BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250918T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250918T213000
DTSTAMP:20250604T155636Z
CREATED:20250604T155636Z
LAST-MODIFIED:20250604T155636Z
UID:10001180-1758225600-1758231000@hannesarholt.is
SUMMARY:Nani: Útgáfutónleikar
DESCRIPTION:Nani – Útgáfutónleikar \nNina Basdras (sópran) og Ásgeir Ásgeirsson (gítar) \nNani er safn vel þekktra grískra vögguvísa\, endurunnar fyrir rödd og gítar í hlýlegu\, hljóðrænu umhverfi. Lögin – bæði úr grískri þjóðlagaarfleifð og eftir ástsæl tónskáld Grikklands – hafa verið útsett og hljóðrituð með eitt skýrt markmið: að hljóma eins og einhver sé þarna við hliðina á þér og syngi þig í svefn. \nTónleikarnir marka útgáfu plötunnar\, sem varð til út frá reynslu sópransöngkonunnar\, Ninu Basdras\, af fyrstu mánuðum móðurhlutverksins\, þegar hún ól upp son sinn\, Ares Þór\, á milli tveggja menningarheima. Þessar vögguvísur urðu leið hennar til að halda tengslum við grískar rætur sínar\, deila menningu sinni með syni sínum og róa hann með tónlist og tungumáli. \nFlutningurinn fer fram í kyrrlátu umhverfi og býður áheyrendum – foreldrum\, börnum og tónlistarunnendum – að stíga inn í mildan hljóðheim mótaðan af minningum\, umhyggju og tímalausum takti vögguvísunnar. \nNina Basdras \nLýrískur sópran \nNina Basdras er grískur lýrískur sópran búsett í Reykjavík. Með bakgrunn í klassískum söng og leiklist í farteskinu færir hún tilfinningalega dýpt og dramatíska næmni inn í flutning sinn. \nHún er upprunalega frá Aþenu og stundaði nám í leiklist áður en hún sneri sér að klassískum söng. Hún hefur þjálfað og komið fram víðsvegar um Evrópu. Verk hennar spanna óperu\, listrænan söng og þverfaglegar sýningar þar sem hún sameinar rödd og sviðstækni á tjáningaríkann og náinn hátt. \nTónleikarnir í kvöld marka útgáfu Nani — djúpt persónulegrar plötu með grískum vögguvísum\, innblásinni af vegferð hennar inn í móðurhlutverkið. Með þessu verkefni kannar Nina minni\, menningarlega sjálfsmynd og hljóðláta kraft tónlistarinnar til að hugga\, tengja og halda hefðum á lífi. \nÁsgeir Ásgeirsson – gítarleikari og tónskáld \nÁsgeir Ásgeirsson er íslenskur gítarleikari og strengjaleikari með yfir 30 ára reynslu. Hann er fjölhæfur tónlistarmaður sem leikur popp\, rokk\, djass og heimstónlist og hefur komið fram með flestum fremstu tónlistarmönnum Íslands og fjölda alþjóðlegra listamanna\, þar á meðal Dave Weckl\, Guthrie Govan og Seamus Blake. \nÁsgeir lauk námi frá Tónlistarskóla FÍH árið 1999 og hélt áfram í djasstónlist við Conservatorium van Amsterdam. Hann hefur einnig stundað sérnám í strengjahljóðfærum og tónlistarmenningu Austurlanda\, m.a. í Grikklandi\, Tyrklandi\, Búlgaríu\, Íran og Jórdaníu. \nHann hefur gefið út fimm sólóplötur\, þar af tvær djassplötur með frumsömdu efni (Passing Through\, Tríó) og þrjár byggðar á þjóðlögum og samvinnu við tónlistarfólk frá Mið-Austurlöndum og Balkanskaganum (Two Sides of Europe\, Travelling Through Cultures\, Persian Path). Söngkonan Sigríður Thorlacius syngur á flestum verkanna. \nÁsgeir hefur komið fram á tónleikum víða um heim\, m.a. á Listahátíð í Reykjavík\, í Skandinavíu og í Jórdaníu\, og starfar með margvíslegum hópum\, m.a. Stórsveit Reykjavíkur\, Sinfóníuhljómsveit Íslands og eigin hljómsveitum eins og Skuggamyndum frá Býsans og djasstríóinu 6.6. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/nani-utgafutonleikar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/06/nina1920x1080-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250919T201500
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250919T220000
DTSTAMP:20250915T102125Z
CREATED:20250812T200605Z
LAST-MODIFIED:20250915T102125Z
UID:10001190-1758312900-1758319200@hannesarholt.is
SUMMARY:FLXS Cauda Collective
DESCRIPTION:Á fyrsta viðburði haustsins\, FLXS\, flytur Cauda Collective ásamt Pétri Eggertssyni efnisskrá innblásna af Flúxus-hreyfingunni. Latneska orðið „flúxus“ merkir flæði og var notað yfir óformlega hreyfingu listamanna sem spratt upp á sjöunda áratug 20. aldar.\nHreyfingin var alþjóðleg en náði aðallega til Vestur-Evrópu\, Bandaríkjanna og Japans. Flúxuslistamenn leituðust við að afmá mörk listar og daglegs lífs. Listin átti að vera sjálfsprottin og ferlið að sköpuninni skipti meira máli en sjálf útkoman. Flúxusverk urðu gjarnan til á tilraunakenndan hátt\, á skurðpunkti ólíkra listforma eða í formi svokallaðra uppákoma\, þar sem gjörningar voru gjarnan fluttir í almannarýmum.\nÍ íslenskri listasögu má víða greina flúxusáhrif\, s.s. í myndlist Dieters Roths og SÚM-hópsins og í tónleikahaldi á vegum tónlistarfélagsins Musica Nova. Á viðburðinum FLXS verður flutt blanda nýrra og eldri verka eftir tónskáld eins og Georg Brecht\, Alison Knowles\, Yoko Ono\, John Cage og Jennifer Walshe. Þá verður frumflutt nýtt verk eftir Pétur Eggertsson. Flytjendur eru Björk Níelsdóttir\, Pétur Eggertsson\, Sigrún Harðardóttir og Þórdís Gerður Jónsdóttir. Verkefnið er styrkt af starfslaunasjóði listamanna.\nMiðar
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/flxs-cauda-collective/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/09/1000015834.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250920T113000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250920T123000
DTSTAMP:20250917T151706Z
CREATED:20250917T150707Z
LAST-MODIFIED:20250917T151706Z
UID:10001210-1758367800-1758371400@hannesarholt.is
SUMMARY:BÓKVIT
DESCRIPTION:Velkomin á fyrsta BÓKVIT vetrarins í Hannesarholti laugardaginn 20.september 2025\, þar sem höfundar segja frá bókum sínum\, lesa uppúr þeim og selja þær jafnvel. Eftirfarandi rithöfundar ríða á vaðið með eftirtaldar bækur:\n\nSæunn Kjartansdóttir með GÁFAÐA DÝRIÐElísabet Kristín Jöklusdóttir með SJÁÐU MIG\, ÞAÐ ER EINA LEIÐIN TIL AÐ ELSKA MIGVigfús Bjarni Albertsson með bækurnar HVER VEGUR AÐ HEIMAN ER VEGUR HEIM og SÁR GRÆÐA SÁR.\n\nGengið inn frá Hljóðbergi. Aðgengi fyrir fatlaða. Ókeypis inn.Veitingahúsið á efri hæðinni opið að viðburði loknum.\n\n\nHannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur\, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu. Nú býður Hannesarholt rithöfundum að lesa uppúr bókum sínum á laugardögum kl.11.30-12.30 á eftirfarandi dagsetningum: 20.september\, 4.október\, 18.október\, 15.nóvember og 6.desember.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokvit-12/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/09/Bokvit20.09.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250920T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250920T150000
DTSTAMP:20250915T103014Z
CREATED:20240823T120615Z
LAST-MODIFIED:20250915T103014Z
UID:10001009-1758376800-1758380400@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman með Hörpu Þorvaldsdóttur
DESCRIPTION:Harpa Þorvalds stýrir Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 20. september kl.14. \nHarpa er verkefnastjóri list- og menningartengdra verkefna á Grunnskólaskrifstofu Skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og stýrir þar á meðal verkefninu Syngjandi skóli. Áður starfaði hún sem tónmenntakennari og kórstjóri við Laugarnesskóla í Reykjavík. Auk þess hefur Harpa stjórnað vikulegum söngstundum á Hrafnistu frá árinu 2018\, haldið utan um viðburðinn Syngjum saman í Hannesarholti á árum áður og er sjálfstætt starfandi tónlistarkona og meðlimur í hljómsveitinni Brek. \nTextar á tjaldi svo allir geta sungið með. Allar kynslóðir velkomnar. Ókeypis aðgangur
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-horpu-thorvaldsdottur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/Harpa-THorvalds-vinnumynd-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250920T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250920T223000
DTSTAMP:20250912T114308Z
CREATED:20250903T142033Z
LAST-MODIFIED:20250912T114308Z
UID:10001200-1758398400-1758407400@hannesarholt.is
SUMMARY:Dirt Talent Extrakt
DESCRIPTION:Hannesarholt kynnir með stolti tónleikakvöldið Dirt Talent Extrakt Í Hannesarholti þann 20. september næstkomandi.\nHljómsveitin mun spila inn haustið með krafti og stemningu\, ásamt gestasveitunum privatecult og Slacker Essentials.\nMiðaverð: 1.500 kr.Staðsetning: HannesarholtAldurstakmark: 18 ára● Húsið opnar kl. 20:00● Tónleikarnir hefjast kl. 21:00\nÁ barnum verður hægt að kaupa fjölbreytta drykki og hljómsveitir kvöldsins verða með varning til sölu út kvöldið.\nUm Hljómsveitirnar\nDirt Talent ExtraktDirt Talent Extrakt er rokkhljómsveit sem spilar hráa en þó fjölbreytta rokktónlist með grunge og þungarokksáhrifum. Lögin eru bæði þung og tilraunakennd sem passar við fjöruga og óútreiknanlega sviðsframkomu hljómsveitarmeðlima.\nprivatecultprivatecult er hávaða jaðarrokk hljómsveit stofnuð 2021. Eftir nokkrar meðlimaskiptingar stigu privatecult á svið 2023 og stefna á að skilja eftir sig sviðna jörð.\nSlacker EssentialsSlacker Essentials (eða Nauðsynjar Tossans) er þriggja manna hljómsveit sem er skipuð af Ísleifi (hann) á trommur\, Víf (hán) á bassa og fetlaborð og Fíónu (hún) á baritón gítar. Hljómsveitin skilgreinir sig sem einhverja bragðtegund af póst-pönki og / eða Alternative Rokki. Komið til þess að dansa\, gráta eða dansgráta.\n\nENGLISHHannesarholt proudly presents the concert night Dirt Talent Extrakt at Hannesarholt on September 20th.\nThe band will kick off the autumn season with energy and atmosphere\, joined by the guest acts privatecult and Slacker Essentials.\nTickets: 1\,500 ISKLocation: Hannesarholt Age limit: 18+Doors open: 20:00Show starts: 21:00\nAt the bar you’ll find a wide selection of drinks\, and throughout the evening the bands will have merchandise for sale.\nAbout the Bands\nDirt Talent ExtraktDirt Talent Extrakt is a rock band delivering raw yet versatile rock music\, heavily influenced by grunge and metal. Their songs range from heavy to experimental\, perfectly matching the band’s lively and unpredictable stage presence.\nprivatecultFormed in 2021\, privatecult is a noisy\, boundary-pushing rock band. After a few lineup changes\, they hit the stage in 2023 and aim to leave nothing but scorched earth behind.\nSlacker EssentialsSlacker Essentials (aka Nauðsynjar Tossans) is a three-piece band made up of Ísleifur (he) on drums\, Víf (they) on bass and pedals\, and Fíóna (she) on baritone guitar. The band describes their sound as a unique blend of post-punk and alternative rock. Come ready to dance\, cry—or dance-cry.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/dirt-talent-extrakt/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/09/tix-stor-banner-2.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR