Varady og Wolfram Rieger. Hún kláraði Konzertexamen árið 2012 með ágætiseinkunn og var þá ráðin að óperustúdíóinu við Óperuna í Zürich. Þar tók hún þátt í ótal sýningum og masterklössum\, hjá Michelle Breedt\, Brigitte Fassbaender\, Francisco Araiza\, Fabio Luisi\, Ivor Bolton\, Andreas Homoki\, Dmitri Tcherniakow o.fl. \nHerdís hefur tekið þátt í fjölmörgum óperuuppfærslum í Þýskalandi\, Íslandi og Sviss. Meðal helstu hlutverka eru Adina (Ástardrykkurinn)\, Adele (Leðurblakan)\, Zerlina (Don Giovanni)\, Drottningin frá Schemacha (Gullni haninn)\, Maria (West Side Story)\, Eliza (My Fair Lady)\, Nannetta (Falstaff)\, Oscar (Grímudansleikur) og Musetta (La Bohème). \nHerdís hefur einnig margsinnis komið fram á tónleikum\, s.s. með Kammersveit Reykjavíkur\, á Carl-Orff tónlistarhátíðinni\, með Saarlensku ríkishljómsveitinni\, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveitinni í Canberra\, Ástralíu. \nHerdís var valin söngkona ársins í Saarbrücken árið 2016. Þá hefur hún tvívegis verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna (Söngkona ársins 2012 og Bjartasta vonin 2011)\, komist í úrslit í Riccardo Zandonai keppninni 2012 og hlotið ýmsa styrki. Árin 2014-2018 var hún fastráðin sem einsöngvari við Ríkisóperuna í Saarbrücken\, Þýskalandi. \nEVA ÞYRI\nAð loknum prófum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík stundaði Eva Þyri Hilmarsdóttir nám við Det Jyske Musikkonservatorium í Árósum\, Danmörku\, og lauk þaðan einleikaraprófi.\nAð því loknu nam hún við The Royal Academy of Music í London\, en þaðan útskrifaðist hún með hæstu einkunn\, hlaut heiðursnafnbótina DipRAM og The Christian Carpenter Piano Prize fyrir framúrskarandi lokatónleika.\nHelstu kennarar hennar voru Þorsteinn Gauti Sigurðsson\, Halldór Haraldsson\, John Damgård og Michael Dussek. \nAuk fjölda einleikstónleika hefur Eva Þyri komið fram sem einleikari með hljómsveit og tekið þátt í frumflutningi íslenskra og erlendra verka m.a. á hátíðunum Myrkum Músíkdögum\, Ung Nordisk Musik\, Young Euro Classic Festival í Berlín og Young Composers Symposium í London. \nUndanfarin ár hefur hún einnig lagt mikla áherslu á flutning ljóðasöngs og kammertónlistar og kom m.a. fram á rúmlega hundrað tónleikum tileinkuðum íslenskum sönglögum í Hörpu\, í tónleikaseríunni Pearls of Icelandic Song. \nEva Þyri tók þátt í uppsetningu Íslensku óperunnar á Mannsröddinni eftir Poulenc 2017 og í lok árs 2018 kemur út geisladiskur með söngverkum Jórunnar Viðar sem hún hefur unnið í samstarfi við Erlu Dóru Vogler í tilefni 100 ára afmælis Jórunnar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/music-is-silly-but-i-like-to-sing/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/evathyriogmusicissilly.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181103T160000
DTEND;TZID=UTC:20181103T183000
DTSTAMP:20210113T163544Z
CREATED:20210113T163544Z
LAST-MODIFIED:20210113T163544Z
UID:10000349-1541260800-1541269800@hannesarholt.is
SUMMARY:ÞEGAR ORÐA ER VANT
DESCRIPTION:Erótík\, óendurgoldin ást og rómantískur dauði\, japönsk tónlistarhefð\, undurfögur orðlaus ljóð\, grískur harmsöngur. \nDuo Zweisam\, Katrin Szamatulski og Þóra Kristín Gunnarsdóttir\, flytja verk fyrir flautu og píanó sem öll tengjast ljóðum og söng. \nÁ dagskrá eru verk frá þremur löndum og þremur öldum\, stórverk flautubókmenntanna og minna þekktir gullmolar. \n\nEFNISSKRÁ\nClaude Debussy: Chansons de Bilitis (útsetning: Karl Lenski) \nFranz Schubert: Tilbrigði fyrir flautu og píanó\, Trockne Blumen D802 \nToshio Hosokawa: Lied \nFelix Mendelssohn: Þrjú Ljóð án orða fyrir flautu og píanó (útsetning: Wilhelm Barge) \nAndré Jolivet: Chant de Linos \nUM FLYTJENDUR\nKatrin Szamatulski flautuleikari lærði hjá Rolf Bissinger í Frankfurt am Main\, Benoît Fromanger í Berlin og Pirmin Grehl í Luzern. Í Luzern lauk hún mastersgráðum í hljómsveitarleik og tónlistarkennslufræði. Hún hefur tekið þátt í Darmstädter Ferienkursen für Neue Musik\, Impuls Akademie í Graz\, Ensemble Akademie hjá Ensemble Recherche í Freiburg og Klangspuren Internationalen Ensemble Modern Akademie í Schwaz. Hún hefur unnið með þekktum tónskáldum\, svo sem Beat Furrer\, Bernhard Lang\, Chaya Czernowin\, Sofia Gubaidulina og Simon Steen-Andersen\, m.a. í tengslum við Lucerne Festival. \nHún leikur reglubundið með ýmsum kammerhópum og er meðal stofnenda samtímatónlistarhópsins Lunaire og kammersveitarinnar O!contraire. Katrin hefur komið fram sem einleikari með ýmsum hljómsveitum í Sviss\, Austurríki og Þýskalandi. Samhliða tónlistarflutningi sínum starfar hún við rannsóknir í tónlist við háskólann í Luzern. Auk þess vinnur hún að miðlun samtímatónlistar í tónlistarkennslu. Starfsárið 2017-2018 er hún styrkþegi Internationale Ensemble Modern Akademie. \nÞóra Kristín Gunnarsdóttir hóf tónlistarnám sitt hjá Dýrleifu Bjarnadóttur á Akureyri og lærði síðar hjá Peter Máté í Reykjavík. Árið 2011 fluttist Þóra til Sviss til að stunda frekara tónlistarnám. Hún lauk mastersgráðu í píanókennslu og píanóleik með samspil sem aukagrein frá háskólanum í Luzern í janúar 2017. Kennari hennar í Luzern var Yvonne Lang en hún sótti einnig reglulega kammertíma hjá m.a. Christian Poltéra\, Isabel Charisius\, Igor Karsko og Edward Rushton. Haustið 2017 hóf hún nám í samspili og meðleik við listaháskólann í Zürich\, þar sem aðalkennari hennar er píanóleikarinn Friedemann Rieger. Þóra hefur tvisvar hlotið styrk úr styrktarsjóði Birgis Einarsonar\, 2014 og 2017\, og styrk frá KEA árið 2011. Auk námsins í Sviss hefur hún sótt Masterclassnámskeið í einleik\, ljóðaundirleik og kammertónlist. Samhliða náminu sinnir Þóra píanókennslu og kemur fram á tónleikum með söngvurum og hljóðfæraleikurum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thegar-orda-er-vant/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/duozweisam.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181104
DTEND;VALUE=DATE:20181129
DTSTAMP:20210119T150539Z
CREATED:20210119T150539Z
LAST-MODIFIED:20210119T150539Z
UID:10000831-1541289600-1543449599@hannesarholt.is
SUMMARY:SÖGUMÁLVERK - SAMFERÐAMENN - SOFFÍA SÆMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:Soffía Sæmundsdóttir myndlistarkona opnar sýninguna Sögumálverk/Samferðamenn í Hannesarholti sunnudaginn 4. nóvember kl.16. Á sýningunni eru ný málverk og nokkur smáverk gerð á þessu ári í tilefni af Fullveldisafmælinu. Í sýningarskrá segir Soffía: \nÍ mínum verkum set ég ferðalanginn fram sem einskonar sögupersónu\, klæddur í það sem gæti virkað sem þjóðbúningur\, gæti verið danskur aðalsmaður\, franskur dáti\, lítill drengur\, bjartsýniskona\, ráðvillt manneskja\, sögupersóna\, og allt þar á milli. Samferðamaður í víðum skilningi með samning\, landakort\, sjónauka\, jafnvægisslá eða göngustaf í hendi. Hvað þarf ferðalangur í 100 ár og hvert fer hann svo? \nSoffía Sæmundsdóttir hefur verið virk á íslenskum myndlistarvettvangi undanfarinn áratug og á að baki ótal einka og samsýningar heima og heiman. Hún er kunn af málverkum sínum sem vísa í ákveðinn myndheim þar sem frásagnargleði\, ferðalangar á eilífðarvegferð og landslag koma við sögu. \nSoffía er með vinnustofu að Fornubúðum 8\, við smábátahöfnina í Hafnarfirði sem er skapandi\, vakandi vinnustofa og má finna upplýsingar á Soffía vinnustofa á facebook. https://www.facebook.com/soffiasart/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sogumalverk-samferdamenn-soffia-saemundsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ferdalangur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181104T140000
DTEND;TZID=UTC:20181104T150000
DTSTAMP:20210113T163756Z
CREATED:20210113T163756Z
LAST-MODIFIED:20210113T163756Z
UID:10000688-1541340000-1541343600@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN MEÐ GÓÐUM GRÖNNUM
DESCRIPTION:Hannesarholt hlúir að söngarfinum með því að bjóða uppá samsöngsstund á tveggja vikna fresti. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nSunnudaginn 4.nóvember leiðir sönginn 17 manna blandaður kór\, sem nefnist Góðir grannar\, og hefur starfað saman í 20 ár. Kórfélagar hafa allir mikla reynslu af söng á ýmsum vettvangi\, t.d. hafa þeir flestir sungið með Kór Langholtskirkju á árum áður. Kórinn heldur að jafnaði tvenna tónleika árlega\, á aðventu og að vori og kemur einnig fram við ýmis önnur tækifæri. Efnisskrá er fjölbreytt\, innlend og erlend lög\, gömul og ný og oftast flutt án undirleiks. Stjórnandi kórsins er Egill Gunnarsson. \n\nGóðir grannar munu syngja íslensk ættjarðarlög og aðrar kórperlur með gestum\, sem taka undir hvort sem er í röddum eða einradda\, eftir því sem hverjum og einum hentar.\n\nVeitingastaðurinn í Hannesarholti er opinn frá 11.30-17 á sunnudögum og býður upp á helgardögurð\, kaffi og heimabakað bakkelsi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-godum-gronnum/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/agustuhopur.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181104T160000
DTEND;TZID=UTC:20181104T173000
DTSTAMP:20210119T133832Z
CREATED:20210114T111901Z
LAST-MODIFIED:20210119T133832Z
UID:10000693-1541347200-1541352600@hannesarholt.is
SUMMARY:SIGVALDI KALDALÓNS Í HANNESARHOLTI
DESCRIPTION:Saga Sigvalda Kaldalóns í Hannesarholti. \nTónskáldið og doktorinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta læknishéraði landsins fyrir vestan. Víst var lífið þar ekki eins og í einföldum söngleik. Þrátt fyrir það samdi Sigvaldi margar af sínum helstu sönglagaperlum á Kaldalónsárunum. Rakin verður þessi litríka saga tónskáldsins fyrir vestan og fluttar helstu perlur hans. \nLeikurinn var frumsýndur árið 2013 og naut mikilla vinsælda og snýr nú aftur á senuna. Búast má við að margir fagni endurfundum og nýjum fundum við okkar ástkæra tónskáld Sigvalda Kaldalóns í þessari umtöluðu sýningu. Síðasta sýning í Hannesarholti sunnudaginn 4.nóvember kl.16. Eftir það fer sýningin á heimaslóðir til vestfjarða. \nHöfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson \nHljóðfæraleikari: Sunna Karen Einarsdóttir \nLeikmynd/Búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir \nLeikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson \nMiðaverð: 4000 kr\, miðasala á tix.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sigvaldi-kaldalons-i-hannesarholti/2018-11-04/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/sigvaldi-elfar-1-.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR