BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250430T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250430T220000
DTSTAMP:20251006T113226Z
CREATED:20241218T163910Z
LAST-MODIFIED:20251006T113226Z
UID:10001142-1746043200-1746050400@hannesarholt.is
SUMMARY:Níels er Napoleon
DESCRIPTION:Hver var Napoleon? Hver er Níels? Níels er Napoleon. \n„Níels er Napoleon“ er lífleg leiksýning og óhefðbundin vínsmökkun. Láttu leiða þig í töfrandi ferðalag um söguslóðir Napóleons þar sem þú kynnist keisaranum í gegnum keiminn. Tres amusant og tres charmant leiksýning úr smiðju Gunnars S. Jóhannessonar í meðförum Níelsar. \nNíels Girerd er hálfur Frakki sem þráir það eitt að verða heill. Í þessari bráðfyndnu sýningu setur Níels sig í hlutverk franskasta manns sögunnar\, sem var þó ekki franskur. Níels túlkar fátæka föðurlandssinnan\, ástríðufulla elskhugann\, hershöfðingjann\, keisarann og útlagann. Níels Thibaud Girerd er Napoleon \nVið finnum keiminn af hafi\, púðri\, löðrungi\, kynlífi og Korsíku í gegnum vín keisarans. Í þessari vínsmökkun fá áhorfendur að bragða á ljúffengu frönsku víni og heyra fánýtan fróðleik um konungsfólk\, byltingarsinna og samferðafólk Napoleons í þessari veglegu vínsmökkun. \nEinnig verður hægt að koma sér í réttu stemninguna með franskri óvissuferð í borðstofunni á fyrstu hæð fyrir sýningu. Athugið að panta þarf matinn á tix.is og borðhald hefst kl. 18:00. \n„Si vous escomptez avoir du succès dans le monde\, promettez tout\, ne donnez rien.“  (Ef þér viljið ná árangri í þessum heimi\, skuluð þér öllu lofa og ekkert efna.) –  Napóleon I. keisari Frakka. \nNíels er Napoleon \nHöfundur: Gunnar S. Jóhannesson \nLeikstjóri: Gunnar S. Jóhannesson \nLeikari: Níels Thibaud Girerd \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/niels-er-napoleon/2025-04-30/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús,Vínsmakk
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/1920x1080-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250502T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250502T220000
DTSTAMP:20251006T113226Z
CREATED:20241218T163910Z
LAST-MODIFIED:20251006T113226Z
UID:10001144-1746216000-1746223200@hannesarholt.is
SUMMARY:Níels er Napoleon
DESCRIPTION:Hver var Napoleon? Hver er Níels? Níels er Napoleon. \n„Níels er Napoleon“ er lífleg leiksýning og óhefðbundin vínsmökkun. Láttu leiða þig í töfrandi ferðalag um söguslóðir Napóleons þar sem þú kynnist keisaranum í gegnum keiminn. Tres amusant og tres charmant leiksýning úr smiðju Gunnars S. Jóhannessonar í meðförum Níelsar. \nNíels Girerd er hálfur Frakki sem þráir það eitt að verða heill. Í þessari bráðfyndnu sýningu setur Níels sig í hlutverk franskasta manns sögunnar\, sem var þó ekki franskur. Níels túlkar fátæka föðurlandssinnan\, ástríðufulla elskhugann\, hershöfðingjann\, keisarann og útlagann. Níels Thibaud Girerd er Napoleon \nVið finnum keiminn af hafi\, púðri\, löðrungi\, kynlífi og Korsíku í gegnum vín keisarans. Í þessari vínsmökkun fá áhorfendur að bragða á ljúffengu frönsku víni og heyra fánýtan fróðleik um konungsfólk\, byltingarsinna og samferðafólk Napoleons í þessari veglegu vínsmökkun. \nEinnig verður hægt að koma sér í réttu stemninguna með franskri óvissuferð í borðstofunni á fyrstu hæð fyrir sýningu. Athugið að panta þarf matinn á tix.is og borðhald hefst kl. 18:00. \n„Si vous escomptez avoir du succès dans le monde\, promettez tout\, ne donnez rien.“  (Ef þér viljið ná árangri í þessum heimi\, skuluð þér öllu lofa og ekkert efna.) –  Napóleon I. keisari Frakka. \nNíels er Napoleon \nHöfundur: Gunnar S. Jóhannesson \nLeikstjóri: Gunnar S. Jóhannesson \nLeikari: Níels Thibaud Girerd \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/niels-er-napoleon/2025-05-02/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús,Vínsmakk
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/1920x1080-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250503T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250503T150000
DTSTAMP:20250422T114357Z
CREATED:20250411T150151Z
LAST-MODIFIED:20250422T114357Z
UID:10001158-1746280800-1746284400@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman í Hannesarholti með Sigga og Ingibjörgu
DESCRIPTION:Syngjum saman í Hannesarholti er í höndum Sigga og Ingibjargar laugardaginn 3.maí kl.14. Textar á tjaldi og allar kynslóðir syngja með. Frítt inn.\n\nSiggi&Ingibjörg hafa starfað saman við tónleikahald\, tónsmíðar og í smiðjuvinnu með fólki á öllum aldri um langt árabil\, hlotið tilnefningar og verðlaun fyrir störf sín. Þar á meðal er 10 ára afmælislag tónlistarhússins Hörpu sem hópur 10 ára tónskálda samdi undir handleiðslu þeirra. Verkefnið hlaut Lúðurinn árið 2022 sem viðburður ársins. Þau unnu einnig að nýrri tónsmíð fyrir geimverur með stórum hópi grunnskólabarna á Íslandi árið 2023 – Sendum tónlist út í geim!\, ásamt tónlistarkonunni Sóleyju Stefánsdóttur og hönnunarteyminu ÞYKJÓ. Verkefnið hlaut tilnefninu til alþjóðlegu YAM tónlistarverðlaunanna árið 2023 sem verkefni ársins í flokki þátttökuverkefna. Þau vinna nú að frumsömdu efni og stefna á að gefa út sína fyrstu plötu saman á næsta ári.\nSiggi og Ingibjörg koma nú aftur til að syngja saman í Hannesarholti\, en síðast þurftu þau að streyma heim í stofu á Covid tímum. Þau eru spennt að taka á móti fólki og syngja saman í raunheimum enda ekkert sem jafnast á við samveru í tónlist. Efnisskráin er aðgengileg og skemmtileg fyrir söngunnendur á öllum aldri!\nwww.facebook.com/siggiogingibjorg\nSigurður Ingi Einarsson er lagahöfundur\, hljóðfæraleikari og tónlistarkennari. Hann lauk burtfararprófi á slagverk við FÍH auk þess að ljúka BA í skapandi tónlistarmiðlun við LHÍ 2014. Síðustu ár hefur hann verið iðinn við allskyns spilamennsku og kennslu. Eitt af stærstu verkefnum hans síðustu ár er tónsköpunarvinnusmiðjan Spunavélin sem hann bjó til og stýrir\, en einnig hefur hann sinnt tónlistar- og kennsluverkefnum fyrir Hörpu\, RÚV og Listahátíð. Í dag starfar Sigurður að hluta til sem slagverkskennari í Tónskóla Sigursveins. Sigurður er meðlimur í hljómsveitinni VAR sem gaf út plötuna Neverending year árið 2020. VAR hefur meðal annars spilað á nokkrum tónleikum í Japan\, auk þess að hafa spilað í Bandaríkjunum og á fjölmörgum tónleikum víða um Evrópu. Sigurður Ingi semur tónlist og texta undir eigin nafni og er von á hans fyrstu sólólpötu á þessu ári.\n\nIngibjörg Fríða Helgadóttir er sjálfstætt starfandi söngkona með fjölbreyttan bakgrunn í tónlist og hefur unnið að fjölda verkefna. Hún hefur lokið burtfararprófi bæði í klassískum söng og rytmískum söng ásamt BA prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands þar sem hún var skiptinemi um skeið í jazzdeild Sibeliusarakademíunnar í Helsinki. Síðustu ár hefur hún starfað við tónlist frá ýmsum hliðum. Hún hefur komið fram með atvinnukórum og kammerhópum í tónlistarflutningi og upptökum (m.a. Cantoeque Ensemble og Schola Cantorum)\, jazz- og popphljómsveitum\, sungið inn á teikni- og kvikmyndir\, komið fram á fjölskylduskemmtunum\, kennt börnum og ungmennum tónlist í vinnusmiðjum og einkatímum. Hún sinnir einnig stundarkennslu við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Ingibjörg Fríða er dagskrárgerðarkona og stýrir tveimur vinsælustu hlaðvörpum RÚV í flokki fjöskylduefnis\, Þjóðsögukistan og Í ljósi krakkasögunnar. Hún starfaði einnig sem fyrsti verkefnastjóri barnamenningar í tónlistarhúsinu Hörpu frá byrjun árs 2022 til ársloka 2024. Af útgefinni tónlist má nefna plötuna Konan í speglinum (2023) með dúettinum Ingibjargir og Jazzhrekkur (2023) með Leifi Gunnarssyni og Sunnu Gunnlaugsdóttur. Fyrir þá plötu hlaut Ingibjörg tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir söng ársins í djassi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-sigga-og-ingibjorgu/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/04/siggiogingibjorg.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250503T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250503T150000
DTSTAMP:20250422T120006Z
CREATED:20250422T115943Z
LAST-MODIFIED:20250422T120006Z
UID:10001161-1746280800-1746284400@hannesarholt.is
SUMMARY:MYRKRIÐ FRAMKALLAR LJÓSIÐ - Fríða Freyja Frigg Myndlistaropnun
DESCRIPTION:Fríða Freyja Frigg opnar sýninguna MYRKRIÐ FRAMKALLAR LJÓSIÐ í Hannesarholti laugardaginn 3. maí frá 14.00 til 16.00.\nUm sýninguna segir Fríða sér vera hugleikið hvernig áskoranir lífsins geta mótað okkur og stækkað. Að lífið sé alltaf að gera það sem er gott fyrir okkur þótt það sé ekki alltaf þægilegt. Það er áskorun að fylgjast með heimsmálunum og útlitið svart en undir niðri kraumar ljósið og margir eru að vakna til vitundar um það hver við erum. Allt spilar þetta saman myrkur og ljós. Þjáningin ýtir við okkur svo við getum horfst í augu við það sem má fara og hætt að bera fortíðina eða hugsanlega framtíð á bakinu. Við vorum ekki sköpuð til að vita á hverri stundu hvað er að gerast alls staðar á Jörðinni. Það er mikilvægt að við náum að huga að okkur sjálfum\, okkar innri friði sem hefur svo áhrif á þá sem eru nálægt okkur. Sköpunarkrafturinn býr í augnablikinu og þegar við náum að dvelja þar getum við skapað þann veruleika sem okkur dreymir um. Gott er að minna sig á að við erum hér og að huga að andardrættinum\, lífinu í líkamanum oft yfir daginn\, eða um leið og við finnum að við erum farin á tímaflakk eða í hugsanir sem þjóna okkur ekki lengur.\nSýningin er sölusýning og stendur til 24.maí. Hún er opin á opnunartímum Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16.\nÞetta er fjórtánda einkasýning Fríðu Freyju Frigg\, en hún hefur einnig haldið fjölda samsýninga hérlendis og erlendis. Verk Fríðu má einnig nálgast í ART67 gallerí á Laugarvegi 61 og í Artótek Borgarbókasafninu í Tryggvagötu.\nhttps://art67.is/frida-kristin-gisladottir/\nhttps://www.artotek.is/frida-freyja-frigg\nhttps://www.instagram.com/fridafreyja…\nhttps://www.facebook.com/share/16KHccGjf1/?mibextid=wwXIfr
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/myrkrid-framkallar-ljosid-frida-freyja-frigg-myndlistaropnun/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/04/FridaFreyjafyrirheimasidu.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR