BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250627T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250627T210000
DTSTAMP:20250912T112800Z
CREATED:20250627T085756Z
LAST-MODIFIED:20250912T112800Z
UID:10001184-1751054400-1751058000@hannesarholt.is
SUMMARY:Keltneskir sumarsöngvar: White Raven og Gerry O Connor
DESCRIPTION:**English below\nTónleikar tríósins White Raven í Hannesarholti föstudagskvöldið 27.júní kl.20.\nWhite Raven færir okkur til villtra Atlantshafsstranda\, friðsælu vatna\, áa og fjalla Írlands og Skotlands með keltnesku sumarsöngva prógrammi sínu. Írsk ástarljóð og vögguvísur\, sungin á gelísku\, minna á rómantík hlýju sumarnótta keltneska sumarsins. Við munum heyra þekktasta lag þríeykisins „Oft in the stilly night“ eftir Thomas Moore og tónsetningar ljóða WB Yeats til að mynda „The Stolen Child“\, „White Birds“ og „The song for wandering Aenghus“.\n“It don`t seem to matter what musical material White Raven reached out to or whether it was accompanied or not. Everything they touched seemed to turn to purest gold” – Michael Dervan\, Irish Times\n„When you think you have everything beautiful that can be done by the human voice…a new group adds another dimension“- Irish Examiner\n„a beautiful understated finesse and masterclass in ensemble and balance” – Birmingham Post\nhttps://open.spotify.com/artist/0NHsynkxhVhz1cBuAAteN0…\nhttps://www.whiteraven.info/cds/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/keltneskir-sumarsongvar-white-raaven-og-gerry-o-connor/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/09/kelt-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250628T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250628T150000
DTSTAMP:20250607T162139Z
CREATED:20250607T162139Z
LAST-MODIFIED:20250607T162139Z
UID:10001182-1751119200-1751122800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ný Íslensk Sönglög
DESCRIPTION:Í lok sumars verður tekin upp hljómplatan Ný íslensk sönglög. Markmið verkefnisins er að auka aðgengi hlustenda og flytjenda að nýrri íslenskri söngtónlist í þeirri von að auka útbreiðslu hennar. Þessir tónleikar eru hluti af undirbúningi og fjármögnun hljómplötunnar. Flutt verða söngverk eftir Elenu Postumi\, Finn Karlsson\, Högna Egilsson og Thomas Stankiewicz. Verið hjartanlega velkomin.\n\nFlytjendur:Áslákur Ingvarsson\, barítónKristín Sveinsdóttir\, mezzósópranElena Postumi\, píanó\n\n\nUm flytjendur:Áslákur Ingvarsson\, útskrifaðist frá Konunglegu konservatóríunni í Antwerpen 2022 og hefur síðan þá verið áberandi í íslensku tónlistarlífi ásamt því að afla sér reynslu erlendis. Hann hefur sungið stór óperuhlutverk eins og Fígaró í Rakaranum í Sevilla\, Belcore í Ástardrykknum\, Dr. Malatesta í Don Pasquale\, Leporello í Don Giovanni og Marcello La Boheme. Hér heima hefur hann komið fram með Sviðslistahópnum Óði\, Kammeróperunni\, Sambandinu Óperukompaní og á Óperudögum. Áslákur var tilnefndur Söngvari ársins á Grímunni 2024 fyrir hlutverk sitt í Póst-Jón. Hann hefur einnig komið fram á tónleikum\, tekið þátt í frumflutningi nýrra íslenskra tónverka. Áslákur þreytti frumraun sína í Evrópu í ágúst 2024 sem Dr. Malatesta í Don Pasquale.\nKristín Sveinsdóttir söng frá unga aldri í kórastarfi Langholtskirkju og lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2013. Ásamt kórnum Graduale Nobili söng Kristín á Biophilia plötu Bjarkar\, en að tónleikaferðalagi loknu hóf hún nám í klassískum söng við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Hún tók sér hlé frá námi til að syngja við óperustúdíóið Accademia del Teatro alla Scala í Mílanó\, þar sem hún kom reglulega fram sem einsöngvari á tónleikum og í ýmsum óperuuppfærslum. Helstu kennarar Kristínar hafa verið Harpa Harðardóttir\, Sigríður Ella Magnúsdóttir\, Margit Klaushofer og Janet Haney. Frá árinu 2020 hefur Kristín verið búsett á Íslandi og verið áberandi í íslensku tónlistarlífi. Hún er ein stofnenda Kammeróperunnar en starfar sem söng- og forskólakennari við Tónskóla Sigursveins meðfram söngverkefnum. Nú síðast söng Kristín hlutverk Cherubino í Brúðkaupi Fígarós í Borgarleikhúsinu\, frumflutti öróperuna Halfway Down eftir Elínu Gunnlaugsdóttur á Myrkum Músíkdögum í janúar og kom fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Ísland á Óperuveislu með Ólafi Kjartani í apríl.\nElena Postumi ólst upp í Róm á Ítalíu og hóf að spila á píanó þegar hún var fimm ára. Hún stundaði nám á píanó\, tónsmíði og túlkun listsöngs við Conservatorio di S. Cecilia í Róm og hélt svo áfram með nám sitt við Hochschule für Musik und Theater „Felix Mendelssohn-Bartholdy“ í Leipzig þar sem hún lauk mastersprófi í kammertónlist og doktorsprófi í túlkun klassískra sönglaga og hljómsveitarstjórnun. Sem píanisti hefur hún komið víða fram og unnið með kammersveitum og söngvurum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún hlaut verðlaun sem Besti meðleikari í söngkeppninni Lortzing í Leipzig. Ánægja hennar af söng leiddi til starfa við Íslensku óperuna og Nasjonale Opera í Bergen. Frá 2020-2023 starfaði hún við Staatstheater Darmstadt þar sem hún stjórnaði tónleikum og óperum. Verk hennar\, Becoming Luise Büchner\, var hluti af leikári Staatstheater Darmstadt 2022/23 og seldust upp 8 sýningar. Tónlist Elenu er lýst sem „nútímalegt tónmál sem sveiflast milli dægurtónlistar og avant-garde“. Elena hlaut styrkinn DAAD-scholarship of the interdisciplinary research center frá Háskólanum við Bielefeld árið 2019\, STIBET-doctorate styrkinn 2019-2020 og er um þessar mundir styrkhafi hjá Live Music Now e. V. Leipzig Fördergesellschaft. Elena starfar í dag sem kennari í túlkun klassískra sönglaga og „coach“ í ítalskri óperu við Akademie für Tonkunst í Darmstadt en er sömuleiðis í samstarfi við tónsmíðadeildina.\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ny-islensk-songlog/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/06/aslakurogkristin16x9-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250628T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250628T210000
DTSTAMP:20250627T090540Z
CREATED:20250627T090358Z
LAST-MODIFIED:20250627T090540Z
UID:10001185-1751140800-1751144400@hannesarholt.is
SUMMARY:Benjamín Gísli á einleiksferðalagi um Ísland - Hannesarholt
DESCRIPTION:Píanóleikarinnn Benjamín Gísli leggur af stað í tónleikaferðalag um Ísland dagana 19. til 29. júní. Þar mun hann leika eigin tónsmíðar í bland við íslenskar dægurlagaperlur í eigin útsetningum. Þann 28. júní heldur hann tónleika í Hannesarholti kl.20.\n\nBenjamín er einn af fremstu jazzpíanóleikurum landsins og hefur vakið athygli fyrir sinn lagræna stíl\, tilfinningaríka spilamennsku og fágaðan tón. Þótt hann sé jazzmenntaður nær tónlist hans langt út fyrir þá skilgreiningu—hún sameinar áhrif frá klassískri tónlist\, kvikmyndatónlist og spunakenndum köflum í anda Keith Jarrett. Fyrir hann er píanóið ekki bara hljóðfæri\, heldur leið til að kanna nýjar hugmyndir\, miðla tilfinningum og skapa tengingu við áheyrendur. Tónlistin hans er síbreytileg\, liggur einhverstaðar á milli forms og frelsis\, hefða og nýsköpunar.\n\nÍ vor lýkur hann mastersprófi frá hinum virta Tónlistarháskóla í Þrándheimi\, NTNU. Meðfram náminu hefur hann verið virkur í bæði norsku- og íslensku tónlistarsenunni\, meðal annars með Benjamín Gísli Trio\, Bliss Quintet\, Bento Box Trio og Tuva Halse Quintet. Árið 2023 sendi hann frá sér sína fyrstu plötu með tríóinu sínu\, Line Of Thought\, sem fékk frábærar viðtökur á erlendri grundu. Síðustu ár hefur tónlistin tekið hann víða um Evrópu\, þar sem hann kemur reglulega fram á stórum djasshátíðum og klúbbum.\n\nBenjamín var valinn nú á dögunum til þess að spila fyrir konungsfjölskylduna í Noregi í tengslum við opinbera heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta. Hann hefur einnig hlotið úthultun úr Menningarsjóði Árna Scheving\, sem veitt eru efnilegu íslensku jazz tónlistarfólki til framhaldsnáms erlendis. Benjamín er einn af stofnendum Fjordgata Records\, plötuútgáfu í Þrándheimi sem gefur út upprennandi jazz tónlistarfólk í Noregi.\n\nwww.benjamingisli.com\nhttps://open.spotify.com/artist/6G6SkXGRHcuzHhIeQDgMfS…\nhttps://www.youtube.com/watch?v=Q5aBRUp9PQc
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/benjamin-gisli-a-einleiksferdalagi-um-island-hannesarholt/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/06/503152726_1284206063712392_3595996975176998507_n-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR