BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250409T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250409T220000
DTSTAMP:20251006T113226Z
CREATED:20241218T163910Z
LAST-MODIFIED:20251006T113226Z
UID:10001139-1744228800-1744236000@hannesarholt.is
SUMMARY:Níels er Napoleon
DESCRIPTION:Hver var Napoleon? Hver er Níels? Níels er Napoleon. \n„Níels er Napoleon“ er lífleg leiksýning og óhefðbundin vínsmökkun. Láttu leiða þig í töfrandi ferðalag um söguslóðir Napóleons þar sem þú kynnist keisaranum í gegnum keiminn. Tres amusant og tres charmant leiksýning úr smiðju Gunnars S. Jóhannessonar í meðförum Níelsar. \nNíels Girerd er hálfur Frakki sem þráir það eitt að verða heill. Í þessari bráðfyndnu sýningu setur Níels sig í hlutverk franskasta manns sögunnar\, sem var þó ekki franskur. Níels túlkar fátæka föðurlandssinnan\, ástríðufulla elskhugann\, hershöfðingjann\, keisarann og útlagann. Níels Thibaud Girerd er Napoleon \nVið finnum keiminn af hafi\, púðri\, löðrungi\, kynlífi og Korsíku í gegnum vín keisarans. Í þessari vínsmökkun fá áhorfendur að bragða á ljúffengu frönsku víni og heyra fánýtan fróðleik um konungsfólk\, byltingarsinna og samferðafólk Napoleons í þessari veglegu vínsmökkun. \nEinnig verður hægt að koma sér í réttu stemninguna með franskri óvissuferð í borðstofunni á fyrstu hæð fyrir sýningu. Athugið að panta þarf matinn á tix.is og borðhald hefst kl. 18:00. \n„Si vous escomptez avoir du succès dans le monde\, promettez tout\, ne donnez rien.“  (Ef þér viljið ná árangri í þessum heimi\, skuluð þér öllu lofa og ekkert efna.) –  Napóleon I. keisari Frakka. \nNíels er Napoleon \nHöfundur: Gunnar S. Jóhannesson \nLeikstjóri: Gunnar S. Jóhannesson \nLeikari: Níels Thibaud Girerd \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/niels-er-napoleon/2025-04-09/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús,Vínsmakk
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/1920x1080-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250411T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250411T213000
DTSTAMP:20250404T102414Z
CREATED:20250221T130952Z
LAST-MODIFIED:20250404T102414Z
UID:10001127-1744401600-1744407000@hannesarholt.is
SUMMARY:AFLÝST Hljómsveitin Goldies & Johnny King: Alvöru country veisla!
DESCRIPTION:Johnny King mætir ásamt hljómsveitinni sinni Goldies með tónleika í fullri lengd\, þá fyrstu í mörg ár\, en tilefnið er meðal annars að fylgja eftir kvikmyndinni Kúreki norðursins: sagan af Johnny King eftir Andra Frey og Árna Sveins sem sýnd var í kvikmyndahúsum landsins og á RÚV í fyrra. Leikin verða bæði lög frá ferlinum eins og Lukku Láki og Tinarinn ásamt nýjasta smellinum Nútíma kúreki í bland við þekkta köntrí-slagara frá helstu stjörnum gullaldaráranna í country tónlist.\nHljómsveitina skipa:Johnny King – Gítar og söngurGuðný Lára Gunnarsdóttir – Ukulele og söngurStefán Örn Viðarsson – Píanó og söngurGuðmundur Andrés Reynisson – Trommur og söngurGuðmundur Pálsson – FiðlaHallur Guðmundsson – Bassi og söngur\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hljomsveitin-goldies-johnny-king-alvoru-country-veisla/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/logoGoldieslandscape-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250412T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250412T150000
DTSTAMP:20250411T162049Z
CREATED:20250411T162016Z
LAST-MODIFIED:20250411T162049Z
UID:10001159-1744466400-1744470000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman í Hannesarholti með Völu og Óskari
DESCRIPTION:Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 12.apríl með Völu og Óskari Loga.\n\nÓskar Logi er leiðtogi rokk­sveit­arinnar The Vinta­ge Cara­v­an\, sem hann stofnaði 11 ára gam­all en hann er gít­ar­leik­ari\, söngv­ari\, texta- og laga­höf­und­ur. Valdís Eiríksdóttir\, Vala\, er fjölmiðla- og tónlistarkona sem hefur verið að gefa út vögguvísnaplötur fyrir börn.. og fullorðna auðvitað líka\, talsetja barnaefni og útvarpast.\nUm svipað leyti í fyrra tóku þau samsönginn að sér og komust svo að því nokkrum dögum seinna að laumufarþegi hafi verið með. Ári seinna hafa þau hann aftur með sér\, utan móðurkviðs og hvetja aðra til að hafa börnin með sömuleiðis. Lagalistinn kemur til með að henta börnum jafn sem fullorðnum.\n\nTextar á tjaldi og allir syngja með. Ókeypis inn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-volu-og-oskari/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/ValaogOskar.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250412T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250412T213000
DTSTAMP:20250411T150413Z
CREATED:20250310T154843Z
LAST-MODIFIED:20250411T150413Z
UID:10001134-1744488000-1744493400@hannesarholt.is
SUMMARY:French Connection
DESCRIPTION:FRENCH CONNECTIONAurore Pélier Cady SöngkónaNico Moreaux á KontrabassaKjartan Valdemarsson á PíanóOlivier Manoury á Bandoneon\, Accordina\nMargir Íslendingar tala frönsku. Franska hefur verið kennd í menntaskólum um langt skeið\, og margir íslenskir nemendur fara til Frakklands til að læra tónlist\, listir og bókmenntir. Lítill hópur Frakka býr á Íslandi. Þeir koma hingað heillaðir af fjöllunum\, fuglunum\, hestunum\, ástinni og einangruninni. Í farteskinu koma þau með þekkingu sína\, matargerð og tónlist. Þrír slíkir frakkar og Kjartan Valdemarsson verða með tónleika 12. apríl í Hannesarholti.\nNico er virtur djasskontrabassaleikari í Frakklandi\, sem hefur spilað og tekið upp með mörgum hljómsveitum og sínar eigin tónsmíðar. Tengsl hans við Ísland hófust árið 2009 þegar hann heimsótti vin sinn og kynntist píanistanum Agnari Má Magnússyni\, sem hann hefur unnið með í gegnum árin.\nAurore Pélier Cady er frá Frakklandi og rekur sætabrauðsbakaríið Sweet Aurora Reykjavík. Bakari að degi til\, söngkona að nóttu til – hún sameinar ástríður sínar í verkefninu Sugar Shake Sessions ásamt Nicolas Moreaux. Tónlistarferill hennar á rætur sínar í djassi\, en hún er óhrædd við að syngja soul- og þjóðlagatónlist. Rödd hennar er hlý\, mjúk og sálarrík – eins og hlýtt teppi.\nOlivier Manoury deilir lífi sínu milli Parísar og Reykjavíkur. Hann fæddist í Tulle í Frakklandi og lærði ensku og bókmenntir við Sorbonne-háskóla\, þaðan sem hann lauk meistaraprófi í nútímabókmenntum. Samhliða háskólanámi stundaði hann nám í Listaháskóla Parísar\, þar sem hann lagði stund á málaralist.Hann hefur haldið tónleika og tekið þátt í listahátíðum með hljómsveitum\, söngvurum og tangódönsurum víðsvegar um heim. Auk þess að semja og útsetja tónlist\, hefur Olivier samið fyrir kvikmyndir\, leikhús og ballett. Hann stofnaði Le Grand Tango\, ásamt eiginkonu sinni\, Eddu Erlendsdóttur\, og fjölda íslenskra tónlistarmanna á borð við Auði Aðalsteinsdóttur\, Bryndísi Höllu Gylfadóttur\, Helgu Þórarinsdóttur og Richard Korn. Einnig hefur hann unnið með Agli Ólafssyni að plötu með tangólögum sungnum á íslensku og tónsmíð fyrir barnakór sem var flutt á Barnamenningarhátíð í Hörpu.Olivier og Kjartan Valdemarsson hafa spilað saman síðan á tíunda áratugnum. Kjartan Valdemarsson stundaði nám við Berklee College of Music. Hann kennir við Tónlistarskóla FÍH og starfar einnig sem píanóleikari við Listdansskóla Íslands og fyrir Íslenska dansflokkinn. Kjartan hefur leikið með flestum íslenskum djasshljómsveitum en einnig í poppi\, til að mynda með hljómsveitinni Todmobile. Hann er eftirsóttur útsetjari og hefur unnið útsetningar fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stórsveit Reykjavíkur. Kjartan hefur samið tónlist fyrir sjónvarp\, m.a. fyrir Spaugstofuna og Áramótaskaupið.\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/french-connection/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/frenchconnection19x9.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR