BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260924T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261015T160000
DTSTAMP:20260927T230418Z
CREATED:20260927T155535Z
LAST-MODIFIED:20260927T230418Z
UID:10001345-1790236800-1792080000@hannesarholt.is
SUMMARY:Guðný M.Magnúsdóttir ... vasi allan daginn
DESCRIPTION:… vasi allan daginn\n„Ánægjulegt að sýna á mínu fyrrverandi heimili“\n\nGuðný M Magnúsdóttir heldur sýningu á keramikvösum í Hannesarholti frá 24.september til 15.október.\n„Á sýningunni eru fjórir hópar vasa í stofugluggunum sem standa fyrir hringrás dagsins\, morgun\, hádegi\, síðdegi og kvöld þar sem hver gluggi á sér litaskala sem tengist tíma dagsins. Síðustu árin á mínum listræna ferli hef ég einbeitt mér að gerð verka sem tengja myndlist og hönnun í kerjum\, skálum og vösum … að vera trú þeirri hugsun minni um að hvert verk\, hver hlutur sé áhugaverður einn og sér\, veki forvitni og gleði og því að brúa skil skálar\, vasa og skúlptúrs\, til þess að nota og njóta. Allir vasarnir á sýningunni eru renndir á rennibekk\, handmálaðir og hábrenndir.Sýningin kemur í framhaldi sýningar minnar … skál á dag og er nokkurskonar lok hringrásar þar sem stór hluti vinnu minnar síðustu ára hefur einkennst af gerð nytjalistar … og einnig það að ég ásamt fjölskyldu minni bjó á Grundarstíg 10\, Hannesarholti\, í 17 ár og eignaðist þar mína fyrstu vinnustofu í kjallara hússins.“ GMMGuðný hefur haldið 16 einkasýningar hér á landi frá árinu 1980 og 3 í Helsinki en auk þess tekið þátt í fjölmörgum samsýningum frá 1976 hér á landi\, á Norðurlöndunum\, í Evrópu\, Kanada\, Bandaríkjunum\, Japan og Kóreu.\nSýningin er aðgengileg á opnunartíma Hannesarholts\, miðvikudaga\, fimmtudaga\, föstudaga og laugardaga milli 11.30 og 16.00. Listakonan tekur á móti gestum staðnum milli 2 og 4 föstudaga og laugardaga á meðan á sýningunni stendur.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gudny-m-magnusdottir-vasi-allan-daginn/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/09/813606995_1722554793210848_8563208264267205451_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261013T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261013T213000
DTSTAMP:20261007T112650Z
CREATED:20261007T112650Z
LAST-MODIFIED:20261007T112650Z
UID:10001349-1791921600-1791927000@hannesarholt.is
SUMMARY:Tiktúra
DESCRIPTION:Þann 13. október næstkomandi gefur Tiktúra út sína fyrstu smáskífu. Reyndar eru þær tvær: Í pokahorninu og Krummafótur\, en þær verða gefnar út samhliða á öllum helstu streymisveitum. Af þessu tilefni ætlar Tiktúra að halda tónleika í Hannesarholti og flytja lögin af þessum plötum og hver veit nema hægt verði að fjárfesta í þeim á föstu formi!Komið og fagnið með okkur.\nDjasskvintettinn Tiktúra var stofnaður síðla árs 2024 en meðlimir hans eru Ásgeir Kjartansson á gítar\, Kormákur Logi Bergsson á píanó\, Moritz Christiansen á tenor saxófón\, Hjálmar Carl Guðnason á bassa og Þorsteinn Jónsson á trommur. Hljómsveitin leikur frumsamda blöndu af nútímadjass og sálartónlist með sterkum áhrifum úr þjóðlaga- og leikhústónlist en tónlistin flakkar í orku allt frá ljúfum\, einlægum og seiðandi tónum upp í ákafa og kraftmikla óreiðu.\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tiktura-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/09/tiktura1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261014T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261014T213000
DTSTAMP:20260526T162633Z
CREATED:20260526T162633Z
LAST-MODIFIED:20260526T162633Z
UID:10001300-1792008000-1792013400@hannesarholt.is
SUMMARY:Raddir að austan
DESCRIPTION:Einstök tónlistarupplifun í Hannesarholti þar sem áheyrendum er boðið í ferðalag um menningarheima austur-Evrópu og Anatólíu. Þrjú ólík en áhrifamikil verk munu hljóma en á efnisskránni eru sellósónata eftir Dmitri Shostakovich\, sellósónata eftir Nikolai Myaskovsky og verkið Four Cities eftir Fazıl Say. \nÍ sellósónötu Shostakovich skiptast á angurværð og kaldhæðni\, dramatískar tilfinningar sem eru einkennandi fyrir tónskáldið. Myaskovsky leikur sér að hlýjum og rómantískumi tónum\, þar sem sellóið fær að njóta sín í ríkum og ljóðrænum línum. Four Cities eftir Fazıl Say er hins vegar litrík og nútímaleg tónsmíð sem sækir innblástur í ólíkar borgir og menningarheima\, með rytmískum og kraftmiklum þáttum. Þetta verður kvöld þar sem fortíð og nútíð mætast\, með tónum sem snerta hjartað og kveikja í ímyndunaraflinu. \nAnna Þórhildur Gunnarsdóttir lauk B.Mus gráðu í píanóeinleik frá Listaháskóla Íslands\, undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur og MA-gráðu í píanóeinleik við Conservatorium Maastricht hjá prof. Katia Veekmans. Anna hefur hlotið margvíslega styrki\, þ.á.m. úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar og Henrïette Hustinx-hvatningarverðlaunini. Í dag starfar Anna sem píanókennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar\, ásamt kennslunni leggur hún stund á Suzuki píanókennaranám sem og Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Þórdís Gerður Jónsdóttir er sellóleikari sem hefur þá sérstöðu að leika jöfnum höndum sígilda tónlist og jazz. Sígildan sellóleik nam hún við Listaháskóla Íslands á árunum 2014-2017 og í konunglega danska konservatoríinu í Árósum\, en þaðan lauk hún meistaragráðu sumarið 2021. Þórdís lauk burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2015 en í náminu lagði hún áherslu á spuna og tónsmíðar. Hún er stofnmeðlimur kammerhópsins Cauda Collective\, sem hefur vakið eftirtekt fyrir frumlegt verkefnaval og útvíkkun á hlutverki hins klassíska flytjenda. Þórdís er hjúkrunarfræðingur\, með viðbótardiplómu í lýðheilsuvísindum og meistaragráðu í bráðahjúkrun. Hún starfar í hlutastarfi við skólahjúkrun á vegum Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðins við Menntaskólann við Hamrahlíð. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/raddir-ad-austan/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/raddiradausta1920x1080.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261015T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261015T213000
DTSTAMP:20260619T154909Z
CREATED:20260619T154909Z
LAST-MODIFIED:20260619T154909Z
UID:10001313-1792094400-1792099800@hannesarholt.is
SUMMARY:MIMRA í Hannesarholti
DESCRIPTION:Tónlistarkonan MIMRA stígur á stokk ásamt hljómsveit á tónleikum í Hannesarholti fimmtudagskvöldið 15.október. Að þessu sinni kemur söngkonan fram með einvala liði tónlistarkvenna sem hver og ein hafa skapað sér nafn innan jazz og poppsenu landsins. Hljómsveitina skipa Anna Gréta Sigurðardóttir á píanó\, Ingibjörg Elsa Turchi á bassa og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur. Langt er síðan MIMRA hefur komið fram á tónleikum með eigið efni og er því um einstakan viðburð að ræða sem fæstir ættu að láta fram hjá sér fara. \nTónlist MIMRU fer víða og má kalla art popp eða „alternative“ þjóðlagapopp. Hljóðheiminum hefur verið lýst sem einstaklega aðlaðandi\, fáguðum og háleitum. Hann er tilfinningaríkur og ljóðrænn með einstaka dýpt og í víðáttumiklu rými. Metnaðarfull og áhugaverð blanda af óhefðbundinni þjóðlagatónlist með áhrifum raftónlistar\, djass og daðri við kvikmyndatónlist. Samofið og sameinað í eina heild.\nMIMRA er hugarfóstur söngkonunnar og lagahöfundarins Maríu Magnúsdóttur. MIMRA steig fram á sjónarsviðið með útgáfu plötunnar Sinking Island árið 2017 sem hún tók upp og hljóðblandaði samhliða námi sínu í Goldsmiths University of London. Finding Place kom svo út árið 2022 með þróaðari tónsköpun og heildarmynd. Síðan þá hefur MIMRA haldið áfram að heilla hlustendur með tónlist sinni. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mimra-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/06/Mimra1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261017T113000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261017T123000
DTSTAMP:20261007T144939Z
CREATED:20261007T144939Z
LAST-MODIFIED:20261007T144939Z
UID:10001353-1792236600-1792240200@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókvit - Þórarinn Eldjárn
DESCRIPTION:Þórarinn Eldjárn les uppúr nýútkomnum bókum sínum\, útgefnum af Gullbringu bókaforlagi í Hljóðbergi.\nÚRVAL SMÁSAGNA inniheldur hátt á fjórða tug smásagna sem Kristján Þórður Hrafnsson hefur valið úr fyrri smásagnasöfnum.\nEITT OG ANNAÐ geymir yfir eitt hundrað nýjar stökur\, erindi eða kviðlinga undir ýmsum bragarháttum. Teikningar eftir Hugleik Dagsson prýða bókina.\nTÓLF ÞULUR hefur Þórarinn ort handa börnum\, foreldrum þeirra og öðrum aðstandendum. Myndir eru eftir Lindu Ólafsdóttur\nÖll velkomin. Ókeypis inn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokvit-thorarinn-eldjarn/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókakynning,Bókaspjall,Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/Copy-of-Bokvit.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261017T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261017T150000
DTSTAMP:20261013T151607Z
CREATED:20260817T234014Z
LAST-MODIFIED:20261013T151607Z
UID:10001322-1792245600-1792249200@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman í Hannesarholti með Hörpu Þorvalds
DESCRIPTION:Syngjum saman í Hannesaarholti með Hörpu Þorvalds. Streymt verður frá söngstundinni.\nHarpa er verkefnastjóri list- og menningartengdra verkefna á Skóla og frístundasviði Reykjavíkurborgar og stýrir þar á meðal verkefninu Syngjandi skóli og stendur fyrir árlegum samsöng í öllum leik- og grunnskólum landsins á Degi íslenskrar tónlistar. Áður starfaði hún sem tónmenntakennari og kórstjóri við Laugarnesskóla í Reykjavík. Auk þess hefur Harpa stjórnað vikulegum söngstundum á Hrafnistu frá árinu 2018\, haldið utan um viðburðinn Syngjum saman í Hannesarholti á árum áður og er sjálfstætt starfandi tónlistarkona og meðlimur í hljómsveitinni Brek.Textar á tjaldi svo allir geti sungið með.\nAllar kynslóðir velkomnar. Frítt inn.\nSyngjum saman er í boði Hollvinafélags Hannesarholts.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-horpu-thorvalds-6/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/Harpa-THorvalds-vinnumynd-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261017T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261017T160000
DTSTAMP:20261018T111421Z
CREATED:20261007T112223Z
LAST-MODIFIED:20261018T111421Z
UID:10001348-1792245600-1792252800@hannesarholt.is
SUMMARY:Opnun: HVALALÍF - Sóley Dröfn Davíðsdóttir
DESCRIPTION:Hvalalíf\nSóley Dröfn Davíðsdóttir heldur sýninguna Hvalalíf í Hannesarholti frá 14. október til 4. nóvember.\nÍ verkunum birtast blíðir risar hafdjúpanna sem tjá sig með söng og annast afkvæmi sín af alúð. Þeir eru táknmynd frelsis og krafts\, en jafnframt hlýju og visku\, dulvitundar og kyrrðar í iðrum hafsins. Marglaga myndir eins og sálarlífið sjálft; vefnaður í olíu þar sem blæbrigði og þversagnir renna saman í eitt.Sóley hefur haldið fimm einkasýningar hérlendis og eina í Kína\, auk þess að taka þátt í samsýningu í Þýskalandi.\nSýningin er sölusýning og er opin á opnunartímum Hannesarholts\, miðvikudaga-laugardaga kl.11.30 – 16.00.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/opnun-hvalalif-soley-drofn-davidsdottir/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/Hrar-hvalur-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261017T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261017T173000
DTSTAMP:20261013T150500Z
CREATED:20261013T150500Z
LAST-MODIFIED:20261013T150500Z
UID:10001358-1792252800-1792258200@hannesarholt.is
SUMMARY:Bríet\, blómin og Hannes
DESCRIPTION:Leikhús Dagskráin „Bríet\, blómin og Hannes“ til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur\, kvenréttindakonu\, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á 170 ára afmælisári hennarSýningin er samvinnuverkefni Leikhúslistakvenna 50 + og Hannesarholts.Dagskráin er um eina klst.ÞátttakendurÁsdís Skúladóttir leikstjóri\, skrifaði handritið ásamt hópnumEdda Þórarinsdóttir leikkonaHelga E. Jónsdóttir leikkonaÞórey Sigþórsdóttir leikkonaLaufey Sigurðardóttir fiðluleikari\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/briet-blomin-og-hannes-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/09/BrietBlominHannes.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR