BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260513T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260513T213000
DTSTAMP:20260530T172759
CREATED:20260421T154422Z
LAST-MODIFIED:20260421T154422Z
UID:10001290-1778702400-1778707800@hannesarholt.is
SUMMARY:Úr smiðju Umbru: Spákonan og skáldið
DESCRIPTION:Tónlistarhópurinn Umbra vinnur nú að tveimur stór verkefnum samhliða. Annars vegar er hópurinn að semja tónlist við Völuspá\, eitt merkasta kvæði íslands þar sem spákona lýsir sköpun heimsins\, falli hans og endurreisn. Hins vegar er unnið að verkefninu Tvær hliðar Hallgríms\, þar sem jöfnum höndum er tónsett úr veraldlegum og trúarlegum kvæðum Hallgríms Péturssonar. Veraldleg ljóð Hallgríms hafa lítið verið tónsett þrátt fyrir að vera magnaður spegill merkilegrar ævi og heimsmyndar sautjándu aldar. Við tónsmíðar sínar sækir Umbra innblástur í lagboða frá miðöldum\, varðveittar stemmur og þjóðlög fyrri alda. \nBæði verkefnin eru enn í sköpun og á þessum tónleikum gefst áhorfendum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í smiðjuna og heyra hluta verkanna í fyrsta sinn\, sem upptakt að stærri heild. \nLögð er rík áhersla á nánd við áhorfendur\, sem fá að kynnast sagnaarfi og kveðskap liðinna alda í gegnum tóna og tal. \nUm Umbru\nUmbra hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir einstakan hljóm og framúrskarandi útsetningar á þjóðlagatónlist. Hljómsveitin var stofnuð árið 2014 af fjórum tónlistarkonum og sameinar íslenska þjóðlagatónlist\, miðaldatónlist og frumsamdar tónsmíðar í tilfinningaríkum\, vandlega útfærðum flutningi. Hópurinn hefur komið fram á fjölmörgum hátíðum í Evrópu og Asíu og gefið út fimm plötur. Platan Solstitium frá 2018 var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ur-smidju-umbru-spakonan-og-skaldid/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/umbra13mai1920.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260515T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260515T213000
DTSTAMP:20260530T172759
CREATED:20260427T111400Z
LAST-MODIFIED:20260427T111400Z
UID:10001291-1778875200-1778880600@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-2/2026-05-15/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T150000
DTSTAMP:20260530T172759
CREATED:20260508T153528Z
LAST-MODIFIED:20260508T153528Z
UID:10001298-1778940000-1778943600@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum Saman í Hannesarholti með Jóhönnu Elísu
DESCRIPTION:Syngjum saman í Hannesarholti með Jóhönnu Elísu laugardaginn 16.maí kl.14.\nJóhanna Elísa er tónlistar- og leiðsögukona með fjölbreytta reynslu á sviði tónlistar\, meðal annars sem píanó- og söngkennari. Hún spilar reglulega fyrir ferðamenn og kynnir íslenska tónlist á skemmtilegan og lifandi hátt. Jóhanna hefur gefið út tvær plötur og er þekkt fyrir tæra og fallega rödd. Hún leggur áherslu á notalega stemningu þar sem áheyrendur taka þátt og njóta saman.\nTextar á tjaldi og allir syngja með. Enginn aðgangseyrir. Sem fyrr eru allar kynslóðir velkomnar.\nKaffihúsið á 1.hæðinni er opið bæði á undan og eftir söngstundinni\, frá kl.11.30-16.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-johonnu-elisu/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/IMG_1611-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T160000
DTSTAMP:20260530T172759
CREATED:20260508T121235Z
LAST-MODIFIED:20260508T153256Z
UID:10001297-1778940000-1778947200@hannesarholt.is
SUMMARY:Opnun - ÖR sýning Harpa Másdóttir
DESCRIPTION:ÖRsýning\nHarpa Másdóttir opnar myndlistasýningu í Hannesarholti undir yfirskriftinni Ör laugardaginn 16.maí kl.14-16. Sýningin Ör er persónuleg ferð þar sem minningar\, umbreyting og seigla fléttast saman í litum\, formum og áferð. Í verkum sínum tekst Harpa á við hið brothætta og sterka í senn; örin sem tíminn\, reynslan og lífið sjálft skilja eftir. Sýningin er áminning um að ör eru ekki aðeins vitnisburður um ofangreint\, heldur líka vitnisburður um það sem hefur gróið.\nSnerting skilur eftir ör.Fjarlægð líka.\nSýningin er sölusýning og stendur út mánuðinn. Hún er opinn á opnunartímum Hannesarholts\, miðvikudaga – laugardaga kl.11.30-16.00.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/opnun-orsyning-harpa-masdottir/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/BLEIKURK-KATKTUS.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T170000
DTSTAMP:20260530T172759
CREATED:20260428T110034Z
LAST-MODIFIED:20260428T110034Z
UID:10001294-1778947200-1778950800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sónötur fyrir fiðlu og píanó. Grieg\, Beach og Faure
DESCRIPTION:Á þessum tónleikum flytja þær Chrissie Telma Guðmundsdóttir\, fiðluleikari og Jane Ade Sutarjo\, píanóleikari\, fjölbreytt prógramm úr kammertónlist rómantíska tímabilsins. Á efnisskránni eru verk eftir Edvard Grieg\, Amy Beach og Gabriel Fauré\, þar sem rík tónlistartjáning\, ljóðrænar laglínur og kraftmikið samspil hljóðfæranna fá að njóta sín. \nJane Ade Sutarjo fæddist í Jakarta í Indónesíu. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni\, Marthalenu Sugito en hlaut siðan kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið\n2008. Hún hóf nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði á fiðlu hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttur og seinna hjá Peter Máté\, en Jane er sú fyrsta sem hefði lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla íslands.\nSíðan Jane kom til Íslands hefur hún verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi. Hún hefur komið fram sem einleikari\, meðleikari og í ýmsum kammertónlistarhópum. Hún spilaði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2011 og hélt debut tónleikana sína í Salnum í febrúar 2014. Hún hefur einnig tekið þátt í píanókeppnum bæði hér á Íslandi og erlendis. Hún hlaut 1. sæti í fimmtu EPTA píanókeppninni á Íslandi árið 2012.\nEftir að hún útskrifaðist frá LHÍ árið 2012 hefur hún kennt á píanó auk þess að starfa sem meðleikari. Sumarið 2017 lauk hún meistaragráðu frá Tónlistarháskóla Noregs (Norges Musikkhøgskole)\, þar sem hún lærði hjá Jens Harald Bratlie og Kathryn Stott. Einnig lærði hún á fortepíanó hjá Liv Glaser.\nNú starfar hún sem meðleikari við Menntaskóla í Tónlist og Listaháskóla Íslands. \nChrissie Telma Guðmundsdóttir lauk B.Mus gráðu í fiðluleik frá Listaháskóli\nÍslands vorið 2014 undir handleiðslu Auður Hafsteinsdóttir og Guðný\nGuðmundsdóttir.\nSama ár hlaut hún styrk frá Fulbright Program og hélt til Bandaríkjanna þar\nsem hún lauk M.M gráðu frá Arizona State University undir handleiðslu\nprófessors Danwen Jiang.\nChrissie er fullgildur Suzuki-fiðlukennari með fimm kennslustig\, lokið undir\nhandleiðslu Lilja Hjaltadóttir.\nHún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og\nSinfóníuhljómsveit Áhugamanna\, og er nú fastráðinn meðlimur\nSinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hún heldur reglulega einleikstónleika víðs\nvegar um landið.\nChrissie starfar sem Suzuki-kennari við Tónlistarskóli Kópavogs og er\njafnframt virk í íslensku tónlistarlífi með reglulegri þátttöku í tónleikum og\nfjölbreyttum tónlistarverkefnum \nSónata fyrir fiðlu og píanó no.3 Op.45 eftir E.Grieg\nI. Allegro molto appassionato\nII. Allegretto espressivo alla Romanza\nIII. Allegro animato \nRómansa fyrir fiðlu og píanó Op.23 eftir A.Beach \nSónata fyrir fiðlu og píanó No.1 Op.13 eftir G.Fauré\nI. Allegro molto\nII. Andante\nIII. Scherzo: Allegro vivo\nIV. Finale: Allegro quasi presto \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sonotur-fyrir-fidlu-og-piano-grieg-beach-og-faure/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/chrissie19201080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260516T213000
DTSTAMP:20260530T172759
CREATED:20260427T111400Z
LAST-MODIFIED:20260427T111400Z
UID:10001292-1778961600-1778967000@hannesarholt.is
SUMMARY:Sálmurinn um blómið
DESCRIPTION:Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí. \nSýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. \nVerkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir\, oft með kostulegum tilburðum\, að fylgja þeirri þroskasögu. \nJón Hjartarson\, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu\, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar \n„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum\, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri\, Lilla Hegga\, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“\n— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)\n„ Töfrakarlinn talar“\n„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “\n„Sobbeggi\, Lillahegga og Mammagagga\, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum\, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.\n— Þorgeir Tryggvason (mbl) \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/salmurinn-um-blomid-2/2026-05-16/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/saganblomid1920x1080.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR