BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231016T200000
DTEND;TZID=UTC:20231016T210000
DTSTAMP:20240411T161401Z
CREATED:20240411T161401Z
LAST-MODIFIED:20240411T161401Z
UID:10000915-1697486400-1697490000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kyrrð útgáfutónleikar
DESCRIPTION:Kyrrð – Útgáfutónleikar \nPíanóleikarinn og tónskáldið Einar Bjartur Egilsson flytur lög af plötunni sinni Kyrrð ásamt Chrissie Telmu Guðmundsdóttur fiðluleikara og Hrafnhildi Mörtu Guðmundsdóttur sellóleikara föstudaginn 6.október kl.20. Breiðskífan Kyrrð kom út í fyrra og eru þetta síðbúnir útgáfutónleikar. Einnig verða leikin eldri verk Einars af plötunni Heimkoma. \nÁheyrendur verða leiddir í ferðalag gegnum landslag tilfinninganna – frá auðum vegum sorgarinnar til mikilfenglegs útsýnis háfjallanna. Tónlistin er oft draumkennd en spannar vítt svið\, allt frá hinu einfalda yfir í dramatíska hápunkta. Þótt ferðalagið sé oft strembið er vonin aldrei langt undan. \nEinar Bjartur er virkur sem píanóleikari og meðleikari hérlendis\, spilar reglulega með ýmsum listamönnum og kórum. Hann hefur einnig samið tónlist fyrir nokkrar stuttmyndir og gaf út breiðskífuna Heimkoma árið 2015 þegar hann bjó í Hollandi. Einnig hefur hann gefið út plötur með einleiksverkum fyrir píanó.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kyrrd-utgafutonleikar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/kyrrd.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231019T180000
DTEND;TZID=UTC:20231019T190000
DTSTAMP:20240411T160141Z
CREATED:20240411T160141Z
LAST-MODIFIED:20240411T160141Z
UID:10000910-1697738400-1697742000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Jasminu og Özru
DESCRIPTION:Kvöldstund í Hannesarholti fimmtudaginn 19.október með mæðgunum Jasminu Vajzovic og Özru Crnac. Jasmina kom til Íslands fyrir tuttugu árum\, sem flóttamaður\, ásamt foreldrum sínum. Hún er innflytjandi\, flóttakona\, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda. Jasmina fæddist í Bosníu og Hersegóvínu og bjó þar sem barn á meðan stríðið geisaði í landinu á árunum 1992-1995. Hún greinir frá upplifun sinni af því búa við stríðsástand og hvernig er að vera barn á flótta í sínu eigin landi. Hún lýsir ástandinu og þeim erfiðleikum sem hún og fjölskylda hennar þurftu að fara í gegnum á þessum tíma sem flóttamenn og greinir frá þeim mótandi áhrifum sem þessi átakanlega lífsreynsla hafði á hana. \nAzra Crnac\, annars kynslóðar innflytjandi\, klínískur atferlisfræðingur og síðast en ekki síst dóttir Jasminu segir frá reynslu sinni af því að vera fædd og uppalin á Íslandi með foreldra sem flúðu stríð. Fjallað verður sérstaklega um persónulega sem og faglega reynslu Özru í móttöku flóttabarna í helstu stofnunum landsins og hvar þau standa í samanburði við innfædda.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-jasminu-og-ozru/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/JasminaAzra.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231020T200000
DTEND;TZID=UTC:20231020T210000
DTSTAMP:20240411T155045Z
CREATED:20240411T155045Z
LAST-MODIFIED:20240411T155045Z
UID:10000909-1697832000-1697835600@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - The Piano Alchemy - Alessandra Toni og Kiann
DESCRIPTION:// English below // \nTónleikar tveggja píanista sem eru langt að komnir í Hannesarholti föstudaginn 20.október kl.20\, Alessöndru Toni og Kianns. Hlé er milli flutnings hvors um sig. \nAlessandra Toni er ítalskur píanisti\, tónskáld sem flytur gjarnan nýklassíska tónlist og tónlist sem höfðar til ólíkra hópa (crossover music). Hún býr sem stendur í Vínarborg\, en tónlist hennar einkennir djúp ástríða fyrir tónlist sem fer yfir landamæri tónlistartegunda og fléttar saman eiginleika nýaldartónlistar og kvikmyndatónlistar. Tónlist Alessöndru sýnir einstaka blöndu hennar af melódískri fegurð\, tilfinningalegri dýpt og sögu sem snertir. \nAlessandra hóf tónlistarnám barn að aldri í hinum virta Giuseppe Verdi tónlistarskóla í Mílanó. Þorsti í þekkingu og skiling á mannsheilanum leiddi hana í frekara nám til hliðar við tónlistina og hún lauk doktorsprófi í erlendum tungumálum og meistaragráðu í sálfræði og taugavísindum. Auk þess er hún söngkona og lagahöfundur\, sem tók þátt í pop/elektrónísku senunni í heimalandinu. \nÍ janúar 2023 var hún uppgötvuð af ítalsk-persneska píanistanum og tónskáldinu Kiann\, sem hefur notið heimsathygli\, en hann framleiðir plötur hennar. Í maí síðastliðnum fékk Alessandra samning við ítalska útgáfufyrirtækið INRI Classic og gaf út sína fyrstu plötu\, “The Best Chapter.” \nKiann er ítalsk-persneskur píanisti\, tónlistarframleiðandi og tónskáld. Hann býr í Vínarborg og semur tónlist sem snertir fólk. Hann setti af stað tónlistarverkefni sitt 2014 og náði eyrum fjölda fólks með því að skilgreina tónlist sína út frá framúrstefnulegri í að blanda og sameina tónlistartegundir. Verk hans eru nýtt í sjónvarpsserium meðal annars af austuríska sjónvarpinu ORF. Úrvarpssöðvar eins og Radio Klassik leika tónlist hans. Hann hefur átt í samstarfi með Bösendorfer píanóframleiðandanum frá 2019. \nEfnisskrá Kianns er stór og telur m.a. lög af stúdíoplötu\, live plötu\, píanóeinleik\, aríum\, samstarfsverkefni með rússneska fiðluleikaranum Yury Revich og heimstónlistarverkefni með suður afríska a cappella tríóinu Insingizi. \nKiann hefur haldið tónleika víða um heim\, meðal annars í óperuhúsi Caíró\, Stafræna Leikhúsinu í Dubai\, á opnunarhátíðum í Istanbul\, Bellapais alþjóðlegri tónlistarhátíð á Kýpur og víðar. \nFlutningur hans og tónverk ná hlustandanum á ferðlag sem brúar tónlistargreinar og mörk á milli þeirra. Einbeitni hans í að endurskoða og endurskapa hina nýklassísku grein býður hlustendum tækifæri til að upplifa í ríkulegum mæli melódíuna á alveg nýjan og heillandi máta. \n// English // \nThe Piano Alchemy is a concert in Hannesarholt on Grundarstigur 10 on Friday October 20th by two pianists who have come a long way\, Alessandra Toni and Kiann. \nAlessandra Toni is an Italian pianist\, composer\, and performer of neoclassical and crossover music. Currently based in Vienna\, her artistic journey has been defined by a deep-rooted passion for music that transcends genres\, weaving together elements of new age and cinematic compositions. Alessandra’s music showcases her unique blend of melodic beauty\, emotional depth\, and captivating storytelling. \nShe embarked on her musical odyssey in her early childhood and studied at the prestigious Giuseppe Verdi Conservatory in Milan. Driven by a thirst for knowledge and a desire to understand the intricate nuances of the human mind\, Alessandra also dedicated herself to the academic journey alongside her musical pursuits. She is a Ph.D. in foreign languages and obtained a master’s degree in psychology and neuroscience. Moreover\, she is a singer and a songwriter\, who worked and played on pop/electronic music projects\, too. \nIn January 2023\, her talent was discovered by the internationally renowned Italian-Persian pianist and composer Kiann\, who also produced her debut album and with whom she works for their parallel project of piano duo. \nIn May 2023\, Alessandra Toni signed with the Italian record label INRI Classic for her first record “The Best Chapter”\, distributed by Universal Music Group. It was anticipated by the first single “Brook of Lies”. \nKiann is an italian-persian pianist\, keyboardist\, music producer and composer of neoclassical and modern crossover music. Currently based in Vienna\, Kiann writes music\, that touches people. Initiating his musical project in 2014\, he reached a vast number of people by defining his own sound through his unique approach and innovative way of combining and connecting genres. His work has been featured in television productions among others by the national Austrian broadcaster ORF. Radio Stations such as Radio Klassik or Lounge FM often airplay his music. Since 2019\, he has been collaborating with the worldwide renowned Austrian piano manufacturer Bösendorfer. \nHis vast and versatile repertoire includes songs from a studio album\, a live album\, piano solos\, arias\, collaborative works with the Russian violinist Yury Revich and a world music project with the South African a cappella trio Insingizi. \nKiann has had the privilege to play at prestigious venues and festivals such as Cairo Opera House\, Theatre of Digital Art Dubai\, various season openings in Istanbul\, Bellapais international music festival in Cyprus and many others. \nHis performances and compositions will take you on a journey that bridges genres and boundaries. His dedication to reviving and reinventing the neoclassical genre offers audiences a chance to experience the richness of melodies in an entirely new and captivating way.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-the-piano-alchemy-alessandra-toni-og-kiann/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/pianoalchemy.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231021T140000
DTEND;TZID=UTC:20231021T150000
DTSTAMP:20240411T154820Z
CREATED:20240411T154820Z
LAST-MODIFIED:20240411T154820Z
UID:10000908-1697896800-1697900400@hannesarholt.is
SUMMARY:Uppsigling syngur til heiðurs Jónasi Árnasyni á 100 ára fæðingarafmæli hans
DESCRIPTION:Uppsigling mætir í Hannnesarholt laugardaginn 21.október kl.14 og syngur lög Jónasar Árnasonar með gestum\, í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu hans á þessu ári. Textar á tjaldi og allir geta sungið með. Frítt inn. \nHér að neðan getur að líta lýsingu á félagsskapnum Uppsiglingu\, með þeirra eigin orðum: \nHvað er Uppsigling? \nSöngfélagið Uppsigling er óformlegt félags fólks sem hefur gaman af að syngja með frjálslegu sniði. Við komum saman annan hvern föstudag yfir veturinn og syngjum okkur til ánægju við eigin undirleik. Flestir eru úr Reykjanesbæ\, en einnig fólk úr Sandgerði\, Garði\, Vogum og fáeinir af höfuðborgarsvæðinu. \nOftast syngjum við saman í Skátaheimilinu í Keflavík en af og til á hjúkrunarheimilum eða í heimahúsum söngfélaga. Það mæta á bilinu 10 – 25 manns í senn sem er ágætur fjöldi fyrir hópsöng af þessu tagi. \nTilgangurinn með félaginu er að fólk fái tækifæri til að syngja saman\, þjálfast í einföldum samsöng\, læra lög og texta og hafa af því gaman. Á sama hátt tækifæri fyrir hljóðfæraleikara að halda sér í þjálfun og þróa sinn stíl. Einnig að halda lífi í gömlum lögum og textum sem margir eru búnir að gleyma og heyrast of sjaldan. \nJafnan er leikið með á gítara\, mandólín\, bassa\, ýmis ásláttarhljóðfæri\, stundum harmóniku og stöku sinnum fiðlu. Við sitjum gjarna í hring og syngjum saman með textamöppur við hönd\, sem geyma gömul vinsæl dægurlög\, þjóðlög og einnig frumsamið efni. Til dæmis eru margir textar eftir Jónas Árnason\, Sigurð Þórarinsson\, Jóhannes úr Kötlum\, Ása í Bæ og Ásgeir Ingvarsson. \nVið byrjum venjulega að syngja upp úr kl. 20 og syngjum í 2 – 3 klukkustundir með kaffihléi og spjalli. Hver og einn velur lag sem hópurinn syngur – valið gengur hringinn\, stundum tvo hringi. Þetta er lýðræðislegt val þar sem smekkur allra þátttakenda er virtur. Áfengi er ekki haft um hönd. Engin félagsgjöld eru\, en fullorðnir greiða kaffi- og húskostnað þau kvöld sem þeir mæta\, u.þ.b. 800 krónur fyrir kvöldið. \nUppsigling heldur ekki tónleika en við förum stundum út á meðal fólks og syngjum fyrir það og með því í senn\, einkum með eldri borgurum. Höfum tekið þátt í Ljósanótt\, skemmtikvöldum félagasamtaka og afmælissamkvæmum félagsmanna. Við förum stöku sinnum í aðra landshluta\, svo sem á Vestfirði og Suðurland og syngjum þar gjarna með heimafólki. \nUppsigling hefur starfað frá 1995. Forveri Uppsiglingar var Söng- og skemmtifélagið Samstilling\, sem starfaði með líkum hætti í Reykjavík 1984 – 1993. Það var heldur stærra félag og var sungið á hverju mánudagskvöldi á veturna\, síðustu árin í Hljómskálanum. Þar var byrjað að safna söngtextum í möppu og fjölfalda fyrir félagsmenn. Fólk kom með handskrifaða eða prentaða texta sem hópurinn prófaði. Þau lög sem féllu fólki í geð fóru síðan í möppuna og hún þykknaði með árunum. \nUppsigling byrjaði með þessa möppu frá Samstillingu en hefur síðan bætt verulega við og hafa hjón í félaginu sett allt textasafnið smekklega upp í tölvu\, u.þ.b. 500 texta. Lagavalið endurspeglar áhuga og smekk þeirra sem hafa sungið og starfað mis lengi tímabil sem telur bráðum 4 áratugi. Þar fer mest fyrir dægurlögum\, aðallega frá tímabilinu 1950-1980 (m.a. textar sem fáir þekkja lengur) og nokkuð er um þjóðlög og fáein baráttulög. Nokkra texta og lög hafa félagsmenn gert sjálfir og ber þar einkum að nefna Ásgeir Ingvarsson sem starfaði með Samstillingu þar til hann lést um 1990. Úr okkar hópi má nefna textaskáldið Harald N. Kristmarsson og söngvaskáldið Ólaf Sigurðsson (hann var í South river band).
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/uppsigling-syngur-til-heidurs-jonasi-arnasyni-a-100-ara-faedingarafmaeli-hans/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/uppsigling.avif
END:VEVENT
END:VCALENDAR