BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240118T150000
DTEND;TZID=UTC:20240118T170000
DTSTAMP:20240411T144633Z
CREATED:20240411T144633Z
LAST-MODIFIED:20240411T144633Z
UID:10000885-1705590000-1705597200@hannesarholt.is
SUMMARY:Sara Oskarsson - málverkasýning opnun - Ístaka
DESCRIPTION:Sara Oskarsson opnar málverkasýningu sína í Hannesarholti fimmtudaginn 18. janúar kl.15-17. \nÁ sýningunni sem nefnist ÍSTAKA eru verk eftir Söru unnin á striga og panel með olíu og vaxi. Verkin eru úr nýrri borgar-seríu innblásin af dýnamíkinni hjá Tjörninni í Reykjavík. \nTitill sýningarinnar vísar til ístöku á tjörninni sem fór fram í Reykjavík á fyrri hluta síðustu aldar. Ísinn var notaður í íshúsin í Reykjavík og til að ísa fisk fyrir siglingar með glænýjan fisk. \nÍstaka var erfiðisvinna í kulda og trekki. Ísinn var högginn þar sem að hann var tærastur og bestur og síðan sprengdur frá ísbrúninni með járnkörlum. Íshellunum var svo raðað á sleða sem hestar drógu að geymslum íshúsa. \nVar þetta allt saman hið kalsamasta verk og erfitt enda vont að ná haldi á blautum ísnum. Jakarnir voru vegnir upp á skörina með ísstöngum og áfram á sleðana. Hestar siluðust í átt að litlu steinbryggjunni\, eftir henni upp tjarnarbakkann og síðan á ákvörðunarstað. Þetta var oft hið tafsamasta ferðalag því ísstykkin vildu velta af sleðunum. \nÍshúsið Herðubreið sem stendur við tjörnina hýsir nú Listasafn Íslands. \nSara sem er fædd Reykjavík og á ævilangar minningar þaðan gerir tjörnina og umhverfi að viðfangsefni sínu og líkir starfi og viðleitni málarans við ákveðna “ístöku”. \nAð fanga augnablik\, stemmningu\, hugmyndir\, birtu og sál – að skapa eitthvað úr nærumhverfi sínu við hin ýmsu skilyrði. Að fanga það sem er hvikult. Sýnd veiði en ekki gefin. \n____ \nSara Oskarsson fæddist árið 1981 í Reykjavík og ólst að hluta til upp í Skotlandi. Hún útskrifaðist með B.A. gráðu í listmálun frá Edinburgh College of Art í Skotlandi árið 2012 og hefur starfað sem listmálari í meira en tvo áratugi. \nSara hefur haldið fjölmargar einkasýningar og einnig tekið þátt í mörgum samsýningum. \nFjallað hefur verið um verkin hennar í Telegraph dagblaðinu í Bretlandi og á Arte.Tv í Frakklandi\, Þýskalandi og Austur Evrópu. \nVerkin hafa selst til listaverkasafnara um allan heim; meðal annars til Bretlands\, Írlands\, Frakklands\, Danmörku\, Indlands\, Bandaríkjanna\, Hollands og Ástralíu. Árið 2013 hlaut verk eftir Söru tilnefningu til Art Gemini Prize -verðlaunanna í Bretlandi. \nSara starfar sem listamaður í fullu starfi og er með vinnustofu á Hverfisgötu 14 í Reykjavík. \nwww.saraoskarsson.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sara-oskarsson-malverkasyning-opnun-istaka/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/Saraoskarsson.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240120T183000
DTEND;TZID=UTC:20240120T203000
DTSTAMP:20240411T144420Z
CREATED:20240411T144420Z
LAST-MODIFIED:20240411T144420Z
UID:10000884-1705775400-1705782600@hannesarholt.is
SUMMARY:Vegan veisla Hannesarholts og Flóru veisluþjónustu
DESCRIPTION:Meistarakokkarnir Sindri og Sigurjón hjá Flóru veisluþjónustu töfra fram margrétta veganveislu laugardaginn 20.janúar 2024 í Hannesarholti. Á matseðlinum er meðal annars \nRauðrófu tartar\, ristuð sólblómafræ\, piparótar krem og grillað súrdeigsbrauð.\n–\nÍslenskir tómatar\, yuzu krem\, basil og tómatseyði.\n–\nVillisveppa aranchini\, Sveppa krem\, steikt grænkál og valhnetur.\n–\nWellington með graskeri og pistasíum\, Sveppur fylltur með lauksultu\, grænn aspass og confit elduð kartafla og sveppasósa.\n–\nSúkkulaði og heslihnetufondant\, bakað smjördeig\, salt karamella og jarðaberja ís.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vegan-veisla-hannesarholts-og-floru-veisluthjonustu/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Veisla Flóra veisluþjónusta
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/veganveisla.avif
END:VEVENT
END:VCALENDAR