BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20230901T200000
DTEND;TZID=UTC:20230901T210000
DTSTAMP:20240411T162813Z
CREATED:20240411T162813Z
LAST-MODIFIED:20240411T162813Z
UID:10000921-1693598400-1693602000@hannesarholt.is
SUMMARY:Exotísk tónlist frá Brasilíu\, Argentínu\, Frakklandi og öðrum ímynduðum löndum
DESCRIPTION:Exotísk tónlist frá Brasilínu\, Argentínu\, Frakklandi og öðrum ímynduðum lendum leikin af engum öðrum en Hilmari Jenssyni á gítar\, Olivier Manoury á bandoneon og Nicolasi Moreaux á kontrabassa. \nÁ tónleikum EXOTIC MUSIC heyrum við verk sem flest eru sjaldheyrð á djasstónleikum\, en um leið er djassinn tónmálið sem tónlistarmennirnir þrír nota til að spila af fingrum fram.\nVerkin eftir Olivier eru flest samin fyrir kvikmyndir en Nicolas kemur hér einnig fram sem tónskáld. Hilmar og Nicolas eru tengdari djassheiminum en Olivier frekar tangó og latnesk-amerískri tónlist. Þeir bjóða upp á ævintýraferð til ímyndaðra tónlistarlanda\, stíllinn er ekki fyrirfram ákveðinn og stemning augnabliksins ræður ferðinni. \nOlivier Manoury\, bandóneonleikari (f. 1953) er löngu kunnur hér á landi og í Evrópu sem bandóneonleikari\, tónskáld og útsetjari. Hann hefur samið tónlist fyrir kvikmyndir\, leikhús og danssýningar\, spilað inn á fjölda geisladiska auk þess að leika á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu\, Suður-Ameríku og Asíu. Olivier hefur spilað á Íslandi í meira en 30 ár m.a. með hljómsveitinni Le Grand Tango ásamt Eddu Erlendsdóttur\, Auði Hafsteinsdóttur\, Geirþrúði Ásu Guðjónsdóttur\, Þórunni Ósk Marínósdóttur\, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Richard Korn. Hann hefur einnig spilað með með Agli Ólafssyni\, Tómasi R. Einarssyni\, Kjartani Valdemarssyni og Kordo strengjakvartettinum. \nHilmar Jensson\, gítar (f 1966) er einn fremsti djassgítarleikari Íslands. Hann stundaði nám við FIH tónlistarskólann á Íslandi frá 1982 og síðan frá 1991 í Berklee College of Music í Boston. Hann hefur komið fram og hljóðritað í fjölmörgum útsetningum og upptökum á yfir 50 hljómplötum. Hann hefur spilað í 35 löndum með tríói sínu „TYFT“\, AlasNoAxis frá Jim Black\, MadLove frá Trevor Dunn\, Mogil\, Outhouse\, BMX og fleiri. Hann er einn af stofnendum Kitchen Motors\, íslenskrar plötu-útgáfu\, hugveitu og listasamtaka. \nNicolas Moreau\, kontrabassaleikari\, (f 1973) hefur verið eftirsóttur bassaleikari í París í mörg ár. Góð þekking hans á djassmenningu og verkum er ástæðan fyrir því að hann er valinn til þess spila með hinum ýmsu hljómsveitum og einleikurum. (Tigran Hamasyan\, Jeff Ballard\, Chris Cheek\, Jorge Rossy\, Baptiste Trotignon\, Bill McHenry\, Jeremy Udden. Robert Stillman\, Dan Tepfer\, Pedro Martins). Nicolas er einnig tónskáld og hefur gefið út þrjár plötur með hljómsveit sinni í París. Hann býr nú og starfar á Íslandi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/exotisk-tonlist-fra-brasiliu-argentinu-frakklandi-og-odrum-imyndudum-londum/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/exotisktonlist.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20230902T120000
DTEND;TZID=UTC:20230902T170000
DTSTAMP:20240411T162627Z
CREATED:20240411T162627Z
LAST-MODIFIED:20240411T162627Z
UID:10000920-1693656000-1693674000@hannesarholt.is
SUMMARY:Ingibjörg Dalberg - Við vötnin
DESCRIPTION:Viðfangsefni sýningarinnar er að mestu tengt vötnum hér á landi\, sjó\, stöðuvötnum\, tjörnum eða ám og lækjum. Vatnið sem undirstaða alls lífs hér á jörð. Lómur syndir með unga á kyrrlátu vatninu og jaðrakan veður í ró sinni og buslar. Smágerð maríuerla speglar sig í polli á meðan kríurnar leika sér og daðra hátt yfir Tjörninni. Bjarthegri\, eftirlætis flækingsfuglinn er sem fyrr á ferð við vötnin. Annar á heimleið til Hegraness með viðkomu í vörmum læk\, á meðan hinn sér sjálfan sig á spegilsléttu heiðarvatni einhvers staðar upp til heiða. Gróður jarðar er einnig ríkjandi á sýningunni\, einkum sá sem vex villtur við vötnin. Þrjú óhlutbundin málverk eru á sýningunni sem rugla vel upp í \,\,rýminu”. Öll málverkin eru unnin með olíu á striga utan myndin af Heklu og þau óhlutbundnu sem gerð eru með akríllitum á striga. \nMyndlistarnám hefur Inga sótt í Englandi 1989 National Diploma Found. Higher Ed. Art and Design. London\, og 1988 Hull College of Further Ed. A Level Art. England. Síðar sumarönn í Frakklandi 1993 École des BeauxArts –París auk fjölmargra námskeiða á Íslandi t.d. við Myndlistaskólann í Reykjavík\, Myndlistarskóla Kópavogs og Listabraut FB. Annað myndlistartengt nám er BA próf í sagnfræði og listasögu frá Háskóla Íslands 2010 og var viðfangsefni lokaritgerðar hennar \,\,Brot úr sögu smámynda á Íslandi. Upphaf og endalok 1770-1840” tengt órannsökuðum anga í sögu myndlistar hér á landi. \nMeð hléum hefur Inga starfað við listmálun og vinnur hún ýmist við stór óhlutbundin verk til jafns við fígúratívar myndir. Einkum eru það andlitsmyndir/portret með áherslu á raunsæi sem hafa verið megin viðfangsefni undnfarin ár. Sýningin er aðgengileg á opnunartímum Hannesarholts frá 11:30-16:00 alla daga nema sunnudaga og mánudaga og stendur til 20.september. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ingibjorg-dalberg-vid-votnin/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/vidvoetnin.avif
END:VEVENT
END:VCALENDAR