BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181104
DTEND;VALUE=DATE:20181129
DTSTAMP:20210119T150539Z
CREATED:20210119T150539Z
LAST-MODIFIED:20210119T150539Z
UID:10000831-1541289600-1543449599@hannesarholt.is
SUMMARY:SÖGUMÁLVERK - SAMFERÐAMENN - SOFFÍA SÆMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:Soffía Sæmundsdóttir myndlistarkona opnar sýninguna Sögumálverk/Samferðamenn í Hannesarholti sunnudaginn 4. nóvember kl.16. Á sýningunni eru ný málverk og nokkur smáverk gerð á þessu ári í tilefni af Fullveldisafmælinu. Í sýningarskrá segir Soffía: \nÍ mínum verkum set ég ferðalanginn fram sem einskonar sögupersónu\, klæddur í það sem gæti virkað sem þjóðbúningur\, gæti verið danskur aðalsmaður\, franskur dáti\, lítill drengur\, bjartsýniskona\, ráðvillt manneskja\, sögupersóna\, og allt þar á milli. Samferðamaður í víðum skilningi með samning\, landakort\, sjónauka\, jafnvægisslá eða göngustaf í hendi. Hvað þarf ferðalangur í 100 ár og hvert fer hann svo? \nSoffía Sæmundsdóttir hefur verið virk á íslenskum myndlistarvettvangi undanfarinn áratug og á að baki ótal einka og samsýningar heima og heiman. Hún er kunn af málverkum sínum sem vísa í ákveðinn myndheim þar sem frásagnargleði\, ferðalangar á eilífðarvegferð og landslag koma við sögu. \nSoffía er með vinnustofu að Fornubúðum 8\, við smábátahöfnina í Hafnarfirði sem er skapandi\, vakandi vinnustofa og má finna upplýsingar á Soffía vinnustofa á facebook. https://www.facebook.com/soffiasart/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sogumalverk-samferdamenn-soffia-saemundsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ferdalangur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181107T200000
DTEND;TZID=UTC:20181107T213000
DTSTAMP:20210114T112400Z
CREATED:20210114T112400Z
LAST-MODIFIED:20210114T112400Z
UID:10000694-1541620800-1541626200@hannesarholt.is
SUMMARY:HEIMSPEKISPJALL - ÁBYRGÐ OG TRAUST\, REFSING OG LÆRDÓMAR
DESCRIPTION:Hannesarholt og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands bjóða til heimspekispjalls undir yfirskriftinni: Ábyrgð og traust – refsing og lærdómar \nFrummælendur verða Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir\, dósent í opinberri stjórnsýslu og Dr. Helgi Gunnlaugsson\, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þau munu kynna hugleiðingar sínar í framhaldi af rannsóknum á því hvernig brugðist var við í kjölfar hrunsins til að draga lærdóma af hruninu og endurheimta það traust sem hrundi með fjármálakerfinu 2008. Hverjir áttu að læra af þessu hruni og þá hvað? Hverjir áttu að axla ábyrgð og þá hvers konar ábyrgð? Hvernig er sambandið milli ábyrgðar og trausts? \nÓkeypis er inn á heimspekispjallið – en gestum býðst að kaupa kvöldverð á undan spjallinu í veitingastofum Hannesarholts. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimspekispjall-abyrgd-og-traust-refsing-og-laerdomar/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Heimspekispjall
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/screen-shot-2018-10-19-at-18.35.43.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181108T120000
DTEND;TZID=UTC:20181108T130000
DTSTAMP:20210114T121030Z
CREATED:20210114T121030Z
LAST-MODIFIED:20210114T121030Z
UID:10000354-1541678400-1541682000@hannesarholt.is
SUMMARY:ARISTÓTELESARKAFFI
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/aristotelesarkaffi/2018-11-08/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Heimspekispjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/aristotelesarkaffi.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181108T200000
DTEND;TZID=UTC:20181108T220000
DTSTAMP:20210114T112600Z
CREATED:20210114T112600Z
LAST-MODIFIED:20210114T112600Z
UID:10000695-1541707200-1541714400@hannesarholt.is
SUMMARY:AUÐUR ÍSLANDS - TÍMINN OG LOFTSLAGIÐ
DESCRIPTION:Auður Íslands er nýr dagskrárliður í Hannesarholti sem lítur til lands\, þjóðar og tungu útfrá sjónarhornum náttúruvísinda\, félagsvísinda og lista. Andri Snær Magnason ríður á vaðið með þremur kvöldum á haustönninni undir þessum hatti. Kvöld Andra Snæs eru nokkurs konar þríleikur sem gengur undir heildarheitinu „Tíminn og vatnið.“ Þann 8. nóvember er þriðji og síðasti hluti þríleiks Andra Snæs Magnasonar um tímann og loftslagið. Þessir viðburðir eru styrktir af Pálmasjóði. \nAndri Snær Magnason hefur fengið vísindamenn og tónlistarmenn til liðs við sig til að fást við Tímann og vatnið í Hannesarholti. Helgi Björnsson fjallaði um Tímann og jöklana og Edda Elísabet Magnúsdóttir fjallaði um tímann og hafið. Það er óhætt að segja að þær áskoranir sem maðurinn stendur frammi fyrir séu yfirþyrmandi. \nNú er komið að síðasta kvöldinu sem fjallar um Tímann og loftslagið og um leið og rætt verður um afleiðingar loftslagsbreytinga er einnig rætt um tímann og lausnirnar og eitthvað um vonina. Svavar Knútur mun einmitt syngja um tregann\, tímann\, hafið og vonina. \nVísindanefnd Sameinuðu Þjóðanna gaf nýlega út skýrslu sem málaði vægast sagt dökka mynd af framtíðinni. Þeir birtu sviðsmyndir af 1.5 gráðu hækkun og tveggja gráðu hækkun á hitastigi jarðar\, hvorugur valkostur virtist góður en síðari valkosturinn var öllu dekkri.\nBáðar sviðsmyndir fela í sér útdauða lífvera\, styrjaldir og átök um vatn\, uppskerubrest\, flóttamannastraum og ofsaveður. Það er óhætt að segja að í þetta sinn hafi vísindamenn tekið sterkt og afdráttarlaust til orða. Samkvæmt skýrslunni hefur mannkynið aðeins 12 ár til að ná tökum á losun á gróðurhúsalofttegundum\, ef ekki á að fara illa. Margir telja skýrsluna ganga of skammt\, samkvæmt henni mun súrnun hafsins samt sem áður eiga sér stað\, kóralrif heimsins deyja út að langmestu leyti og stór svæði í heiminum fara undir vatn og verða óbyggileg af öðrum ástæðum. Sumir telja að ástandið sé svo yfirþyrmandi að ekkert verði hægt að gera. Í sömu viku og skýrslan kom út fór olíuframleiðsla yfir 100 milljón tunnur á dag\, sem jafngildir meðalrennsli um Dettifoss í fyrsta skipti í sögunni. \nVið lítum yfir sviðið og horfum á lausnirnar. Hvað þarf að gera\, hvað er hægt að gera? Er eitthvað hægt að gera?\nSandra Ósk Snæbjörnsdóttir er doktor í jarðvísindum. Hún hefur starfað að Carbfix verkefninu uppi á Hellisheiði þar sem árangur í niðurdælingu á CO2 er langt framar væntingum. Ef við skoðum sögu flugsins\, frá fyrstu til raunum til farþegaflugs þá sjást ótrúleg framfarastökk. Ef við skoðum Manhattan verkefnið\, Marshall aðstoðina\, þróun í tölvutækni má sjá hvernig mannkynið hefur séð ótrúlegar breytingar og stórstíg stökk á örfáum árum og áratugum. Getum við vænst þess að upplifa svo spennandi tíma\, eða neyðumst við til að horfa upp á alla tæknina og þekkinguna ónotaða\, á meðan hægfara eyðilegging spillir grundvelli lífsins fyrir menn og aðra íbúa hnattarins?
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/audur-islands-timinn-og-loftslagid/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Auður Íslands
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/screen-shot-2018-11-01-at-12.59.03.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181110T170000
DTEND;TZID=UTC:20181110T180000
DTSTAMP:20210114T112809Z
CREATED:20210114T112809Z
LAST-MODIFIED:20210114T112809Z
UID:10000696-1541869200-1541872800@hannesarholt.is
SUMMARY:VESTNORRÆNN FUNDUR INGA BJARNA OG BÁRÐAR
DESCRIPTION:Þetta vestnorræna dúó heldur tónleika í Hannesarholti laugardaginn 10. nóvember. Dúóið skipa þeir Ingi Bjarni Skúlason á píanó og hinn færeyski Bárður Reinert Poulsen á kontrabassa. Þeir spila iðulega saman með tríói Inga Bjarna\, sem nýverið gaf út plötuna „Fundur“. Tónlistin er undir áhrifum frá þjóðlögum og jazzi. Á þessum dúó tónleikum munu þeir nálgast lög af plötunni á ferskan hátt. Lögin verða jafnframt tengd saman með frjálsum spuna þar sem allt getur gerst! \nEnglish:\nThis West Nordic duo will play at Hannesarholt on the 10th of November. The duo consists of Ingi Bjarni Skúlason from Iceland on piano\, and Bárður Reinert Poulsen from the Faroe Islands on double bass. They often play together in a trio which recently released the recording „Fundur“. The music is under the influences of jazz and folk music. On this duo concert they will perform songs from the new album with a fresh approach. Furthermore\, the songs will be connected with free improvisations where anything can happen! \nUmsagnir: \n„Ingi Bjarni Skúlason’s creativity is to be admired\, and his bassist and drummer have clear empathy with his writing. This is emotionally-conceived piano trio music to focus on and savour – an engaging ‘fundur’\, for sure.“ –  London Jazz News \n„Det er nordisk jazz af den smukkeste slags. Ingi Bjarni bruger sin lyriske åre til at skabe nogle melodier\, hvor det nordiske jazztonesprog er så rent og behageligt som en varm kilde i Island.“ – JazzNyt \nVeitingastofur Hannesarholts eru opnar fram á kvöld og geta gestir pantað borð í kvöldmat að tónleikum loknum. Ingi Bjarni leikur dinnertónlist undir borðum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vestnorraenn-fundur-inga-bjarna-og-bardar/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ingibjariduo.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR